Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Page 2
2 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003
ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Örn Valdimarsson
AÐALRITSTJÓRI: Óli Björn Kárason
AÐSTOÐARRTTSTJÓRI: Jónas Haraldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Rltstjóm: 550
5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingan auglys-
ingar@dv.is. - Dreiflng: dreiflng@dv.is
Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000,
fax: 462 5001
Setning og umbrot Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerö og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endur-
gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl
við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Efni blaðsins
Ölvaður á lögreglubíl
- frétt bls. 4
Sjóvá-Almennar dóttur-
félag íslandsbanka
-frétt bls. 12-13
Golfferðir í haust
- Ferðir bls. 10
Ummæli KA-manna
kalla á viðbrögð
- DV Sport bls. 37
Horfinn snjókarl
sendir póstkort
Dularfullt mál er komið upp í
bænum Tondu f Suður-Wales eftir
að póstkort fóru að berast til eig-
anda snjókarls sem horfið hafði
sporlaust úr garði hennar rétt fyrir
sfðustu jól.
Að sögn hinnar 42 ára gömlu
Helen Bevan, skapara snjókarls-
ins, berast kortin víða að úr heim-
inum eins og frá Tenerife, Antigúa,
Taílandi, Mexíkó, Malasíu og
Hong Kong og eru öll undirrituð:
„Með kærri kveðju frá Frosta".
Helen segist reyndar hafa séð
Frosta einu sinni eftir að hann
hvarf fyrst en það hefði verið á
jólanótt. „Þá bankaði einhver og
þegar ég opnaði blasti Frosti við
með vídeóspólu bundna um háls-
inn. Upptakan sýndi hann á ýms-
um stöðum og m.a. á pöbbnum."
Atlanta með milljarðasamning í Þýskalandi
LUFTHANSA: Flugfélagið
Atlanta hefur gert saming
við Lufthansa Cargo í Þýska-
landi um þjónustuleigu á
þremur fraktvélum af Boeing
747-gerð sem verða stað-
settar í Frankfurt. Samning-
urinn er upp á um 20 millj-
arða króna. Flugið hefst í
júnímánuði 2004 og gildir
samningurinn til þriggja ára.
Atlanta mun kaupa vélarnar
sem nú eru í rekstri hjá Luft-
hansa Cargo. Flogið verður
til Bandaríkjanna, Samein-
uðu arabísku fursta-
dæmanna, Saudi-Arabíu,
Indlands, Sri Lanka og Flong
Kong. Lufthansa mun ein-
beita sér að rekstri MD11
fraktvéla í eigin flota, það
mun styrkja þeirra flugflota
og gera reksturinn sam-
keppnisfærari og sveigjan-
legri. Að sama skapi styrkir
samingurinn rekstur Atlanta
verulega, en þetta er stærsti
samningur sem Atlanta hef-
ur gert.
Amstel ódýr
BJÓR: (umfjöllun DV um verð á
mismunandi tegundum lager-
bjórs í ÁTVR láðist að geta mjög
ódýrrar bjórtegundar, Amstel
Light í 33 cl flöskum. Flaskan
kostar aðeins 99 krónur sem
jafngildir því að hálfs lítra dós
mundi kosta 150 krónur. Sam-
kvæmt því er Amstel Light
næstódýrasti bjórinn í Ríkinu á
eftir Egils Pilsner.
Vopnað rán framið í íslandsbanka við Lóuhóia:
Stökk yfir gjaldkerastúk-
una vopnaðureggvopni
Maðurinn sem framdi vopnað
bankarán í útibúi fslandsbanka
við Lóuhóla í gær er ófundinn.
Ránið var framið á þriðja tíman-
um í gær og var allt tiltækt lögreglu-
lið kvatt að Lóuhólum í kjölfarið.
Maðurinn mun hafa komið inn í
bankann og gert sér lítið fyrir og
stokkið yfir gjaldkerastúku með
vopn sem líktist hnífi. Hann tæmdi
skúffuna og lagði síðan á flótta út
úr bankanum. Að sögn sjónarvotta
stefndi maðurinn hraðbyri í átt að
Blikahólum en starfsmaður ís-
landsbanka veitti honum eftirför.
Hann missti hins vegar sjónar á
honum.
Víðtæk leit var gerð að mannin-
um í gær og voru meðal annars
notaðir leitarhundar. Maðurinn var
hins vegar ófundinn í morgun. Eft-
irlitsmyndavélar eru í útibúinu og
rannsakar lögregla nú myndir af at-
burðinum. Ekki fæst uppgefið
hversu mikið ræninginn hafði upp
úr krafsinu en sennilegt er að það
séu nokkur hundruð þúsund krón-
ur. Lögregla varðist frekari frétta af
málinu í morgun og sagði rann-
sóknina í fúllum gangi.
Að sögn sjónarvotta
stefndi maðurínn hraðbyrí
í átt að Blikahólum en
starfsmaður íslandsbanka
veitti honum eftirför.
Engan sakaði í ráninu en starfs-
fólk íslandsbanka fékk áfallahjálp í
gær og var útibúinu lokað í kjölfar
ránsins. íslandsbanki vinnur sam-
UPPNÁM: Starfsfólk (slandsbanka fékk áfallahjálp í gær og var útibúinu lokað í kjölfar ránsins.
Þetta er fjórða bankaránið á suðvesturhorni landsins það sem af er þessu ári. DV-myndir ÞÖK
VÍÐTÆK LEIT: Allt tiltækt lið lögreglunnar f
Reykjavík leitaði ræningjans f gær. Leitar-
hundar voru einnig við störf.
kvæmt ákveðinni viðbragðsáætlun
í tilfellum sem þessu.
Sjónarvottur að ráninu segir
manninn hafa virst á unglingsaldri;
hann hefði verið klæddur blárri
dúnúlpu og með svartan trefil um
hálsinn. Þessi lýsing hefur ekki ver-
ið staðfest af lögreglu.
Bankaránið í gær er fjórða vopn-
aða ránið sem framið er á suðvest-
urhorni landsins á þessu ári. Það
fyrsta var framið í Sparisjóði Hafn-
arfjarðar þann 1. aprfl, annað þann
16. maí í Sparisjóði Kópavogs og
það þriðja í Landsbankanum þann
6. júní síðastíiðinn. Fyrri ránin þrjú
hafa verið upplýst. amdls@dvJs
Árni Magnússon félagsmálaráðherra um EES-samninginn:
Við svo búið verður ekki unað
„Endurskoðun EES-samningsins
er stærsta verkefni [e. biggest
challenge] íslenskra utanrfkis-
stjórnmála á næstu árum," sagði
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra á ráðstefnu í Háskólanum í
Reykjavík í gær.
í ræðu sinni (sem flutt var á ensku)
gerði Árni ýmsar athugasemdir um
núverandi stöðu íslands innan EES,
ekki síst þá staðreynt að EES gerði
ekki ráð fyrir því að sveitarfélög
kæmu með neinum hætti að mótun
laga og reglna, þrátt fyrir að stór hluti
þeirra gerða sem Islendingum bæri
að taka upp frá Evrópusambandinu
vörðuðu einkum sveitarfélögin.
Sagði hann að lýðræðishallinn innan
EES minnti sig á orð George Orwells
um að sumir væru jafnari en aðrir.
í viðtali við fréttastofu Útvarps í
hádegisfféttum sagði Ámi: „Fram-
sóknarflokkurinn hefur mótað sér
þessa stefhu, að það beri að byggja á
EES samningnum og á honum þurfi
að gera ákveðnar breytingar. Ef að
það takist ekki þá hljóti að koma til
þess að við veltum því fyrir okkur af
fullri alvöru hvort okkar hagsmunir
kunni betur að vera komnir innan
Evrópusambandsins heldur en utan
þess." Fréttamaður spurði Áma: Vilt
þú að fslendingar gangi í Evrópu-
sambandið? „Ég hef ekki myndað
mér slíka skoðun á þessu augnabliki.
Ég tel að við þurfum að ná ff am þess-
um breytingum á samningnum, en
ég tel hins vegar að við svo búið verði
ekki unað öllu lengur." oiafur@dvJs
DV helgarblað
Draugaslóðir í Viðfirði
Helgarblað DV segir til vegar um
ökuleiðir og gönguslóðir í Vöðlavfk
og Viðfirði á Austfjörðum. Heill-
andi eyðibyggðir þar sem öflugir
draugar em hluti af sögunni.
Víglína við Kárahnjúka
Þorbjörn Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Samiðnar, segir
Helgarblaði DV frá ástandinu við
Kárahnjúka, deilunum við
Impregilo og vonum sínum um
friðsamlega lausn.
Lítill heimur
Frank Hojbye Christiansen er
138 sentímetrar á hæð. Hann hef-
ur leikið dverg bæði í sjónvarpi,
auglýsingum og nú síðast í Hafn-
arfjarðarleikhúsinu. Hann segir
Helgarblaði DV frá lífinu í heimi
þeirra smávöxnu og hvernig hann
hefúr aldrei látið smæðina hindra
sig í neinu.
Vélmennið mjólkar
Helgarblað DV heimsækir unga
og bjartsýna bændur í Miklaholti
þar sem vélmenni annast mjaltir í
stærsta fjósi á íslandi og rækir
starfið betur en mannshöndin.