Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2003, Page 29
FIMMTUDAGUR 27. MARS 2003
29
M.
agasm
Jet Lit og DMX í hlutverkum sínum í Cradle 2 the Grave,
Cradle 2 the Grave:
Olíklegir félagar
Bardagahundurinn Jet Li og
rapparinn DMXleika aöalhlutverk-
in I Cradle 2 the Grave, sem frum-
sýnd verður hér á landi um helgina.
Myndin segir frá glæpaforingja,
Tony Fait (leikinn af DMX), sem
stjórnar götugengi sínu með harðri
hendi. Hann kemst þó í hann krapp-
an þegar hann og félagar hans ræna
verðmætum svörtum demöntum
sem útsendari Taívan-stjómar að
nafni Su (Jet Li) hefur elt heims-
hornanna á milli.
Su reynir einnig að hafa hendur í
hári fyrrum félaga síns, Ling, sem
tekur upp á því að ræna dóttur
Faits til að reyna að skipta á henni
og demöntunum verðmætu.
Góö róð dýr
Þegar það fréttist að Fait hefur
falið demantana hjá félaga sínum
falla þeir í hendur annars glæpafor-
ingja (leikinn af Chi McBride) og
eru því góð ráð dýr fyrir Fait sem
hefur nú glatað einu leiðinni til að
endurheimta dóttur sína.
Fait leitar því liðsinnis Sus og
saman vinna þeir bæði að því að
koma demöntunum í réttar hendur
og dóttur Fait aftur til síns heima.
Jet Li kom fyrst fram á
sjónarsviðið í Bandaríkjunum í
Lethal Weapon 4 og hann gerði
einnig garðinn frægan ásamt
Aaliyah í Romeo Must Die. Hann
þykir verðugur arftaki Jackie Chan
enda margfaldur bardagameistari í
sinu heimalandi, Kína. DMX hefur
aðallega verið þekktur fyrir tónlist
sína og lítið komið nálægt
kvikmyndaleik áður.
Aðrar frumsýningar:
Endurkoma
MacDowells
Hinar tvær frumsýningarmyndir
helgarinnar eru Crush annars vegar
og National Security hins vegar.
í Crush má sjá Andie MacDowell
snúa aftur í sviðsljósið eftir nokkra
fjarveru en heldur lítið hefur farið
fyrir henni síðan að hún lék í
Groundhog Day og Four Weddings
and a Funeral snemma á 10. ára-
tugnum. í Crush er fylgst með þrem-
ur vinkonum sem eru allar ein-
hleypar og því enn samrýndari fyr-
ir vikið. Ein þeirra, Kate
(MacDowell), er skólastýru í ensk-
um stúlknaskóla sem allt í einu tek-
ur upp á því að sofa hjá 25 ára
dreng, sem er fyrrum nemandi í
þokkabót. Allt fer í háaloft í vin-
kvennahópnum og grípa þarf til ör-
þrifaráða til að bjarga vinskapnum.
ÍNational Security má fylgjast
með tveimur seinheppnum mönn-
um, þeim Earl og Hank (Martin
Lawrence og Steve Zahn), sem eiga
það eitt sameiginlegt að þeim var
hafnað í inntökuprófi lögreglunnar
í Los Angeles. Þeir gerast þvi örygg-
isverðir og í starfmu komast þeir á
snoðir um umsvifamikið smygl og
ákveða að rannsaka málið, eins og
sönnum lögreglumönnum sæmir.
Áður en þeir vita af eru bæði
bófarnir og sjálf lögreglan á hælum
þeirra og útkoman því skrautleg.
Dómar
The Pianist ★★★★
„Eftirminnileg og sterk kvikmynd"
-HK
Nói albínói ★★★★
„Nói albinói stóö undir vœntingun-
um sem ég gerói til hennar og vel
það. Vil ég meina að hún sé eitthvert
merkasta innleggið i íslenska kvik-
myndagerð. “
-HK
Adaptation *★★
„Sterk og skemmtileg kvikmynd“
-HK
8 Femmes ★★★
„8 konur eru dásamleg blanda af
sat-íru, söngleik og gamaldags saka-
málasögu í anda Agöthu Christie. “
-SG
Solaris ★★★
„Soderbergh hefur hingað til farið
eigin leióir og gerir það enn. “
-HK
25th Hour ★★★
„25th Hour er áleitin mynd og ein sú
besta frá Lee í langan tíma. “
-SG
Maid in Manhattan ■*★
„Söguþráðurinn skiptir hér engu
máli. Viö vitum allt um leióarlok,
þaö er leiðin sjálf sem á aö vekja
áhuga okkar. “
-SG
The Hunted ★
„Það vantar samhengi i söguþráð-
inn og vantar tilflnnanlega aö aðal-
persónur lifni við og verði alvöru-
fólk."
-SG
Náðu þér í
eintak í næstu
verslun !!
599 kr
VIKAN ASKRIFTARSIMI SGSS
SElSftl:-.'-
-
uikan
... í taJzttímann
^ ■' *
HEILSA OG FEGURÐ ■
SKEMMTILEG VIÐTÖL ■
TÍSKA OG ÚTLIT ■
UPPELDI OG HEIMILI ■
STJÖRNUSPÁ ■
LJÚFFENGAR UPPSKRIFTIR ■
*
*
i
1