Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2003, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2003, Blaðsíða 24
24 DVHBLGARBLAÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2003 Matur og vín Umsjónarmenn: Gunnþóra Gunnarsdóttir, gun@dv.is Haukur Lárus Hauksson, hlh@dv.is H refn u kj öt Hrefna er skíðishvalur, sá minnsti afætt reyðarhvala, og verður ekkiyfir 10 mað lengd. Hún lifir í köldum sjó í öllum heimshöfum að sumrinu en heldursig nær miðbaug að vetrinum. Hún lifir einkum á síld, loðnu og Ijó- sátu. Mikið er afhrefnu hér við land og var kjötið nýtt íaldanna rás, eftirþví sem föng voru á, en hrefnuveið- ar voru stoppaðar árið 1985, eftir allmiklar deilur við erlendar þjóðir um hvalveiðar við ísland. Nú eru veiðar á hrefnu hafnar hér á ný, eftir átján ára hlé. Hrefnukjötið er dökkrautt og fremur gróft og bestu bitarnir lunga- mjúkir. Með réttri meðhöndlun hentar það vel í hvers kyns steikur og pottrétti, auk þess sem það bragðast vel hrátt. Hvalkjötið er magurt en þó auðugt aðA-og D-vítamínum og nauðsyniegum steinefnum eins og járni. Skrautfjöður á matseðlum framtíðarinnar segir Friðrik Sigurðsson á „Það er alltaf ánægjulegt að fá á markað nýja og spennandi afurð sem margt er hægt að gera við og ég held að fólk eigi eftir að hafa smekk fyrir þessu kjöti," segir Friðrik Sigurðsson, matreiðslumeistari í Fjörukránni í Hafnarfirði, um hrefnukjötið. Hann segir hrefnukjötið sem komið hefur í verslanir núna í sérlega góðri verkun, snör handtök við hvalskurðinn hafi úrslitaáhrif á það hvort lýsisbragð verði að kjötinu eða ekki. „Það kemur ekkert lýsisbragð ef dýrið er skorið um leið, það er aðalgaldur- inn,“ segir hann, Sjálfum finnst honum best að snæða hvalkjötið hrátt, upp úr sojasósu, en segir það líka virka vel grillað og léttsteikt, t.d. sem piparsteik. Gallinn sé sá að það verði ansi dökkt við eldun og standist því tæplega sjón- próf. Þar sem hrefnuveiðar eru nýhafnar eftir langt hlé á alveg eftir að þróa matreiðslu á hrefnukjötinu, að mati Friðriks. „Ég vona að ungir matreiðslumenn á veitingastöðum taki þetta hráefni upp á arma sína, fikri sig áfram og geri úr því gúrmefæði. Matur sem byggist á séreinkennum þjóða verður oft í virðingarsæt- um á matseðlum og ég sé fyrir mér að hrefnu- kjötið eigi í framtíðinni eftir að verða ein af slíkum skrautfjöðrum. Það er að segja þegar við förum að veiða hval í friði og spekt - Fjörukránni hvenær sem það verður," segir hann. Friðrik eldaði fyrir okkur afar fljótlegan og einfaldan rétt, með austurlensku ívafi og hér er uppskriftin að honum. Hrefnustrimlar og eggjanúðlur 600 g hrefnukjöt 300 g eggjanúðiur 2 msk. sesamolía 3 msk. smátt saxaður ferskur engifer 2 msk. saxaðar hnetur 6 msk. ólífuolía 2 msk. söxuð paprika 2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir 1 dl ostrusósa Núðlurnar eru soðnar samkvæmt leiðbeiningum. Færðar upp úr soðinu og sesamolíunni bætt saman við. Þrjár mat- skeiðar af ólífuolíunni eru settar í pott og hitaðar. Engifer- inn, hneturnar, hvítlaukurinn og paprikan sett út í og svitað í olíunni. Eggjanúðlunum er bætt saman við og kryddað með saiti og pipar. í lokin er ostrusósunni blandað út í og allt hrært vel. Hrefnukjötið er skorið niður í jafna strimla og kryddað með saiti og pipar. Olían er hituð og strimlarnir brúnaðir létt í ca 3-5 mínútur. Núðlurnar með grænmetinu og hnetunum eru síðan sett- ar á disk og á miðjuna setur maður léttsteitka hrefnukjötið. Borið fram með grænmeti eftir smekk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.