Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2003, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2003, Blaðsíða 33
33 ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003_________________________________________________ DV Tilvera Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýrir Söngvaseiöi á Isafiröi: Að leikstýra er eins og að ganga í biörg Leikstjórinn Þórhildur Þorleifsdóttir á sviöi I leikhléi. Hún er ákveðin og veit hvað hún vill ... Hún hefur merkilega mikinn skilning á tæknimálum ... Hún veit hvað hún er að tala um og hvað hún er að biðja um. Þá verður vinnan auðveldari ... Henni er ekkert óviðkomandi og hún leggur jafnmikla áherslu á hvern þátt ... Hún er harður hús- bóndi en góður ... Við lærum ótrú- lega mikið af henni ... Hún hefur næmt auga fyrir heildarútliti sýn- ingarinnar. Viröing og vinsældir Þetta eru nokkrar tilvitnanir í ummæli leikara og starfsfólks sýn- ingar á söngleiknum Söngvaseið, sem Þórhildur Þorleifsdóttir leik- stýrir. Ummælin eru mjög á sömu lund. Auðséð er að Þórhildur nýt- ur í senn virðingar og vinsælda þeirra sem nutu krafta hennar. Söngvaseiður (Sound of Music) eftir Rodger og Hammerstein er sameiginlegt verkefni Litla leikklúbbsins og Tónlistarskólans á ísafirði. Um síðustu helgi var verkið frumsýnt fyrir fullu húsi ánægöra og þakklátra áhorfenda. Erfiður tími en skemmtilegur Þórhildur hefur dvalist á ísa- firði síðan í janúar og er sátt að lokinni frumsýningu. „Hér er afar mikið í fang færst. En eins og alltaf þegar svo er og ráðist í slíkt stórvirki þá er gam- an. Það koma margir að þessu, all- ir leggja mikið á sig og eru í raun og veru að gera það ómögulega. Og þegar það gengur upp verður gleðin mikil,“ segir ÞórhÚdur „í þessa sýningu er lagður gífur- legur metnaður og ótrúlegt hvað fólk leggur mikið á sig,“ segir Þór- hildur. „Flest er þetta fjölskyldufólk í fullri vinnu og er í leiklistinni í frístundum. Ég er full aðdáunar á þessu fólki, jafnt þeim sem voru í framkvæmdunum og búningunum og auðvitað þeim sem eru í leikn- um. Og þess ber að geta að í þess- ari sýningu eru lærðir söngvarar í lykilhlutverkum. Má þar nefna hlutverk abbadísarinnar og Mar- íu, enda valda ekki aðrir en fag- fólk þeim hlutverkum." Eins og að ganga í björg „Að leikstýra verki er eins og að ganga i björg,“ segir Þórhildur enn fremur. „Þetta byrjar rólega en hraðinn eykst og fyrr en varir er maður horfinn úr venjulegu samfélagi og sýningin verður hinn „raunveru- legi“ heimur. Heimurinn fyrir utan verður óraunverulegur. Þeg- ar þú gengur út eftir aðalæfingu tekurðu allt í einu eftir því að til eru fjöll og sjór og annar heimur. Þetta er ekki píslarvætti, ég kýs að ganga í björgin því þau er heill- andi heimur. En vinnan er mikil og hún heltekur þig. Maður sækir orku í sköpun og þó að leikstjór- inn sé mikill orkugjafi fyrir hina sækir hann líka orku til þeirra, gleði þeirra og innlifun." Þórhildur segir að í leiklistinni felist munurinn á atvinnu- mennsku og áhugamennsku felst ekki síst í hinum verklega þætti vinnunnar og þeim peningum sem viðkomandi leikhús hefur til ráð- stöfunar. „í áhugaleikhúsi þarftu að huga betur að ýmsum þáttum en þú ger- ir í atvinnuleikhúsi, þar sem allt er í höndum fagmanna og öll þjón- usta innan handar. Ég umgengst áhugafólk eins og atvinnufólk en er meira í kennsluhlutverki held- ur en í atvinnuleikhúsi. Ég verð að gera kröfur en reyni að gæta þess að gera líka kröfur til sjálfrar mín jafnframt. Annars verður það sem ég segi ómarktækt. En ég er líka þekkt fyrir það í atvinnuleik- húsinu fyrir sunnan að vera harð- ur húsbóndi." Hugljúf saga en gamaldags Söngvaseiður er afskaplega hug- ljúf saga en dálítið barnsleg fyrir okkar smekk í dag. En sýningin er fyrst og fremst hugsað sem skemmtun, það úir og grúir af skemmtilegri tónlist í henni, hlut- verkin eru vel upp byggð og sann- færandi innan síns ramma. „Barnahópurinn er heillandi og börnin vinna hug og hjörtu allra. Rodgers og Hammerstein eru eng- ir aukvisar og kunna vel til verka. Þó að María, aöalpersóna söng- leiksins, sé ef til vill ekki fyrir- mynd ungra stúlkna í dag þá er hún skemmtilegur einstaklingur, hugrökk og sjálfstæð. Hins vegar neita ég ekki að ég strikaði sumt úr textanum sem mér fannst of langt frá okkar hugsunarhætti í dag. Söngvaseiður er barn síns tíma en er samt mjög skemmtileg sýning," segir Þórhildur. Hinn eiginlegi raunveruleiki Hún segist telja afar mikilvægt að áhugamannafélög úti á landi fái atvinnufólk til liðs við sig, bæöi leikstjóra og leikara, með mikla reynslu og takist á við metnaðarfull verkefni. „Annars er hætta á að þau koðni niður. Samkeppnin er orðin harðari, allir horfa á sama sjón- varp og myndbönd og viðmiðin í Reykjavík og úti á landi eru svip- uð. Þessu verður aðeins mætt með því að fá vel hæft fólk til liðs við sig.“ Þórhildur heldur nú suður á bóginn, á vit fjölskyldu sinnar og hins eiginlega raunveruleika sem mun þó eflaust hverfa henni fyrr en varir er hún tekst á við ný verkefni á sviöi og gengur enn á ný í björg til móts við annarlegan söng og seið. -VH REUTERSMYND Fergie og dóttirin við minningarat- höfn Sarah Ferguson, hertogaynja afJór- vík, fyrrum tengdadóttir Elísabetar Englandsdrottningar, og Evgenía prinsessa, dóttir hennar, koma til minningarathafnar um Ron Ferguson major, fööur Fergie, í Odiham. Major- inn lést fyrir skömmu eftir langa bar- áttu viö krabbamein og hjartasjúk- dóma. Ryan vill hitta kvengeimvemi Lee Ryan, aðalstjama og söngvari breska strákabandsins Blue, sem vann til verðlauna á síð- ustu Brit- verðlaunahátíð, viðurkenndi nýlega að hann langaði mikið til þess að hafa mök við geimveru. Hann telur að geimverur séu þegar hér á meðal okkar jarðarbúa og að það væri gaman að geta afkvæmi með einni þeirra. „Ég hef oft hitt fólk á förnum vegi sem mér finnst öðruvísi en það á að vera og það eru örugglega geimverur," sagði Ryan, sem er vanur að láta flest flakka. „Það er löngu kominn tími til þess að við jarðarbúar og þessar verur rugli saman reytum og ég er ákveðinn í því að ef ég hitti eina kvenkyns að bjóða henni út. Þeim hlýtur að leiðast einveran þessum elskum og því ekki að ganga alla leið. Ég gæti vel hugsað mér að eiga með henni bam. Hugsið ykkur bara hvað það væri spennandi að eignast nýja tegund," sagði Ryan. Prímadonnur og príorinnur Þær Guörún Jónsdóttir og Ingunn Ósk Sturludóttir syngja veigamestu hlutverk sýningarinnar, Maríu og abbadísina.Þær eru báöar hámenntaöar söngkonur og prímadonnur f bestu merkingu þess orös. inunavtími: il ki. 01:00 alla virka dag til kl. 03:00 föstu- og laugardaga til kl. 01:00 sunnudaga VIDEOHÖL LIN A bfrtu txundi-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.