Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2003, Page 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003
DV
Fréttir
Afkoma deCODE:
Tæplega 10
milljarða tap
Móðurfélag íslenskrar erfða-
greiningar, deCODE, tapaði á síð-
asta ári 130 milljónum dollara
eða sem nemur tæpum 10 millj-
örðum íslenskra króna. Samsvar-
ar þetta því að tapið á hlut hafi
numið 2,65 dollurum árið 2002, en
tap á hlut árið 2001 nam 1,27 doll-
urum. Þetta gerist þrátt fyrir að
tekjur deCODE hafi aukist veru-
lega á milli ára, eða um tæp 57%.
Þannig jukust tekjurnar úr tæp-
um 2 milljörðum króna (26 millj-
ónum dollara) 2001 í um 3,1 millj-
arö (41 milljón dollara) árið 2002.
Tekjuaukninguna þakka menn
aukinni áherslu á þróun fram-
leiðsluvara og þjónustu samfara
hagræðingu sem m.a. fólst í upp-
sögnum á starfsfólki.
Á sama tíma og tekjur hafa
aukist verulega, hefur kostnaöur
einnig vaxið hröðum skrefum.
Þannig var þróunar- og rann-
sóknarkostnaður 86 milljónir
dollara áriö 2002 en var 71 millj-
ón dollara árið 2001. Þá nam sölu-
og stjórnunarkostnaður allt áriö
2002 samtals 21,5 milljónum doll-
ara samanborðið við 12,4 milljón-
ir dollara árið áður. Kostnaður
vegna uppsagna og rýmun nam
samtals um 65 milljónum dala á
síðasta ári sem jafngildir um 1,32
dölum í kostnað á hvern hlut. Þá
átti deCODE 93,2 milljónir dala í
handbæru fé í árslok 2002 eða ríf-
lega 7,1 milljarð króna. -HKr.
Félag fyrir einstætt fólk:
Kvíöir hátíðunum
„Við búum í lokuðu samfélagi
þar sem allt er miðað við að fólk
tilheyri íjölskyldu. Hér er ekki
gert ráð fyrir að fólk sé einstætt
og því hefur sá hópur fólks úr
mjög takmörkuðu úrvali af af-
þreyingu og skemmtun að velja,“
segir Elísabet Jónsdóttir sem ætl-
ar að stofna félag fyrir einstætt
fólk. Stofnfundurinn verður hald-
inn í Hallgrímskirkju kl. 20 ann-
að kvöld.
„Ég renni nú ansi blint í sjóinn
með þetta en ég ætla að sjá
hvernig til tekst á morgun og svo
þróum við þetta frekar út frá því.
En það er alveg á hreinu að þörf-
in fyrir svona félagsskap er til
staðar. Það er mikill fjöldi fólks,
eða u.þ.b. 25% fólks yfir 18 ára
aldri, sem er ekki gift, ekki í
sambúö og eru ekki einstæðir for-
eldrar sem búa einir síns liðs.
Mikið af þessu fólki er einmana
og það kvíðir jafnvel fyrir stórhá-
tíöum eins og jólum og páskum
þar sem aðrir eyða tíma með fjöl-
skyldum sínum. Þetta fólk veit
aftur á móti ekkert hvað það á af
sér að gera yfir svona hátíðar,
svo dæmi sé tekið. Þess vegna er
ætlunin að búa til félagsskap þar
sem fólk getur hist og rætt málin.
Út frá því er síðan hægt að
mynda smærri einingar þar sem
fólk hugar að og deilir sameigin-
legum áhugamálum sínum. Þetta
er hins vegar ekki hjóna-
bandsmiðlun heldur félagsskapur
margra því framboðið af fyrir-
bærum sem miða að því að ein-
staklingur hitti annan einstakling
er nægilegt. Það sem ég vil aftur
á móti gera er að mynda góðan
fjölda fólks sem síðan getur haft
það gott saman,“ segir Elísabet
að lokum. -ÁB
Menn Kabila leíta ásjár á íslandi
- leita aö aöstoöarmanni á íslandi til aö höndla með 20 milljóna dollara vopnakaupasjóö
Tilboð um að verða margmilljón-
ari fyrir nánast ekkert og þaö á
skömmum tíma hafa aldrei verið
fleiri en um þessar mimdir. Meðal
morgunverka á mörgum skrifstofum
er að útrýma pósti frá Afríkulöndum
þar sem óskað er eftir að fá aðgang
að bankareikningum. „Við fáum tíu
svona bréf á hveijum degi, yfirleitt
nokkuð svipuö bréf, en það nýjasta
er að tilkynna móttakanda að hann
hafi unnið stóra upphæð í happ-
drætti," sagði Emma Valsdóttir mót-
tökuritari hjá Verslunarráði íslands
í gær. Emma segir að eina rétta leið-
in sé að svara ekki bréfum sem þess-
um og afmá þau úr tölvunni.
„Fyrirtækin kvarta mörg yfir
þessum ruslapósti, sem þarf að út-
rýma á morgnana. Vonandi trúir
ekki nokkur maður þessum bréfum,
og ekki hef ég heyrt um nokkum
mann hér á landi sem hefur fallið í
gryíjuna," sagði Sigríður Andersen
lögfræðingur Verslunarráðsins. Hún
segir að menn hafi enga heimild til
að ónáða aðra með erindi sem þessu,
en lög vanti til að banna slíkt áreiti.
Margir hafa kvartað yfir ýmsum
öðrum óboðnum sendingum, þar á
meðal hastarlegu klámi. Þessar
sendingar tefja fyrir tölvuvinnslu og
hætta er á að með þeim berist vírus-
ar.
Eitt bréf barst inn á DV í gær,
beiðni Col Kuku Johnson í Kongó
sem segist hafa verið náinn banda-
maður Kabila forseta. Johnson segir
að Kabila hafi skipað svo fyrir að
keypt yrðu vopn fyrir rúmlega 20
múljónir Bandaríkjadala til að
flæma uppreisnarmenn út úr land-
inu. Þessi digri sjóður er nú sagður
í hættu gagnvart nýjum forseta, syni
Laurent Kabilas.
Kongómaðurinn segir að nú þurfi
þeir áreiðanlegan erlendan mótaðila
til að koma fénu úr landi. Og þeir
segjast hafa frétt frá samstarfsmanni
að móttakandi bréfsins sé einmitt
rétti aðilinn til að koma fénu til
vopnakaupanna í höfn. -JBP
Fallinn foringi
Laurent Kabila var felldur í skotbardaga af einum aöstoöarmanna sinna fyrir
tveim árum. Hann skildi eftir 20,5 milljónir dollara segir bréfritarinn og óskar
eftir íslenskum hjálparmanni.
Lítils háttar tjón
Slökkviliöið í Reykjavík var
kallað út í gær vegna reyks sem
lagði upp frá versluninni Nettó í
Mjóddinni. í ljós kom aö reykur-
inn haföi komið frá kæligámi og
reyndust skemmdir vera litlar. Þá
varð lítils háttar tjón í íbúð í mið-
bænum vegna vatnsleka en vatn
hafði flætt um alla íbúðina. -EKÁ
Stöðvaður á
Reykjanesbrautinni
Lögreglan í Hafnarflrði stöðv-
aði ökumann á Reykjanesbraut-
inni í gær á 139 kílómetra hraða
en leyfilegur hámarkshraði var 90
kílómetrar á klukkustund. Þá
varð bílvelta í nótt á Suðurlands-
vegi, rétt austan við Þrengsla-
vegamót, og voru ökumaður og
tveir farþegar fluttir á Borgarspít-
ala til skoðunar. Meiðsl þeirra
reyndust minni háttar. -EKÁ
Apríl heilsaði með frosti
Fyrsti apríl heilsaði með kaldara
veðri en á venjulegum morgnum í
vetur, frost var um nær allt land,
aðeins austur í Akumesi var hit-
inn á núlli og víða á Austfjörðum
var eins stigs frost. I Reykjavík var
3 stiga frost kl. 6 í morgun, en létt-
skýjað og lygnt og útlit fyrir falleg-
an dag. Á Ákureyri var 4 stiga
ffost og á Hveravöllum var frostið í
9 gráðum. Gera má ráð fyrir köldu
veðri næsta sólarhringinn en á
morgun hlýnar á ný. -JBP
■ - - - ■ ,- - - ■■ - 1 -
DV4v1YND SIGURÐUR K. HJÁLMARSSON
Mættur tll leiks
Tjaidurinn, öflugur fugl, er mættur til hreiöurgeröar og ástalífs. Hann var fjölmennur á túnum í V\k í gærdag.
Tjaldurhn er komhn tl landsins
Undanfarna daga hefur tjaldin-
um verið að fjölga í Vík í Mýr-
dal, kominn yfir hafið frá Bret-
landseyjum þar sem flestir hafa
vetursetu, nokkrir fara hvergi á
haustin og una glaðir við sitt á
Fróni. Þessi skemmtilegi vorboði
hefur að mestu haldið sig í fjör-
unni síðustu daga en nú er hann
farinn að koma í stórum hópum
upp í þorp og túnin þar fyrir
ofan. Tjaldurinn er stór vaðfugl,
rúmir 40 sentímetrar á lengd,
svartur og hvítur, með rauðgul-
an gogg og rauða fætur - og fyr-
ir áhugafólk um augnlit fugla:
Tjaldurinn er sagður með rauð
augu. -SKH
Áhugamál verkamanns í Vestmannaeyjum eru bæjarmál:
Ráðuneytiö skipai* bænum að svara bréfum
„Auðvitað er ég ánægður fyrir
mína hönd en ekki stjórnsýslunn-
ar hér í bæ,“ sagði Oddur Júlíus-
son, verkamaður hjá Vestmanna-
eyjabæ, í spjalli við DV. Hann hef-
ur tvívegis orðið til þess að félags-
málaráðuneytið hefur sett ofan í
við bæjaryfirvöld í Vestmannaeyj-
um. „Það er bara réttlætiskennd
sem rekur mig til að gera þetta. Ef
menn í bæjarmálum hér gerðu
rétt, þá mundi ég ekki skipta mér
af þessu,“ sagði Oddur og sagði að
allt frá barnæsku hefði hann haft
áhuga á bæjarmálunum og fylgst
vel með. Oft á tíðum situr hann á
áhorfendapalli, oft einn, og hlust-
ar á málflutning bæjarfulltrúa og
skrifar stundum athugasemdir.
Oddur segist ekki vera pólitískur
og hafi ekki leitaö til ráðuneytis-
ins til að koma höggi á meirihluta
bæjarstjórnar.
Núna nýlega sendi félagsmála-
ráðuneytið bréf til bæjarstjórans í
Vestmannaeyjum, Inga Sigurðs-
sonar, þar sem því er beint til bæj-
aryfirvalda að erindi Odds vegna
starfa landnytjanefndar bæjarins
verði svarað. „Jafnframt er því
beint til Vestmannaeyjabæjar aö
þess verði framvegis gætt að
stjómsýslunefndir svari erindum
sem þeim berast í samræmi við
góða stjórnsýsluhætti,“ segir í
áminningarorðum ráðuneytisins
til bæjarstjórans.
Oddur sagði í bréfi sínu til ráðu-
neytisins að formaður landnytja-
nefndar væri vanhæfur að sitja í
nefndinni sem hefur mikið með
svokallaða „frístundabændur" að
gera. Formaðurinn væri sjálfur
búfjáreigandi og hefði hagsmuna
að gæta. Ráðuneytið felst ekki á
þetta. En nefndin á að svara bréf-
um, - svara því hvort nefndin hafi
sinnt gróðurverndarmálum, svara
spurningu um hvað samþykkt um
búfjárhald komi hrossaeign í bæn-
um við. Ráðuneytið segir að í
fundargerðum landnytjanefndar
sé getið um tvö bréf frá Oddi Júlí-
ussyni og þar standi: „Fögnum
áhuga Odds á gróðurvernd og
störfum landnytjanefndar."
í fyrra sendi Oddur félagsmála-
ráðuneytinu bréf fimm sinnum frá
því í september fram í desember
þar sem hann benti á að ársreikn-
ingur Þróunarfélags Vestmanna-
eyja hefði ekki verið birtur, en
hann átti að liggja fyrir fyrr á ár-
inu lögum samkvæmt. Ráðuneytið
tók rekstur félagsins til rannsókn-
ar og kom í Ijós að verulegir
DV-MYND
Góö málalok
Oddur Júlíusson vinnur viö gatna-
hreinsun í Vestmannaeyjabæ. Hann
hugsar mikiö um bæjarmál og hefur
tvívegis leitaö til félagsmálaráöu-
neytis meö erindi sín sem ekki haföi
veriö hlustaö á heima fyrir.
hnökrar voru á bókhaldi, það týnt,
og fundargerðir félagsins í lama-
sessi eins og flestir kannast við.
-JBP