Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2003, Qupperneq 22
22
MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2003
Skoðun Z>V
Þjóðardýpllngup?
Össur Skarphéölnsson, formaöur Samfylklngarinnar:
„Tækifæriö til aö gera Ingibjörgu Sólrúnu aö forsætisráöherra er ofstórt og
göfugt til aö menn geti látiö þaö hjá líöa afþröngri flokkspólitískri ástæöu.“
Magnús
Erlendsson
fyrrverandi
bæjarfulltrúi og
eldrí borgari á
Seltjarnarnesi
„Ætlar meirihluti kjós-
enda aö lyfta í æðstu
stöður þjóöfélagsins
mönnum sem hugsa og
skrifa sem væru þeir
ómálga börn? Leiti nú
hver og einn svara í
smiðju sinnar samvisku."
Maður er nefndur Össur Skarp-
héðinsson. Fyrr á árum var mað-
ur þessi ritstjóri dagblaðs sem
bar heitið Þjóðviljinn. Blað þetta
var í upphafi málgagn Kommún-
istaflokks íslands, síðar Sósí-
alistaflokksins og loks Alþýðu-
bandalagsins. Blað þetta gaf síðan
upp öndina eftir áratuga óstjórn í
rekstri og skildi eftir sig tug
milljóna króna skuldaslóð, aðal-
lega við ríkisbankann, sem þá
var - Landsbankann. - Með öðr-
um orðum; skattborgarar þjóðar-
innar máttu blæða.
Því er þessi formáli, að sami
Össur ritar um þessar mundir
nær daglega í blað erkifjanda
Þjóðviljans heitins, nefnilega
Morgunblaðið. Og hvílíkar rit-
smíðar! Þær fjalla nær eingöngu
um svilkonu Össurar Skarphéð-
inssonar. Og værum við íslend-
ingar ekki í hinni Evangelísku
Lúthersku kirkju, en hins vegar
kaþólskir, væri téður Össur vafa-
lítið búinn að leggja til við stjóm-
völd að Ingibjörg svilkona hans
yrði tekin í tölu dýrlinga.
Tökum dæmi af skrifum fyrr-
verandi ritstjóra Þjóðviljans, Öss-
urar Skarphéðinssonar. - Hann
skrifar: „Ævintýrin í blænum.
Fyrsti skólinn, fyrsta bamið,
fyrsti kossinn. Við sem kusum
Vigdísi 1980 munum aldrei
gleyma því. Það var eins og að
eignast hlutabréf í ævintýri. Til-
finningin var ólýsanleg og hverf-
ur aldrei. Það sama liggur í loft-
inu núna. Vorblærinn hvíslar
ævintýrin. Nú getum við, góðir
íslendingar, aftur breytt sögunni.
Við njótum þeirra sjaldgæfu for-
réttinda að eiga raunverulega
möguleika á að styðja konu til að
verða forsætisráðherra. Við, sem
grípum það í vor munum löngu
seinna geta, grá fyrir hærum,
hossað litlu barnabörnunum í
kné okkar og sagt með stolti; Ég
gerði Ingibjörgu Sólrúnu að for-
sætisráðherra á íslandi."
Var einhver að brosa eða
kannski hlæja? En ruglinu hjá
Össuri er ekki lokið. (You ain’t
seen anything yet!) Gefum hon-
um áfram orðið: „Það skiptir
engu hvar menn standa í pólitík,
eða hvað menn hafa kosið áður.
Tækifærið til að gera Ingibjörgu
Sólrúnu að forsætisráðherra er of
stórt og göfugt til að menn geti
látið það hjá líða af þröngri
flokkspólitískri ástæðu".
Tóku menn eftir „stórt og göf-
ugt“! - Nú myndi einhver vilja
segja amen á eftir efninu, en nei,
ónei. Össur Skarphéðinsson er
ekki aðeins glöggur á sína vini,
hann er jafnframt heiðskír og
einkar skarpur á pólitíska óvini,
samanber eftirfarandi: „Sjálfstæð-
isflokkurinn lýsti á nýafstöðnum
landsfundi einbeittum ásetningi
til að leggja drög að eyðingu ís-
lenska velferðarnetsins.“
En hvað segir almenningur um
slík skrif? Trúir formaður ís-
lensks stjórnmáiaflokks sjálfur
þessum skrifum sínum? Trúir
formaður stjórnmálaflokks, að
það sé „einbeittur ásetningur"
annars stjórnmálaflokks, þ.e.
Sjálfstæðisflokksins, að „leggja
drög að eyðingu íslenska velferð-
arnetsins"? - Auðvitað dæma
þessi skrif sig sjálf og gera jafn-
framt höfundinn að athlægi allra
vitiborinna manna.
En bullinu er ekki lokið. Áfram
er nýi dýrðlingurinn, Ingibjörg
Sólrún, prísuð, ákölluð, dýrkuð
og lofuö sem væri hún guðiborin
vera.
Gefum formanni Samfylkingar-
innar aftur orðið: „Ég vil dug-
mikla, sterka konu sem forsætis-
ráðherra, meðal annars af því ég
vil sterkar, heilbrigðar fyrir-
myndir fyrir allar litlar stúlkur í
íslensku samfélagi." - Er aum-
ingja manninum sjálfrátt.
Aðeins ein spuming: Telst sú
kona fyrirmynd fyrir „allar litlar
stúlkur í íslensku samfélagi" sem
svíkur öll sín loforð, t.d. við sam-
herja í borgarstjóm Reykjavíkur,
og hleypur síðan á brott frá öllu
skuldafeni borgarinnar? Stærri
og brennandi sptu-ning er hins
vegar þessi: Ætlar meirihluti
kjósenda að lyfta í æðstu stöður
þjóðfélagsins mönnum sem hugsa
og skrifa sem væm þeir ómálga
börn? Leiti nú hver og einn svara
í smiðju sinnar samvisku.
Fækkun umferðarslysa, ekkl x-D
umferðinni.
Dómsmálaráöherra landsins, Sólveig Pétursdóttir, hefur unniö aö því aö
fækka umferðarslysum á íslandi, segir m.a. í pistlinum.
Ekkl eini frambjóöandinn sem
ber þreytumerki.
Útkeynðup frambjóðandi
Soffia Siguröardóttir hringdi:
Mér fannst ekki takast nægi-
lega vel upp í þættinum Sjálf-
stætt fólk á Stöð 2 sl. sunnu-
dag, þar sem viðmælandinn,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
forsætisráðherraefni Samfylk-
ingarinnar, var tekinn fyrir; að
koma sjónarmiðum frambjóð-
andans á framfæri. Henni varð
orða vant, t.d. á gönguferð
sinni með þáttastjórnanda í
miðbænum er hún var spurð
(Þetta er góð spuming ,...var
svarið fyrst lengi vel) en svo
áttaði hún sig og klauf sig
áfram eins og vanur stjórn-
málamaður gerir oftast. En
þetta var ekki allt. Komin heim
í garðinn sinn tók ekki betra
við; dauður fugl í sjónmáli og
kötturinn Brandur, sem var
gerandinn. Ekki sniðugt í
svona þætti. Mér fannst hrein-
lega þessi ofkeyrði frambjóð-
andi Samfylkingarinnar vera
orðinn útkeyrður og þreyttur.
Og engin furða. Þetta er búið
að vera ofurálag á alla fram-
bjóðendur flokkanna, þá sem
eru framarlega og eftirsóttir
sem viðtalsefni. Ingibjörg er
ekki sá eini sem hlýtur að
verða „frelsinu fegin“ þegar
upp er staðið.
Gunnar H.
Gunnarsson
deildarverkfræðingur
k á umferöardeild
Skoðun
Undiritaður flutti tillögur bæði á
Umferðarþinginu 2000 og 2002, sem
voru einróma samþykktar, sem
gengu efnislega út á það að gerð
yrði vönduð fjárhags- og fram-
kvæmdaáætlun um fækkun umferð-
arslysa á íslandi og veitt yrði til
hennar nægu fé úr ríkissjóði.
Þessar tillögur voru fluttar að því
gefna tilefni að núverandi dóms-
málaráðherra landsins, Sólveig Pét-
ursdóttir, vann að því að fækka um-
ferðarslysum á íslandi um 20% fyrir
árið 2000, miðað við árin 1992-1996
en náði því ekki, sbr. það að dauða-
slysum fjölgaði um 25%, enda vann
ráðherrann ekki eftir fjárhags- og
framkvæmdaáætlun og veitti litlu
opinberu fé til verkefnisins.
Nú spyrja eflaust margir um það
hvort aðrir flokkar hafi staðið sig
eitthvað betur í umferöaröryggis-
málum, hvort sami rassinn sé ekki
undir þeim öllum. Því er til að
svara að mjög myndarlega hefur
verið staðið að þessum málum í
Reykjavík undir stjóm R-listans.
Unnið hefur verið eftir vandaðri og
faglega vel unninni áætlun um
fækkun umferðarslysa í Reykjavík,
um 20% á árinu 2000, miðað við
árin 1992-1996. Áætlunin stóðst og
gott betur, þ.e.a.s. fækkun minni
háttar slysa varð um 30%, meiri
háttar slysa um 34% og dauðaslysa
um 20%. R-listinn lét ekki þar við
„Unnið hefur verið eftir
vandaðri og faglega vel
unninni ácetlun um
fœkkun umferðarslysa í
Reykjavík, um 20% á ár-
inu 2000, miðað við árin
1992-1996
sitja því hinn 16. maí 2002 sam-
þykkti borgarstjórn Reykjavíkur
nýja áætlum keimlíka þeirri eldri,
þar sem stefnan er sú að á árunum
2002-2007 hafi náðst 50% fækkun
umferðarslysa miðað við árin
1992-1996.
En hvað aöhafðist Sólveig dóms-
málaráðherra á sama tíma? í stuttu
máli sagt: Ráðherrann hefur ekki
gengið frá og fengið samþykkta
neina sambærilega áætlun fyrir ís-
land í heild, enda fjöldi umferöar-
slysa á íslandi í samræmi við þá
frammistöðu. ísland hefur nefnilega
stundum veriö með fæst dauðaslys í
umferðinni innan OECD, miðað við
fólksfjölda, alveg frá 1970 og aldrei
aftar en í 6. sæti, ef tekin eru þrjú
pg þrjú ár saman (vegna fámennis á
íslandi), nema 1998-2000 (nýrri töl-
ur eru ekki til), þá var ísland í 11.
sæti!
Fólk verður að átta sig á því að
fækkun umferðarslysa er bæði hart
mál og mjúkt mál. Það er hart mál
að því leyti að það er mjög þjóð-
hagslega arðbært að fjárfesta í
auknu umferðaröryggi, þeir pening-
ar skila sér til baka á örfáum árum.
Það er mjúkt mál vegna þess að það
verður aldrei metið til fjár, að haída
fjölda þeirra í lágmarki sem látast,
örkumlast eða þjást af völdum um-
ferðarslysanna á ári hverju.
Þessi samanburður milli R-lista
og dómsmálaráðherrans kennir okk-
ur að þaö skiptir máli hvemig við
kjósendum verjum atkvæði okkar.
Reykjavíkurlistinn náði þeim ár-
angri sem að var stefnt varðandi
fækkun umferðarslysa en dóms-
málaráðherrann úr röðum sjálfstæð-
ismanna hefur ekki náð því sem
hann sagðist stefna að á því sviði.
Borgarleikhúsið
Borgin ekki lengu aflögufær
viö listina?
Bopgarleikhús úr leik
Margrét Stefánsdóttir skrifar:
Fjárhagsleg slagsíða er komin á
Borgarleikhúsið, líkt og Leikfélag
Akureyrar, sem ekki verður leng-
ur starfhæft vegna þess að bæjar-
samfélagið getur ekki endalaust
innt fé af hendi til hinnar ýmsu
starfsemi í lista- og menningar-
geirunum. Borgarleikhúsið er nú
að draga saman starfsemi sína en
hefur þó sýnilega getu til hagræð-
ingar, eins og fram hefur komið í
fréttum. Já, geta leikarar einfald-
lega ekki farðað sig sjáifir? Þetta
urðu þeir að gera í litlu sveitarfé-
lögunum hér áður fyrr og þótti
sjálfsagt. En meðal annarra orða:
Er nú furða þótt leikhúsin séu á
fallanda fæti? Þar á leikritavalið
sinn þátt (Píkusögur og annað
álíka rusl!). Og hvers vegna ætt-
um við að halda uppi leikhúsi á
vegum borgarinnar? Er ekki nóg
að ríkið gerið það? Förum bara að
dæmi Akureyringa, þeir geta ekki
endalaust ausiö í leiklistarpottinn
og það getum við ekki heldur.
Kuotaspekingan
Óskar Jónsson skrifar:
Maður fer nú að verða þreyttur
á öllum þeim fjölda manna sem
gefa sig út fyrir að vera sérstakir
„kvótaspekingar" og iala til þjóð-
arinnar eins og þeir eigi lífið að
leysa - fyrir sig og kjósendur lika.
Flestir eru þetta menn sem ekki
hafa mikið til sjávarútvegs að
telja, utan líklega einn, fyrrver-
andi skipstjórinn í Frjálslynda
flokknum, sem ég tel vera að
hefna harma sinna gagnvart Sjálf-
stæðisflokknum. Menn eins og
Jón Magnússon lögmaður, Guð-
mundur G. Þórarinsson verkfræð-
ingur, hagfræðingarnir Gylfason
og Möller, og samflokksmennirnir
Ellert og Össur hafa tæpast
nokkra reynslu af sjávarútvegi og
enga af stjórnun innan hans. -
þessir menn hafa að mínu mati
gert þjóðinni óskunda með
ábyrgðarlausu blaðri sínu. Þeir
eiga ekki erindi á Alþingi.
Bypgið í Rockville
Hulda Ólafsdóttir skrifar:
Varðandi umræðuna um Byrgið
og hugsanlegan flutning þess aust-
ur í sveitir er ég enn meira undr-
andi núna en áður því farið er að
tala um Vífilsstaði eða hluta
þeirra sem rekstrareiningu ásamt
býlinu Efri-Brú. Ég heyrði í
Hjálmari Ámasyni í morgunþætti
á Útvarpi Sögu í morgun (þriðjud.)
þar sem hann segist hafa átt frum-
kvæði að því að fá Rockville á
Miðnesheiði fyrir starfsemi Byrg-
isins. Hann ætti nú að ganga í það
af alefli að fá vilyrði fyrir að
Rockville yrði áfram samastaður
Byrgisins. Þar er starfsemin kom-
in í fastar skorður og allir una þar
glaðir við sitt, að mestu leyti. Ein-
hverjar landskilareglur vegna
dvalar vamarliðsins (sem fer nú
fækkandi) geta ekki verið sá
þröskuldur að ekki sé hægt að
hnika til þar um. Ég skora líka á
aðra þá þingmenn í þessu kjör-
dæmi að leggja þessu máli lið, að
Byrgið verði áfram í Rockville.
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangið:
gra@dv.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Skaftahliö 24, 105 ReyKjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.