Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Blaðsíða 32
32 TILVBRA FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003 íslendingar Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Netfang: aettir@dv.is Sími: 550 5826 >extiu ora Hálfdan Henrysson verkefnisstjóri hjá Siglingastofnun Hálfdan Henrysson, verkefnis- stjóri í skipaeftirliti hjá Siglinga- stofnun, Melseli 6, Reykjavík, er sextugur í dag. Starfsferill Hálfdan fæddist f Reykjavík og ólst þar upp í Vesturbænum. Hann lauk gagnfræðaprófi 1960, far- mannaprófi frá Stýrimannaskólan- um 1967, skipstjóraprófi frá varð- skipadeild Stýrimannaskólans 1968, kafaraprófi 1968, prófi frá Vopnaskóla danska sjóhersins 1978, prófi í leit og björgun á hafinu frá björgunarskóla US Coast Guard 1983, prófi frá vopnaskóla banda- ríska sjóhersins Surface Underwa- ter EOD 1984, prófi og þjálfun frá björgunarskóla Robert Gordon Institution í Aberdeen í Skotlandi f sjóbjörgunarmálum 1987 og prófi frá björgunarskóla bresku strand- gæslunnar Highcliff 1990. Hálfdan hóf störf sem sjómaður hjá Eimskipafélagi íslands 1959, var á togara hjá Tryggva Ófeigssyni og frá 1960 háseti hjá Landhelgis- gæslunni, frá 1966 stýrimaður og skipherra í viðlögum á skipum, flugvélum og þyrlum Landhelgis- gæslunnar til 1985, sprengjusér- fræðingur og kafari á sama tíma, deildarstjóri áhafnardeildar hjá Siglingamálastofnun 1986-87, deildarstjóri björgunardeildar SVFÍ 1987-94 en undir björgunardeild heyrði björgunarmiðstöðin MRCC Coastal og tilkynningaskylda ís- lenskra skipa. Hálfdan var fulltrúi á fjölmörg- um fundum Alþjóðasiglingamála- stofnunarinnar og Inmarsat sem ráðgjafi eða aðalfultrúi um málefni varðandi skipulag björgunarmála. Ennfremur sem fulltrúi íslands á fundum sem haldnir voru til að samræma björgunarstörf á hafinu og stjórnun þeirra en fúndir þessir voru haldnir með þeim þjóðum sem land eiga að Norður-Atlants- hafi. Skipulag það sem þá var kom- ið á er enn í fullu gildi. Hann var deildarstjóri hjá Sigl- ingamálastofnun 1994-96 og eftir það deildar- og verkefnisstjóri hjá Siglingastofnun í skipaskoðun frá 1994, fulltrúi stofnunarinnar við hafnarríkiseftirlit og eftirlitsmaður hennar m.a. við nýbyggingar skipa Fimmtíu ára í Kína og Chile. Hálfdan hefur verið stjórnar- maður í stjórn Sjómannadagsráðs en undir hana heyrir rekstur Hrafn- istuheimilanna, happdrættis DAS og Laugarásbíós auk annarra stofn- ana Sjómannadagsins í Reykjavík og Hafnarfirði. Hann átti sæti í stjórn Stýrimannfélags íslands og var formaður Hollvinasamtaka Sjó- mannaskólans auk íjölmargra ann- arra trúnaðarstarfa. Fjölskylda Hálfdan kvæntist 29.5. 1966 Eddu Þorvarðardóttur, f. 5.12.1943, skrifstofustjóra slysa- og bráða- sviðs Landsspítala - háskólasjúkra- húss. Hún er dóttir Þorvarðs R. Jónssonar verslunarmanns og Guðrúnar Gísladóttur húsmóður. Böm Hálfdans og Eddu em Henry A. Hálfdansson f. 13.10. 1967, tækniráðgjafi, búsettur í Reykjavík, en kona hans er Anna María Þórðardóttir hjúkmnarfræð- ingur og eiga þau tvo syni; Þorvarð- ur Ragnar Hálfdanarson, f. 11.2. 1969, læknir á Mayo Clinic f Rochester Minnesota, en unnusta hans er Eygló Þórðardóttir læknir og á hann einn son; Halldór Gunn- ar Hálfdanarson, f. 21.3. 1974, bóndi á Molastöðum f Fljótum, en kona hans er María Þómnn Núma- dóttir bóndi og eiga þau eina dótt- ur og tvo syni; Helga Dfs Hálfdan- ardóttir, f. 6.3. 1981, nemi við HÍ, en sambýlismaður hennar er Þórð- ur Þorgeirsson, tamningamaður og knapi. Systkini Hálfdans em Helga Henrysdóttir, f. 16.10. 1931, hús- móðir í Reykjavík; Henry Þór Henrysson, f. 23.3. 1934, mælinga- fræðingur, búsettur í Reykjavík; Haraldur Henrysson, f. 17.2. 1938, fyrrv. hæstaréttardómari, búsettur f Reykjavfk; Hjördís Henrysdóttir, f. 9.2. 1946, húsmóðir, búsett í Reykjavík; Þorsteinn Ásgeir Henrysson, fyrrv. rannsóknarlög- reglumaður, búsettur í Danmörku. Hálfbróðir Hálfdans, samfeðra: Ragnar Bergsteins Henryksson, f. 31.3.1927, d. 9.11. 1987, blikksmið- ur, var búsettur í Reykjavík. Foreldrar Hálfdans: Henry Alex- ander Hálfdansson, f. 10.7. 1904, d. 8.10. 1972, framkvæmdastjóri Bjarni Þór Þorvaldsson myndlistarmaður Bjarni Þór Þorvaldsson, B.Thor, listamaður, Asparfelli 12, Reykja- vík, er fimmtugur í dag. Starfsferill Bjarni greindist geðfatlaður 1976 og hefur átt við þann sjúk- dóm að strfða síðan. Hann hefur alla tíð stundað vinnu og iðjuþjálf- un, farið í skóla hjá Hringsjá, starfsþjálfun fatlaðra, og lært þar m.a. á tölvur. Bjarni hefur haldið sex mynd- listarsýningar og gefið út bókina Tilbrigði sem er sjúkrasaga höf- undar, rituð á hans hátt. Einnig kemur út fyrir jólin, fyrsta skáld- saga hans, bóícin SEGUL GUÐ- INN. Um þessar mundir starfar hann í Múlalundi, þjálfunarvinnu ör- yrkja. Hann lætur vel að vinnuni sem hann segir að gefi sér mikla lífsfyllingu. Bjami Þór er sonur Ágústu Helgu Vigfúsdóttur og Þorvaldar Helgasonar. Bjarni býr á vernduðu heimili svokölluðu ásamt þrem öðmm einstaklingum að Asparfelli 12. Hann er að heiman f dag. Slysavarnafélags íslands, og k.h., Guðrún Þorsteinsdóttir, f. 4.8. 1913, húsmóðir, fýrst á ísafirði en lengst af í Reykjavík. Ætt Henry var sonur Hálfdans Ágústs, sjómanns á ísafirði, Brynj- ólfsonar, b. á Valshamri í Geiradal, Jónssonar, b. á Brekku í Geiradal, Atlasonar. Móðir Henrys var Þorkatía, systir Guðmundar, föður Jóns Sólnes alþm., föður Júlíusar, verkfræðings og fyrrv. alþm. Þorkatla var dóttir Þorkels Árnasonar. Móðir Þorkötíu var Guðfinna, systir Guðnýjar, ömmu prófessoranna Jónasar og Halldórs og Þorvarðar rektors Elí- assona. Guðfinna var dóttir Jóns, b. á Læk í Dýrafirði, Bjarnasonar. Móðurbræður Hálfdans: Ragnar Þorsteinsson skipstjóri, bóndi og skáld frá Höfðabrekku en sonur hans er Reynir Ragnarsson, fyrrv. lögreglumaður í Vík; Láms Þor- steinsson skipherra; Höskuldur Stórafmæli 90 ára Bjöm Þórðarson, Hvanneyrarbraut 37, Siglufirði. 85 ára Katrfn Guðmundsdóttir, Tröðum, Borgarnesi. 80 ára Ágúst Sæmundsson, fyrrv. brúargerðar- maður, Þrúðvangi 9, Hellu. Hann verður heima og með heitt á könnunni frá kl. 16.00 laugard. 20.9. nk. 75 ára Marfa Brynjólfsdóttir, Engimýri 8, Akureyri. 70 ára Hreinn Elfasson, Jörundarholti 108, Akranesi. listmálari. Eiginkona hans er Rut Þorsteinsson sjúkraflugmaður; Sig- urður Þorsteinsson skipstjóri en sonur hans er Kristinn, verkfræð- ingur hjá Boeing-flugvélaverk- smiðjunum í Seattíe. Guðrún er dóttir Þorsteins Michaels, útvesgsb. í Álftafirði og formanns í Hnífsdal, Ásgeirssonar, b. á Rauðamýri, Pálssonar, b. á Kambsnesi, Asgeirssonar. Móðir Ásgeirs var Guðrún Jóhannesdóttir. Móðir Þorsteins var Rannveig Þórðardóttir, b. á Blámýmm, Þor- steinssonar, b. í Reykjarfirði við Djúp, Þorsteinssonar. Móðir Guðrúnar var Rebekka, hálfsystir, sammæðra, Jóns Guð- jónssonar loftskeytamanns, afa Ara Edwald hjá Samtökum atvinnulífs- ins. Rebekka var dóttir Bjarna, b. í Hlöðuvík, bróður Jóns, afa Krist- jáns Ragnarssonar hjá LÍÚ. Bjarni var sonur Jakobs, b. á Snæfjöllum, bróður Tómasar, afa Hjálmars R. Bárðarsonar siglingamálastjóra. Jakob var sonur Tómasar, b. í Nesi í Gmnnavík, Ásgrímssonar. Sigurmonsdóttir. Þau taka á móti gestum að heimili sínu í dag eftir kl. 17.00. Ingunn Slgrfður Ingvarsdóttir bóndi, Hofsstöðum, Stafholtstungum, Borgarbyggð. Eiginmaður hennar varTómas Valtýr Helgason bóndi sem nú er látinn. Ingunn tekur á móti vinum og vandamönnum í kvöldkaffi í félagsheimilinu Þing- hamri í kvöld frá kl. 20.00. Sveinbjöm Ámason, bóndi á Kálfsá í Ólafsfirði, varð sjötugur í gær. Eiginkona hans er Ragna Björgvinsdóttir. Þau taka á móti gestum í Hringveri, Ólafsfirði, á morgun, laugardaginn 20.9. frákl. 18.00. Björgvin Th. Hilmarsson, Smáratúni 42, Keflavík. Greta Jónasdóttir, Brúsastöðum, Selfossi. Hallgrfmur Aðalstelnsson, Efri-Tungu, Patreksfirði. Jón Gunnarsson, Túngötu 39, Reykjavík. Sigurður Ingólfsson, Fornastekk 3, Reykjavík. Þórunn Maggý Guðmundsdóttir, Ægisíðu 119, Reykjavík. 60ára Garðar Bergendal, Langagerði 124, Reykjavík. Gfsli R. Sigurðsson, Flatahrauni 16b, Hafnarfirði. Gísli V. Halldórsson, Böðvarsgötu 23, Borgarnesi. Guðrún Guðmundsdóttir, Víkurbraut 11, Höfn. Ingveldur Halla Jónsdóttir, Selbrekku 7, Kópavogi. Klæmint S. Antoniussen, Vallarflöt 2, Stykkishólmi. Kristfn G. Lárusdóttir, Hátúni 4, Reykjavík. Rafn Ólafsson, Fjallalind 80, Kópavogi. Sigrfður E. Helgadóttir, Tunguvegi 7, Hafnarfirði. Sigurður Þorkelsson, Hásölum 16, Kópavogi. Valur Kristinsson, Lyngbergi 21, Þorlákshöfn. Vfglundur Þorsteinsson, Lindarflöt 39, Garðabæ. 50 ára Ingimar Kr. Þorsteinsson, Egilsgötu 11, Borgarnesi, varð fimmtugur þann 17.9. sl. Hann tekur á móti gestum í Módel Venusi við Borgarfjarðarbrúna eftir kl. 18.00 í kvöld, föstudaginn 19.9. Aðalbjörg Sólrún Einarsdóttir, Ökrum 1, Mosfellsbæ. Guörún Þórunn Glsladóttir, Gilsbakka vA/atnsenda, Kópavogi. Hafdfs Eggertsdóttir, Víkurbraut 9, Vík. Halldór Laxdal, Hvannhólma 8, Kópavogi. Halldór Ómar Eyland Pálsson, Þórustíg 24, Njarðvík. Helga S. Guðmundsdóttir, Barðstúni 7, Akureyri. Hrönn Þorstelnsdóttir, Reyrhaga 7, Selfossi. Karen Margrét Mogensen, Tjarnarstíg 4, Seltjarnarnesi. Margrét Helgadóttlr, Dalsbyggð 13, Garðabæ. Ragnheiður Guömundsdóttir, Fjarðarási 8, Reykjavík. Sigurborg Róbertsdóttir, Túnhvammi 8, Hafnarfirði. Sigurrós Svavarsdóttir, Marbakkabraut 17, Kópavogi. 40ára Aðalgeir Hallgrfmsson, Engimýri 4, Akureyri. Alda Ásgeirsdóttir, Hrísmóum 7, Garðabæ. Ágúst Gunnarsson, Stærribæ, Selfossi. Ágústa Hera Birgisdóttir, Breiðvangi 8, Hafnarfirði. Dagný Þrastardóttir, Aðalstræti 16, (safirði. Gréta Svanlaug Svavarsdóttir, Grundarsmára 3, Kópavogi. Guðrún Atladóttir, Bjarnhólastíg 10, Kópavogi. Herdís Jakobsdóttir, Steiná 2, Blönduósi. Katrfn Sæland Einarsdóttir, Holtsbúð 8, Garðabæ. Óskar Ingi Sigurðsson, Áshlíð 12, Akureyri. Óttar Jónsson, Kjarrhólma 32, Kópavogi. Sigrún Júlfa Magnúsdóttir, Dofrabergi 9, Hafnarfirði. Sigurður Bjarnar Pálsson, Tröllagili 1, Akureyri. Sjöfn Kristjánsdóttir, Sólvallagötu 11, Reykjavík. Sævar Hreiðarsson, Hulduhlíð 7, Mosfellsbæ. SævarVatnsdal Rafnsson, Ránarvöllum 17, Keflavík. Vala Björk Svansdóttir, Kleppsvegi 52, Reykjavík. Þóra Gyða Júlfusdóttir, Laufvangi 8, Hafnarfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.