Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2003, Blaðsíða 20
20 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2003
Fronk H0ybye Christensen er 24 ára
gamall og 138 sentímetrar á hæð.
Hann seglr DV frá líflnu í helmi dvergs-
ins, lífsviðhorfum sínum, viðmóti ann-
arra, fordómum og samúð.
Þegar ég var að alast upp vestur á fjörðum
var maður þar sem var dvergur. Hann var
kallaður Diddi dvergur þótt í raun og veru
væri óþarft að staðfesta líkamsvöxt hans með
viðurnefni. Það sáu það allir.
Dvergar eru ekki beinlínis algeng sjón á
sviðum íslenskra leikhúsa og eftir því sem
Helgarblað DV kemst næst mun það hafa
verið í fyrsta skipti f íslenskri leiklistarsögu
sem dvergur lék eitt aðalhlutverkanna í ís-
lensku leikriti þegar leikritið Vinur minn
heimsendir eftir Kristínu Ómarsdóttur var
frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Þetta er
samstarfsverkefni Hafnarfjarðarleikhússins
og Mink leikhúss en það er Kristín Eysteins-
dóttir sem leikstýrir.
Þótt blaðamönnum hafi verið boðið á æf-
ingu getur manni vaflst tunga um höfuð þeg-
ar lýsa skal í fáum orðum efni leikritsins. Þó
er sennilega rétt að segja að áhorfendur séu
staddir í heimi sem virðist riða á barmi glöt-
unar. Inn á heimili óvenjulegra hjóna sem
kannski eru konungur og drottning ryðjast
þrír sjúklingar sem fá mat og gistingu hjá
þeim.
Það eru Ólafía Hrönn Jónsdóttir sem leikur
drottninguna og mótleikari hennar er Frank
Hoybye Christensen og er dvergur. Milli
þessara tveggja leikara er mikill munur því
það er ekkert smátt við Ólafíu Hrönn.
Byrjaði í Fóstbræðrum
Dvergurinn sem leikur Ríkharð í verkinu
heitir Frank Hoybye Christensen og er 24 ára
gamall bílasali sem ólst upp í Hveragerði en
býr í Hafnarfirði. Hann settist niður með
blaðamanni DV á kaffihúsi eftir sýninguna og
sagði okkur fyrst hvernig það vildi til að hann
fékk hlutverkið í leikhúsinu?
„Sennilega hófst leikferill minn þegar eitt
sinn var hringt í mig og mér boðið að leika í
Fóstbræðrum og tók þátt í þætti með þeim og
í framhaldi af því var mér boðið að leika í
símaauglýsingu um Rautt. Síðan kom ég fram
á Popptíví og Áramótaskaupi þar sem ég lék
Litla landssímamanninn. Svo hafði Kristín
Engar hindranin Frank segist alltaf hafa gert það sem
hann hefur langað til og aldrei viljað láta smæðina
hindra sig I neinu hvorki starfi né leik.
Smátt og stórt Það er Ólafía Hrönn Jónsdóttir sem leikur aðalhlutverkið á móti Frank I leikritinu Vinur minn heimsendir eftir Kristínu Ómarsdóttur. Þau leika hjón sem vilja
lifa óáreitt (s(num heimi en fá það ekki. DV-myndir GVA
f' •/
sWBfi':''
samband við mig og bauð mér þetta hlut-
verk,“ segir Frank.
- Hafði það verið draumur þinn að standa
á leiksviði?
„Ég tók aldrei þátt í skólaleikritum eða þess
háttar og fer mjög sjaldan í leikhúsið. Þetta er
algerlega nýr heimur fyrir mig og það hefúr
verið ævintýri að kynnast þessari veröld. Það
hefur verið mikil upplifun fyrir mig að kynn-
ast þessum vinnubrögðum. Mér finnst þetta
magnað leikrit."
Enginn stóll fyrir dyrunum
- Það má segja að þetta leikrit fjalli svolítið
um að vera öðruvísi og þess vegna er eðlilegt að
spyrja Frank að því hvernig það sé að vera
öðmvísi með þeim hætti sem hann er, fá að
skyggnast inn í heim dvergsins.
„Sá heimur er ekkert öðmvísi en heimur
annarra ef svo má segja. Ég lærði málmsmíði í
FSU og hef unnið við það ásamt ýmsu öðm. Ég
hef unnið í sláturhúsum, loðnuverksmiðjum
og verið bflasali, leikið í auglýsingum og margt
fleira.
„Ég læt heldur ekki vaða
neitt yfir mig og svara fyrir
mig fullum hálsi og hefalltaf
gertþað."
Þó maður sé öðmvísi er ekki þar með sagt að
það sé takmarkandi á neinn hátt frekar en
maður vill. Það er enginn stóll fyrir dyrunum
frekar en maður vilf. Að minnsta kosti ekki fyrir
mér.
Ég hef heyrt af fólki eins mér sem lætur
smæð sína hefta sig en það fer sjálfsagt eftir því
hvað menn em sáttir við sjálfir. Ég er mjög sátt-
ur við sjálfan mig og lífið og hef fyrst og ffemst
gaman afþví."
- Getur þú gert allt sem þú vilt?
„Ég er hættur að vinna verksmiðjuvinnu af
því mér finnst hún of erfið. Annars geri ég hvað
sem mér dettur í hug.“
- Hefur þú alltaf verið svona sáttur við hlut-
skipti þitt?
„Já.“
Læt ekki vaða yfír mig
- Hvenær varð þér ljóst að þú værir öðmvísi?
„Það var þegar ég var svona 8 ára gamall. Ég
er alinn upp úti á landi, í Hveragerði og gekk
þar í skóla og lenti aldrei í neinni stríðni eða
einelti. Ég læt heldur ekki vaða neitt yfir mig og
svara fyrir mig fullum hálsi og hef alftaf gert
það.