Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2003, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003
Fréttir
Fjölgun í flestum deildum Háskólans:
Nemum á háskólastigi hefur
fjölgaö um 66% á 5 árum
Nemendum í háskólum á ís-
landi hefur fjölgaö mikið á milli
ára samkvæmt tölum frá Hagstofu
íslands. Rúmlega 14 þúsund nem-
endur stunduöu nám á háskóla-
stigi síöastliöið haust en það svar-
ar til fjölgunar upp 13,5% frá ár-
inu 2001. Nemendum í framhalds-
skólum landsins fjölgaði einnig og
voru í byrjun skólaárs rúmlega 21
þúsund.
Konur í meirihluta
Konur eru nú í meirihluta í öll-
um deildum Háskóla íslands nema
í verkfræðideild. Þær eru hins
vegar í miklum meirihluta í
hjúkrunarfræði en sérstakt átak
hefur verið innan Háskólans til
þess að reyna að jafna kynjahlut-
Pap spýtti grill-
vökva og kveikti í
Lögreglumenn höföu í nógu að
snúast um helgina - m.a. vegna
þriggja smábruna sem tilkynnt
var um. í einu tilvikinu voru lag-
anna verðir kallaðir að húsi í
höfuöborginni þar sem álitið var
aö hópur fólks væri að bera eld
að bensíni á flösku. Þegar betur
var að gáð reyndist þarna vera
ölvuð kona ásamt karlmanni og
gerðu þau sér leik að því að
spýta grillvökva og bera síðan eld
að. Þegar lögregla kom á vettvang
var fólkið búið með grillvökvann
og var því ekki aöhafst fleira.
í Breiðholti var tilkynnt um
eld í sjónvarpi en íbúar náðu að
slökkva áður en illa fór. Lögregla
vill minna fólk á að skilja sjón-
vörp ekki eftir í gangi þegar farið
er að heiman eða gengið til náöa.
Þriðji bruninn reyndist síðan
ímyndun ein en tilkynnt var um
reyk á þaki húss í Grafavogi. Við
eftirgrennslan kom í ljós að bak-
arí er í húsinu og því engin
hætta á ferðum. -aþ
Artúnsbrekkan í Reykjavík var
vettvangur fjölda árekstra í gær. Hér
lenti fólksbifreiö aftan á annarri en
meiösl voru óveruleg.
fallið í þessum tveimur deildum.
Af þeim 910 stúdentum sem skráð-
ir voru í verkfræði siðastliðið
haust voru aðeins 237 konur. Hins
vegar voru á sama tíma skráðir
436 nemendur í hjúkrun en af
þeim voru aðeins átta karlmenn.
Samt sem áður er það helmings-
fjölgun frá fyrra ári þar sem fjórir
af þessum átta hófu nám í byrjun
Stórleikarinn Viggo Mortensen
er staddur hér á landi ásamt ung-
um syni sínum en þeir ætla að
vera hér í fríi í nokkra daga. Hinn
danskættaði leikari er væntanlega
þekktastur fyrir hlutverk sitt sem
Aragron i myndunum um Hringa-
dróttinssögu sem hafa notið mik-
illa vinsælda á síöustu árum en
auk þess hefur hann leikið í
september síðastliöins.
Af öllum þeim sem stunduðu
háskólanám á þessu skólaári voru
konur um 63%.
Heildarfjöldi nemenda hefur
einnig aukist í öllum deildum frá
haustinu 2001 nema í guðfræði- og
tannlæknadeild þar sem hún hef-
ur staðið í stað og í læknadeild
þar sem nemendum hefur fækkað
lítillega. Þá hefur aðsókn nýstúd-
enta dregist lítillega saman í við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla
íslands. Þessa fækkun má að
nokkru leyti rekja til verulega
aukins framboðs á sambærilegu
námi í öðrum háskólum landsins
en þegar á heildina er litið eru
langflestir háskólanemar landsins
skráðir í einhvers konar við-
myndum á borð við 28 Days, A
Perfect Murder og Psycho.
Á mánudagskvöldið brá Viggo
sér á Astro þar sem hann sat einn
fram eftir kvöldi í rólegheitum.
Starfsmenn og aðstandendur
skemmtistaðarins sögðu hann
hafa verið hinn skemmtilegasta í
viðmóti. Hann var leiddur um
staðinn og að sögn leist honum
skipta- og markaðsgreinar eða ríf-
lega 2700 stúdentar. Af þeim er um
helmingur við nám í Háskóla ís-
lands.
Það vekur einnig athygli að af
alls 342 nýskráðum nemendum í
raunvísindadeild Háskólans er að-
eins 191 kona samanborið við 259
frá árinu áður. Aðsókn nýstúd-
enta hefur þar dregist saman sam-
anborið við árið á undan en þrátt
fyrir það hefur fjölgað lítillega í
deildinni.
Eins og áður sagði hefur há-
skólastúdentum fjölgað um ríflega
13% frá haustinu 2001. Nemendum
hefur fjölgað ört síðustu ár eða um
66% frá árinu 1997 og allt útlit er
fyrir að þeim haldi enn áfram að
fjölga á komandi árum.
það vel á að hann lofaði starfs-
mönnum að láta sjá sig þar næstu
helgi.
Samkvæmt heimildum DV mun
Mortensen dvelja hér á landi
þangað til um helgina en tímann
ætlar hann að nota til þess að
slaka á ásamt syni sínum og til
þess að skoða landiö.
Sjónvarp og áskrift aö DV
Unga konan í hringnum var á ferö í
Kringlunni fyrir helgi. Hún hefur unn-
iö 14 tomma United sjónvarp frá
Sjónvarpsmiöstööinni og þriggja
mánaöa áskrift aö DV. Hún er beöin
aö vitja vinninganna f DV-húsinu,
Skaftahlíö 24, 105 Reykjavík.
Þú hefur unnið!
Hér er endurvakinn vinsæll
þáttur sem felst í því að hringur
er dreginn utan um andlit eöa
höfuð fólks á mynd eftir ljós-
myndara DV. Þeir sem lenda í
hringnum geta verið hverjir sem
er og hvar sem er. Þeir þurfa að-
eins að hafa orðið á vegi ljós-
myndara DV. Sé hringur dreginn
utan um andlitið hefur viðkom-
andi unnið vinning sem kynntur
er í blaðinu hverju sinni. Það get-
ur því borgað sig að lenda á
mynd í DV.
Unga konan á myndinni getur
væntanlega tekið undir það en
hún fær að launum 14 tomma
United sjónvarp frá Sjónvarps-
miðstöðinni og þriggja mánaða
áskrift að DV. -hlh
Heybaggi féll á mann:
Liggur þungt hald-
inn í öndunarvél
Maðurinn sem fluttur var með-
vitundarlaus á spítala á sunnu-
dag eftir að tvö hundruð kilóa
heybaggi féll á hann við Nesbú á
Vatnsleysuströnd liggur þungt
haldinn á gjörgæsludeild Land-
spítala - háskólasjúkrahúss. Mað-
urinn, sem er á áttræðisaldri,
gekkst undir tvær aðgerðir i
fyrradag og er hann nú í öndun-
arvél.
-EKÁ
Leikari á uppleið
Viggo Mortensen á aö baki leik í nokkrum stórmyndum á borö viö Hringadróttinssögu, 28 Days, A Perfect Murder og
Psycho. Hann ætlar aö dvelja hér á landi næstu daga og slappa af meö syni sínum. Hér sýnir hann landsmönnum
friöarmerkiö á veitingahúsinu Astro í Austurstræti í gærdag.
Einn úr föruneyti Hringsins staddur hér á landi:
Hringurinn kominn tn ísiands
Stuttar fréttir
Útrýma slysagildru
Framkvæmdir hefjast á næsta
ári við byggingu nýs vegar um
Norðurárdal i Skagafirði. Pakkinn
kostar 720 milljónir, en vegurinn á
þessum slóðum í dag er illræmd
slysagildra. Umhverfisskýrsla hef-
ur verið lögð fram.
Tannlæknir dæmdur
Tannlæknir á fimmtugsaldri
var í gær dæmdur í fimm mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir til-
raun til skjalafals. Hann hafði
sent tilhæfulausa reikninga uppá
rúmlega 300 þús. kr til Trygginga-
stofnunar.
Sæmdur heiðursmerki
Guðbrandur Sig-
urðsson, forstjóri
ÚA, var í gær
sæmdur heiðurs-
merki rússnesku
utanríkisþjónust-
unnar. Hann hefur
síðustu ár verið
ræðismaður Rússa
nyrðra. Mbl. greindi frá.
Göróttu drykkur
Tveir unglingar í Hafnarfirði
voru um helgina fluttir á sjúkrahús
eftir drykkju landa. Lögreglan í
bænum hefur undanfarið tekið eftir
aukinni neyslu á þessum görótta
drykk og vill bregðast við því. Mbl.
greindi frá.
Ingimundur formaður
Ingimundur Sigurpálsson, for-
stjóri Eimskips, hef-
ur gefið kost á sér
sem formaður Sam-
taka atvinnulífsins.
Nýr formaður verð-
ur kjörinn undir
lok mánaðarins.
Finnur Geirsson
víkur nú af velli.
Einar Evrópumaður
Á aðalfundi Evrópusamtakanna
um helgina var Einar Benedikts-
son valinn Evrópumaður ársins.
Þessa viðurkenningu fær hann, að
því er Mbl. greinir frá, fyrir að
kynna Evópumál fyrir íslending-
um.
-sbs
Hlynup
ástaðinn
í frétt um brjóstastækkunar-
ferðir, sem birtist á bls. 4 í DV í
gær, læddist sú villa inn í text-
ann að viðmælandi blaðsins, El-
mar Þór Magnússon, væri eig-
andi nektardansstaðar, Club
Casino í Reykjanesbæ. Hið rétta
er aö Hlynur Vigfússon á staðinn
en Elmar Þór er framkvæmda-
stjóri og er það hans aðalstarf.
Vill Elmar Þór undirstrika að
pakkaferðir, sem hann býður er-
lendum konum sem vilja brjósta-
stækkanir á íslandi, hafa ekkert
með rekstur Club Casino að gera.
-hlh