Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2003, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2003, Side 6
6 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 14.JÚLÍ2003 Pipar undir eftirliti Laxaslátrun í Neskaupstað LITAREFNI: Umhverfisstofnun hefur nú hafið sérstakt eftirlit með innflutningi á þurrkuðum gróf- og fínmöluðum sterkum chilepipar og afurðum úr hon- um. Ástæðan er litarefnið súd- an I sem bannað í matvælum en hefur mælst í slíkum pipar. Innflutningur er einungis heimilaður að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sam- kvæmtauglýsingu. Innflytjendur verða að fram- vísa vottorði frá opinberum aðila sem sýnir að litarefnið súdan I hafi ekki mælst í pip- arnum. Vottorðið þarf að vera þannig útbúið að hægt sé að rekja það til viðkomandi send- ingar. Ef það skilyrði er ekki uppfyllt þá er farið fram á sýnatöku og rannsókn á kostn- að innflytjenda. Litarefnið súdan I er ekki leyfi- legt í matvælum en talið er að það geti verið krabbameins- valdandi. FISKELDI: Mikil laxaslátrun fer fram þessa dagana í Neskaup- stað en alls er áætlað að slátra 2.300 löxum í fiskiðjuveri Síld- arvinnslunnar í Neskaupstað en laxinn kemur frá Sæsilfri í Mjóafirði. Meðalþyngd fisksins sem slátr- að er í dag er um 4,5 kg eða rúmlega 10tonn samtals. Fisk- urinn fer samdægurs í gám og um borð í flutningaskip sem liggur við bryggju á Eskifirði, en laxinn fer á markað í Evr- ópu. Laxeldið gengur vel hjá Sæsilfri í Mjóafirði og engin stór vandamál hafa komið upp varðandi eldi, slátrun og vinnslu. Vegabréf með líf- tækniupplýsingum Vegna þrýstings af hálfu Bandaríkjamanna hafa Evrópu- sambandslöndin hafið undir- búning að gerð nýrra vegabréfa sem innihalda munu líftækni- upplýsingar um eiganda vega- bréfsins í lítilli örflögu. Hollend- ingar eru þegar farnir að gefa út slík vegabréf og í lok síðasta árs mun útgáfa þeirra verða hafin í Danmörku og fleiri EB-löndum.. Vegna þrýstings af hálfu Banda- ríkjamanna hafa Evrópusam- bandslöndin hafið undirbúning að gerð nýrra vegabréfa sem innihalda munu líftækniupplýsingar um eig- anda vegabréfsins í lítilli örflögu. Hollendingar eru þegar farnir að gefa út slík vegabréf og í lok síðasta árs mun útgáfa þeirra verða hafin í Danmörku. Frá og með 1. október á næsta ári munu bandarísk yflrvöld krefjast slíkra upplýsinga í vegabréfum hjá öllum sem koma til Bandaríkjanna frá öðru landi. Að öðrum kosti verður viðkomandi að sækja um vegabréfsáritun til Bandaríkjanna og fara í viðtal. Þetta kemur fram í frétt danska dagblaðsins Berlingske Tidende. Þærlíftækniupplýsingar, sem hér um ræðir, eru fingraför, sjónhimna og höfuðkúpulag. Þessum upplýs- ingum verður komið fyrir í örflögu sem sett verður í vegabréfið. Verða þær lesnar af sérstökum skönnum við komuna til Bandaríkjanna. Fingraför og sjónhimna hafa þótt afar áreiðanleg einkenni til að að- greina einn einstakling frá öðrum en samkvæmt fréttum munu myndir af höfuðkúpunni vera áreiðanlegri og um leið einfaldari í vinnslu. Jóhann Jóhannsson hjá Útlend- ingastofnun staðfesti að þessar kröfur yrðu gerðar af hálfu Banda- ríkjamanna í október á næsta ári. Mikil umræða væri um líftækni- upplýsignar í vegabréfum en óvíst væri um kostnað við gerð þeirra. Útlendingastofa mundi væntan- lega þurfa að auka verulega við tækjabúnað sinn. „Við erum mjög framarlega í útgáfu vegabréfa og gefum nú út tölvulesanleg vegabréf Margur er knár þótt hann sé smár Lynghálsi 11 - sími 555 6433 NÝTTVEGABRÉF: Frá og með 1. október á næsta ári munu nýju vegabréfin, eins og það sem hér sést, ekki duga ætli menn að heimsækja Bandaríkin. Þá verður krafa um að vegabréfin innihaldi líftækniupplýsingar sem komið verður fyrir í örflögu. sem allir verða að hafa ætli þeir að heimsækja Bandaríkin eftir 1. októ- ber á þessu ári. Að öðrum kosti þurfa þeir vegabréfsáritun," sagði Jóhann. Nýtt vegabréf kostar 4600 krónur en vegabréfsáritun hjá sendiráði Bandaríkjanna mun kosta að minnsta kosti 7000 krónur. Auk tæknilegra forsendna, sem verða að vera í lagi fyrir október 2004, eru lagalegar hliðar málsins óræddar en ekki er útilokað að ný lög þurfi til að geyma megi líftækni- upplýsingar um fólk á einum stað. Það hefur vakið nokkra furðu hjá yfirvöldum f Evrópusambands- löndunum að Bandaríkjamenn ætli ekki að krefjast þess að bandarískir ríkisborgarar beri slík vegabréf. Mun það mál væntanlega verða tekið upp innan Evrópubandalags- Þær líftækniupplýsing- ar, sem hér um ræðir, eru fingraför, sjón- himna og höfuðkúpu- lag. Þessum upplýsing- um verður komið fyrir í örflögu sem sett verður í vegabréfið. ins. Auknar öryggiskröfur komu í kjölfar hryðjuverkanna 11. septem- ber 2001. Nokkurrar gagnrýni hefur gætt vegna þess litla tíma sem yfir- völdum í löndum utan Bandaríkj- anna er gefinn til að koma hinum nýju vegabréfum í umferð. Tals- menn ferðaþjónustunnar í Banda- ríkjunum óttast að hertar öryggis- kröfur eins og þær sem hér um ræðir muni hafa afar neikvæð áhrif á straum ferðamanna til landsins. Heimsóknir erlendra ferðamanna til Bandaríkjanna hafa minnkað um 19 prósent frá því í september 2001. Auk vegabréfanna hafa banda- rísk sendiráð fengið tilskipun þess efnis að taka ítarleg viðtöl við þá sem sækja um vegabréfsáritun og safna líftæknilegum upplýsingum eins og fingraförum og ljósmynd- um. Mh@dv.is Varnarliðsmaðurinn fluttur á Keflavíkurflugvöll: Fimm dæmi um framsal á tólf árum Á sl. tólf árum hafa komið upp fimm mál þar sem varnarliðs- menn hafa brotið af sér í ís- lenskri lögsögu en mál þeirra verið meðhöndluð af herrétti. Þetta segir Gunnar Snorri Gunn- arsson, ráðuneytisstjóri í utanríkis- ráðuneytinu, í samtali við DV. Varn- arliðsmaðurinn, sem ákærður er fyr- ir tilraun til manndráps í miðborg Reykjavíkur í júníbyrjun, var á föstu- dagskvöld færður á Keflavíkurflug- völl og mun verða í gæsluvarðhaldi hjá herlögreglu þar. Aður var hann á Lida-Hrauni. Rfldssaksóknari gaf grænt ljós á þetta til að liðka fyrir lausn málsins. Þó er tiltekið að lögsaga í málinu verði áfram í höndum íslenskra yfir- valda og dæmt verði eftir íslenskum lögum fyrir Héraðsdómi Reykjavík- ur. „Formlega séð breytir þetta engu í málinu en ætti að skapa þægilegra andrúmsloft til að vinna í,“ segir Gunnar Snorri Gunnarsson. Þrætueplið í þessu máli er hver eigi að hafa lögsögu. Utanrfldsráðu- neytið hefur talið að krafa Banda- ríkjamanna um að maðurinn verði framseldur í þeirra hendur eigi sér stoð í vamarsamningnum. Fordæmi séu fyrir því að lögbrot varnarliðs- manna í íslenskri lögsögu séu með- höndluð þannig. Erþar vitnað til áð- umefndra fimm tilvika frá síðustu tólf ámm, „... og þau em fleiri sé far- ið lengra eftir“, segir Gunnar Snorri. Hann bætir við að utanrfldsráðu- neytið hafi nú komið sjónarmiðum sínum í þessu máli á framfæri við ríkissaksóknara og fleiri með ítar- legri hætti en áður lá fyrir. -sigbogi@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.