Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2003, Side 16
1 6 TILVERA FIMMTUDAGUR 24. JÚU2003
Tilvera
Fólk ■ Heimilið • Dægradvöl
Netfang: tilvera@dv.is
Sími: 550 5824 -550 5810
Stiklað á þrettándakvöldi
SÝNINGAR: Lokaverkefni
götuleikhússins í Kópavogi
þetta sumarið er Þrettánda-
kvöld eftir Shakespeare. í
hópnum eru 13-15 ára
krakkar sem unnu saman
að því að stytta leikritið nið-
ur í klukkutíma og gerðu
líka leikmynd og búninga.
„Krakkarnir eru búnir að
vera alveg ótrúlega dugleg-
ir. Þetta er náttúrlega ekki
það auðveldasta en ég held
þeir séu búnir að læra alveg
helling á þessu," segir Mar-
grét Eir sem er leikstjóri
ásamt Valdimar Kristjóns-
syni. Frumsýnt verður í dag
kl. 17 og þrjáraðrarsýning-
ar verða næstu daga.
Basic frumsýnd í Sambíóunum og Háskólabíói:
Hasar í Panama
Háskólabíó og Sambíóin frum-
sýna á morgun, föstudag,
bandarísku spennumyndina
Basic. Myndin skartar þeim
John Travolta og Samuel L.
Jackson í aðalhlutverkum og er
þetta fyrsta myndin sem þeir
leika í saman eftir Pulp Fiction.
Aðrir leikarar sem vert er að
minnast á eru Connie Nielsen,
Brian Van Holt, Timothy Daly og
Giovanni Ribisi.
Basic gerist að rriestu í frum-
skógi í Panama á meðan fellibylur
gengur yfir svæðið og segir frá því
þegar herstjórinn Nathan West,
leikinn af Samuel L. Jackson, og
nokkrir af mönnum hans hverfa í
hefðbundnum æfingarleiðangri.
Fíkniefnalögreglumaðurinn Tom
Fíkniefnalögreglumað-
ur rannsakar hvarffé-
laga sinna og kemst að
því að víða er pottur
brotinn.
Hardy, sem er leikinn af John Tra-
volta, er settur í að rannsaka hvarf
þeirra. Þegar hann hefur rannsókn
málsins kemur í Ijós að víða er
pottur brotinn og ekki er allt sem
sýnist. Fleiri koma að málinu en
hann hefði getað látið sér detta í
hug í fyrstu og margir sem reyna
að hindra framgang réttvísinnar,
þar á meðal ríkisstjórnin sem vill
alls ekki að hann komist til botns í
málinu.
Reyndur hasarmyndaleik-
stjóri
Leikstjóri Basic er John McTi-
ernan en hann hefur áður leikstýrt
hasarmyndum á borð við Predator
með Arnold Schwarzenegger og
Die Hard og Die Hard With a
Vengeance með Bruce Willis
þannig að hann kann tökin á
hasarmyndunum.
Leikarinn John Travolta, sem
leikur lögreglumanninn Tom
Hardy, á að baki langan og skraut-
legan feril allt frá því hann sló í
gegn á áttunda áratug síðustu ald-
ar í myndunum Saturday Night
Fever og Grease. Travolta hefur
þurft að stíga ölduna í gegnum
tíðina því annaðhvort eiga menn
ekki nógu stór orð til að lýsa hæfl-
leikum hans eða hæfileikaleysi,
allt eftir því í hvað mynd hann
leikur hverju sinni. Hann þótti til
dæmis hræðilegur í Urban Cow-
boy, frábær í Pulp Fiction, hryll-
ingur í Battlefield Earth og æði í
Swordfish.
Ferill Samuels L. Jacksons hefur
verið nokkuð jafn í gegnum tíðina
og hann yfirleitt skilað þokkaleg-
um leik. Jackson mun hafa leikið í
einum áttatíu myndum á ferlin-
um, þar á meðal Pulp Fiction, Die
John McTiernan hefur
áður leikstýrt myndum
á borð við Predator, Die
Hard og Die Hard With
a Vengeance.
Hard With a Vengeance og Star
Wars.
Connie Nielsen, sem leikur Os-
born, kvenhetjuna í myndinni,
sem á að hafa yfirumsjón með
rannsókn málsins, hefur áður leik-
ið í Gladiator og One Hour Photo
þar sem hún fór á kostum.
Hvað gerðist?
Til að komast til botns í málinu
þurfa Hardy og Osborne að taka
höndum saman, þrátt fyrir að það
sé þeim þvert um geð. Hvers
vegna hurfu mennirnir í æfinga-
leiðangri? Hvers vegna klofnaði
hópurinn og hvers vegna skutu
menn hver á annan? Þau vilja
bæði komast að hinu sanna og
verða að gera það áður en það er
of seint.
kip@dv.is
EKKI ER ALLT SEM SÝNIST: Lögreglu-
maðurinn Tom Hardy, leikinn af John
Travolta, er settur í að rannsaka hvarf
félaga sinna en þegar hann hefur
rannsóknina kemur í Ijós að víða ligg-
urhundurgrafinn.
HÓTEL ALDAN: Húsið við Oddagötu þar sem Landsbankinn var áður. Þar eru nú nfu
lúxusherbergi en í gamla kaupfélaginu er svefnpokapláss og veitingar.
Hótel Aldan opnað á Seyðisfirði:
Stíllinn bervottum virðuleik
Fyrstu áfangar Hótel Öldunnar á
Seyðisfirði vom vígðir á þriðjudag-
inn. Þar með var opnað fyrir gist-
ingu á Oddagötu (gamla banka) og
veitingasal og gistingu í Norður-
götu (gamla kaupfélaginu). Þetta er
merkur áfangi í sögu bæjarins þar
sem gistirými hefur skort. Allar inn-
réttingar eru í gamaldags stíl sem
gefur hótelinu ímynd eldri tíma.
Seyðflrskir iðnaðarmenn hafa séð
um framkvæmdimar. Hugmyndin
er að breyta enn fleiri gömlum hús-
um í Hótel Ölduna og því er það
nefnt húsahótel.
Margir gestir vom við opnunina
og þágu þeir góðar veitingar. Þeirra
á meðal var Sigurjón Sighvatsson
kvikmyndagerðarmaður sem er
einn hluthafa í verkefninu. Hann
og Jóhann Hansson, forseú bæjar-
stjórnar, klipptu á vígsluborðann.
Jóhanna Gísladóttir, ein af fmm-
kvöðlunum og stjórnarformaður
fyrirtækisins, hélt ræðu við vígsl-
una og lýsti verkefninu.
Ung hjón, nýkomin úr námi í
Danmörku, munu annast rekstur
hótelsins, Dýri Jónsson, sem hefur
lokið námi í markaðshagfræði, með
áherslu á nýsköpun, og Ríkey Krist-
jánsdóttir handavinnukennari,
með áherslu á gamlan útsaum.
Hún mun kenna við skólann á
Seyðisfirði í vetur. Ríkey og Dýri eru
Seyðfirðingar sem snúa heim að af-
loloiu námi og ganga til hótelrekst-
ursins, full áhuga og bjartsýni. KÞ
OPNUNARRÆÐA: Jóhanna Gísladóttir, stjórnarformaður Öldunnar, flutti ávarp við
vígsluna.
GSLA: Sigurbjörg Sigurjónsdóttir tók við bút úr vígsluborða Hótel Öldunnar úr hendi föður síns, Sigurjóns Sighvatssonar kvik-
myndagerðarmanns sem er einn af hluthöfum hótelsins. DV-myndir KÞ