Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2003, Blaðsíða 28
3
MÁNUDAGUR 14.JÚLÍ2003
44
Netfang: tilvera@dv.is
Sími: 550 5824 -550 5810
3
Eriksson í hnapphelduna
Genginn út: Sven Göran
Eriksson, landsliðsþjálfari
Englendinga, er sagður hafa
sagt já þegar ítalska elskan
hans til margra ára, Nancy
Dell'Olio, bað hans nýlega.
Hann er sagður hafa samþykkt
að giftast henni í heimalandi
hennar, (talíu, einhvern tíma á
næsta ári en ekki fylgir
sögunni hvenær.
Nancy hefur sagt nánum
vinum sínum að hún sé í
skýjunum yfir því að hann hafi
loks fengist til þess að giftast
henni en hún er sögð vilja
látlausa athöfn utan
sviðsljóssins. Eriksson, sem er
55 ára, hefur hingað til ekki
verið tilbúinn til þess að festa
ráð sitt formlega en fyrir HM á
síðasta ári átti hann í leynilegu
ástarsambandi við sjón-
varpskonuna Ulriku Jonsson
sem þá vildi ólm krækja í
kauða. Vinir Nancy segja hana
hafa átt hjónabandið inni hjá
Eriksson fýrir það að standa
með honum í stað þess að
sparka honum þegar hann
varð uppvís að ævintýrinu
með Ulriku sem þjarmaði
verulega að Svíanum á eftir.
Að dansa tangó við flinkan
herra er heilt ævintýri
- segir Bryndís Halldórsdóttir tangókennari
Tangótónlistin, suðræn og
seiðandi, mætir manni á
milongakvöldinu í Alþjóða-
♦ húsinu. Nokkur pör svífa um
gólfið en fyrir áhorfanda er
ekki auðvelt að sjá hvernig
kerfið er í dansinum því fjöl-
breytni sporanna er mikil -
þó gengur allt eins og smurt.
„Milonga er alþjóðlegt orð yfir
„opið tangókvöld" sem aftur þýðir
að allir séu velkomnir," segir
Bryndís Halldórsdóttir brosandi
og er tilbúin að gera hlé á dansin-
^ um til að spjalla við blaðamann
DV. Bryndís er driffjöður í íslenska
tangóldúbbnum, auk þess að
kenna tangó í Kramhúsinu ásamt
Þú kemstfljóttad!
...en þú getur Uka pantað tfma
Rakarastofan
Klapparstíg
stofnað w»i8* * síltti 551 2725
0s> umittKaiiifHSie 2S2S
imnwMfiiil-m,
/jífTj* dvm,a]KW
IMsJSþ vmnlnsstatur
% uusardasinn
ftecau JA • v» nuujftmjml 12. júií
V2V2V
. Jökertölur vlkunnar
±m
onanam!
LÉTTfl mMi
Wm9 ■ ■ ■P miftviltadðgam
manni sínum, hinum austurríska
Hany Hadaya. Við Bryndís fáum
okkur sæti á Café Kulture, í hinum
enda Alþjóðahússins. Þar er hún
fyrst spurð í hverju listin við
tangóinn felist. „Tónlistin er drif-
krafturinn og hún stýrir því hvern-
ig dansað er. En tangó er alltaf
spuni," segir hún. „Auðvitað þarf
að læra ákveðinn grunn en það er
ekki þannig að fólk dansi röð af
fyrirfram ákveðnum sporum."
Á valdi dansins
Nálægðin er mikil milli herrans
og dömunnar í tangó. Höfuð
þeirra snertast og þau virðast al-
gerlega á valdi dansins. Hreyflng-
arnar eru margslungnar og daman
Saga tangósins hófst
rétt fyrír aldamótin
18-1900. Um tíma var
hann bannaður þar
sem hann særði
blygðunarkennd
siðapostula.
tekur fleirí snúninga en herrann -
þó alltaf í fangi hans. „Það er herr-
ann sem alltaf leiðir dansinn og
daman fylgir,“ útskýrir Bryndís.
„Hvort tveggja er í raun jafn
vandasamt. Þótt daman hreyfi sig
yfirleitt mun meira þá er það herr-
ann sem leggur línurnar en hún
vinnur svo úr því svigrúmi sem
henni er gefið sem skapar ýmsa
möguleika. Þetta er því mikið
samspil og krefst stöðugrar ein-
beitingar."
Þegar Bryndís er spurð hvort
henni þyki þá ekki leiðinlegt að
dansa við herra sem lítið kann fyr-
ir sér segir hún brosandi: „Ég væri
ekki heiðarleg ef ég segði að það
væri sama við hvern maður dans-
aði." Hún bætir svo við og augun
ljóma: „Að dansa tangó við flinkan
herra er heilt ævintýri."
Nú er spáð aðeins í skóna.
„Tangóskór þurfa að hafa gott
hald fyrir fótinn og götuskór henta
oft betur en samkvæmisskór,"
segir Bryndís. Sjálf er hún nýkom-
in frá Argentínu þar sem hún
keypti sér fern pör og sér eftir að
hafa ekki fjárfest í fleiri. „Maður er
fjótur að dansa niður úr þeim þeg-
ar þetta er mikið notað," segir
hún.
Augnagotur og svipbrigði
Argentína er upprunaland
tangósins og því er forvitnast um
ferð Bryndísar þangað.
„Okkur hjónunum bauðst að
taka þátt í frábæru Master Class-
námskeiði fyrir kennara. Síðan
bættust sex pör 1' hópinn þannig
að við fórum átta saman. Þarna
var mikið dansað, bæði á nám-
skeiðinu og í milonga á kvöldin,
þar sem innfæddir voru, þannig
að þetta var mjög lærdómsríkt."
Bryndís segir ýmsar serimóníur
fylgja tangónum - til dæmis tíðkist
það að boðið sé upp með augna-
gotum og svipbrigðum. Svo er
spilað í syrpum, kannski fjögur lög
í hverri, og þegar syrpunni lýkur
og önnur tekur við er skipt og boð-
ið upp aftur. „Þess vegna geta allir
komið og dansað. Fólk þarf ekki
endilega að vera með dansfélaga
með sér," segir hún.
Nú eru konur oft sólgnari í dans
en karlar. Hvernig skyldi ganga að
fá íslenska karla í tangóinn?
Þá fáum við til okkar
frábæran tangódans-
ara og kennara, Ceciliu
Conzalez, sem við
kynntumst í Buenos
Aires og er alveg á
heimsmælikvarða.
„Vonum framar en þeir eru
óneitanlega tregari til að prófa en
konurnar," segir Bryndís og bætir
við. „Hitt þekkist líka að konur
dansi saman en það sá ég samt
aldrei í Buenos Aires. Karl-
mennskan er svo stórt atriði í
þjóðarsál Argentínumanna. Það er
frekar að við evrópsku konurnar
dönsum saman."
Allir geta lært
Saga tangósins hófst rétt fyrir
MILONGA: Um þrjátíu manns mæta að jafnaði á milongakvöldin í Alþjóðahúsinu á miðvikudagskvöldum.