Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2003, Qupperneq 31
FIMMTUDAGUR 24. JÚU2003 DVSPORT 31
-
-
íslenskt fimleikafólk á faraldsfæti í sumar
FIMLEIKAR: Þrjár fimleika-
stúlkur úr Gróttu, þær Sif Páls-
dóttir, Hera Jóhannesdóttir og
Harpa Hauksdóttir, munu
keppa fyrir hönd íslands á
Ólympíudögum Evrópuæsk-
unnar og á heimsmeistaramót-
inu í fimleikum 2003.
Ólympíudagar Evrópuæskunn-
ar eru haldnir í París 29. júlí til
1. ágúst og fara þær Harpa og
Hera á þá leika.
Heimsmeistaramótið er haldið
í Anaheim í Kaliforníu 16.-25.
ágúst og mun Sif keppa þar
ásamt þeim Ingu Rós Gunnars-
dóttur úr Gerplu, Kristínu Gígju
Gísladóttirfrá Bandaríkjunum
og Tönju B. Jónsdóttir úr Björk-
unum.
Þær Harpa, Hera og Sif hafa
æft stíft undanfarna mánuði
fyrir þessi mót. Þær hafa að
jafnaði æft tvisvar sinnum á
dag, sex daga vikunnar og er
meðalæfingatími þeirra um 30
klukkustundir á viku. Stúlkurn-
ar brugðu á leik á ströndinni
við Gróttu í gær og sýndu brot
af því besta sem er að gerast í
fimleikunum í dag.
Það er í fyrsta skipti nú sem
bæði karla- og kvennalið fer á
heimsmeistaramótið fyrir hönd
(slands en karlaliðið skipa þeir
þeir Anton H. Þórólfsson, Ár-
manni, Dýri Kristjánsson,
Gerplu, Grétar K. Sigþórsson,
Ármanni, Jónas Valgeirsson,
Ármanni, Rúnar Alexanders-
son, Gerplu, og Gunnar Sig-
urðsson, Ármanni.
FIMAR: Gróttu-
stúlkurnar
brugðu á leik
fyrir Ijósmynd-
ara DV í fjörunni
á Seltjarnarnesi í
gær, en þær æfa
nú stíft fyrir
sterk mót sem
fram undan eru.
DV-mynd Pjetur
I
j'
I
I
I
NÝTT MET: Jakob Jóhann Sveinsson bætti (slandsmet sitt um 14/100 úr sekúndu í undan-
rásum 200 m bringusunds (gærmorgun. Nokkrum klukkustundum síðar var komið að
undanúrslitunum en þar var Jakob með 6/100 úr sekúndu lakari tíma en áður og hafnaði
hann í 16. sæti. DV-mynd Hari
Jakob og ðrn
með íslandsmet
Tvö íslandsmet voru slegin á
heimsmeistaramótinu í sundi í
gær sem fram fer í Barcelona
þessa dagana. Örn Arnarson
bætti sitt eigið íslandsmet í 100
m skriðsundi um rétt tæpa sek-
úndu og þá bætti Jakob Jóhann
Sveinsson einnig eigið met um
14/100 úr sekúndu þegar hann
kom í mark á 2.15,20 mín. í 200 m
bringusundi.
Jakob sló Islandsmetið í gærmorg-
un þegar hann keppti í undanrásun-
um, tíminn skilaði honum 16. sætinu
og nægði það honum til að komast í
undanúrslitin sem háð voru
nokkrum klukkustundum síðar. Þar
rak Jakob lestina í sínum riðh og kom
í mark á 6/100 lakari tfma en í und-
anrásunum.
„Seinni hluti sundsins
var góður og sýndi að
hann á metið inni."
„Jakob synti frábært sund þegar
hann sló íslandsmetíð og það hefði
verið gaman að sjá hann bæta það
aftur í undanúrslitunum. Því miður
tókst það ekki en það var samt sem
áður noklcuð gott sund. Hann lenti í
því að fara að fylgjast með keppi-
nautum sínum og við það missti
hann taktinn. Seinni hluti sundsins
var hins vegar góður og sýndi að
hann á metíð inni síðar,“ sagði Stein-
dór Gunnarsson, landsliðsþjálfari fs-
lands í sundi, við DV Sport í gær.
„Sundið hjá Erni var einnig vel út-
fært og hann náði að bæta fyrir von-
brigðin í 200 m baksundinu í gær,“
bættí Steindór við.
Heiðar Ingi Marinósson tók einnig
þátt í 100 m skriðsundinu og bætti
hann sinn persónulega árangur. Þá -q.
varð Anna Ríkey Jakobsdóttir í 34.
sæti af 64 keppendum í 50 metra
baksundi. Anna synti á 30,89 sek-
úndum, bætti sinn fyrri árangur um
6/10 úr sekúndu og var ekki nema
1 /10 frá íslandsmetinu. vignir@dv.is
Veiðihornið
l
www.lax-a.is
GAMAN A VEIÐUM: Það var fjör á bökkum Elllðaánna þegar
þessir ungu veiðimenn renndu þar fyrir lax. Veiðin var I
góðu lagi, en Elliðaárnar hafa gefið vel að undanförnu.
DV-mynd Valtýr
Mikill fiskur
Mjög lítið vatn hefur verið í Norðurá
í Borgarfirði síðustu daganaeins og
víða en veiðin hefur verið sæmileg.
Hópur veiðimanna frá Skeljungi hef-
ur verið við veiðar og hafa þeir
fengið á milli 30 og 40 laxa..En fyrir
tveimur dögum fundu leiðsögu-
menn við ána, nánast á sama tíma,
tvo dauða laxa í hyljum árinnar. Ekki
var neitt að sjá á fiskunum og ekki
er vitað hvernig þeir hafa drepist.
„Veiðiskapurinn gengur þokkalega
hérna við Norðurá, en það eru komnir
750 laxar á land og vatnsstaðan hefur
lagast aðeins,“ sagði Gunnar Jónsson,
veiðivörður við Norðurá í Borgarfirði, er
við spurðum um stöðuna á svæðinu.
„Það eru komnir 1200 laxa upp fyrir
stigann í Glanna núna og mikið af fiski er
víða um ána.“
Hafa laxar eitthvaö verið að drepast í
vatnsleysinu íNorðurá?
„Nei, ekki svo ég hafi frétt af, við fund-
um einn lax fyrr í sumar og hann var
sendur suður á Keldur til rannsóknar,
annars hafa ekki fundist dauðir laxar,
svo ég viti um,“ sagði Gunnar enn frem-
ur.
Hefur gefið 67 laxa
„Veiðiskapurinn fór vel af stað hjá
okkur í Flekkudalsá enda mikið af fiski,
en það er vatnsleysi hjá okkur eins og
öðrum," sagði Jón Ingi Ragnarsson er
við fengum fréttir af Flekkudalsá á Fells-
strönd í gærdag.
„Fyrsta hálfa mánuðinn kom 41 lax á
land og það er mjög gott enda mikið af
tíski víða í hyljum árinnar. En fiskurinn
hefur tekið grannt og ég var þarna fyrir
skömmu síðan og var búinn að reyna all-
ar flugurnar en fiskurinn var tregur. Þá
fann ég flugu f boxinu sem Oddur
Hjaltason hafði hnýtt og gefið mér,
Rauðhettu og hann tók hana um leið og
hún kom í ána, þó var ég búinn að sýna
fiskinum ýmislegt sem var í boxinu
mínu,“ sagði Jón Ingi.
Flekkudalsá var komin með 67 laxa á
hádegi í gær en aðeins er veitt á flugu.
„Það eru komnir 1200
laxar upp fyrir stigann í
Glanna núna og mikið af
fiski er víða um ána."
Mjög góður gangur hefúr verið á veið-
inni í Leirvogsá. Núna eru komnir 233
laxar á land og telst það gott á tvær
stangir. Laxinn hefur dreift sér um alla á
og er mfldð af fiski víða í ánni að sögn
veiðimanna. Andakflsá í Borgarfirði hef-
ur gefið 50 laxa og veiðimenn sem voru
þar fyrir nokkrum dögum veiddu átta
laxa og slepptu sjö þeirra aftur í ána, en
einn tóku þeir með sér í pottinn heima.
Eitthvað er af fiski f ánni.
G.Bender
Flekkudalsá
»40*'
*?■■■ M