Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2003, Blaðsíða 55
f
LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2003 'WA 59
U!
MargrétThorarensen
húsmóðir og leiðbeinandi í Þorlákshöfn
Margrét Thorarensen, leiðbein-
andi við leikskólann Bergheima,
Setbergi 10, Þorlákshöfn, er fimm-
tug í dag.
Starfsferill
Margrét fæddist á Akureyri og
ólst þar upp til nítján ára aldurs.
Hún stundaði nám við Gagnfræða-
skólann á Akureyri.
Að námi loknu hóf Margrét störf
hjá Sambandsverksmiðjunum á
Akureyri og starfaði þar uns hún
flutti til Reykjavíkur 1972. í Reykja-
vík stundaði hún verksmiðjustörf
og vann við aðhlynningu aldraðra.
Margrét flutti, ásamt fjölskyldu
sinni, til Flateyrar, 1980, og var þar
búsett til 1996. Þar starfaði hún við
fiskvinnslu og sinnti aðhlynningu
aldraðra.
Frá Flateyri flutti fjölskyldan til
Þorlákshafnar þar sem þau hjónin
búa enn.
Margrét tók virkan þátt í ýmsum
félagsstörfum á Flateyri, var m.a. í
stjórn íþróttafélagsins Grettis,
slysavarnadeildarinnar Sæljóss og
söng í kirkjukórnum á Flateyri. Þrjú
síðustu árin hefur hún svo setið í
stjórn Önfirðingafélagsins í Reykja-
vík.
Fjölskylda
Margrét giftist 17.8. 1974 Ægi
Einarssyni Hafberg, f. 24.1. 1951,
útibússtjóra Landsbankans í Þor-
lákshöfn. Foreldrar hans eru Einar
Jens Hafberg, f. 8.8. 1918, d. 2.1.
1974, og Kristbjörg Hjartardóttir
Hafberg, f. 17.7.1928, d. 30.1. 1979.
Börn Margrétar og Ægis eru Ein-
ar, f. 25.2.1972, stjórnmálafræðing-
ur og starfsmaður við fslands-
banka, en kona hans er Kristjana
Nanna Jónsdóttir, bókasafnsffæð-
ingur og starfsmaður í utanríkis-
ráðuneytinu, en dóttir þeirra er
Sunneva, f. 17.3. 1995; óskírður
drengur, f. 4.8. 1976, d. sama dag;
Lára, f. 7.11. 1979, háskólanemi og
starfsmaður Glitnis hf. í Reykjavík.
Systkini Margrétar eru Jakob, f.
21.7. 1937, búsettur á Akureyri;
Guðrún Ólína, f. 17.9. 1938, búsett
á Akureyri; Júlíus, f. 23.12. 1940,
búsettur í Kópavogi; Soffía, f. 26.8.
1942, búsett í Reykjavík; Valdimar,
f. 12.8. 1944, búsettur á Akureyri;
Leifur, f. 14.12. 1945, búsettur f
Keflavík; Miriam, f. 11.5. 1950, bú-
sett á Akureyri; Lára, f. 2.2. 1952,
búsett á Flateyri; Halla, f. 26.2.
1958, búsett í Hveragerði.
Foreldrar Margrétar voru Valdi-
mar'Thorarensen, f. 26.9. 1910, d.
9.10. 1974, verkamaður á Akureyri,
og k.h., Lára Hallgrímsdóttir, f.
28.12. 1917, d. 24.1. 1973, húsmóð-
ir.
Ætt
Valdimar . var sonur Valdimars
Thorarensen, málafærslumanns á
Akureyri, bróður Jakobs Jens á
Gjögri, föður Jakobs Thorarensen
skálds. Vafdimar málafærslumaður
var sonur Jakobs Thorarensen,
kaupmanns á Reykjarfirði, Þórar-
inssonar Thorarensen, verslunar-
stjóra á Reykjarfirði, Stefánssonar,
amtmanns á Möðruvöllum í Hörg-
árdal, bróður Vigfúsar, sýslumanns
á Hlíðarenda, föður Bjarna
Thorarensen, skálds og amtmanns
á Möðruvöllum. Stefán var sonur
Þórarins, ættföður Thoraren-
senættar, Jónssonar og Sigríðar
Stefánsdóttur, pr. á Höskuldsstöð-
um, Ólafssonar. Móðir Þórarins
Bára Þorbjörg Jónsdóttir
húsmóðir í Hafnarfirði
Bára Þorbjörg Jónsdóttir hús-
móðir, Berjahlíð 1, Hafnarfirði, er
sextug í dag.
Starfsferill
Bára fæddist í Reykjavík en ólst
upp frá þriggja ára aldri í Stykkis-
hólmi hjá fósturforeldrum, Önnu
M. Jónsdóttur og Birni Jónatans-
syni.
Auk húsmóðurstarfa á barn-
mörgu heimili stundaði Bára ýmis
störf utan heimilisins. Hún vann í
skelfiski, stundaði verslunarstörf
við kaupfélagið í Stykkishófmi og
var matráðskona við Sjúkrahúsið í
Stykkishólmi. Þá starfrækti hún
keramikverkstæði um skeið og hélt
íslenskunámskeið fyrir útlendinga
er störfuðu í Stykkishólmi.
Bára flutti til Hafnarfjarðar 1995
og starfaði þar fyrst á Sólvangi og
síðan við Landsbanka fslands þar
til hún hætti störfum sökum veik-
inda.
Bára starfaði töluvert með Leik-
félagi Sty.kkishólms. Hún hefur
starfað í Öryrkjabandalaginu og
unnið talsvert í sjálfboðavinnu fyrir
Sjálfsbjörg. Þá hefur hún lagt Hala-
leikhópnum Iið.
Fjölskylda
Maður Báru var Einar Bjarnason,
f. 16.7.1938, vélstjóri. Hann er son-
ur Bjarna Einarssonar og Skúlínu
Friðbjarnardóttur. Bára og Einar
slitu samvistum 1995.
Börn Báru og Einars eru Arndís
Einarsdóttir, f. 131.11. 1960, búsett
í Hafnarfirði, en maður hennar er
Róbert Kristjánsson, f. 19.2. 1950,
og eiga þau tvö börn; Bjarni Einars-
son, f. 23.10.1962, búsettur á Akur-
eyri, en kona hans er Eydís Garð-
arsdóttir, f. 6.12. 1965, og eiga þau
tvö böm; Björn A. Einarsson, f.
30.1. 1964, búsettur í Búðardal, en
kona hans er Gróa Dal og eiga þau
þrjú börn; Heimir Einarsson, f.
5.10. 1966, búsettur í Reykjavík, en
kona hans er Santfa Sigurjóns, f.
9.9. 1966, og eiga þau þrjú börn;
Anna M. Einarsdóttir, f. 10.7. 1979,
verslunarstjóra var Ragnheiður
Vigfúsdóttir, sýslumanns
Schevings á Víðivöllum. Móðir Jak-
obs kaupmanns var Katrín, systir
Péturs amtmanns, föður Hannesar
Hafstein, skálds og ráðherra, afa
Hannesar Hafstein sendiherra og
langafa Péturs Hafstein hæstarétt-
ardómara. Katrín var dóttir Jakobs
Havsteen, kaupmanns á Hofsósi,
Níelssonar, timbursmiðs við Hólm-
inn í Kaupmannahöfn, Jakobsson-
ar. Móðir Katrínar var Maren Jó-
hannsdóttir Birch, beykis á Akur-
eyri.
Móðir Valdimars málafærslu-
manns var Guðrún Óladóttir
Viborg, b. í Ófeigsfirði, Jenssonar
Olesen Viborg, beykis á Reykjar-
firði, frá Viborg á Jótlandi. Móðir
Guðrúnar var Elísabet Guðmunds-
dóttir, b. á Hafnarhólmi, Guð-
mundssonar og Elísabetar Magn-
úsdóttur, systur Guðrúnar,
langömmu Guðmundar, afa Al-
freds Jolson biskups. Guðrún var
einnig móðir Jóhönnu, langömmu
Sólveigar, móður Jóns Baldvins
Hannibalssonar sendiherra og Arn-
órs heimspekings.
Móðir Valdimars verkamanns
var Sofía Thorarensen, f. Jensen,
dóttir J. Chr. Jensen, verslunar-
manns á Akureyri.
Lára var dóttir Hallgríms Júlíus-
sonar, b. á Einarsstöðum, í landi
Munkaþverár, og Sigurrósar Þor-
leifsdóttur.
búsett í Hafnarfirði, en maður
hennar er Gunnlaugur Sverrisson,
f. 20.2. 1979.
Langömmubörn Báru eru þrjú
talsins.
Systkini Báru: Hrefna Jónsdóttir,
búsett í Reykjavík; Helga Jónsdótt-
ir, búsett í Reykjavík; Sverrir Jóns-
son, nú látinn.
Hálfbróðir Báru, sammæðra, er
Sveinn Magnússon, búsettur í
Reykjavík.
Foreldrar Báru voru Jón Þorberg-
ur Jóhannesson, nú látinn, leigu-
bifreiðastjóri í Reykjavík, og Ragna
Sigurgísladóttir, nú látin, húsmóð-
ir.
Bára verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Höfuðstafír
Umsjón: Ragnar Ingi Aðalsteinsson
Netfang: ria@ismennt.is
Þáttur
95
Enn verður hagyrðingum það að yrkisefni þegar Guðni Ágústsson
kyssti kúna sællar minningar. Ólafur Stefánsson orti nýlega:
Þegar Guðni þukla kúna vildi
þáði hún ekki að láta klappa sér.
„Það var eins og blessuð skepnan skildi"
hve skuldum vafin bændastéttin er.
Vísan féll í góðan jarðveg inni á leirvefnum og Helgi Zimsen varð
svo hrifinn að hann orti hvatningar- og þakkarvísu til Ólafs:
Mættum við fá meira, plís?
Men! Ég gæti hneggjað!
Þetta er megamasterspís,
meiri háttar geggjað.
Hannes Sigurðsson frá Egilsstöðum orti vísuna sem hér fer á eftir:
Ég er til kvenna afar gír-
ugur flestar stundir.
Lán, hvað mín er lítið skír-
líf um þessar mundir.
Næst eru tvær þorrablótsvísur eftir Kormák Erlendsson:
Undi sér í frúa fans
frægur sonur Austurlands,
lipurt sté við dömur dans,
drjúg eru verkin þessa manns.
Nú skal þjóð í þorramóð
þylja Ijóðin snjöll og fróð.
Kveddu bróðir einhvern óð
sem yljar blóð og kætir fljóð.
í veislulok orti Kormákur:
Heim skal vent og hófið ent,
hér var pent og fólkið kent,
en út er rennt og öllu spennt,
orðið klént um traktiment.
Á tímum hinna margvíslegu kenninga í kveðskap gerðist það að
maður einn orti ástarkvæði til stúlku. Fyrsta vísan var þannig:
Komdu sæl mín keraldsausu nunna.
Hvernig lfður högum þín,
hákarlsgrútar liljan mín?
Ekki er vitað hvort hann náði ástum stúlkunnar út á þennan kveð-
skap.
Til mín hefúr borist ein af vísum þeim sem stundum eru kallaðar
endurvinnsluvísur. Þá setja hagyrðingar eitthvað saman og nota þar
línur úr þekktum vísum. Útkoman getur orðið afar skemmtileg. End-
urnotuðu hlutarnir eru innan gæsalappa og geta lesendur spreytt sig
á að finna út hvaðan þeir eru komnir. Upplýsingar um höfundinn
væru vel þegnar:
„Vondslega hefur mig veröldin blekkt"
vilja og rænu svipt mig.
„Hefði ég betur hana þekkt“
hefði ég aldrei gift mig.
Smáauglýsingar
bækur, fyrirtæki, heiidsala, hljóðfæri,
Internet, matsölustaðir, skemmtanir,
tónlist, tölvur, verslun, verðbréf,
vélar-verkfæri, útgerðarvörur,
landbúnaöur.markaðstorgið
550 5000
sambandi við okkur!
Smáauglýsingar
smaauglysingar@dv.is
hvenœr sólarhringslns sem er