Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2003, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR FIMMTUDACUR 24. JÚLl2003
Milljónir í bætta ímynd
Tvítug stúlka kærði þrjá pilta
BORGIN: Fram kemur í skýrslu
Borgarendurskoðunar um frá-
vik borgarstofnana og fyrir-
tækja frá innkaupareglum
Reykjavíkurborgar að Leikskól-
ar Reykjavíkurgreiddu kynn-
ingarfyrirtækinu GSP-almanna-
tengslum 7 milljónir króna árið
2000 fyrir að bæta ímynd sína.
Innkaupareglur Reykjavíkur-
borgar segja að öll vörukaup
sem eru yfir 500 þúsund krón-
um eða meira eigi að fara í
gegnum Innkaupastofnun en
það gerðu kaupin á kynningar-
þjónustunni ekki.
Hlutverk GSP-almannatengsla
var að gera ímynd Leikskóla
Reykjavíkur betri gagnvart fjöl-
miðlum og út á við. Þar kemur
enn fremurfram að þetta hafi
verið ákveðið í samráði við yfir-
menn í Ráðhúsinu og ekki hafi
verið talið gerlegt að bjóða
verkið út þar sem ekki var vit-
að um umfang viðskiptanna
fyrir fram. Viðskiptin munu að-
allega hafa snúist um að GSP-
almannatengsl hafi gert kynn-
ingarbæklinga þar sem leik-
skólarnir voru kynntir og séð
um að auglýsa eftir starfsfólki
fyrir Leikskóla Reykjavíkur.
MISNEYTING: Kona um tvítugt
kærði kynferðislega misneyt-
ingu þriggja manna á svipuðu
reki sem átt hefði sér stað í
húsi í Bolungarvík aðfaranótt
13. júlí sl. en vegna ölvunar
hefði hún ekki getað spornað
við verknaðinum. Fimm dög-
um eftir atvikið leitaði hún til
neyðarmóttöku í Reykjavík fyr-
ir þolendur kynferðisbrota og
lagði í framhaldinu fram kæru
hjá lögreglunni í Reykjavík sem
sendi málið lögreglunni í Bol-
ungarvík að lokinni skýrslu-
töku. Þar hafa verið teknar
skýrslur af vitnum og meintum
gerendum sem allir neita sök.
Að rannnsókn lokinni verður
málið sent embætti ríkissak-
sóknara.
Olíufélögin hafa hag-
að sér heimskulega
segirDavíð Oddsson forsætisráðherra
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra segir að olíufélögin hafi
að sínu mati hagað sér
heimskulega gagnvart neyt-
endum og þess vegna sé al-
menningur tilbúinn að kyngja
sem heilögum sannleika fram
komnum vísbendingum um
ólöglegt samráð.
„Ég hef stundum fundið að því
að olíufélögin væru mjög fljót til
gagnvart almenningi að hækka
verð en afar treg til að lækka; þá
þurfí lengi að íhuga málin og sjá
hvort framvindan sé eðlileg, hvort
verð muni breytast og svo framveg-
is,“ sagði Davfð í viðtali við DV í
gær.
Ógeðfellt
„Þetta hefur verið afskaplega
ógeðfellt og þetta hefur allur al-
menningur fundið. Þetta er ekki
bara ógeðfellt heldur líka heimsku-
legt hjá forráðamönnum olíufélag-
anna. Þó að menn séu auðvitað
neyddir til þess að fá bensín á bíl-
inn sinn, hvernig sem seljandinn
hagar sér, eiga menn ekki að not-
færa sér það. Þess vegna hafa þessi
ágætu fyrirtæki ekki þá velvild hjá
þjóðinni sem öll fyrirtæki þurfa að
hafa. Og því er öllu því sem lekið er
[úr frumskýrslu Samkeppnisstofn-
unar um meint ólögmætt samráðj
kyngt sem heilögum sannleika,"
segir Davíð.
Hann segir menn ekki hafa leyfi
til að taka afstöðu til málsins fyrr en
fyrir liggi úrskurður byggður á öll-
um þáttum þess, ekki bara sjónar-
miðum Samkeppnisstofnunar
heldur einnig þeirra sem rann-
sóknin beinist að.
Engu að síður lítur málið „skelfi-
lega“ út að hans mati, og hann seg-
ist ekki telja líklegt að röksemdir á
borð við þær, að langan tíma hafi
tekið að laga sig að nýjum sam-
keppnisreglum, myndu vega þungt
hjá dómstólum.
Lekinn umhugsunarefni
Davíð segir umhugsunarefni að
frumskýrslunni sé lekið til fjölmiðla
áður en andmælaréttur hafi verið
virtur.
Davíð segir menn ekki
hafa leyfi til að taka af-
stöðu til málsins fyrr en
fyrir liggi úrskurður
byggður á öllum þátt-
um þess, ekki bara
sjónarmiðum Sam-
keppnisstofnunar held-
ur einnig þeirra sem
rannsóknin beinist að.
„Það eru tveir aðilar sem hafa
haft þessa skýrslu; annars vegar
olíufélögin og hins vegar Sam-
keppnisstofnun. Einhver lekur
skýrslunni og menn verða bara að
velta fyrir sér hver hefur hagsmuni
af því. Olíufélögin hafa síðan engst
sundur og saman þannig að þetta
er mikið umhugsunarefni hvað
þetta varðar," segir Davíð.
Davíð vill að svo stöddu ekki
kveða upp úr um hvort hér hafi ver-
ið á ferðinni „samsæri gegn neyt-
endum" eins og það hefur verið
kallað: „En það sem maður getur
HEIMSKULEGT: Davíð Oddsson forsætisráðherra segir að olíufélögin hafi að sínu mati
hagað sér heimskulega gagnvart neytendum. Því sé almenningur tilbúinn að kyngja sem
heilögum sannleika fram komnum vísbendingum um ólöglegt samráð. DV-mynd GVA
fagnað er að þau lög sem við beitt-
um okkur fyrir að yrðu sett eru að
gera það gagn sem þau eiga að
gera.“
Staða Þórólfs mögnuð
Davíð segir óneitanlega dálítið
fyndið að sjá Þórólf Árnason borg-
arstjóra sitja f borgarráði þar sem
samþykkt er að ef olíufélögin hafi
platað borgina muni borgin gera
kröfu um bætur. Þórólfur var sem
kunnugt er markaðsstjóri Esso og
er í skýrslu Samkeppnisstofnunar
m.a. vitnað í tölvupóst frá honum
sem bendlar hann við samráð fé-
laganna, sem meðal annars er talið
hafa bitnað á Reykjavíkurborg.
„Hann veit hvort hann plataði
borgina eða ekki. Hann þarf vænt-
anlega ekki að láta rannsaka það.
Hann ætlar að gera kröfú um það
að ef hann plataði borgina fyrir
nokkrum árum þá fái hann bætur
fyrir það sem borgarstjóri. Þetta er
afskaplega - magnað," segir Davíð.
Hann bætti því við, spurður, að
það hefði engin áhrif haft á stöðu
Sóiveigar Pétursdóttur innan rfkis-
stjórnarinnar að eiginmaður henn-
ar er Kristinn Björnsson, fráfarandi
forstjóri Skeljungs.
í Helgarblaði DV
í Helgarblaði DV verður viðtalið
við forsætisráðherra birt í heild. Þar
tjáir hann sig nánar um varnar-
samninginn við Bandaríkin, mál
hermannsins sem handtekinn var
vegna hnífstungu í Hafnarstræti,
meint samráð olíufélaganna og
fleiri mál. -ÓTC
Forsætisráðherra um varnarliðið:
Lítill gangur í varn-
arliðsviðræðum
SÓLHEIMAR (GRfMSNESI: Dellt hefur veriö um fjárframlög til starfseminnar þar en nú er
leitaö lausna á dellunni.
Losað um stífnina
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra segir lítið hafa þokast í
viðræðum við Bandaríkjamenn
um varnarliðið á Keflavíkur-
flugvelli.
Þó hafi símtal hans og Condo-
leezzu Rice, þjóðaröryggisráðgjafa
Bandaríkjanna, um síðustu helgi
verið „ýtarlegt og vinsamlegt". Dav-
íð upplýsti í gær að Rice hefði
hringt í sig að frumkvæði Banda-
ríkjaforseta.
„Það er ekki hægt að segja að þar
með sé málið leyst en samtal okkar
lýsir því þó að Bandaríkin taka
þetta mál alvarlega og vilja koma
því í þann farveg að þetta séu tvær
vinaþjóðir að ræða saman, en
byggist ekki á þeim atburðum sem
urðu 2. maí,“ segir Davíð og vísar
þar til tilkynningar sem sendiherra
Bandaríkjanna flutti honum um að
tekin hefði verið endanleg ákvörð-
un um það í Washington að orr-
ustuþotumar fjórar yrðu fluttar frá
fslandi innan eins mánaðar.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær
næsti formlegi samningafundur
verður haldinn og segir Davíð til-
gangslaust fyrir fslendinga að
ganga til fundar ef fyrir fram sé ljóst
að enginn árangur verði af honum.
Hann segir hvorki tímabært að
upplýsa um efni bréfaskipta hans
og Bush Bandaríkjaforseta né önn-
ur efnisatriði viðræðnanna að öðm
leyti en því að á milli þjóðanna séu
uppi ólík sjónarmið um það hvað
teljist lágmarksvarnir og hvernig
megi tryggja þær. -órc
„Við erum þessa dagana að fara
heildstætt yfir samskipti ríkis-
ins og Sólheima og leita lausna
svo lenda megi málinu," segir
Árni Magnússon félagsmála-
ráðherra.
Hann hefur undanfarið átt í við-
ræðum við stjómendur Sólheima í
Grímsnesi en deilur vom milli
stjórnenda á staðnum og fyrrver-
andi félagsmálaráðherra, Páls Pét-
urssonar. Sjónarmið Páls vom að
þau framlög sem staðurinn fékk frá
ríkinu hefðu ekki runnið öll til mál-
efna fatlaðra heldur alls óskyldra
hluta. Þjónustusamningur við Sól-
heima er genginn úr gildi og hefur
ekki verið endurnýjaður. En þótt
svo sé hefur fjármálaráðherra
tryggt að starfsemin fái sömu fjár-
framlög og áður.
Árni segir málsaðila vera . . að
vinna heimavinnuna sína þannig
að við komumst til botns í þessu
máli.“ sigbogi&dv.is