Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2003, Side 8
8 FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 24. JÚLl2003
Meistaranám á Bifröst hafið
MENNTUN: Meistaranám er hafið
á Bifröst en fyrsta önnin hófst um
liðna helgi. Hefðbundin kennsla
hófst í gær með námskeiðinu
„Hlutverk stjórnandans" í umsjá dr.
Árelíu Eydísar Guðmundsdóttur.
Tuttugu og þrír nemendur eru
skráðir í þennan fyrsta hóp meist-
aranema á Bifröst, fimmtán í MS-
nám í viðskiptafræði, þar af flestir í
fjármálaval, og átta í MA-nám í
hagnýtum hagvísindum þar sem
meirihlutinn er skráður í Evrópu-
fræðival. Nemendurnir búa á Bif-
röst í fjórar vikur á meðan á sum-
arönn stendur. (byrjun september
breytist námið í fjarnám sem
stendur fram á næsta vor. Þeir sem
eru á fullum hraða í náminu eiga
kost á að Ijúka því að 13 mánuðum
liðnum, að lokinni annarri sum-
arönn og ritun meistararitgerðar.
Árekstur í Ártúnsbrekku
ÓHAPP: Betur fór en á horfðist
þegar þessi fólksbíll lenti fyrir
framan flutningabíl eftir
árekstur þeirra í Ártúns-
brekkunni í fyrradag. Flutn-
ingabíllinn ýtti fólksbílnum á
undan sér töluverðan spöl
áður en þeir stöðvuðust. Eng-
inn meiddist við óhappið.
DV-mynd Pjetur
Á VETTVANGI: Trukkurinn ýtti
fólksbílnum dágóðan spöl.
Framkvæmdum lokið
fyrir afmæli borgarinnar
Mikið hefur verið um fram-
kvæmdir við götur í miðbæ
Reykjavíkur í sumar. Stefnt er
að því að Ijúka öllum fram-
kvæmdum í miðbænum áður
en Reykjavíkurborg heldur af-
mæli sitt hátíðlegt þann 18.
ágúst.
Framkvæmdir við gatnakerfið í
Lækjargötu hafa staðið yflr í sumar.
Fyrirhugað er að endurnýja yfir-
borð vega í götunni, auk þess að
snyrta allt umhverfið í kring. Áætl-
að er að framkvæmdunum verði
Iokið fyrir afmæli Reykjavíkurborg-
ar sem haldið verður hátíðlegt
þann 18. ágúst.
Allt upphitað
Mikiar framkvæmdir hafa staðið
yfir í miðbæ Reykjavíkur í vor og í
sumar en nú síðast hófust fram-
kvæmdir við vestari akrein Lækjar-
götu.,
Veitukerfí hefur verið
endurnýjað á öllu svæð-
inu og þegar göturnar
verða opnaðar á ný verða
þær allar upphitaðar
þannig að svæðið verði
allt hið glæsilegasta.
UPPHrTAÐAR GÖTUR: Þegar lokið hefur verið við framkvæmdirnar í Lækjargötu verða
göturnar upphitaðar þannig að svæðið mun verða öllum fært að vetri til.
HELLULAGNING HEFST í DAG: Stefnt er að því að hefja hellulagnir á svæðinu Austurstrætismegin við Lækjargötu í dag en framkvæmd
um í bænum á að vera lokið fyrir afmæli Reykjavíkurborgar þann 18. ágúst.
Gert er ráð fyrir því að hafist
verði handa við að helluleggja
Austurstrætismegin á svæðinu í
dag en þrátt fyrir þessar miklu
framkvæmdir verður áfram opið
fyrir umferð um svæðið. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Höskuldi
Tryggvasyni á framkvæmdadeild
gatnamálastofu er allt kapp lagt á
að klára verkið fyrir afmæli Reykja-
víkurborgar, sem er þann 18. ágúst,
og verður þá öllum framkvæmdum
sem fyrirhugaðar eru í miðbænum
í ár lokið.
Veitukerfið hefur verið endurnýj-
að á öllu svæðinu og þegar göturn-
ar verða opnaðar á ný verða þær
allar upphitaðar þannig að búast
má við því að svæðið verði allt hið
glæsilegasta. Þá verður bungan á
gatnamótum Lækjargötu og
Bankastrætis lækkuð og vegurinn
þar jafnaður lítillega. Meðan á
framkvæmdunum stóð var leitað
að brú frá fornri tíð sem var á sín-
um tíma yfir lækinn. Farið var yfir
svæðið með jarðsjá og ákveðnar
vísbendingar fúndust um hvar brú-
in væri. Þegar það var síðan athug-
að komu í ljós leifar af mannvirki
en eftir að leitað hafði verið til forn-
leifafræðinga og aðila frá Árbæjar-
safni var ákveðið að láta þessar leif-
ar vera á sínum stað. f upphafi var
talið að þetta gæti seinkað fram-
kvæmdum um einhvern tíma en
svo er þó ekki. Enn er því stefnt að
því að ljúka öllum framkvæmdum í
miðbænum áður en Menning-
árnótt verður haldin hátíðleg á af-
mæli borgarinnar. agust@dv.is
Rekstri gæsluvalla
í núverandi mynd hætt
Nokkuð hefur verið rætt um
lokun gæsluleikvalla víðs vegar
um borgina og hafa foreldrar
verið ósáttir við þær aðgerðir
borgaryfirvalda. Undirskrifta-
listar ganga um hverfin þar sem
foreldrar mótmæla fyrirhugaðri
lokun. Þeir telja að slíkt komi
illa við þá og börn þeirra, sér-
staklega ef loka eigi völlunum
að sumarlagi þar sem leikskól-
arnir loki einnig á þeim tíma.
Á vegum Leikskóla Reykjavfkur
eru starfræktir tólf gæsluvellir sem
ætlaðir eru börnum á aldrinum
tveggja til sex ára. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Leikskólum Reykja-
víkur hefur að undanförnu verið
rætt um tilgang og framtíðarskipu-
lag leikvallanna. Aðsókn hefur
minnkað á gæsluvelli undanfarin
ár og heimsóknum fækkað um nær
100.000 síðan árið 1990.
Starfsemi þeirra verður
endurskoðuð haustið
2005 og þá litið til
fjölda heimsókna.
Að sögn leikskólanna helst
minnkandi eftirspurn eftir þjón-
ustu gæsluvalla í hendur við fjölg-
un leikskólarýma í Reykjavík en um
94% barna á aldrinum tveggja til
fimm ára eru í leikskóla, þar af 85%
allan daginn.
Ný framtíðarskipan
Á leikskólaráðsfundi 13. júní sl.
var ákveðið að halda þeirri stefnu,
sem samþykkt var í nóvember 2002,
að hætta rekstri gæsluvalla í núver-
andi mynd á næstu 2-3 árum. Ný
framtíðarskipan felur í sér að áfram
verði starfræktir tíu gæsluvellir til 1.
september 2004 en þá verði starf-
semi gæsluvalla við Brekkuhús,
Fífusel, Fróðengi, Safamýri og Vest-
urberg hætt. Eftir það verða fimm
gæsluvellir í Reykjavík, einn í hverj-
um borgarhluta, en það eru vellirnir
við Njálsgötu, Rauðalæk, Malarás,
Arnarbakka og Hamravík. Starfsemi
þeirra verður endurskoðuð fyrir
haustið 2005 og verður þar litið til
fjölda heimsókna. Frá og með 15.
ágúst 2003 verður ÍTR boðið að taka
við rekstri gæsluvallanna við Frosta-
skjól og Hlaðhamra þar sem aðstað-
an verður notuð fyrir frístunda-
heimili barna á grunnskólaaldri yfir
vetrartímann en opið fyrir yngri
börn með svipuðu sniði og verið
hefur á sumrin. -EKA