Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2003, Síða 36
r 40 DVHELGARBLAD LAUGARDAGUR 16.ÁGÚST20Q3
KOMDU MEÐ HANN: Hvorki (ris Andrésdóttir, fyrirliði Vals, né Michelle Barr, fyrirliði (BV, vildi sleppa takinu af bikamum þegar þær brugðu á leik fyrir Ijósmyndara DV á Laugardalsvellinum á blaðamannafundi fyrir úrslitaleik VISA-
bikars kvenna sem fram fer á morgun kl. 14. DV-myndTeitur
Valur og ÍBVmætast í úrslitum VISA-bikars kvenna á Laugardalsvelli á morgun:
Munur á sigurhefð
Valsstúlkur hafa átta sinnum orðið bikarmeistarar en ÍBVIeikurí fyrstasinn til úrslita
Valur og ÍBV mætast á morgun í úr-
slitaleik VISA-bikars kvenna. Leikur-
inn ferfram á Laugardalsvelli og hefst
„ kl. 14. Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, sagði á blaða-
mannafundi á fimmtudag, þar sem
leikurinn var kynntur, að hann vonað-
ist eftir að fólk fjölmennti á leikinn því
að þessir leikir væru nær undantekn-
ingarlaust mikil skemmtun.
Það er óhætt að segja að félögin tvö sem
mætast á morgun eigi sér ansi ólíka sögu í
bikarkeppninni. Valur hefur þrettán sinnum
komist í bikarúrslitaieikinn og unnið bikarinn
átta sinnum, síðast 2001, en Eyjastúlkur spila
nú í fyrsta úrslitaleik sínum frá upphafi. Það
verður þó ekki annað sagt en að Eyjastúlkur
hafi farið erfiðu leiðina í úrslitaleikinn því að
þær lögðu KR og Breiðablik á leið sinni á
- Laugardalsvöllinn.
Halda spennustiginu niðri
Heimir Hallgn'msson, þjálfari liðsins, sagði
í samtali við DV Sport að það væri langþráður
draumur fyrir Eyjaliðið að spila þennan leik.
„Við höfum horft öfundaraugum á sömu
þrjú liðin spila úrslitaleikinn undanfarin níu
ár og því er það kærkomið fyrir okkur að fá
tækifæri til að spila þennan leik. Ég heid að
það sé líka bara gott fyrir íslenska
kvennaknattspyrnu að eitthvert annað lið
brjóti sér leið upp á milli þessara liða. Það
hefur verið kallað á breidd undanfarin ár og
ég held að við séum að svara því kalli," sagði
” Heimir.
Hann sagðist jafnframt ekki vera í vafa um
að það yrði smávegis stress í sínum stúlkum í
leiknum.
„Aðalatriðið hjá okkur er að njóta þess að
spiia þennan leik. Það verður örugglega
svolítið stress í mannskapnum en við verðum
bara að vinna í því. Margar stúlknanna hafa
^ aldrei stigið inn á Laugardalsvöllinn, hvað þá
heldur spiiað í beinni útsendingu í sjónvarpi.
Það verður mitt verkefni að halda
spennustiginu hjá liðinu niðri.“
Vestmannaeyingar fengu til sín marga góða
leikmenn fyrir tímabilið og óhætt að segja að
miklu hafi verið til tjaldað. Heimir sagði að
vissulega hefðu sterkir leikmenn verið fengn-
ir til liðsins en krafan um titil væri ekki til
staðar og eina pressan sem væri á liðinu væri
sú sem það sjálft setti á sig.
„Það er engin hefð í kvennaknattspyrnunni
í Vestmannaeyjum og því er erfitt að gera
kröfur um titla. Við fmnum fyrir mikilli já-
„Liðin eru að vísu frekar ólík
því að Valsliðið er frekarjafnt
og engin sem sker sig neitt
sérstaklega úr en ekki er hægt
að loka augunum fyrir því að
nokkrir einstaklingar bera hit-
ann og þungann afleik
Eyjaliðsins."
kvæðni í garð liðsins frá bæjarbúum og
miklum meðbyr. Það er stutt alveg ofboðslega
vel við bakið á okkur og stelpurnar vilja að
sjáffsögðu endurgjalda þann stuðning en
þessi leikur er bara hluti af lærdómsferli liðs-
ins og við lítum á hann sem slíkan."
Heimir sagði aðspurður að Valsliðið væri
gífurlega sterkt.
„Ég held ég sé ekki að ljúga því þegar ég segi
að liðið er skipað eintómum landsliðsmönn-
um. Það er enginn veikleiki í þessu liði en ég
held samt að við stöndum þeim fyllilega jafn-
fætis fótboltalega séð. Andlega hliðin er
sennilega sterkari hjá þeim fyrir þennan leik
því að þær hafa reynsluna fram yfir okkur.“
Heimir sagðist ætla að einbeita sér að liði
sínu í stað þess að hugsa of mikið um Valslið-
ið.
„Það er nóg að hugsa um okkur og ég held
að ef mínar stelpur mæta tiltölulega afslapp-
aðar til leiks þá þurfi Valsstúlkurnar að passa
sig. Ég horfi til þess að leikmenn eins og
Karen Burke, Michelle Barr og Olga Færseth
dragi vagninn í leiknum á morgun. Þær hafa
reynsluna og eiga að hjálpa ungu og óreyndu
stelpunum í gegnum þennan leik.“
Eyjamenn ætla að fjölmenna á leikinn, að
sögn Heimis, og bjóst hann við öflugum
stuðningi. Hann vildi ekki spá um úrslit leiks-
ins en lofaði hörkuleik.
Sigur það sem skiptir máli
Helena Ólafsdóttir, þjálfari Vals, stjórnaði
sfnu liði í fyrsta sinn í bikarúrslitum í fyrra og
hún sagði við DV Sport á fimmtudaginn að
hún væri reynslunni ríkari.
„Það er alltaf góð tilfinning að spila bikar-
úrslitaleik. Við töpuðum leiknum í fyrra en
það er ekki eins og við höfum dvalið eitthvað
við hann. Núna er nýr leikur með nýjum tæki-
færum og við ætlum að njóta hans til hins
ýtrasta. Stelpurnar unnu bikarinn fyrir tveim-
ur árum, töpuðu í fyrra og þekkja því muninn
á því að sigra eða tapa. Það eitt ætti í sjálfu sér
að vera nægileg hvatning fyrir leikinn."
Helena sagði að sú hefð og reynsla sem
Valsliðið hefði fram yfir Eyjastúlkur kæmi
ekki til með að hafa mikil áhrif þegar út í al-
vöruna væri komið.
„Mér hefur oft fundist það enda þannig að
allar hefðir fjúki út 1' veður og vind í leikjum
sem þessum. Það gefur okkur ekkert að hafa
spilað í fyrra eða unnið árið þar á undan,"
sagði Helena.
Valur vann ÍBV, 3-2, í eina leik iiðanna í
sumar á Hlfðarenda, í hörkuspennandi leik,
en hvernig metut Helena liðin?
„Ég held að þessi lið sé mjög áþekk að getu.
Þau vilja bæði spila sóknarknattspyrnu og ég
á ekki von á öðru en að úrslitaleikurinn verði
mjög skemmtilegur. Liðin eru að vísu frekar
ólík því að Valsliðið er frekar jafnt og engin
sem sker sig neitt sérstaklega úr en ekki er
hægt að loka augunum fyrir því að nokkrir
einstaklingar bera hitann og þungann af leik
Eyjaliðsins. Hvort tveggja getur verið gott og
það verður spennandi að sjá hvor blandan
hefur betur í leiknum á sunnudag."
Helena sagðist ekki ætla að spá um úrsiit
leiksins en það væri alveg ljóst hvert mark-
miðið væri hjá henni og liðinu.
„Við ætlum okkur sigur og mér er alveg
sama hvort það verður, 1-0, eða 4-3. Það eina
sem skiptir máli er að vinna titilinn - allt ann-
að er aukaatriði."
Gleymum ekki tapinu
íris Andrésdóttir, fyririiði Vals, man vel eft-
ir tapinu í fyrra og sagði í samtali við DV Sport
að Valsstúlkur ætluðu ekki að láta það endur-
„Við höfum horft öfundaraug-
um á sömu þrjú liðin spila úr-
slitaleikinn undanfarin níu ár
og því er það kærkomið fyrir
okkur að fá tækifæri til að
spila þennan leik. Ég held að
það sé líka bara gott fyrir ís-
lenska kvennaknattspyrnu að
eitthvert annað lið brjóti sér
leið upp á milli þessara liða."
taka sig.
„Það var ömurleg tilfinning að tapa leikn-
um í fyrra og eitthvað sem enginn vill upplifa
aftur. Við gerum okkur hins vegar grein fyrir
því að leikurinn verður mjög erfiður þar sem
ÍBV hefur frábæru liði á að skipa. Við þurfum
að geta haldið aftur af Margréti Láru, Burke
og Olgu og ef það tekst þá er mikið unnið.
Annars er mikil tilhlökkun í hópnum fyrir
leikinn og allir stefna á sigur," sagði Iris Andr-
ésdóttir, fyrirliði Vals.
oskar@dv.is