Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2003, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2003
Flosi enn í fangelsi í morgun
INNILOKAÐUR: Flosi Arnórs-
son stýrimaður sat enn í fang-
elsi í Dubai í morgun. Að sögn
Jónu Arnórsdóttur, systur
Flosa, hafði hún ekkert frétt af
málinu síðan í gær. Þá fóru
norskir sendiráðsmenn með
alla umbeðna pappíra í fang-
elsið. Var talið að þar með
væru öll skilyrði uppfyllt til að
Flosa yrði hleypt út. Af því varð
þó ekki. Jóna sagðist því vart
búast við að Flosi yrði látinn
laus í dag og ekki heldur á
morgun. í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum er komin
helgi og stendur hún í dag,
fimmtudag, og á morgun.
Sagði Jóna að reynslan sýndi
að ekkert gerðist í stjórnsýsl-
unni þessa daga.
Dræm veiði
VEIÐI: Á miðvikudag höfðu að-
eins 33 hreindýr verið felld í Aust-
ur-Skaftafellssýslu á þessu veiði-
tímabili sem lýkur 15. september.
Enn þá er mikill hiti á Austurlandi
og veður fádæma gott miðað við
árstíma. Hamlar veðurblíðan veið-
inni. Kvótinn í sýslunni er 124 dýr
en heimilt er að veiða allt að 800
hreindýr á tímabilinu 1. ágúst til
15. september.
Ríkisstjórnin áttaði
sig ekki á kröfunum
Siglfirðingar telja flestir að rík-
isstjórnin hafi alls ekki áttað sig
á því hvað það gæti kostað að
fresta framkvæmdum við gerð
jarðganga milli Siglufjarðar og
Ólafsfjarðar um Héðinsfjörð.
íslenskir aðalverktakar og
sænska verktakafyrirtækið NCC
áttu lægsta tilboð í Héðinsfjarðar-
göng, 6,2 milljarða króna. Stjórn-
völd frestuðu verkinu áður en það
hófst og nú hefur Kærunefnd út-
boðsmála úrskurðað að ákvörðun
stjórnvalda um að hafna tilboði
verktakanna hafi verið ólögmæt.
Stefán Friðfmnsson, forstjóri LAV,
segir að ólögleg ákvörðun stjórn-
valda verði ekki kærð og krafist
skaðabóta.
Sverrir Sveinsson á Siglufirði,
fyrrverandi varaþingmaður Fram-
sóknarflokksins og einn helsti bar-
áttumaður Siglfirðinga fyrir því að
ráðist yrði í gerð Héðinsfjarðar-
ganga, segist fagna því að að það sé
verið að taka upp málið að nýju svo
að vissu leyti séu Siglfirðingar að
taka gleði sína að nýju.
„En það urðu margir hér á Siglu-
firði geysilega sárir þegar fram-
kvæmdum við göngin var frestað.
Ég trúi ekki öðru en rfkisstjórnin
setji málið aftur af stað og semji við
verktakana til að komast hjá því að
þurfa að greiða skaðabætur. Það er
eins og ríkisstjórnin hafi ekki áttað
sig á þeim kröfum sem hún má eiga
von á og starfsmaður íslenskra að-
alverktaka segir mér að það and-
varaleysi ríkisstjórnarinnar hafi
komið þeim á óvart,“ segir Sverrir
Sveinsson. gg&dv.is
BJARTSÝNI: I marsmánuði sl. þegar allt lék
í lyndi og allir héldu að jarðgangagerð
væri í höfn. F.v.: Skarphéðinn
Guðmundsson bæjarfulltrúi, Sigríður
Ingvarsdóttir fyrrv. þingmaður, Freyr
Sigurðsson form. áhugamannafélagsins
Samgangs og Guðmundur Guðlaugsson
bæjarstjóri.
íslandsferðir verða nýtt dótturfyrirtæki Flugleiða:
Selja íslenska ferða-
þjonustu erlendis
íslandsferðir ehf. verða nýtt dótt-
urfyrirtæki Flugleiða um áramótin
og innan vébanda þeirra ætlar fé-
lagið að sameina krafta Flugleiða-
samstæðunnar til markaðssetn-
ingar og sölu á íslenskri ferðaþjón-
ustu erlendis
Breytingin er einnig liður í að
skilja betur áð rekstrarþætti innan
Flugleiðasamstæðunnar, með það
að markmiði að ná betri rekstrarár-
angri, auka ábyrgð stjórnenda og
gera heildarstarfsemina gagnsærri.
Hannes Hilmarsson, svæðisstjóri
Icelandair í Skandinavíu, verður
framkvæmdastjóri íslandsferða.
EB Hannes Hilmarsson,
■ svæðisstjóri
I lcelandair í Skand-
B inavíu
Undir íslandsferðir fellur rekstur
á ferðaskrifstofum í 9 Evrópulönd-
um og rekstur innanlandsdeildar
Ferðaskrifstofu íslands. Erlendu
ferðaskrifstofurnar sérhæfa sig í
sölu á ferðum til íslands. Þessi fyr-
irtæki starfa í dag sem dótturfyrir-
tæki Icelandair en þau eru Island
Tours í Þýskalandi, Hollandi,
Frakklandi, Sviss, Spáni og Ítalíu,
Islandia Travel í Noregi og Dan-
mörku og Islandsresor í Svíþjóð.
Innanlandsdeild Ferðaskrifstofu
fslands hefur sérhæft sig í ferða-
heildsölu og ráðstefnuþjónustu
undir nafninu Iceland Travel.
Um 80 manns munu starfa hjá
íslandsferðum ehf. Höfuðstöðvar
íslandsferða ehf. verða á íslandi en
starfsemi verður til að byrja með í
10 löndum.
Við starfi Hannesar í Skandinav-
íu tekur Helga Þóra Eiðsdóttir sem
hefur verið forstöðumaður Vildar-
klúbbs Icelandair sl. 7 ár. hlh@dv.is
Seiðavísitala
þorsks og ýsu sú
mesta í áratugi
Lokið er 19 daga árlegum rann-
sóknum á fjölda og útbreiðslu
fiskseiða á vegum Hafrannsókna-
stofnunar á hafsvæðinu kringum
ísland. Einnig fóru fram rann-
sóknir á hita- og seltumælingu
sjávar, mælingar á koltvísýringi
og næringasöltum í sjó. Sunnan
og vestan fslands var sjór hlýr og
selturíkur og upphitun yfir-
borðslaga mikil.
Mikið var af þorskseiðum og
var vísitalan sú sjötta hæsta sem
mælst hefur frá því seiðarann-
sóknirnar hófust árið 1970. Út-
breiðsla þorskseiða var mikil og
fundust seiði víðast á landgrunn-
inu. Seiðin voru með norðlægari
útbreiðslu en verið hefur undan-
farin ár og endurspeglar það vafa-
lítið útbreiðslu hlýsjávar fyrir
Norðurlandi. Stærð seiðanna var
meiri en sést hefur áður. Seiða-
vísitala ýsu var sú langhæsta síð-
an mælingar hófust og var stærð
seiðanna talsvert yfir meðallagi.
Seiðavísitala loðnu var sú lægsta
sem mælst hefur og stærð undir
meðallagi.
gg@dv.is
ÞAKRENNUR
'£? MARLEY
Frábært verð!
594 6000
www.merkur.is
Bæjarflöt4,112 R.
BYQGINGAVÖRUR
Fjárdrátturí Fjórðungssambandi Vestfirðinga,
Framkvæmdastjórinn
Framkvæmdastjóri Fjórðungs-
sambands Vestfirðinga hefur
orðið uppvís að því að draga sér
hátt í 7 milljónir króna úr sjóð-
um sambandsins, líkt og forveri
hans í starfi.
Framkvæmdastjórinn, Ingimar
Halldórsson, hætti fyrirvaralaust
störfum eftir stjórnarfund í fyrradag
en þá var komið í ljós að hann hafði
dregið sér fé úr sjóðum sambands-
ins á árunum 2002 og 2003, samtals
tæpar 7 milljónir króna. Nam fjár-
drátturinn rúmlega 2,2 milljónum
króna árið 2002 en framkvæmda-
stjórinn greiddi þá upphæð til baka
fyrir áramót. Á þessu ári mun hann
hafa haldið áfram að draga sér fé,
samtals um 4,6 miUjónir króna. Þar
dró sér um
af greiddi framkvæmdastjórinn tU
baka um 3 milljónir á mánudag og
stóðu þá eftir um 1,6 miUjónir
króna. Stjóm sambandsins ákvað í
gær að fela lögmanni sínum að kæra
máUð tU lögreglu.
Ingimar er annar framkvæmda-
stjórinn í röð sem dregur sér fé úr
sjóðum Fjórðungssambandsins en
hann var ráðinn framkvæmdastjóri
7 milljónir
í ársbyrjun 2001. Forveri hans, sem
var ráðinn eftir aðalfund 1998, dró
sér um 6 milljónir króna á árunum
1999 og 2000. Það mál var gert upp
án lögregluafskipta.
Fjórðungsþing Vestfirðinga, sem
er ársfundur Fjórðungssambands
Vestfírðinga, verður haldið í Reykja-
nesi við Isafjarðardjúp um helgina.
hkr@dv.is