Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2003, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ2003 TILVERA 17
Ofleikur
tÐNÓ: Leikhópurinn Ofleikur
frumsýnir Date í Iðnó við Tjörn-
ina í kvöld kl. 20. Ofleikur er
skipaður úrvalsfólki úr fram-
haldsskólunum í Reykjavík og
leikstjóri Date er Jón Gunnar
Þórðarson. Sveitarfélög á höf-
uðborgarsvæðinu og samtökin
Ungt fólk í Evrópu styrktu upp-
setningu sýningarinnar.
UM 70 með á LungA
LungA, listahátíð unga fólks-
ins á Austurlandi, var haldin á
Seyðisfirði 16. til 20. þessa mán-
aðar. Þar komu saman unglingar
af öllu landinu, á aldrinum
16-25 ára. Þeir unnu á nám-
skeiðum við stensilverk, maga-
dans, stuttmyndagerð og margt
fleira. Einnig fór fram keppni í
fatahönnun og lagasamkeppni.
Þetta er langfjölmennesta
LungA-hátíð sem haldin hefur
verið en alls tóku 70 manns þátt
í námskeiðunum og voru í
vinnubúðum allan tímann.
Þrettán hljómsveitir kepptu á
hátíðinni og sjö tóku þátt í
keppni í fatahönnun. Verðlaun
hlutu Þórey Birna frá Borgarfirði
og hljómsveitin Vegaljós frá
Fellabæ.
Hljómsveitin í Svörtum fötum
spilaði fyrir dansleik á laugar-
dagskvöld. Á þann dansleik
komu hátt í 600 manns. Á
sunnudaginn var haldin upp-
skeruhátíð þar sem sýndur var
afrakstur námskeiðanna. Veðrið
var yndislegt og öll samkoma fór
fram með ágætum. KÞ
HÁTlÐ: Þetta er langfjölmennesta LungA-hátíð sem haldin hefur verið en alls tóku
70 manns þátt í námskeiðunum. DV-mynd KÞ
ÁHRIF TÓBAKS Á HEILSUFAR
Tóbak inniheldur meira en 40 þekkt krabbameinsvaldandi efni, sem geta
valdið fjölda mismunandi tegunda af krabbameini.
að tennur losna. Þá hefur tóbak truflandi
áhrif á blóðrásina og sár eiga erfiðar með
að gróa, til dæmis eftir tanndrátt. Bragðskyn
skerðist og því þurfa þeir sem reykja að
krydda mat sinn meira en aðrir. Hætta er á
krabbameini í munniholi og barka og talið er
að tóbaksneysla sé mikilvæg orsök fyrir
krabbameini í vélinda og skiptir þá engu máli
hvort um reyk-, nef- eða munntóbak er að
og tóbaksreykurinn erta Bragðskyn skerðist og N ræða Þá auka reykingar
slimhuðina i munnholi, breytir , f b , ki , einnig hættuna a siukomum
sýrustiginu og ýmislegtfleira. k dda mat sinn meira en I maga, briskirtli og ristli.
" .... " " ------------Þess vegna marg borgar það
Guðbjörg Pétursdóttir,
hjúkrunarfræðingur.
Áhrif tóbaksneyslu á
munn og meltingarveg.
Munnholið hefur verið
nefnt spegill líkamanns,
þar koma fyrstu afleiðingar
tóbaksneyslu í Ijós: gular
tennur, andremma og
tannholdsbólga. Tóbakið
Þetta á ekki bara við um
reyktóbak heldur tóbak í hvaða formi sem
er, einnig neftóbak og munntóbak. Skaðleg
efni í munntóbaki valda ertingu í slímhúð
munnsins og bólgu sem getur leitt til þess
sig að byrja aldrei að reykja eða hætta sem
fyrst!
www.dv.is
HVERNIG REYKINGAMAÐUR ERT ÞÚ?
TAKTU REYKINGAPRÓFIÐ Á WWW.DV.IS
Nicotineir
Nicotinell tyggigúmmí er lyf sem er notað sem hjálparefni til að hætta eða draga úr reykingum. Það inniheldur nikótín sem losnar þegar
tuggið er, frásogast I munninum og dregur úr fráhvarfseinkennum þegar reykingum er hætt. Tyggja skal eitt stykki I einu, hægt og rólega
__ ._ . . _____stykl
til að vinna gegn reykingaþörf. Skammtur er einstaklingsbundinn, en ekki má tyggja fleiri en 25 stk. á dag. Ekki er ráðlagt að rióta lyíið
lengur en 1 ár. Nikótín getur valdið aukaverkunum, s.s. svima, höfuðverk, ógleði, hiksta og ertingu i meltingarfærum. Sjúklingar með
slæma hjarta- og æðasjúkdóma eiga ekki að nota nikótlnlyf nema I samráði við lækni. Nicotinell tyggigúmml er ekki ætlað börnum yngri
en 15 ára nema I samráði við læknt. Kynnið ykkur yel leiðbeiningar sem fylgja pakkningunni. Geymið þar sem bðrn hvorki ná til né sjá.
*