Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2003, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 1. APRIL 2003
DV
Fréttir
Forstjóri Vífilfells um hugmyndir um gosdrykkjagjald:
Það er ekki eins og
skattlagninguna vanti
„Hugmyndir um sérstakt viðbótar
gosdrykkjagjald eru afar illa ígrund-
aðar. Það er ekki eins og vanti skatt-
lagningu á þessa framleiðslu," segir
Þorsteinn M. Jónsson, forstjóri Vífíl-
fells, í samtali við DV. Tilefnið eru
hugmyndir Manneldisráðs um að
leggja sérstakt gjald á gosdrykki sem
nemi sex krónum á hvern lítra, bæði
í þvi augnamiði að draga úr gos-
drykkjaneyslu og eins til þess að fjár-
magna forvarnastarf á sviði lýð-
heilsu og manneldismála. Jón Krist-
jánsson heilbrigðisráðherra sagði í
fréttum Útvarps um helgina að sér
litist ekki á þessar hugmyndir og hef-
ur vísað þeim til frekari skoðunar.
Vantar ekki skattlagningu
Þorsteinn M. Jónsson segir að nú
þegar sé gosdrykkjaframleiðsla skatt-
lögð úr hófi. Vörugjald - svonefndur
sykurskattur - sem nemi átta krón-
um á lítra sé tU staðar og skUagjald
á umbúðum sé 7,40 kr. Þá sé fram-
leiðslan í efra þrepi virðisaukaskatts,
sem er 24,5%.
„Það vantar því ekki skattlagn-
ingu á þessa framleiðslu og hug-
myndir um frekari álögur eru tU
þess eins að bæta gráu ofan á svart,“
segir Þorsteinn. „Við erum frjálst
fólk í frjálsu landi. Fræðsla er góð en
bein neyslustýring með skattheimtu
á að heyra sögunni tU. Nær væri að
taka upp baráttu fyrir því, tU hags-
bóta fyrir heimUin í landinu, að
neyslustýringin sem felst í vörugjald-
inu yrði lögð af og að gosdrykkir
færu í neðra þrep virðisaukaskatts."
Þá bendir Þorsteinn á - líkt og Jón
Diðrik Jónsson, forstjóri Ölgerðar-
innar, gerði í DV í gær - að vatns-
neysla almennings hafi aukist mikið.
Kolsýrt vatn sé orðið snar þáttur í
framleiðslu drykkjarvörufyrirtækj-
anna og það - líkt og sykurskertir
gosdrykkir - séu undir sykurskatt-
inn seldir.
„Það er tæpast hægt að halda því
íslenskir félagsfræöingar:
Fundur um
heimilisofbeldi
Stéttarfélag íslenskra félagsfræð-
inga hefur staðið fyrir röð morgun-
verðarfunda undir yfirskriftinni
BAKHLIÐ BORGARINNAR. Á fyrsta
fundinum í janúar var athyglinni
beint að körlum og vændi og í febr-
úar var fjaUað um áhrif klámvæð-
ingar á fjölskylduheUbrigði.
í morgun var morgunverðarfund-
ur haldinn á Grand Hótel og var
efni fundarins Heimilisofbeldi - bak-
hlið heimUanna.
Fyrirlesarar voru Freydís Jóna
Freysteinsdóttir, lektor í félagsráð-
gjöf, sem fjaUaði um ofbeldi og van-
rækslu í fjölskyldum, dr. Sólveig
Anna Bóasdóttir guðfræðingur, en
hennar fyrirlestur bar heitið „Þrí-
hyrningur ofbeldis. Femínískar og
siðfræðUegar vangaveltur um of-
beldi í hjónabandi" og Einar Gylfi
Jónsson sálfræðingur en hans er-
indi var undir yfirskriftinni „Karlar
sem berja maka sína - er þeim við-
bjargandi".
Edda Ólafsdóttir félagsráðgjafi
sem meðal annarra stóð að fundin-
um sagði að markmið félagsins væri
að vekja athygli á því vandamáli
sem heimilisofbeldi væri. Hún sagði
að aUt of lítil umræða heföi átt sér
stað um heimilisofbeldi undanfarið
og þau vandamál sem því fylgdi.
Nauðsynlegt væri að opinber um-
ræða fengi þrifist því þetta væri
mikUvægt mál sem snerti aUt sam-
félagið. -EKÁ
fram að aukin neysla vatns og sykur-
lausra gosdrykkja fari ekki saman
við manneldissjónarmið. Og raunar
finnst mér aUur málflutningur í
þessu sambandi vera ofurlítið for-
dómafuUur. TU dæmis er iðulega tal-
að um að fólk drekki mjólk en þambi
gos. Mér finnast þetta sérkennUeg
viðhorf og ekki sæmandi fyrir starf-
semi Manneldisráðs," segir Þor-
steinn M. Jónsson.
-sbs
Forstjórinn hjá Kók
„Vantar ekki skattlagningu á þessa framleiöslu og hugmyndir um frekari álög-
ur eru til þess eins aö bæta gráu ofan á svart, “ segir Þorsteinn M. Jónsson.
Ómótstæðilegar!
MATREiÐSLUBOK
í Matreiðsiubók Nönnu ættu aliir, byrjendur jafnt
sem iengra komnir, að geta fundið gnægð
uppskrífta við sitt hæfi. Hátt á fjórða þúsund
uppskríftir af öilu tagi, jafnt alþekktar sem
óvenjulegar, og úr öiium heimshornum.
Alfræöibók um mat og matargerö
í Matarást eru fleirí uppfiettiatríði, uppskríftir og
meiri fróðieikur en í Öðrum hiiðstæðum rítum sem
komið hafa út á íslandi. Bókin er ómissandi í hverju
eidhúsi, eiguieg og faiieg, alveg ómótstæðileg!
Tilboðsverð: 9.980 kr.
Fullt verð: 12.980 kr.
Tilboðsverð: 11.980 kr.
Fullt verð: 15.980 kr.
www.edda.is