Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Page 24
24 TíLVERA FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003 Tilvera Fólk ■ Heimllíð • Dægradvtíl Netfang: tilvera@dv.is Sími: 550 5824 • 550 5810 Kúluskítshátíð við Mývatn Fyrsta Kúluskítshátíðin hefst við Mývatn í kvöld. Kúlúskítur er hringlaga þörungur sem vex ein- göngu I tveimur vötnum í heimin- um. Þau eru Mývatn og Akan á eynni Hokkaido í Japan. Við Akan- vatn hefur verið haldin kúlukítshá- tíð frá árinu 1950. Við Mývatn verður haldin hátíð að japanskri fyrirmynd en þó með íslensku ívafi. Dagskráin hefst með kyndil- göngu, þar sem mývetnskur veiði- maður kemur með kúluskít að landi og afhendir kúluskítshöfð- ingja til varðveislu. Að flugelda- sýningu lokinni verður nýr kúlu- skítsdrykkur kynntur á Sel-Hóteli Mývatni. Á morgun verður bæna- stund í Skjólbrekku og síðan verð- ur skemmtun með ýmsum uppá- komum. Um kvöldið verður kúlu- skítsgrillveisla og kúluskítsball. Jeppaferð Hin árlega jeppaferð Ingvars Helga- sonar og Bílheima verður farin á morgun, laugardaginn 20. septem- ber. Ferðin er bæði fyrir breytta og óbreytta Nissan og Isuzu-jeppa. Að þessu sinni verður farin dagsferð inn í Þórsmörk og þegar þar er komið verður boðið upp á grill og leiki fyrir börnin. Mæting er kl. 8 við Ingvar Helgason, Sævarhöfða 2, og verður lagt af stað um klukkan 9. Olíuverk og Ijósmyndir Tvær sýningar verða opnaðar í Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14-16, á morgun, 20. september, kl. 15. Pét- ur Gautur opnar sýningu á olíumál- bergskórinn, undir stjórn Kjartans Ólafssonar, syngja og leika við opn- unina. Þetta er önnur einkasýning Steinlaugar og þar eru vatnslita- myndir í meirihluta. ________ Sýningin stendur fram í nóvember. Opið er mán.-föst. kl. 10-17 og lau.-sunnud. 13-16. verkum í Baksalnum og Jóna Þor- valdsdóttir sýningu á ljósmyndum í Ljósfold. Listakonan nefnir sýning- una Þjóðsögu. Sýningarnar standa til 5. október. Gallerí Fold er opið daglega frá kl. 10 til 18, laugardaga frá kl.10 til 17 og sunnudaga frá kl. 14 til 17. Kjólar úr hreindýra- leðri Signý Ormarsdóttir fatahönnuður opnar sýningu á á morgun, 20. september, kl. 16-18, í Listhúsi Ófeigs að Skóla- vörðustíg 5 í Reykjavík. Þar sýnir Signý kjóla úr íslensku hreindýraleðri sem hún hefur unnið nú í sumar. Big Bird Gallerí Dvergur: Elín Hansdóttir myndlistarmaður hefur opnað sýn- ingu í Gallerí Dvergi, Grundarstíg 21. Sýningin kallast Big Bird og er opin flmmtudaga til sunnudaga kl. 17-19 og stendur til 4. október. Grasrót 2003 f Nýlistasafninu verður sýningin Grasrót opnuð, sú fjórða á jafn- mörgum árum sem ber það heiti. Á Grasrót 2003 koma einungis til greina listamenn sem hafa lokið BA-námi í myndlist. Að þessu sinni Yfir bjartsýnisbrúna Listasafn Reykjavíkur, Hafnar- hús: Þrjár sýningar verða opnaðar í dag kl. 16 í Listasafni Reykjavíkur Hafharhúsi. Úr byggingarlistar- safni - Sýning á húsateikningum og líkönum, Yfir bjartsýnisbrúna - samsýning alþýðulistar og sam- tímalistar og Vögguvísur - innsetn- ing Bryndísar Snæbjörnsdóttur og Mark Wilson. Minningarsýning Opnuð verður sýning á verkum Guðmundar Thoroddsens í sal SÍM, Hafnarstræti 16, á morgun. Guðmundur lést 1996 en sýningin er haldin í tilefni af fimmtugsaf- mæli hans sem var á síðasta ári. Jafnframt verður endurútgefin fyrsta hljómplata Diabolus In Musica á geisladiski, en Guðmund- ur var píanóleikari í þeirri hljóm- sveit og inniheldur platan m.a. tón- sóttu ríflega 50 myndlist- armenn um þátttöku en þrettán úr þeim hópi voru valdir til að vinna að sýningunni í ár og sýna verk sín. Þau eru: Arndís Gísladóttir, Baldur G. Bragason, Birgir örn Thoroddsen, Birta Guð- jónsdóttir, Bryndís E. Hjálmarsdóttir, Bryndís Ragnarsdóttir, Elín Hel- ena Evertsdóttir, Hanna Christel Sigurkarlsdóttir, Hrund Jóhannesdóttir, Huginn Þór Arason, Hug- leikur Dagsson, Magnús Árnason og Rebekka Ragnarsdóttir. Myndasýning og söngur Steinlaug Sigurjónsdóttir opnar myndlistarsýningu í Félagsstarfi Gerðubergs í dag, 19. sept. kl. 16. Félagar úr Tónhorninu og Gerðu- verk hans. Hljómplatan kom út fyrst árið 1976 og bar nafnið Hana- stél á Jónsmessunótt. Með Guð- mundi í hljómsveitinni voru Aagot V. Óskarsdóttir, Jóhanna V. Þór- hallsdóttir, Jón Sigurpálsson, Jóna Dóra Óskarsdóttir og Páll Torfi ön- undarson. Reykjavík að missa „Útlöndin heilla," segir Þóroddur Bjarnason félagsfræðingur íslensk ungmenni vilja flest færa sig um set og helst búa er- lendis í framtíðinni. „Ef búsetuáætlanir íslenskra krakka ganga eftir mun fólki enn fækka verulega í sveitum og sjávar- þorpum landsins en minni breyt- ingar verða í sterkum byggðar- kjörnum og íslendingum fjölgar verulega erlendis," segir Þóroddur Bjarnason félagsfræðingur. Nú í vikunni fjallaði hann um framtíðar- sýn íslenskra unglinga og viðhorf þeirra til heimahaganna 1992-2003 í fyrirlestri á vegum félagsvísinda- deildar Háskólans á Akureyri. Er- indið nefndist „Ertu að fara, elsku vinur?" Nauðugir eða viljugir Búferlaflutningar ungs fólks frá landsbyggðinni til Reykjavíkur hafa lengi verið nokkurt áhyggjuefni. Rannsóknir benda til að langanir unglinga hafi talvert forspárgildi um slíka þróun í einstökum byggð- arlögum. í fyrirlestrinum kynnti Þóroddur breytingar á búsetuósk- um og búsetuvæntingum íslenskra unglinga frá 1992 til 2003 og ræddi um þá þætti sem tengjast slíkum viðhorfabreytingum. Sérstaklega Mínar helstu niðurstöð- ur eru þær aðmun fleiri nemendur í 9. og 10. bekk vilja færa sig um set nú en fyrir ellefu árum var litið til unglinga á höfuðborgar- svæðinu, á Akureyri, í sjávarþorp- LEKTORINN: Þóroddur Bjarnason félagsfræðingur hefur rannsakað búsetuóskir íslenskra ungmenna síðan 1992. Blómlegt par með blaðaútgáfu í Mosfellsbæ Rit og rækt er lítið útgáfufyrir- tæki sem gefur út tímaritið Sumarhúsið og garðurinn, en fjórða tölublað þess var að koma út fyrir skömmu. Þetta tímarit hefur verið gefið út í ellefu ár og þar af í sjö ár af hjónun- um Auði I. Ottesen og Páli Péturs- syni. Þau Auður og Páll hafa bæði góðan bakgrunn sem nýtist vel í út- gáfunni, en Auður er garðyrkjufræð- ingur og smiður og Páll hefur starf- að í yfir 10 ár að útgáfumálum'. Þau vinna blaðið að mestu leyti sjálf, fá til liðs við sig lausapenna sem senda inn efhi og eru í góðu sambandi við ýmsa sérfræðinga í ræktun. „Við höfum ieitast við að gera blaðið fjölbreytt svo að lesendur finni alltaf eitthvað sem vekur áhuga þeirra, til dæmis er alltaf umfjöllun um fugla eða dýr í blað- inu og við erum nýverið farin að fjalla um útivistarmöguleika og gönguleiðir sem fólk getur prófað sjálft," segir Páll, „en aðalefni blaðsins fjallar um sumarbústaði og gróður eins og nafnið bendir til." Auður segir að í nýjasta tölublaði líti þau meðal annars inn í tvo ólíka en mjög sérstaka sumarbústaði þar sem hugvitið og vandvirknin skín í gegn. „Annar er í stíl íslensku burstabæjanna með lilöðnum veggjum, klömbrum og streng og torfþald en að öðru leyti mjög ný- tískulegur að allri gerð. Hinn er steyptur í hólf og gólf, málaður rauður að utan og hvítur að innan með stórum gluggum og boga- dregnu grasi vöxnu þaki. I báðum þessum tilfellum eru eigendurnir að fara óhefðbundnar leiðir. Blaðið sem var að koma út núna er númer tuttugu og fimm frá upp- hafi útgáfu Sumarhússins og hið fimmta eftir að nafni þess var breytt í Sumarhúsið og garðinn á síðasta ári." Páil segist vilja nota tækifærið og koma á framfæri leið- réttingu á útbreiddum misskilningi varðandi blaðið. „Margir sem hafa hringt til okkar halda að Sumarhús- ið og garðurinn sé gefinn út af Landssambandi sumarhúsaeig- enda, en svo er ekJd. Við erum á engan hátt tengd þeim samtökum og þetta er tímarit fyrir alla sem annaðhvort eiga sumarhús eða garð, eða bara láta sig dreyma um það." kip@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.