Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2003, Blaðsíða 28
28 DVSPORT FtMMTUDAGUR 24. JÚLÍ2003
D V Sport
Keppni f hverju orði
Netfang: dvsport@dv.is
Sími: 550 5885 ■ 550 5887 • 550 5889
Kieron Dyer er ekki til sölu
Sumri lokið hjá
KNATTSPYRNA: Fyrirliði
kvennaliðs KR í Landsbanka-
deildinni, Guðrún Jóna Krist-
jánsdóttir, mun væntanlega
ekki spila meira í sumar vegna
meiðsla sem hún hlaut þegar
KR atti kappi við Valsstúlkur í
toppslagnum í síðustu viku.
Guðrún sagði í samtali við DV
Sport í gær að ekki væri enn bú-
ið að fá botn í það hvað hrjáir
Guðrúnu Jónu
hana.
„Það sést ekki nægilega vel í
myndatökum hvað að er, ná-
kvæmlega, en það er Ijóst að
um áverka er að ræða. Ég mun
líklega þurfa að fara í speglun til
að laga þetta og ég verð örugg-
lega frá næstu 4-6 vikurnar."
Líklegt þykir að krossbönd séu
slitin en það þýðir að Guðrún
verður frá út árið.
KNATTSPYRNA: Stjórnarfor-
maður Newcastle, Freddy
Shepard, sagði í gær að það
þyrfti „fáránlegt tilboð" i Kireon
Dyer, miðvallarleikmann liðsins,
til að hlustað yrði á það. Dyer
hefur mikið verið orðaður við
Manchester United og Chelsea
undanfarna daga. Shepard vildi
ekki staðfesta hvort félagið
hefði fengið opinbert tilboð í
Dyer frá Manchester United, en
sagði að Dyer væri ekki til sölu.
„Ég held að Chelsea eigi ekki
næga peninga fyrir honum.
Bobby Robson er líklega besti
stjóri deildarinnar og við styðj-
um hann alla leið. Flann vill ekki
missa Dyer svo að hann er ekki
til sölu. Við setjum ekki verð á
hann því við höfum engan
áhuga á að fá tilboð í hann."
KR-inga skorti
sóknarkraftinn
KR-ingar eru úr leik í Meistara-
deild Evrópu í ár eftir 1-1 jafn-
tefli gegn Armenska liðinu
Pyunik Yerevan í gærkvöld.
Leikurinn var síðari leikur lið-
anna en KR tapaði fyrri leiknum
ytra, 1-0, og því samanlagt 2-1.
Willum Þór Þórsson, þjálfari KR,
hafði stokkað nokkuð upp í liðinu
sem hóf leikinn úti í Armeníu.
Hinn ungi og efnilegi Sölvi Davíðs-
son byrjaði á hægri vængnum í stað
Arnars Jóns Sigurgeirssonar og
Garðar Jóhannsson fór í fremstu
víglínu í stað Sigurðar Ragnars Eyj-
ólfssonar. Mesta breytingin fólst
hins vegar í þeirri ákvörðun að
fórna djúpa miðjumanninum Jóni
Skaftasyni íyrir sóknarmiðjumann-
inn Bjarka Gunnlaugsson. Eftir á að
hyggja verða það að teljast mistök
hjá Willum því miðja KR, sem sam-
anstóð af nánast einum leikmanni,
hinum 19 ára Kristni Magnússyni,
hafði aldrei roð við kollegum
sínum á miðju Pyunik því Veigar
Páll Gunnarsson og Bjarki eru ekki
beint þeir varnarsinnuðustu.
Gestirnir spiluðu á sama hátt og í
fyrri leiknum; með þrjá stóra og
stæðilega miðverði og eldfljóta
bakverði, sinn á hvorum kantinum.
Þriggja manna miðja liðsins er
gríðarlega líkamlega sterk og fyrir
framan þá lék Miguel Cisterna eins
og sá sem valdið hafði, skapandi og
skeinuhættur allan leikinn.
KR sterkara framan af
Lið KR var sterkara til að byrja
með, enda gestirnir ekki beint van-
ir íslenskri vestanátt með tilheyr-
„KR-ingar voru mun lík-
legri í sínum sóknarað-
gerðum þótt þeir kæm-
ust aldrei almennilega
fram hjá sannfærandi
vörn Pyunik."
andi rigninu. Laugardalsvöllurinn
var mjög blautur og leikmenn
beggja liða áttu erfitt með að fóta
sig á grasinu. Það var hins vegar
mikill kraftur í leikmönnum KR,
boltinn gekk vel á milli manna og
liðið spilaði fína knattspyrnu á köfl-
um. Mikið var leitað til hægri, þar
sem Jökull Elísabetarson var mjög
atkvæðamikill, og Veigar Páll var
einnig mjög frískur.
Krafturinn fjaraði út
Þegar fyrri hálfleikur var hálfnað-
ur höfðu gestirnir ekki fengið nema
eitt færi. sem skapaði einhverja
verulega hættu. KR-ingar voru mun
líklegri í sínum sóknaraðgerðum
þótt þeir kæmust aldrei almenni-
lega fram hjá sannfærandi vörn
Pyunik.
En á næstu mínútum var eins og
allur kraftur leikmanna KR fjaraði
út. Armenarnir náðu undirtökun-
um og héldu þeim það sem eftir
lifði leiks. Veigar Páll fór að taka
rangar ákvarðanir með boltann og
sóknarkraftur Pyunik jókst. Á 35.
mfnútu uppskáru þeir vítaspymu
þegar Gunnar Einarsson braut
klaufalega á Cisterna. Juan Pablo
Peralta tók vítið en skaut hátt yfir
markið.
Kantspilið vantaði
Svona hélt leikurinn áfram fram í
SÆUR OG GLAÐIR: Leikmenn Pyunik voru að vonum sáttir við að vera komnir í aðra umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu.
DV-mynd E.ÚL.
síðari hálfleik. Willum gerði þá
breytingu að taka Einar Þór Daní-
elsson út af í hálfleik, enda lítið
komið út úr kappanum í fyrri hálf-
leik, og setja Arnar Gunnlaugsson
inn á. KR-ingar voru meira með
boltann en komust lftt áleiðis og
var það sérstaklega vængspil KR
sem var sárt saknað.
Á 73. mínútu leiksins slokknuðu
síðan vonir KR-inga um áframhald
í Evrópukeppninni þegar þeir
horfðu á Agvan Mkrtchyan hlaupa
óáreittan upp hálfan völlinn og
setja boltann í netið. Það þýddi að
KR hefði þurft að skora þrjú mörk á
15 mínútum til að komast í næstu
umferð. Arnar Gunnlaugsson náði
reyndar að minnka muninn úr víta-
spyrnu eftir að brotið hafði verið á
Sölva en KR-ingar voru stálheppnir
að fá ekki á sig annað mark á síð-
ustu mínútunum.
Eins manns miðja
Það sem varð KR að falli í þessum
leik var miðjan. Kristinn var sá eini,
og það vissi Willum áður en leikur-
inn hófst, sem sinnti varnarskyld-
unum og það var of lítið gegn jafn
sterku liði og Pyunik er. Eftir að
hann meiddist, og var leystur af
hólmi af Sigurvini Ólafssyni, var
enginn miðjumaður eftir til að
halda dýptinni og þvf var um ljúft
líf að ræða hjá miðjumönnum
Pyunik síðustu 20 mínúturnar.
Auðvitað má segja að sóknarleikur-
inn hefði ekki verið jafnmarkviss ef
annar djúpur miðjumaður hefði
verið inn á, en þetta var einfaldlega
erfið ákvörðun sem Willum þurfti
að taka - sem hann og gerði. Vörn-
in var ágæt, með Kristján Sigurðs-
son að venju sem langbesta mann.
Kristinn spilaði mjög vel áður en
þreytan fór að segja til sín en
fremstu menn hafa oft verið at-
kvæðameiri.
„Kristinn var sá eini, og
það vissi Willum áður
en leikurinn hófst, sem
sinnir varnarlegu skyld-
unum og það var oflít-
ið gegn jafn sterku liði
og Pyunik er."
Hjá Pyunik var fáa snögga bletti
að finna. Gott skipulag var á liðinu,
leikmenn vel meðvitaðir um hlut-
verk sitt á vellinum og ekki við öðru
að búast - allir eru þeir atvinnu-
menn fram í fingurgóma.
Og sú staðreynd gerir einmitt
frammistöðu KR eftirtektarverða.
Armenska liðið myndi líklega rúlla
upp Landsbankadeildinni hér
heima en leikmenn KR, nokkrir að
stíga sín allra fyrstu skref í meist-
araflokld, veittu atvinnumönnun-
um verðuga keppni og geta borið
höfuðið hátt. Liðið fékk dýrmæta
reynslu sem mun koma því til góða
þegar fram líða stundir og vonandi
skilar hún sér þegar KR ieikur sinn
næsta Evrópuleik. vignir@dv.is
KR-PyunikVerevan 1-1 (0-0)
0-1 Agvan Mkrtchyan (73., með skoti við teiginn eftir einleik upp vinstri vænginn).
1-1 Amar Gunnlaugsson (80., úr víti, eftir að brotið hafði verið á Sölva Daviðssyni).
KR (4-5-1) Gulspjöld:
Kristján Finnbogason .....3 KR: Kristján S.
Jökull Elísabetarson......3 *,
Gunnar Einarsson .........3 Pyunik: Peralta
Kristján Sigurðsson ......4 «., Partsikian
Sigursteinn Gíslason......3 (46 )' Bllibl°(811
(S^ SigurðurR.Eyjó'feson .-)
Solvi Daviðsson.............2 F .
Bjarki Gunnlaugsson.......2 n9inn-
Kristinn Magnússon .......3 skot(ámark):
(69. Sigurvin Olafsson.....2) 5 (3) - io (5)
Veigar Páll Gunnarsson .... 2 Horn.
Einar Þór Daníelsson........1 6 _ 4
(46., Arnar Gunnlaugsson .. 2) Aukaspymur
Garðar Jóhansson .........1 16-17
Samtals 13 menn............31 Rangstöðun
3-1
Varin skot:
Dómari: Andrejs Sipailo (2). Kristján 4 - Bete
Áhorfendun 2069. 2.
Maður leiksins hjá DV Sporti:
Khose Bilibio, Pyunik
Pyunik (5-4-1)
Edel Bete ...................3
Carl Lombe...................4
Artur Mkrtchyan..............4
Tudir Marian Zeciu ..........4
Khose Bilibio................5
Agvan Mkrtchyan..............4
Edouard Partsikian ..........3
NdoumboukBalep Ba ...........2
(85., Vardan Minasyan ......-)
Miguel Cisterna .............5
Levon Pachajyan .............3
(90., Rafael Nazaryan ......-)
Juan Pablo Peralta...........2
(62., Edgar Manucharyan .. .3)
Samtals 11 menn ............37