Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2003, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2003, Síða 14
74 SKQÐUN FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2003 “t* v:::i m Frestun verður sjaldan án kostnaðar Vandinn sem Vegagerðin og samgönguráðherra standa frammi fyrir er ekki síst sá að í framtíð- inni munu verktakar, sem taka þátt í útboði, taka tillit til þess að hugsanlega sé ekki alvara á bak við útboðið. Þeir munu reikna inn sérstaka áhættu er snýr að því að ríkið geti alltafhætt við, frestað eða breytt viðkomandi verkefni. Ríkisstjómin tilkynnti á fyrstu dögum júlí- mánaðar að Héðinsfjarðargöngum yrði frestað um tvö ár. Að vonum vakti ákvörðunin hörð viðbrögð heimamanna, sem margir hverjir hafa litið á gángagerðina sem forsendu fyrir lífvænlegri byggð við norðanverðan Eyja- ijörð. Þegar útboðsgögn vom send út til fjögurra verktakahópa í maí síðastliðnum fögnuðu Siglfirðingar enda töldu þeir að nú myndi langþráður draumur um tengingu við Eyja- fjarðarsvæðið rætast. DV greindi frá því að talsverður hópur bæjarbúa hefði komið sam- an í Skútudal á þeim stað sem gangamunninn verður. Flutt vom ávörp og afhjúpað málverk sem Bjarni Þorgeirsson hafði gert og sýnir gangamunnann. Síðan kom reiðarslagið. Ríkisstjórnin ákvað að fresta gerð jarðganganna um tvö ár og í yf- irlýsingu samgönguráðherra sagði að ekki þætti ráðlegt að fara í framkvæmdir nú í því þensluástandi sem í uppsiglingu væri vegna stóriðjuframkvæmda. Hagfræðilega var ákvörðunin skynsamleg en pólitískt sársauka- full eftir allt sem hafði verið sagt nokkmm vik- um fyrr. Fólk sem bíður eftir því að stjórnmálamenn efni gefin loforð verður sárt og reitt þegar það telur að verið sé að sniðganga það sem lofað og sagt hefur verið. Eftir að hafa tekið út tölu- verðan pólitískan sársauka ákvað ríkisstjórnin að standa við frestunina en stytta framkvæmdatím- ann um eitt ár. Með þessu var reiði heimamanna milduð - smyrsl vom sett á sárin. Vegagerðin gerir ráð fyrir því að Héðinsfjarðargöng verði boðin út að nýju fyrri hluta árs 2006 og að hafist verði handa við framkvæmdir síðar sama ár. Heima- menn hafa sætt sig við sinn hlut en verktakinn sem átti lægsta tilboðið í verkið unir hag sínum eðlilega ilia. Kæmnefnd útboðsmála komst að þeirri niður- stöðu að ákvörðun Vegagerðarinnar og ríkisstjórnar- innar um að hafna tilboði verktakanna hafi verið ólögmæt. Vegagerðin er því skaðabótaskyld gagnvart lægstbjóðendum vegna kostnaðar við að undirbúa til- boð og taka þátt í útboðinu. Stefán Friðfinnsson, forstjóri íslenskra aðal- verktaka sem ásamt NCC átti lægsta tilboðið, telur að það væri hálfhlálegt að bjóða verkið út að nýju enda liggi fyrir allar kostnaðartölur. Stefán segir það vonda niðurstöðu að ljúka málinu með skaðabótum og í viðtaii við DV í gær sagði hann meðal annars: „Það er ekki það sem við emm að fara fram á, en það gæti auð- vitað komið tii þess. Við teljum eðlilegt að Vega- gerðin semji við fyrirtækið um gerð Héðins- fjarðarganga þegar farið verður í framkvæmd- ir.“ Hér er talað af skynsemi þó vissulega sé Vegagerðin og yfirvöld samgöngumála í raun komin í vítahring. Auðvitað hefur verktíminn áhrif á það verð sem verktakar bjóða á hverjum tíma - slíkt er eðlilegt. Og ef til vill hefðu borist hagstæðari tilboð í upphafi ef ijóst hefði verið að verktíminn væri tveimur ámm síðar en upp- haflega var áætlað. En eftir stendur verktakinn, sem bauð lægst í góðri trú, með sárt ennið og þarf að sækja skaðabætur á hendur ríkinu og em göngin sjálft þó nægilega dýr fyrir sameigin- legan sjóð landsmanna. Vandinn sem Vegagerðin og samgönguráð- herra standa frammi fýrir er ekki síst sá að í framtíðinni munu verktakar, sem taka þátt í út- boði, taka tillit til þess að hugsanlega sé ekki al- vara á bak við útboðið. Þeir munu reikna inn sérstaka áhættu er snýr að því að ríkið geti alltaf hætt við, frestað eða breytt viðkomandi verk- efni. Niðurstaðan gæti orðið sú að tilboð í verklegar framkvæmdir á vegum ríkisins verða óhagstæðari. Hvernig staðið hefur verið að verki er langt frá því að vera til eftirbreytni. Aðeins klúður getur lýst fyrir- hyggjuleysinu sem kostar tugi milljóna eða jafnvel meira. 1 Nýir þingmenn ætla að sei €S Átján nýir þingmenn náðu kjöri til Alþingis í vor. Nú er um mán- uður þangað til Alþingi kemur saman og því taldi DV tíma- bært að spyrja nýja þingmenn hvaða málurn þeir myndu helst berjast fyrir í vetur. Þingflokkur Samfylkingarinnar sat á löngum fundi í gær þar sem drög voru lögð að þingstörfunum í vetur, en gera má ráð fyrir að helstu þingmál verði kynnt sér- staklega skömmu áður en þing kemur saman líkt og undanfarin ár. Nýliðar innan stjórnarliðsins hafa sömuleiðis legið yfir því í sumar hver af helstu stefnumálum þeirra séu innan marka hins mögulega. Enginn vafi virðist á því að ný kynslóð þingmanna láti kröftuglega til sín taka á Alþingi í vetur. Menntamál í forgrunni „Þau mál sem ég hef unnið að í sumar og haust lúta svo til ein- göngu að menntamálum,“ segir Björgvin G. Sigurðsson, 32 ára þingmaður Samfýikingarinnar. Flokkurinn hefur falið einum full- trúa í hverri þingnefnd að bera ábyrgð á þingmálum flokksins í þeirri nefnd og gegnir Björgvin því hlutverki í menntamálanefnd, en hann situr auk þess í iðnaðar- nefnd. „Hámark á námskostn- að hverrar fjölskyldu kæmi sér vel fyrir unga foreldra sem þurfa bæði að standa undir þungri endurgreiðslu- byrði af námslánum og leikskólagjöldum," seg- ir Katrín Júlíusdóttir. „Eitt þessara mála lýtur að efl- ingu iðn- og tæknináms og stofnun styttri námsbrauta í því námi. í öðru lagi átak gegn brottfallsvand- anum í framhaldsskólum. Og í þriðja lagi þrjú stór mál sem lúta að Lánasjóði íslenskra náms- manna, þ.e. að afnema ábyrgðar- mannakerfið, endurskoða fram- færslugrunn og lækka endur- greiðsluhlutfallið. Éggæti talið upp fjölda annarra mála en þetta eru „flaggskipin" í menntamálum sem við fulltrúar Samfylkingarinnar í menntamálanefnd höfum verið að vinna að. Við lögðum upp með 28 mál, völdum 14 sem við ætlum að leggja fram í vetur og þar af eru þessi stærst," segir Björgvin. „LÍN-ívilnun" Flokkssystir Björgvins, Katrín Júlíusdóttir, 29 ára, segir að þessa dagana sé henni hugleiknast að skilgreindur verði svokallaður námskostnaður á hverja fjöl- skyldu, líkt og gert sé í Þýska- landi og víðar. „Námskostnað- ur myndi inni- fela kostnað við leikskóla, af- borganir af lán- um LIN og ann- an slíkan kostn- að. Hugmyndin er að þessi kostn- aður fari ekki yfir ákveðið hámark, en því mætti til dæmis ná fram með einhvers konar ívilnun í skatt- kerfinu. Þetta kæmi sér vel fyrir unga foreldra sem þurfa bæði að standa undir þungri endur- greiðslubyrði af námslánum og leikskólagjöldum. Ég mun líklega leggja fram mál eða skýrslubeiðni um þetta í vetur," segir Katrín, sem situr í menntamálanefnd og alls- herjarnefnd. Hún er einnig að vinna að beiðni um skýrslu um stöðu forsjárlausra foreldra og fyr- irspurn um hvort þær forsendur, sem lagt var upp með þegar kvóta- kerfið var sett á, hafi staðist. Frjálslyndi njóti sín Agúst Ólafur Ágústsson, 25 ára, situr í allsherjarnefnd og heilbrigð- is- og trygginganefnd. Hann vill að FRUMRAUNIN: Nýir þingmenn tóku sæti á Alþingi í fyrsta sinn í vor á stuttu þingi, en eitt helsta verkefni þess var að kjósa forseta Alþingis og skipa í nefndir þess. kynning á einstökum málum sem hann ætlar að beita sér fyrir bíði betri tíma en segir af nógu að taka: „Og að sjálfsögðu vona ég að frjáls- lynd viðhorf minnar kynslóðar fái að njóta sfn í sem flestum mála- flokkum." Jón Gunnarsson, 43 ára, segir að hann vilji ekki að mál, sem séu nú í vinnslu í þingflokki Samfylkingar- innar og hjá einstökum þing- mönnum, komi fyrst fram í fjöl- miðlum. „En ég sit í sjávarútvegs- nefnd og fjárlaganefnd og verð fyr- irferðarmestur á þeim sviðum." Rjúpur og bændur Dagný Jónsdóttir, 27 ára þing- maður Framsóknarflokksins, hefur varið sumrinu í að setja sig inn í málaflokka þeirra fimm fastanefnd Alþingis sem hún á sæti í, en sam- kvæmt lauslegri athugun er það met frá því að þingið var sameinað 1991. „Eg held að ég leyfi haust- þinginu að líða og haldi áfram að setja mig inn í þessa málaflokka, en auk þess mun fjárlagaumræðan taka sinn skerf," segir Dagný. Hún er vara- formaður menntamála- nefndar og um- hverfisnefndar og situr auk þess í efnahags- og viðskipta- Dagný Jónsdóttir. nefnd, heil- brigðis- og trygginganefnd og

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.