Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Page 37
FÖSTUDAOUR 1 9. SEPTEMBER 2003 DV SPORT 37
Ummæli KA-manna
kalla á viðbrögð
segir Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, sem einnig er ósáttur við umfjöllun DV
BARIST GEGN FORDÓMUM: Knattspyrnusamband (slands er í herferð í baráttu gegn fordómum á knattspyrnuvellinum. Geir Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri KSf, lýsir vonbrigðum með ummæli KA-manna eftir leik (Aog KA ÍVISA-bikarnum og segir þau kalla á viðbrögð.
Hann er einriig ósáttur við hlut DV í málinu. DV-mynd Pjetur
Ummæli þjálfara KA, Þorvalds
Örlygssonar, og leikmanns KA,
Slobodans Milisic, í DV Sporti í
gær eftir leik ÍA og KA í undan-
úrslitum VISA-bikarsins hafa
vakið mikil viðbrögð og Ijóst er
að KSf mun grípa til aðgerða
vegna þeirra en Geir Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri KSÍ,
staðfesti það í samtali við DV
Sport í gær.
Ástæða ummælanna var rautt
spjald sem Milisic fékk í leiknum á
56. mínútu þegar hann braut á
Garðari Gunnlaugssyni. Milisic
sagði meðal annars í samtali við DV
Sport eftir leikinn að dómurinn
hefði verið bull og vitleysa. Þetta
hefði líklega verið í fimmta skiptið
sem Kristinn Jakobsson gæfi hon-
um rautt spjald á 11 ára ferli á ís-
landi. Hann skildi ekki af hverju en
bætti því við að Kristinn væri hálf-
viti og ekkert annað. Þorvaldur
gekk skrefinu lengra og sagði að
Milisic hefði aldrei fengið rautt
spjald ef hann bæri íslenskt nafn.
Við þetta má bæta að eftir því
sem DVSport kemst næst hefur
Kristinn gefið Milisic tvö rauð
spjöld á hans ferli á íslandi. Hið
fyrra var í júní á þessu ári, þegar KA
mætti Þrótti, og hið síðara á Laug-
ardalsvellinum á miðvikudags-
kvöld.
Var rautt spjald
DV Sport setti sig í samband við
Kristin í gær og spurði hann út í
rauða spjaldið.
„Það var aldrei vafi í mínum
huga um að þetta væri rautt spjald.
Þetta var tveggja fóta tækling sem
hann stökk í. Eg tel það hreinlega
happ að ekki skuli hafa farið verr
fyrir Garðari Gunnlaugssyni. Oft er
talað um að fara í boltann en mín
túlkun var ekki sú að hann væri að
fara í boltann. Einnig má bæta því
við að ef Garðar hefði komist áífam
þá hefði hann verið kominn einn í
gegn en það var kannski nokkuð
sem spáð var minnst í,“ sagði Krist-
inn sem gefur ekki mikið fyrir um-
mæli Þorvalds Örtygssonar.
„Ég vísa þeim til föðurhúsanna.
Ég trúi því ekki að íslenskir knatt-
spymumenn eða forráðamenn vilji
bendla annan knattspymumann
við slíkt sem Þorvaldur bendlaði
mig við. Um ummæli Milisic hef ég
ekkert að segja. Þau dæma sig sjálf.
Ég hef oft dæmt hjá þessum manni
- bæði í meistaraflokki og hjá yngri
flokkum sem hann er að þjálfa. Ég
hef ekkert á móti þessum manni og
samskipti okkar hafa alla tíð verið
mjög góð - svo framarlega sem
„Ég vísa ummælum
Þorvalds til
föðurhúsanna. Um
ummæli Milisic hefég
ekkert að segja enda
dæma þau sig sjálf."
hann hefur haldist inn á vellinum.
Að mínu áliti er þetta mjög fi'nn ná-
ungi. Einnig hef ég ekkert upp á
Þorvald að klaga því að okkar sam-
skipti hingað til hafa einnig verið
góð. Því þykir mér þessi uppákoma
leiðinleg en ég mun ekki erfa
þetta,“ sagði Kristinn Jakobsson
knattspymudómari.
KA harmar atvikið
Knattspyrnudeild KA sendi frá
sér fréttatilkynningu síðdegis sem
er svohljóðandi:
„Knattspymudeild KA harmeir aö
þessi ummæli hafi verið látin falla í
hita leiksins og hefur Kristinn Jak-
obsson veriö beðinn afsökunar á
þeim bæði af stjórn deildarinnar
sem og þjálfara og leikmanni.
Kristinn Jakobsson er drengur góð-
ur og efast enginn um hæfileika
hans sem dómara enda hefurhann
verið einn afokkar bestu dómurum
um árabil. “
Ekki kemur fram í tilkynningu
KA-manna hvernig þeir tóku á mál-
um Þorvalds og Milisic og DV Sport
setti sig því í samband við Vigni
Þormóðsson, formann knatt-
spymudeildar KA, og spurði hvort
tekið hefði verið á málinu.
„Það er búið að ræða við þá Þor-
vald og Slobodan og það verða eng-
in eftirmál af þessu atviki. Þeir
verða ekki beittir neinum viðurlög-
um og það er búið að útkljá málið,"
sagði Vignir Þormóðsson.
í höndum Geirs
Framhald málsins er nú algjör-
lega í höndum framkvæmdastjóra
KSÍ, Geirs Þorsteinssonar, því að
samkvæmt 12. grein starfsreglna
aganefndar KSÍ er framkvæmda-
stjóra KSÍ einum heimilt að vísa til
úrskurðar aganefndar atvikum sem
skaðað geta fmynd knattspyrnunn-
ar eða þeirra sem taka þátt í leikn-
um. Slflc atvik hafa þá ekki komið
fram í atvikaskýrslu dómara eða
eftirlitsmanns á kappleikjum en
geta verið hvers kyns ósæmileg
ffamkoma á leikstað eða á annan
hátt opinberlega. Viðurlög við slflc-
um brotum eru áminning, ávítur,
sekt að upphæð 30.000 kr. eða leik-
bann.
Geir staðfesti það í samtali við
DV Sport í gær að til aðgerða yrði
gripið af hans hálfu en hann lýsti
jafnframt vonbrigðum með þátt DV
í málinu.
„Ég er mjög ósáttur við
að Dagblaðið skuli ekki
sýna meiri fagmennsku
í framsetningu sinni og
umfjöllun um leikinn.
Einnig get ég sagt það
að þau ummæli KA-
manna sem birtust í
blaðinu kalla á við-
brögð."
„Ég er mjög ósáttur við að Dag-
blaðið skuli ekki sýna meiri fag-
mennsku í framsetningu sinni og
umfjöllun um leikinn. Mér finnst
framsetningin ósmekkleg. Einnig
get ég sagt það að þau ummæli KA-
manna sem birtust í blaðinu kalla á
viðbrögð. Þau eru ódrengileg og ég
lýsi yfir vonbrigðum með þau,“
sagði Geir sem sagðist líta málið al-
varlegum augum en ekki væri að
vænta niðurstöðu í málinu á næst-
unni.
Flýti mér hægt
„Ég þarf tíma til þess að meta
málið f heild sinni. Ég flýti mér
hægt í svona málum og það geri ég
af fyrri reynslu. Það er vegna þess
að ég verð að vanda mig í mínum
vinnubrögðum," sagði Geir Þor-
steinsson.
Næsti fúndur aganefhdar KSÍ er
á þriðjudaginn kemur.
henry@dv.is
!
■
Utan vallar
fMÍN SKOÐUN
Óskar Hrafn Þorvaldsson
íþróttafréttamaður
oskar@dv.is
KA-menn kusu að fara auðveldu
leiðina eftir tap sitt gegn Skaga-
mönnum í undanúrslitum VISA-bik-
arsins á miðvikudagskvöld. Þeir
kenndu dómaranum alfarið um tap-
ið í stað þess að líta í eigin barm og
vom stór orð látin falla við blaða-
mann DVSports eftir leildnn. Sá
blaðamaður þurfd að ekki toga stór-
yrðin út úr þeim með töngum heldur
fékk gusuna beint í æð. Fúkyrðin
sem fuku af vörum norðanmanna
voru með mestu ólflandum og þess
eðlis að eitthvað varð að gera.
DV Sport ákvað að birta þessi um-
mæli á baksíðu blaðsins í gær til þess
að þau fæm ekki fram hjá neinum og
að forystumenn knattspymumála
gætu ekki komist hjá því að grípa til
aðgerða. Það er nú einu sinni þannig
að yfirleitt þurfa menn að bera
ábyrgðá orðumsinum.
Geir Þorsteinsson! Að
ráðast á DV með þeim
hætti sem þú gerðir er
ekki fagmannlegt og
klassískt dæmi um það
þegar menn falla í þá
gryfju að skjóta
sendiboðann.
KA-menn birtu fréttatilkynningu í
gær þar sem þeir báðu dómara leiks-
ins afsökunar á ummælunum en að
öðm ieyti væri málið búið.
Það sem vekur hins vegar mesta
athygli mína em viðbrögð Geirs Þor-
steinssonar, framkvæmdastjóra KSÍ,
þegar ummæli KA-manna vom bor-
in upp á hann í gær. Hann brást
ókvaéða við og vildi lítið tjá sig um
ummælin en eyddi þeim mun meiri
tíma i að tala um ófegmennsku
blaðamanna DVSports við frétta-
flutninginn. Sú staðreynd að þetta
var gert að stórmáli virtist fara illa í
hann enda er svo komið að hann
einn hefur alræðisvald þegar kemur
að því að refsa mönnum fyrir ósæmi-
lega hegðun eða rætin ummæli.
Hann þarf nefhilega að taka á málinu
hið snarasta því að annars er eins
hægt að setja lóðrétt pennastrik yfir
12. grein agareglnanna - hún verður
ekkert nema hjákátlegt hjóm og orð-
in tóm.
Geir Þorsteinsson! Að ráðast á DV
með þeim hætti sem þú gerðir er
ekki fegmannlegt og klassískt dæmi
um það þegar menn falla í þá gryfju
að skjóta sendiboöann.