Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2003, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2003, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ2003 DV SPORT 29 Gerðum það sem þurfti Fyrsta markið í 363 mínútur KNATTSPYRNA: Mihai Stoichita, þjálfari Pyunik, virtist ekki vera skemmt þegar blaða- maður DV Sports ræddi við hann eftir leikinn í gær, jafnvel þótt lið hans væri komið áfram í aðra umferð forkeppni meist- aradeildarinnar. „Við gerðum það sem þurfti, meira ekki. Ég var ánægður með varnarleikinn hjá liðinu og við hefðum sennilega átt að skora fleiri mörk því að við brenndum af vítaspyrnu og öðru mjög góðu færi skömmu seinna. KR-liðið kom mér ekki á óvart. Ég vissi að liðið var gott. Leik- mennirnir vinna vel saman og þeir voru skemmtilegir and- stæðingar sem eiga framtíðina fyrir sér." NÓG: Mihai Stoichita, þjálfari Pyunik, var jarðbundinn. KNATTSPYRNA: Þegar Arnar Gunnlaugsson jafnaði leikinn úr víti fyrir KR gegn armenska liðinu Pyunik Jerevan í gær batt hann enda á 363 mínútna markaþurrð íslenskra liða í keppninni. Markið skoraði Arnar á 82. mínútu þessa seinni leiks lið- anna í forkeppni fyrstu um- ferðar Meistaradeildar Evrópu. íslenskt lið hafði ekki skorað í Meistaradeild Evrópu síðan Sigurvin Ólafsson tryggði KR 2-1 sigur á albanska liðinu VII- aznia á 79. mínútu 11. júlí 2001 en KR tókst þó ekki að komast áfram úr þeim leikjum. Á sama tíma höfðu mótherjar íslensku liðanna skorað sjö mörkgegn engu íslensku. skoraði fyrir KR gegn Pyunik. \ ski.'Wðl ílðan úr. EVRÓPH - MEI5TARADEILD 1. umferð forkeppni, seinni leikur Skonto-Sliema 3-1 Biutkus, Verpakovskis, Dedura - Brincat. Sliema vann á marki skoruðu á útivelli. Bohemians-BATE 3-0 Caffrey, Ryan, Crowe. Bohemians vann samanlagt, 3-1. Kaunas-HB 4-1 Beniusis 2, Kancelskis, Opic - Jacob- sen. Kaunas vann samanlagt, 5-1. HJK Helsinki-Glentoran 1-0 Makelá. HJKvann samanlagt, 1-0. Irtysh-Omonia Nicosia 1-2 Agayev - Rauffmann, Georgiou. Omonia vann samanlagt, 2-1. KF Tirana-DinamoTblisi 3-0 Suad Lici, Indrit Fortuzi, Mahir Halili. Tirana vann I vitakeppni, 4-2. BarryTown-Vardar Skopje 2-1 Jarman, Moralee - Oliveira. Vardar vann samanlagt, 4-2 Leotar-Grevenmacher 2-0 Dusan Kerkez 2. Leotar vann samanlagt, 2-0. Flora-Sheriff 1-1 Kristen Viikmae - Andriy Nesteruk. Sheriffvann samanlagt, 2-1. KR-Pyunik 1-1 Arnar G., víti - Mkrtchyan. Pyunik vann samanlagt, 2-1. ISLENSK I.IÐ I MEISTARADEILDINNI Þriðja árið í röð út úr fyrstu umferð Þriðja árið í röð þurfa íslensk lið að sætta sig við að detta út úr fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu en íslensku liðin hafa fallið út gegn albönsku (KR, 2001), bosnísku (ÍA, 2002) og armensku (KR, 2003) liði síðustu þrjú tímabil. Allt frá árinu 1997 hafa íslensk lið tekið þátt í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Hún hófst 1994 og var lokuð fyrstu þrjú tímabilin en íslensku meistararnir fengu þá þátttökurétt í UEFA- keppninni. Saga íslenskra liða í Meistaradeildinni: 1997 lA 1. umferö Kosice (Slóvakíu) 0-4 samtals 1998 IBV 1. umferð Obilic (Júgóslavíu) 1-4 1999 (BV 2. umferð SKTirana (Albaníu) 3-1 MTK Búdapest (Ungverjalandi) 1-5 2000 KR 2. umferö Birkirkara (Möltu) 6-2 Bröndby (Danmörku) 1-3 2001 KR 1. umferð Vllaznia (Albaníu) 2-2 2002 lAl.umferö ■Zeljaeznicar (Bosníu) 0-4 2003 KR 1. umferð Pyunik Jerevan (Armeníu) 1-2 ooj.sport@dv.is ENGIN VETTLINGATÖK: Leikmenn KR fengu oftar en ekki óblíðar viötökur þegar þeir nálguðust vítateig gestanna. Hér sést Arnar Gunnlaugsson stöðvaður á frekar ólöglegan hátt. DV-mynd E.ÓI. „Engin skömm" Willum Þór Þórsson, þjálfari KR-inga, var daufur í dálkinn þegar DV Sport ræddi við hann eftir leikinn gegn Pyunik í gærkvöld. „Auðvitað er svekkjandi að hlutimir skyldu ekki ganga eins- og við hefðum viljað. Það kom hins vegar á daginn, sem við viss- um, að armenska liðið er sterkt og við náðum ekki að opna vömina hjá þeim. Það er engin skömm að tapa fyrir þessu liði en ég neita þvf ekki að ég hefði gjaman viljað komast áfram í leikina gegn Búlgömnum. Við spiluðum góðan vamarleik og gáfum fá færi á okkur allt þar til við fengum markið á okkur en eftir það var á brattann að sækja. Fram að því fannst mér við vera „Það er engin skömm að tapa fyrir þessu liði en ég neita því ekki að ég hefði gjarnan viljað komast áfram í leikina gegn Búlgörunum inni í leiknum og það var mín til- finning að ef við hefðum náð einu marki þá hefðu þeir brotnað. Það tókst hins vegar ekki og því fór sem fór," sagði Willum Þór. „Ég var mjög ánægður með baráttuna í liðinu - allir lögðu sig 100% fram og meira er ekki hægt að fara fram á," sagði Willum Þór. Svekkjandi Sölvi Davíðsson, hinn ungi kantmaður KR-inga, var svekktur eftir leikinn. „Það var svekkjandi að ná ekki að klára þetta. Við vorum inni í leiknum allt þar til þeir skoruðu en þá var á brattann að sækja fyrir okkur." oskar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.