Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Page 8
8 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2003 Peugeot 307 Station l.6i, 110 hestöfl,5 gíra, 6 loftpúðar, ABS.fjarstýrðar samlaesingar, rafmagn í rúðum og speglum, fjarstýrt útvarp og geislaspilari. Frábaer fjölskyldubíll! Verð kr. 1.779.000 Rekstrarleiga* frá kr. 29.800 Peugeot 406 1.8i Station 117 hestöfi, 5 g(ra, 4 loftpúpar, ABS, loftkaeling, þokuljós, viðarinnrétting, rafmagn í rúðum og speglum.fjarstýrt útvarp og geislaspilari. Einstaklega þaegilegur I akstri og með mikið farangurspláss! Verð kr. 2.059.000 Sjálfskiptur: 2.165.000 Rekstrarleiga* frá kr. 33.995 Peugeot 307 1.4i, 75 hestöfl, S gíra, S dyra, 6 loftpúðar.ABS, fjarstýrðar samlaesingar, 5 þriggja punkta belti, rafmagn ! rúðum, fjarstýrt útvarp og geislaspilari. Verð kr. 1.619.000 Rekstrarleiga* frá kr. 26.820 Peugeot 406 1.8i, 117 hestöfl, 5 gíra, 4 loftpúðar, ABS, loftkaeling, þokuljós, viðar- innrétting, rafmagn í rúðum og speglum, fjarstýrt útvarp og geisla- spilari. Einstaklega þaegilegur í akstri! Verð kr. 1.959.000 Sjálfskiptur: 2.059.000 Rekstrarleiga* frá kr. 32.360 Peugeot 206 1.4i, 75 hestöfl, X-line innrétting, S gíra, S dyra, 4 loftpúðar,ABS, fjarstýrðar samlaesingar, rafmagn í rúðum, 5 þriggja punkta öryggisbelti, fjarstýrt útvarp og geislaspilari. Verð kr. 1.435.000 Rekstrarleiga* frá kr. 25.795 Peugeot 206 SW Station 1,4i, 75 hestöfl, X-line innrétting, 5 gíra,4 loftpúðar.ABS, þakbogar, fjarstýrðar samlaesingar, rafmagn í rúðum, 5 þriggja punkta öryggisbelti, fjarstýrt útvarp og geislaspilari. Verð kr. L565.000 Rekstrarleiga* frá kr. 25.965 Peugeot 607 Þessi glaesilegi bíll er vaentanlegur I nóvember. Margar útfaerslur í boði, eftir þínum þörfum. Hafið samband við sölumenn til að fá frekari upplýsingar. Peugeot 807 Öruggasti bíllinn í sínum flokki, fékk 5 stjörnur af 5 mögulegum í Euro NCAP árekstrar-prófunum. Bíllinn vaentanlegur til landsins í nóvember. ATH! Bíllinn er 7 manna. 3ja ára áb/rgð • 12 ára ryðvarnarábyrgð • Útreikningur rekstrarleigu miðast við 36 mánuði. í rekstrarleigu eru innifaldar smur- og þjónustuskoðanir. Rekstrarleiga er háð breytingum á gengi erlendra mynta og vöxtum þeirra. Umboðsaðilar: Reykjanesbaer, Bílavík, sími 421 7800 Akranes, Bílver, sími 431 1985 Akureyri, Höldur, sími 461 6020 Vestmannaeyjar, Bragginn, sími 481 1535 Uei nhar *f cnt \ at nagai ðai :. PEUGEOT Ljón á veginum FRÓÐLEG BÓK: Sigurður B. Stefánsson, framkvæmdastjóri Eignastýringar (slandsbanka, afhendir Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra eintak af bókinni Hlutabréf og eignastýring - að velja hlutabréf og byggja upp eignir sem (slandsbanki gefur út. íslandsbanki gefur út bókina Hlutabréfog eigna- stýring - að velja hlutabréfog byggja upp eignir: Lýsir vænlegum aðferðum við ávöxtun peninga íslandsbanki hefur gefið út bókina Hlutabréf og eignastýr- ing - að velja hlutabréf og byggja upp eignir. f bókinni er leitast við að lýsa á einfaldan hátt helstu leiðum við val á hlutabréfum og tveimur ólíkum leiðum lýst sérstaklega. Margir af frægustu fjárfestum 20. ald- arinnar koma við sögu og dreg- ið er saman hvernig hinn al- menni fjárfestir getur nýtt sér þessar aðferðir við ávöxtun peninga. „Markmiðið með þessari bók er að kynna fyrir lesandanum allar helstu aðferðir við val á hlutabréf- um og hvernig þeim má beita við uppbygingu eigna. Við viljum fá lesandann til að gera sér fulla grein fyrir því hvaða aðferð hann er að beita þegar hann fer af stað með hlutabréfaviðskipti. Að hann viti í hvaða sporum hann stendur og hvaða aðferðir eigi við hverju sinni," segir Sigurður B. Stefáns- son, framkvæmdastjóri Eignastýr- ingar íslandsbanka, en hann er rit- stjóri bókarinnar. Sigurður segir bókina hafa verið unna frá nóvember í fyrra til októ- ber í ár. Hugmyndin að henni var hins vegar búin að gerjast í 2-3 ár. „Þessi bók er ætluð öllum áhuga- mönnum um hlutabréf og eigna- stýringu og þeim sem þurfa að ávaxta sparifé sitt. Það má líka orða þetta þannig að við höfum verið að skrifa niður okkar eigin aðferðir, lýsa því hvernig við gerum hlutina öðrum til fróðleiks og upplýsingar. Við vonum að áhugasamir geti lært af bókinni," sagði Sigurður en bók- in kom út í gær. Sigurður sagði aðspurður að HLUTABRÉF & EIGNASTÝRING *D VEl|* HUITAXM OG IVGGI* VTP (IUNIH þessi bók ætti sér vart hliðstæðu. „Hún er frumsamin og svipar ekki til nokkurrar annarrar bókar um þessi efni. Söguþráðurinn í bókinni er tvær ólíkar leiðir. Annars vegar hlutlausa leiðin og hins vegar virðisfjárfesting með tímasetningu. Þetta eru þær tvær leiðir sem við notum við okkar fjárfestingar- myndun. í bókinni er tekið fyrir Þessi bók er ætluð ö//- um áhugamönnum um hlutabréfog eignastýr- ingu og þeim sem þurfa að ávaxta sitt sparifé. hvemig þessar aðferðir urðu til og hverjir eru frægustu mennirnir sem hafa ýmist þróað þær, notað þær og grætt mikið á því. Svo er komið að áhrifum tækninnar sl. 25 ár. Sfð- ustu kaflarnir taka mið af íslensk- um aðstæðum, eignastýringu hér á landi." Meðal nýmæla í framsetningu er hlutabréfahringurinn, þ.e. grafískt yfirlit yfir helstu aðferðir í hluta- bréfaviðskiptum. Hann gengur eins og rauður þráður í gegnum bókina. Sigurður segir að lesendur þurfi ekki að vera sérfróðir um verð- bréfaviðskipti til að hafa gagn af bókinni. Leitast hafi verið við að setja efnið fram á ským og einföldu máli fyrir hinn almenna lesanda. - En þið hafið væntanlega haft byr í seglin við ritun bókarinnar vegna ykkar eigin árangurs á þessu sviði? „Við emm að nota ákveðnar að- ferðir og emm að segja frá af hverju þessar aðferðir hafi orðið fyrir val- inu en ekki einhverjar aðrar. Það felst ákveðinn agi og aðhald í því að lýsa því sem við emm að gera og standa síðan við það. Við reynum að hafa nálgunina fræðilega en þar sem við emm líka að lýsa okkar eig- in aðferðum þá tökum við einstaka dæmi af okkar eigin afurðum, t.d. árangri atvinnugreinasjóðanna.“ Bókin var unnin frá nóvember í fyrra til október í ár. Fmmvinnan við mótun bókarinnar var, auk Sig- urðar, í höndum þeirra Margrétar Sveinsdóttur, forstöðumanns Sölu og þjónustu hjá Eignastýringu, og Rósu Jónasardóttur og Sigurðar Sveinssonar, sérfræðinga hjá Eignastýringu, og Sigurveigar Jóns- dóttur blaðamanns. Bókin, sem er rúmar 400 bls. og er ríkulega skreytt gröfum og skýr- ingarmyndum, kom út í gær og kemur í verslanir í dag. hlh@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.