Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2003, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2003, Blaðsíða 32
36 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2003 Fyrir nokkrum árum stóðu ábúendur að Mikla- holti í Biskupstungum frammi fyrir þeirri ákvörðun að annaðhvort yrðu þeir að bregða búi eða gera róttækar breytingar á rekstrinum. Hjónin Práinn B. Jónsson og Anna Björnsdóttir og sonur þeirra, Óttar, völdu seinni kostinn ognú reka þau eitt stærsta og tæknivæddasta fjós landsins. „Við erum með sextíu og fimm mjólkandi kýr í fjósinu af samtals níutíu kúm,“ segir Óttar Þráinsson kúabóndi þegar hann er spurður um fjölda gripanna. „Kvótinn er upp á þrjú hund- ruð og sextíu þúsund lítra en við förum langt fram yfir það.“ Óttar segir að þrátt fyrir að búið fái ekki greitt íyrir umframframleiðsluna hafi þau ekki tekið upp á því að hella niður mjólk. „Það sem ekki fer í kálfana er sent í mjólkurbú- ið.“ bundnar á bás. Kýrnar liggja á svampdýnu og á sumrin DV-myndir GVA ar hann því játandi og hlær. „Jú, jú, maður þarf annaðhvort að vera gríðarlega bjartsýnn eða klikkaður til að fara út í þetta." Hann segist reyndar sannfærður um að ef dæmið gangi upp fyrstu fimm árin sé bjöminn unninn. „Það eru reyndar gríðarlegir vextir á svona fjárfestingu en við erum sannfærð um að þetta takist." Anna segir að fjós eins og það sem þau reistu kosti um hundrað milljónir. „Af því er kvótinn langdýrastur, eða rúmar fimmtíu milljónir, ró- bótinn kostaði fimmtán en húsið og aðstaðan afganginn." Lausaganga og mjaltaróbóti Fjósið að Miklaholti er svo kallað lausa- göngufjós þannig að kýmar ganga um frjálsar en em ekki bundnar á bás. Óttar segir að ekki sé haughús undir íjósinu og að skafa sjái um að hreinsa flórinn. „Kýrnar liggja á svampdýnu og á sumrin valsa þær inn og út eins og þeim sýn- ist og láta mjólka sig þegar þeim hentar." Að sögn Óttars kom á óvart hversu fljótar kýrnar vom að venjast mjaltaróbótanum og ganga í hann af fúsum og frjálsum vilja. „Það er að vísu gulrót í formi kjamfóðurs í básnum til að gera hann fr eistandi og kýmar sækja vissulega í þgð. Bestu kýmar koma í róbótinn fimm, sex sinn- um á sólarhring." Áður en kýmar koma að mjaltaróbótanum fara þær í gegnum einstefnuhlið svo að þær geti ekki hætt við mjaltir ef biðin er of löng. Ótt- ar segir að í stuttu máli vinni mjaltaróbótinn þannig að þegar kýrin kemur í básinn skynjar HVAR ER MAMMA:? [ fjósum nútlmans fá kálfar aldrei að sjúga mæður slnar en þessi tæknivædda blikkfata kemur í staðinn. Kálfinum sýnist vera alveg sama. „Þettaeralveg einsog stelpuklíkur sem halda hópinn' í LAUSAGÖNGU: Fjósið að Miklaholti er svokallað lausagöngufjós þannig að kýrnar ganga um frjálsar en eru ekki valsa þær inn og út eins og þeim sýnist og láta mjólka sig þegar þeim hentar. ekki gert mér grein fyrir því meðan á því stóð." Að sögn önnu veltu hún og Þráinn því lengi fýr- ir sér hvort þau ættu að hætta búskap og selja jörðina. „Gamla fjósið var í raun ónýtt og vinnuaðstaðan ekki mannsæmandi; við gátum ekki hugsað okkur að Óttar tæki við slíku búi. Miklaholt erum tólf hundmð hektarar að stærð og góð bújörð og Óttar hefur alltaf sýnt því áhuga að taka við búinu þannig að við ákváð- um að slá til og reisa nýtt og fullkomið fjós með nýjustu tækni til að gera búskapinn nútíma- legri." Anna segir að þau leggi mikið upp úr því að halda fjósinu þrifalegu. „Mér finnst líka nauð- synlegt að halda sambandi við kýrnar og snúast svolítið í kringum þær. Ég held líka þeirri venju að strjúka á þeim júgrið og tala við þær.“ Þegar Anna er spurð hvort það sé mikill persónu- leikamunur á kúnum brosir hún og svarar því játandi. „Alveg eins og hjá hestum og hundum. Þær eru að vissu leyti eins og fólk, sumar ljúfar og félagslyndar en aðrar skapstyggar og vilja fá að vera í friði." Anna viðurkennir að hún þekki ekki alfar kýrnar í fjósinu með nafni og kjósi frekar að nota númerin. „Óttar þekkir þær aftur á móti flestar og hefur nefnt þær í höfuðið á er- lendum kynbombum eins og Pamelu Ander- son, J. Lo og Naomi Campbell vegna þess hve kvenlegar þær eru." Bjartsýni eða klikkun Óttar segir að þegar ákveðið var að reisa nýja fjósið hafi þau verið staðráðin í að gera það vel og snúa sér eingöngu að mjólkurframleiðslu. „Foreldrar mínir voru með fé áður, en núna eru það bara kýmar og mjólldn." Þegar Óttar er spurður hvort það hafi ekki verið óðs manns æði að byggja svo fullkomið fjós um svipað leyti og alft virtist vera á niðurleið f landbúnaði svar- Gott að tala við kýrnar Fjósið að Miklaholti er að öllum líkindum tæknivæddasta fjós landsins. Kýrnar eru í lausagöngu, vél mokar flórinn og róbóti mjólk- ar kýmar. Anna segir að þau hafi tekið fjósið í notkun snemma árs 2001 og að viðbrigðin hafi verið mikil en í gamla íjósinu hafi hver kýr átt sinn bás og flórinn verið mokaður með reku. „Ég held þó þeim vana að vera mikið í fjósinu, mér fmnst gaman að umgangast skepnurnar og ætla að halda því áfram. Vinnuaðstaðan er náttúrlega allt öðmvísi og ég var lengi að venja mig á að láta tæknina sjá um sum verkin. Hér áður fyrr þurfti ég að bera allan fóðurbæti í fötu og það eitt og sér var ansi erfitt þó að ég hafi 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.