Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2003, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2003, Page 8
8 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 16.ÁGÚST2003 Mótmæla flugsýningu á Menningarnótt MÓTMÆLI: Stjórn Höfuðborg- arsamtakanna mótmælir harð- lega fyrirhugaðri flugsýningu í og yfir miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt. Segir hún að flug yfir þéttbýli sé varasamt og óæskilegt og flugsýning yfir þéttri miðborgarbyggð og stjórnsýslumiðstöð íslenska lýðveldisins með öllu óverj- andi. A flugsýningum sé, í hita leiksins, tekin mun meiri áhætta en í hefðbundnu at- vinnuflugi en reiknað sé með að á sama tíma verði tugþús- undir manna á götum mið- borgarinnar í tilefni af Menn- ingarnótt. Þess er óskað að borgaryfirvöld, flugmálayfir- völd og lögregluyfirvöld sjái til þess að fallið verði frá flugsýn- ingunni og búið svo um hnút- ana að slíkar sýningar verði ekki haldnar yfir byggð á höf- uðborgarsvæðinu meðan flug- rekstur er enn í miðborg Reykjavíkur. Stjórn Höfuðborg- arsamtakanna hveturstjórn- endur Flugfélags (slands og lcelandair til að hætta við flug- sýninguna og styðja menning- arlíf höfuðborgarinnar með öðrum hætti. Vísindamaraþon Hl MENNINGARNÓTT: Háskóli (s- lands flytur í miðbæinn á Menningarnótt og verður þar með fjölbreytta dagskrá, sann- kallað vísindamaraþon. Vís- indamenn sitja fýrir svörum og velta fyrir sér lífinu og tilver- unni. Furður og forngripir úr eigu Háskólans verða til sýnis, fluttir verða örfyrirlestrar um efni sem efst eru á baugi og farið í vísindaleiki af ýmsu tagi. Vísindavefur Háskólans gegnir veigamiklu hlutverki í dag- skránni, rannsóknakafbátur í sjávarlíffræði verður til sýnis og ýmis verðlaunatæki úr hönn- unarkeppni verkfræðinema. Vísindamaraþonið er ætlað fyr- ir alla aldurshópa og fer fram í Lækjargötu 4 frá klukkan 16 til 21. Glæsileg dagskrá á Flughátíð ICELANDAIR ZZZS, 0?K3***) Tropic leðursófasett með 2 hægindastólum Sérstakt tilboð 395.000,- \m stgr. Fjölbreytt úrval af spænskum húsgögnum Icelandair, Flugfélag Islands og fjölmargir aðilar, tengdir flugstarf- semi, halda flughátíð á Reykjavík- urflugvelli í dag til að fagna 30 ára afmæli Flugleiða, 100 ára afmæli flugs í heiminum og 60 ára afmæli „þristsins", DC3-flugvélarinnar sögufrægu. Hátíðarsvæðið verður í og við flugskýli númer 4, við af- greiðslu Flugfélags íslands á Reykjavíkurflugvelli, frá 15.00 til 20.00. Hátíðin fer fram bæði á jörðu niðri og í loftinu og er hluti af dag- skrá Menningarnætur í Reykjavík. Meðal dagskrárliða er að þyrla Landhelgisgæslunnar sýnir flug- hæfni, samflug innanlandsflugvéla frá 1946, Flugbjörgunarsveitin sýn- ir björgunarfalihlífarstökk, yfirflug, lendingu og flugtak Boeing 757 vél- ar Icelandair, svifflug, karamellu- kast, listflug, tólf manna fallhlífar- stökk, marklendingu, samflug Flugfélags fslands, eltingaleikur í háloftunum, sjö vélar frá Flugskóla Islands sýna listir sínar og listflug tveggja Pitts Special-listflugvéla í einu. Framan við flugskýlið verður FLUGMENNING: Reykjavíkurflugvöllur leikur stórt hlutverk í dagskrá tengdri hátíðahöldum Menningarnætur og hefst viðamikil dagskrá þar klukkan 15.00. DV-myndGVA komið fyrir áhugaverðum flugvél- um fyrir almenning, stórum vélum og litíum, sögufrægum vélum og sérstæðum. Á sýningarsvæðinu munu flugmenn, flugvirkjar og flugfreyjur kynna störf sín og Flug- björgunarsveitin, sem annast ör- yggisgæslu á svæðinu, mun kynna starfsemi sína. í skýlinu verður einnig myndræn sýning á töfrum flugsins. í tilefni hátíðarinnar og 30 ára af- mælis Flugleiða verður efnt til af- mælisleiks sem fer þannig fram að gestir búa til pappírsskutíu, merkja hana nafni sínu og kasta í mark. Dregnir verða 60 ferðavinningar úr skutíunum og 100 aukavinningar. Siðumúla 35 - Sími: 588 5108 www.micasa.is Á100 ára afmæli flugs í heiminum: Stóri flugmódeldag- urinn í Hafnarfirði Flugmódelfélagið Þytur heldur upp á „stóra flugmódeldaginn" á félagssvæði sínu á Hamranes- flugvelli, sunnan við Hafnar- fjörð, í dag. Þetta er einn af fjölmörgum af- mælisviðburðum á þessu ári í til- FLUGMÓDELDAGUR: Richard Rawle, flugmódelsmiður frá Bretlandi, er í heimsókn hjá Flug- módelfélaginu Þyt. Hér er hann með eitt af sínum glæsilegu módelum af Spitfire-gerð. efni af 100 ára sögu flugsins. Pétur Hjálmarsson, formaður flugmódel- félagsins Þyts, segir að félagið hafi fengið hingað til lands þá Steve Holland og Richard Rawle. Þessir menn eru frægir í heimalandi sínu, Englandi. Hæfni þeirra í smíði fug- módela og listflugshæfni eru nán- ast engin takmörk sett. Steve Hol- land er einn af bestu módelflug- mönnum í heiminum í dag. Hand- verk og útfærslur Richards Rawle á smíði og tæknilausnum eru á heimsmælikvarða. Módelin sem þeir félagar eru með í þessari ferð hingað eru sum með ólíkindum stór. Vænghaf einnar vélarinnar er yfir 5 metrar. Dagskráin á Hamranesflugvelli hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 14.00. Munu félagsmenn Þyts, ásamt gestum, fljúga fjarstýrðum flug- módelum af ýmsum stærðum og gerðum. Allan tfmann verður sam- felld dagskrá. Flugvöllurinn er sunnan við Hafnarfjörð. Ekin er Reykjanes- brautin uns komið er að íþrótta- svæði Hauka á vinstri hönd. Þaðan eru eknir sléttir 2 kílómetrar eftir Krísuvíkurveginum að fiskitrönum á vinstri hönd og þar er afleggjarinn að Hamranesflugvelli. hkr@dv.is í Florida þarftu að: Fara með krakkana í Disney World. Heimsaekja St. Augustine, sem er einn af elstu bæjum Bandaríkjanna. á mann í 8 daga m.v. hjón með 2 börn yngri en 12 ára með 10.000 kr. afslætti. Innifalið: flug, gisting á Best Western Plaza, flugvallarskattar og þjónustugjöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.