Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2003, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 24.JÚLÍ2003 TILVERA 27
■ nl
HÓSKÓlaDíÓ
«30?
Sýnd kl.6,8 og 10.
OAVB G!flfHÍWKSW
Jok Hasw:
S«w XWsaériR
Faa EvíOtfssoK
Þessiawi VBA8SSW
klega
rómantísk
gamanmynd.
Sýnd kl. 6.10,8.10 og 10,10, B.i. 12 ára Miðaverð 800 kr.
HOLLYWOOD ENDING:
Sýnd kl. 5.45,8 og 10.15. B.i. 12 ára.
MATRIX RELOADED:
Sýnd kl. 10 B.i. 12 ára.
DARKBLUE: Sýnd kl.5.50 B.i.14ára. RESPIRO: Sýnd kl.8.B.i. 12 ára.
NÓI ALBINÓI:
Sýnd kl.6. Sýnd m.enskum texta. English subtitles.
KRINGLAN
ALFABAKKI
erfitt að falia
‘garþú skerð
Jirikalega úr
erfitt aa falfa i H
leqar bú skerð þil
■•[nrikalega ur 1
Sýndkl. 5,8, og 10.1 LOxusVIP kl.5 og 8. Sýnd kl. 3.45,5.50,8 og 10.10
SAMBiO
UOLTE
T^pesta hasarmynd
sujPársins það sem af er.
jp kvikmyndir.com
Fra Ang Loe, leikstjóra
,Crouching Tiger, Hidden Dragon
kemur risamynd sumarsins.
Rómanttsk gamar
Amanda Byhes oo
(Bridget Jones
Yfir 3000 paradísareyjur, fyrir
suma blessun ... fyrir aðra bölvun
Sýnd kl. 5.50,8 og 10.10.
Forsýning kl. 10.10
LIZZIE MCGUIRETHE MOVIE:
Sýnd kl. 4,6, og 8.
JET LAG: Sýnd kl.6,8 oglO. 2 FAST 2 FURIOUS: Sýndkl. 5.50,8,og 10.10.B.Í. 12ára.
THE LIZZIE MCGUIRE MOVIE: Sýnd kl.6. SKÓGARLlF: Sýnd m. (sl.tali kl. 4. I MATRIX RELOADED: Sýnd kl. 10.B.1.12 ára.
HOW TO LOSE A GUY IN 10 DAYS: Sýnd kl. 8. || KANGAROO JACK: Sýnd kl.4 og 6 BRINGING DOWN THE HOUSE: Sýnd kl.8
KRINGLAN tS 588 0800 ÁLFABAKKI tS 587 8900
FJÖLMIOLAVAKTIN
GeirA. Guðsteinsson
gg@áv.is
íburðarmikil
brúðkaup
Þegar maður er í fríi heima
hjá sér horfir maður stundum á
sjónvarpsþætti sem maður ger-
ir ekki allajafnan. Einn slfkan
horfði ég á í vikunni, Brúð-
kaupsþáttinn Já á Skjá einum,
og hafði lúmskt gaman af. Auð-
vitað kann að vera gert meira úr
undirbúningi þegar sjónvarps-
vélar íylgjast með, allavega
fannst mér nóg um og er efins
um að allur þessi undirbúning-
ur hafi verið framkvæmdur
áður fyrr þegar fólk á mínum
aldri var að ganga í það heilaga,
hvað þá eldra fólk. Gæsa- og
steggjapartí voru þá rétt að
ryðja sér til rúms að amerískum
hætti, en voru ekki með þessum
fyrirgangi, stóðu í mesta lagi
eina kvöldstund yfir einu glasi
eða fleiri, en ekki öllum þessum
fyrirgangi, sem sumir kaJla fífla-
læti. Nú er undirbúningur
meiri, brúðguminn fer meira að
segja í nudd og snyrtingu, nokk-
uð sem manni hefði ekki einu
sinni dottið í hug áður fyrr,
hvað þá framkvæmt.
Skjár einn sýndi einnig vídeó-
myndir af átökum lögreglu í
henni Ameríku við þá sem ger-
ast brotlegir við lögin, og segja
má að sannleikurinn sé eigin-
lega lyginni líkastur, sé þetta þá
ekki sviðsett. Skjár einn er
öðruvísi sjónvarpsstöð, og þarf
að vera það, á því byggist áhorf-
ið á stöðina. Það er að vísu
yngra fólk í miklum meirihluta
sem á stöðina horfir, en mér
segist svo hugur að meðalaldur
áhorfenda fari stöðugt hækk-
andi, og fjölgi þá að sama skapi.
Umfjöllun SKY-sjónvarps-
stöðvarinnar um „Kelly’s
tragedy", eða sjálfsmorð Davids
Kellys vopnasérfræðings, hefur
verið með slíkum ágætum að
fátt hefur getað dregið mig frá
þeirri umfjöllun, enda fyrir
opnum tjöldum. Það verður
gaman að fylgjast með hvað
Hutton lávarður gerir þegar
kemur að afskjptum stjórnvalda
af rannsókninni þegar kemur
að leyniþjónustuþættinum. Þá
kemur væntanlega í Ijós hvort
bresk stjórnvöld, og þá ekld sist
Tony Blair forsætisráðherra,
hafi ýkt ógnina sem stafa átti af
vopnaeign íraka. Ég bíð spennt-
ur, í sumarfríi eður ei.
Enn ein öskubuskan
KVJKMYNDAGAGNRÝNI
Sif Gunnarsdóttir
sif@dv.is
Amanda Bynes leikur Daphne
Reynolds, sæta og hressa 17 ára am-
erfska stelpuskvísu sem hefur alist
upp hjá einstæðri móður í Kína-
hverfi New York-borgar. Lif hennar
er prýðilegt í alla staði, fyrir utan þá
döpru staðreynd að hún þekkir elcki
föður sinn. Mamma hennar, Ubby,
hafði nefnilega hitt dásamlegan
mann í Marokkó, gifst honum í
bedúínabrúðkaupi og verið sjúk af
sælu allt þar til hann fór með hana
heim til London og í ijós kom að
hann var Dashwood lávarður og öll
hans snobbaða og leiðinlega fjöl-
skylda var andsnúin því að hann
legði lag sitt við alþýðukonu. Enda
’var hún svo hress að með henni
hefði hann vart orðið nógu snobb-
aður og leiðinlegur eins og hann átti
kyn til.
Fjölskyldan var svo vond að Libby
snautaði heim yfir Atlantsála og lét
ástina sína ekld einu sinni vita um
barnið smáa sem var að vaxa innra
með henni. 17 árum síðar stingur
Daphne af ffá New York til London
til að finna föður sinn, sem er í þann
veginn að fara á þing og að kvænast
hinni afburða snobbuðu og leiðin-
legu Glynnis og ganga hennar
súperfúlu og stífu dóttur í föðurstað.
En þá pompar Daphne inn í líf hans
og af því hún er amerísk er hún al-
gjörlega laus við að vera snobbuð og
leiðinleg - það er eiginleiki sem
greinilega er einskorðaður við
bresku þjóðina. Faðir og dóttir
reyna síðan hvað þau geta að breyta
hvort öðru, hann að gera hana
dömulega og hún að gera hann af-
slappaðan. Inn á milli boða nær
Daphne líka að verða skotín í gítar-
leikaranum krútdega og fátæka (og
því ósnobbaða) Ian. Þar sem þetta er
Öskubuskusaga ættu nú aJJir að vita
hvernig fer - og það er nákvæmlega
ekkert sem kemur á óvart í þessari
sögu.
Sambíóin
What a girl wants
★★
Öskubuska er sennilega lífseigast
og vinsælast af öllum jevintýrum því
hver hefur ekki freistast til að láta sig
dreyma um gmndvaJlarbreytingu á
högum sínum til hins betra, án þess
að þurfa að gera nokkuð til þess
annað en að eiga það beinlínis skil-
ið. Það sem dregur What a girl wants
niður er á tíðum leiðinlega illa unn-
ið handrit. Af hverju gefast Libby og
Dashwood svo auðveldlega upp ef
ást þeirra er jafn sterk og gefið er í
skyn? Af hverju getur hinn hressa og
káta Daphne ekki farið í nokkur fín
boð án þess að finnast að hún sé að
„tapa sjálfri sér" o.s.frv. Með aðeins
meiri vinnu hefði verið hægt að fýlla
upp í svona þolur og bjóða okkur
upp á mun skemmtilegri mynd.
Leikstjórn Dennie Gordon flikkar
heldur ekki upp á vel þekktan sögu-
þráðinn. Hún treystir fyrst og fremst
á að okkur þyki Bynes krúttleg þegar
hún brosir og höldum með henni
þegar hún gerir grín að aldagömlum
reglum og hefðum Breta um hegðun
og samskipti. Bynes er vissulega
krúttleg og gerir ágætlega þegar hún
er kát, glöð, skúffuð eða móðguð, en
þegar dýpri tilfinningar eiga að bær-
ast með henni vandast málið tölu-
vert.
Colin Firth er náttúrlega glæsileg-
asti maður í heimi í kvöldklæðnaði,
hvort sem klæðnaðurinn er 21. aldar
eða ffá 18. öld. Og eins og kemur f
ljós hér þá er hann ekki slakur held-
ur í leðurbuxum með hring í eyra.
Svo getur hann ekki annað en farið
vel með textann sinn, sama hversu
hallærislegur hann er. Anna
Chancellor er að vanda fín í hlut-
verki snobbaðrar, vondrar konu
(Duckface í Fjórum brúðkaupum)
og Jonathan Pryce ágætur sem
grimmur pabbi hennar.
Markhópur myndarinnar er stelp-
ur á aldrinum 9-14 en af því Colin
Firth er svo sætur geta mæður og
jafnvel ömmur farið og haft gletti-
lega gaman af.
Aðallelkaran Amanda Bynes, Colin Firth,
Kelly Preston, Anna Chancellor, Oliver
James, Jonathan Pryce o.fl. Leikstjóri:
Dennie Gordon. Handrit: Jenny Bicks og
Elizabeth Chandler, byggt á leikriti William
Douglas Home frá 1958.
Hvað er ísjónvarpinu í kvöld?
Réttu handtökin við grillið
Sjónvarpið kl. 20.00:
Sjónvarpið býður upp á nokkra
ólíka þætti í kvöld. Klulckan 20.00 er
Verksmiðjulíf á dagskrá en það er
breskur myndaflokkur sem gerist
meðal verksmiðjufólks í Manchest-
er. Hver þáttur er sjálfstæð saga. Þar
er sagt frá gleði og raunum verk-
smiðjufólksins í starfi og einkalífi.
Meðal leikenda eru David
Morrissey, Sophie Okonedo, Philip
Glenister, Bob Pugh, Nicola Steph-
enson og Marc Warren.
Sjónvarpið kl. 20.50:
í þættinum Heima er best, sem
hefst klukkan 20.50, kenna kokkarn-
ir Jón Arnar og Rúnar áhorfendum
réttu handtökin við grillið.
Sakamálasyrpa um lögreglustjór-
ann Jack Mannion f Washington
hefst svo klukkan 21:15. Jack stend-
ur í ströngu í baráttu vjð glæpalýð og
umbætur innan lögreglunnar. Aðal-
hlutverk: Craig T. Nelson, John
Amos, Jayne Brook og Justin Ther-
oux.
Sjónvarpið kl. 22.40:
Klukkan 22.40 er svo enn ein end-
ursýningin á Frasier á dagskrá.
Rúnar kenna áhorfendum réttu handtökin
við grillið.
Lífið.eftir
vinnu
Vffilsstaðavatn: Gengið verður
um Smalaholt, norðan Vífilsstaða-
vatns í kvöld og lagt upp kl. 20
frá bílastæðinu. Þetta er áttunda
og síðasta ganga sumarsins í
syrpunni: „Sumargöngur skóg-
ræktarfélaganna".
Mosfellsdalur: Gengið verður um
slóðir Egils Skallagrímssonar og
Halldórs Laxness í Mosfellsdal í
kvöld undir leiðsögn Bjarka
Bjarnasonar. Safnast er saman við
Gljúfrastein kl. 19.30. Þátttöku-
gjald er 500 krónur en frítt fyrir
börn.
... y
Þingvellin „( svanalíki lyftist
moldin hæst" er titill kvöldgöngu
þjóðgarðsins á Þingvöllum þar
sem leikararnir Guðrún Ás-
mundsdóttir og Eyvindur Er-
lendsson fjalla um lífshlaup og
Ijóð Einars Benediktssonar.
Gönguferðin hefst við Hakið kl.
20.00 og lýkur við þjóðargrafreit-
inn.
Gásin Kvöldferð með leiðsögn
verður um forna verslunarstaðinn
á Gásum í Eyjafirði og hefst kl. 20.
Deiglan: Á Heitum fimmtudegi í
Deiglunni á Akureyri mætir
brasilíski sömbugítarsnillingurinn
og söngvarinn IfeTolentino til
leiks, ásamt Óskari Guðjónssyni,
Ómari Guðjónssyni, Þorvaldi Þór
Þorvaldssyni og Helga S. Svavars-
syni.
Grand Roldc Nýhil heldur Ijóða-
partí - fjöllistakvöld - á Grand
Rokk í kvöld kl. 22.
Kling og Bang: Snorri Ásmunds-
son er með sýninguna „Til Þín" í
Kling og Bang galleríi, Laugavegi
23. Hún stendur til 4. ágúst og er
opin miðvikudaga til sunnudaga
frá kl. 14-18. ÞaropinberarSnorri
sitt sérstaka vinasamband við al-
mættið og deilir því með þeim
sem móttækilegir eru. Einnig er
hægt að nálgast aflátsbréf Snorra
í Kling og Bang.