Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2003, Qupperneq 10
10 DVSPORT FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ2003
DV Sport
Keppni í hverju orði
Netfang: dvsport@dv.is
Sími: 550 5885 ■ 550 5887 • 550 5889
í sjötta sinn í Eyjum
GOLF: íslandsmótið í golfi fer
nú fram í sjötta sinn í Vest-
mannaeyjum en fyrst fór mótið
þar fram 1959 en síðast fyrir
sjöárumeða árið1996.
Fimm félög unrtið
Kylfingar frá fimm félögum
hafa fagnað sigri í Eyjum eða
öll félög sem eiga (slands-
meistara nema GK og NK. Þetta
er reyndar aðeins í annað
skipti sem konurnar keppa í
Eyjum en í bæði skiptin hafa
Suðurnesjakonurfagnað sigri.
Þeir sem hafa borið sigur úr
býtum á Islandsmótinu í golfi
þegar það hefur farið fram í
Eyjum eru Sveinn Ársælsson,
GV, árið 1959, Óttar Yngvason,
GR, árið 1962, Magnús Guð-
mundsson, GA, árið 1964, Þor-
björn Kjærbo, GS, árið 1968 og
Birgir Leifur Hafþórsson, GL, ár-
ið 1996 en þá vann hann með
sjö högga mun á næsta mann
- mestu yfirburðir í sögu móts-
ins.
Tvær úr GS
Kvennaflokkurinn hefurtvíveg-
is verið spilaður í Eyjum. Guð-
finna Sigurþórsdóttir úr GS
vann árið 1968 og Karen Sæv-
arsdóttir, einnig úr GS, vann ár-
ið 1996 en hún hefur oftast
allra kvenna unnið íslandsmót-
ið eða alls átta sinnum.
Magnús á metið
Magnús Guðmundsson úr GA
á metið á (slandsmótinu en
1964 lék hann hringina fjóra á
tíu höggum undir pari í Eyjum
STEFNIR Á SIGUR: Ólöf María
Jónsdóttir stefnir á sigur á
íslandsmótinu í höggíeik sem
hefst í Vestmannaeyjum í
dag.
Stefni á titilinn
segir ÓlöfMaría Jónsdóttir, meistari síðasta árs
Ráðum ekki yfir veðrinu
segir Helgi Bragason, formaður Golfklúbbs Vestmannaeyja
Það blés ekki byrleqa fyrir
skipuleggjendum Islands-
mótsins í golfi enda var eins og
hellt væri úr fötu, slík var rign-
ingin í Eyjum í gær. En Eyja-
menn voru bjartsýnir á að
veðrið yrði betra í dag og Helgi
Bragason, formaður Golf-
klúbbs Vestmannaeyja, sagði
að allt væri klárt til að hefja
leik á vellinum í Eyjum.
„Veðrið er í raun það eina sem
við getum ekki stýrt og eins og
staðan er núna er ekki hægt að
spila á vellinum vegna bleytu. En
völlurinn er fljótur að þorna og ef
veðurspáin rætist þá verður byrj-
að að spila hér árla dags á morgun
(ídag)."
Hvernig hefur undirbúningur
gengið fyrir mótið?
„Undirbúningurinn hefur geng-
ið mjög vel. Það eru 110 þátttak-
endur sem spila um helgina og lík-
lega annað eins sem fylgir þeim
þannig að þetta eru rúmlega tvö
hundruð manns sem koma hing-
að eingöngu vegna mótsins. Und-
irbúningur sem slíkur hófst í raun
þegar fslandsmótinu lauk í fyrra
en þar fylgdumst við með. Við fá-
um auðvitað aðstoð vfða en svo
þurfum auðvitað marga sjálfboða-
lið í ýmis störf á meðan á mótinu
stendur - ætli þetta séu ekki á bil-
in 50-100 manns frá GV sem starfa
við mótið."
Hvaða þýðingu hefur það fyrir
GVað halda mótið?
„Þetta er auðvitað góð auglýs-
ing fyrir völlinn og Eyjarnar sem
slíkar. Svo er líka drifið í því að
klára ýmsa hluti sem kannski hafa
fengið að bíða, eins og t.d. hús-
næðið hérna - nú er verið að
vinna í efri hæðinni sem hefur
staðið fokheld í nokkurn tíma.
„Allt til reiðu nema þá
veðrið sem við ráðum
því miður ekki við."
Við höfum reyndar lítið þurft að
vinna í vellinum sjálfum enda hef-
ur hann aldrei verið betri en
einmitt nú. Það eina sem við höf-
um gert er að gera völlinn erfiðari,
þrengja brautir og grasið utan
brautanna er mjög þétt og erfitt
viðureignar, þannig að völlurinn
er orðinn mjög krefjandi íýrir þá
bestu."
Nú eru aðstœður ekki nógu góð-
ar en hvað gerist ef veðrið lagast
ekki?
„Mótsstjórn tekur einfaldlega
ákvörðun um það í fýrramálið en
það hafa allir lent í því að þurfa
fresta móti um einhvern tíma.
Veðrið er í raun kjörið til þess að
leika golf núna ef það rigndi ekki
svona mikið því að það er nánast
logn og frekar hlýtt. En eins og ég
segi þá er allt til reiðu nema þá
veðrið sem við ráðum því miður
ekki enn við.“ jgi
Birgir Leifur Hafþórsson:
í frábæru formi
Spilaði á 22 undir parí um helgina
Birgir Leifur Hafþórsson,
kylfingur úr Golfklúbbi Garða-
bæjar, virðist vera í feikna-
góðu formi þessa dagana.
Hann hélt sýningu á meistara-
móti klúbbsins um sfðustu helgi
og lék á 258 höggum eða 22 högg- •
um undir pari, sem er betra skor
en nokkur annar fslenskur
kylfingur hefur náð. Hann lék best
annan daginn en þá lék hann á
níu höggum undir pari.
Birgir Leifur náði fimm örnum,
sem er tveir undir pari, 16 fuglum,
sem er einn undir pari, 47 sinnum
fór hann á pari vallarins og hann
fékk aðeins fjóra skolla sem er
einn yfir pari.
Eins og fram kemur annars
staðar í opnunni þá hefur Birgir
Leifur ekki spilað á Islandsmótinu
Birgir Leifur náði fimm
örnum, sem er tveir
undirpari, ogló fugl-
um, sem er einn undir
pari.
sfðan hann vann f Vestmannaeyj-
um og verður fróðlegt að fylgjast
með kappanum á mótinu sem
hefst í dag. oskar@dv.is
Ólöf María Jónsdóttir, úr Golf-
klúbbnum Keili, er mætt til
Vestmannaeyja til að verja titil
sinn frá því á Hellu í fyrra. Ólöf
hefur þrívegis unnið íslands-
meistaratitilinn, í fyrra, árið
1999 og 1997.
Hún sagði í samtali við DV Sport
í gær að mótið legðist mjög vel í sig.
„Ég er í ágætis formi og finnst
spilamennskan vera að batna. Ég
kom vegna meiðsla en mér finnst
ég vera að ná mér á strik núna. Ég
er kannski ekki búin að æfa jafn-
mikið og vanalega en ég átti gott
undirbúningstTmabil og græði á
því,“ sagði Olöf María.
„Ég stefni að sjálfsögðu á titilinn
- það er ekkert annað sem kemur til
greina hjá mér. Ég hef titil að verja
og ætla mér ekki að láta hann af
hendi án baráttu."
Mesta pressan frá mér
Aðspurð sagði Ólöf María að hún
fyndi fyrir meiri pressu frá fólki í
kringum sig vegna Bandaríkjadval-
arinnar en hún sagði að það hefði
engin áhrif á sig.
„Ég mun einbeita mér að því að
„Ég stefni að sjálfsögðu
á titilinn - það er ekk-
ert annað sem kemur
til greina hjá mér."
spila mitt golf. Ég set sjálf mikla
pressu á mig og það er mesta press-
an. Ég get ekki gengið um og hugs-
að sífellt um hvað öðrum finnst. Ég
geri það sama og venjulega, tek
eina holu í einu og sé hvert það
skilar mér.“
Sakna Herborgar
Ólöf María sagðist búast við
mestri keppni frá Ragnhildi Sigurð-
ardóttur úr Golfklúbbi Reykjavíkur
og hinum ungu Önnu Lfsu Jó-
hannsdóttur og Helgu Rut Svan-
bergsdóttur, úr Golfklúbbnum Kili.
„Þær hafa spilað vel í sumar og
verða án efa mjög erfiðar viður-
eignar. Ég sakna þess að Herborg
Arnarsdóttir er ekki með ár. Hún er
frábær kylfingur en kemur væntan-
lega sterk inn að ári."
Ólöf María sagði að völlurinn
væri mjög góður en blautur og að
hún ætti von á skemmtilegu og
spennandi móti. oskar@dv.is
í FlNU FORMI: Birgir Leifur Hafþórsson þykir sigurstranglegastur í Vestmannaeyjum.