Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2003, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2003, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 x>v Ferðir Á hverju ár ferðast milljónir manna med skemmtiferdaskipum en að ferd lokinni fer ferðafólkið aftur í land. Margir hafa eflaust hugsað með sér að lífið vœri betra ef hœgt vœri að vera um borð í skemmtiferðaskipi alla ævi. Freedom er hugsað til að koma til móts við óskir þessa fólks og þeirra sem eiga nóg af peningum og langar til að búa um borð í skipi sem siglir reglulega kringum hnöttinn. Hwtandl hm*q Stærsta skipi í heimi verður hleypt af stokkunum áriö 2007, tveimur árum seinna en upp- runalegar áætlanir gerðu ráð fyrir. Fyrirtækið sem stendur að byggingu skipsins heitir Freedom Ship International Inc. Risaskipið, sem gengur undir nafninu Freedom Ship, er frem- ur fljótandi borg en skip í hefð- bundinni merkingu þess orðs. Skipið verður tuttugu og fimm hæðir, rís eitt hundrað og fjóra metra yfir sjávarmál og á efsta þilfarinu verður rúmlega ellefu hundruð og fimmtíu metra langur flugvöllur. Breidd skipsins verður rétt rúmlega tvö hundruð og tuttugu metrar. Freedom líkist einna helst tutt- ugu og fimm hæða blokk sem hefur verið lögð á hliðina og ýtt til hafs. Talið er að kostnaður við byggingu Freedom verði tíu billjónir dollarar. Siglt til æviloka Á hverju ári ferðast milljónir manna um heiminn á skemmti- ferðaskipum en að ferðinni lok- inni fer fólkið í land. Margir hafa eflaust hugsað með sér að lífið væri yndislegt ef hægt væri að vera um borð í skemmtiferðaskipi alla ævi. Freedom er einmitt hugsað til að kom til móts við óskir þessa fólks og þeirra sem eiga nóg af peningum og langar til að búa um borð í skipi sem siglir reglu- lega í kringum hnöttinn. Hægt er að fá herbergi fyrir hundrað og tuttugu þúsund dollara en íbúð á bilinu þrjár til ellefu milljónir dollara. Til aö byrja með stóö til að Freedom sigldi í kringum hnött- inn á tveggja ár fresti en sá timi hefur verið lengdur í þrjú ár svo að hægt sé að stoppa lengur á hverjum stað og gefa land- kröbbum tækifæri til að skoða alla dýrðina. Hundrað dísilvélar Skipið er byggt ofan á fimm hundruð og tuttugu loftþéttar einingar úr stáli sem eru skrúf- aðar saman í kjölinn. Hver ein- ing er tuttugu og fjögurra metra há, fimmtán til þrátíu metra breið og fimmtán til þrjátíu og sjö metra löng. Einingarnar verða síðan settar saman til að mynda stærri einingu sem er níutíu og einn sinnum hundrað tuttugu og tveir metrar. Sam- settu einingarnar verða síðan dregnar til hafs og skipið sjálft byggt ofan á þær. Eins og gefur að skiija þarf gríðarlegan kraft til að sigla skipinu um hafið. Um borð verða því eitt hundrað dísilvél- ar sem framleiða þrjú þúsund og sjö hundruð hestöfl hver. All- ar vélarnar geta snúist þrjú hundruð og sextíu gráöur, ger- ist þess þörf. Lífið um borð Áætlanir gera ráð fyrir sautján þúsund heimilum og að um sextíu þúsund manns kom til með að búa í skipinu. Þar af verða fimmtán þúsund starfs- menn sem boðið er upp á mat, húsnæði, vinnuföt, endur- menntun og læknishjálp í starfssamningi og góða mögu- leika til að ferðast um heiminn. Freedom mun sigla í kringum hnöttinn á þriggja ára fresti og íbúar alltaf vera í sólinni. Skip- ið kemur aldrei til hafnar en mun liggja utan við borgir og lönd þannig að íbúar geta farið í land, óski þeir þess. í skipinu verða öll hugsanleg þægindi og allt það sem búast má viö að finna í meðalstórri vestrænni borg. Þar verður full- komið sjúkrahús, ellefu hund- ruð og fimmtíu metra langur flugvöllur fyrir einkaflugvélar og flugvélar fyrir allt að fjörutíu farþega, auk flugskýla. í skut Freedom verður höfn fyrir snekkjur og um borð verð- ur risaverslunarmiðstöð, golf- vellir og skólar sem bjóða upp á menntun sem samsvarar grunn- skólanámi. Stór svæði verða ætluð til útiveru, góð sólbaðsað- staða, hlaupa- og reiðhjóla- brautir, svo eitthvað sé nefnt. Eins og gefur að skilja verða margir og fjölbreyttir matsölu- staðir í skipinu auk spilavíta, næturklúbba, kvikmynda- og leikhúsa. íbúarnir geta stundað tennis, körfubolta, keilu, sund, líkamsrækt farið á skauta og veitt á stöng frá skipshlið. Á hverju heimili verður sjón- varp sem nær yfir hundruð al- þjóðlegra rása auk stöðva sem senda út frá þeim löndum sem skipið er statt við hverju sinni - og að sjálfsögðu verða allir net- tengdir. Löggæsla um borð verður eins og best gerist í borgum með lága glæpatíðni, lögreglu- menn sýnilegir og eftirlits- myndavélar sem sjá allt nema inn á heimili íbúanna. Auk þess fá allir starfsmenn sérstaka þjálfun til að geta sinnt öryggis- málum, gerist þess þörf. íbúar Freedom verða að hlýða lögum þess lands sem skipið er skráö í en það mun að öllum líkindum Vilmundur Hansen blaðamaður Tyrkland NORÐUR- Charieston ATLANTSHAF Súmatra Indónesia SUÐUR- ATLANTSHAF Buonos Alres Argentfna vancouver Freedom fer umhverfis hnöttinn wíjM e/nu sinni á þremur árum SUÐUR- KYRRAHAF NORÐUR- KYRRAHAF Talvan Manllla Sydney Melbourne Nýja-SjAlond SIGLINGARLEIÐ FREEDOM SKIPSINS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.