Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Qupperneq 14
74 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2003 Díana prinsessa átti níu laumukærasta segir Paul Burrell, fyrrum trúnaðarvinur og yfirþjónn prinsessunnar SWÉir FRÉTTAUÓS Erlingur Kristensson erlingur@dv.is Breska konungsfjölskyldan er enn eina ferðina komin í kast- Ijós fjölmiðlanna eftir að breska blaðið Daily Mirror hóf að birta valda kafla úr nýrri bók Pauls Burrells, fyrrum einkaþjóns Dí- önu prinsessu, en bókin er væntanleg er í búðir á Bretlandi á mánudaginn. í bókinni er meðal annars vitnað í bréf sem Filippus prins drottning- armaður skrifaði Díönu tengda- dóttur sinni þegar hjónaband hennar og Karls prins ríkisarfa var komið í hundana. Bréfm þykja varpa nokkuð nýju og óvæntu ljósi á líf og dauða prinsessunnar sem lét lífið í meintu bflslysi í París haustið 1997, ásamt vini sínum Dodi Fayed og franska bflstjóranum Henri Paul. Meðal þess sem fram kemur í bókinni um bréfaskriftir tengdaföð- urins er að hann hafi kennt Díönu að hluta til um það hvernig hjóna- band þeirra Karls ríkisarfa endaði. Burrell segir að Filippus prins hafi sent Díönu íjögur niðrandi bréf ár- ið 1992, stuttu eftir skilnað hennar við Karl, þar sem hann hafi jafnvel kallað hana skækju og léttúðardrós. „Ég veit að þau særðu Díönu mik- ið," sagði Burrell og Simone Simm- ons, gömul vinkona Díönu, sagði að bréfin hefði verið þau viðbjóðsleg- ustu sem Díana hefði fengið um ævina. „Hún hafði jafnvel fengið morðhótanir sem voru vinsamlegri en þessi bréf,“ sagði Simone. Ekki bara andstyggilegur En eins og fram kemur í bókinni var Filippus ekki bara andstyggileg- ur við Díönu og segir f einu bréf- anna að hann hafi ekki einu sinni látið sig dreyma um það að Karl myndi yfirgefa hana fyrir gömlu ást- ina, Camillu Parker Bowles. „Ég get ekki ímyndað mér að nokkur maður með fullu viti myndi yfirgefa þig fyr- ir Camillu," segir Filippus í einu bréfanna til Díönu. I umfjöllun Daily Mirror kemur einnig fram að Dfana hafi sagt Burrell frá því í bréfi, sem hann hef- ur síðan geymt f fórum sínum, að hún óttaðist það að einhver ákveð- inn maður, sem hún nefndi á nafn í bréfinu, ætlaði að eiga við brems- urnar í bflnum hennar til þess að valda henni tjóni. „Bremsubilun og alvarleg höfuðmeiðsli tii þess að auðvelda Karli að giftast Camillu," skrifaði Díana. Þetta varð til þess að vekja upp spurningar um það hvort Díana hefði í raun látist af slysförum og FILIPPUS PRINS: Filippus prins, fyrrum tengdafaðir Díönu prinsessu, kallaði hana skækju og léttúðardrós (bréfi sem hann sendi henni eftir skilnaðinn við Karl ríkisarfa. Aðeins ein sönn ást En í raun var Díana aðeins gagn- tekin af einum manni og það var ekki síðasta ástin hennar, Dodi A1 Fayed, heldur hjartaskurðlæknirinn og glæsimennið Hasnat Khan,“ seg- ir Burrell sem nú ílettir hulunni af sannleikanum um tilfinningar Díönu til Dodis í fyrsta skipti. Hann segir að samband þeirra hafi fyrirfram verið dæmt til þess að mistakast og að stjórnsemi glaum- gosans hafi verið að sliga Díönu. „Hún átti líka eftir að uppgötva að Dodi átti við áfengis- og eitur- PAULBURRELL Burrell, fyrrum einka- þjónn og hjálparhella Díönu prinsessu. DÍANA PRINSESSA: Filippus prins kennir henni að hluta til um skilnaðinn við Karl. sýna nýjar kannanir í Bretlandi að meira en 85% Breta telja nú að ekki hafi verið um slys að ræða. Kvennabósar sátu um hana I sambandi við ástamál Díönu segir Burrell að helsti vandi hennar sem nýfráskilinnar prinsessu, og þar að auki fallegustu konu í heimi, hafi verið að allir helstu kvennabós- ar heims virtust vakna til lífsins og hugsa sér gott til glóðarinnar. „Þeir hreinlega sátu um hana og hún var að vonum upp með sér. En málið var að hún bar aðeins ást til eins manns, ást sem hún bar ekki á torg. Ekki þar með sagt að vonbiðlarnir hafi gert sér grein fyrir því... „Þeir hreinlega sátu um hana og hún var að vonum upp með sér. En málið var að hún bar aðeins ást til eins manns, ást sem hún bar ekki á torg. Ekki þar með sagt að vonbiðl- arnir hafi gert sér grein fyrir því þar sem þetta ástarsamband hennar var nýtilkomið og hið mesta laumu- spil. Þeir héldu því áfram að banka á dyrnar hjá henni en fengu ekki önnur viðbrögð en kurteisislegar af- neitanir við gylliboðunum eða stöðugar afsakanir. Að vera einkaþjónn Díönu í Kens- ington-höll á þessum tíma var eins og að vera sambýlingur í platónsku sambandi, aðeins til þess deila með henni spennunni sem fylgdi ástandinu. Það féll nú í minn verkahring að svara símhringingum þeirra gagn- teknu, sem sumir átti við sín eigin vandamál að stríða og ég varð sjálf- ur að meta það við hverja hún vildi tala og hverja ekki, hverjum ég átti að vísa frá vinsamlega og hverjir fengju hreint og klárt, nei,“ segir Burrell. Burrell heldur áfram og segir að Díana hafi átt níu laumukærasta sem hún með sérvisku sinni hafi raðað f virðingarröð eftir ákveðnu kerfi sem hún sjálf kallaði „þrepa- kerfið“. Það var eins og mennirnir væru þátttakendur í keppni á hlaupa- braut og þar á meðal voru þekktur Hollywoodleikari og óskarsverð- launahafi með meiru, iþróttagoð- sögn, leiðandi tónlistarmaður og frægur stjórnmálamaður. Auk þess voru í hópnum frægur skáldsagna- höfundur, þekktur lögfræðingur, fjárfestir og milljónamæringur úr viðskiptah'finu. Allir komu þeir til sögunnar fljótlega eftir skilnaðinn við Karl og dældu í hana gjöfum. lyfjavandamál að stríða auk þess sem hann var óstjórnlega eyðslu- samur og sífellt í tygjum við gleði- konur. Hún óttaðist að hann myndi biðja sín og spurði mig ráða hvað hún ætti að gera. Hún sagðist þrá það að komast í hjónaband og sig vantaði hvatningu.“ En eins og Burrell segir þá var ást- in í lífi Díönu aðeins ein og efsta þrepið í „þrepakerfinu“ frátekið fyr- ir þann eina sanna. Það var eins og menn- irnir væru þátttakendur í keppni á hlaupabraut og þar á meðal voru þekktur Hollywood- leikari og óskarsverð- launahafi með meiru, íþróttagoðsögn, leið- andi tónlistarmaður... „Það breyttist aldrei og Khan var alltaf í efsta sætinu hjá prinsess- unni. Stundum gerði hún grín að þessu og sagði að hlaupabrautin væri orðin yfirfull af keppendum. Einu sinni skrifaði ég henni og sagði í gríni að mér hefði verið tjáð að keppendur f áttunda og níunda rrepi hefðu verið dæmdir úr leik. Annar hefði frallið á lyfjaprófi og hinn ekki staðist læknisskoðun. Dfana svaraði að dómarinn hefði beðið um dýrmæta aðstoð Pauls Burrells í þessu viðkvæma máli og eftir nákvæma rannsókn hefði reynst nauðsynlegt að strika lög- fræðinginn og stjórnmálamanninn út af keppendalistanum. Burrell segir að eins og flestir Bretar hafi Elísabet drottning verið sannfærð um að Díana og Dodi hefðu átt í alvarlegu ástarsambandi. „En á furðulegum þriggja klukku- stunda löngum fundi í höllinni sagði ég drottningunni sannleikann og að Díana hefði gert sér grein fyr- ir vandamálum Dodis. Því hefði raunverulegt ástarsamband verið úr sögunni." Hann segir einnig að Díana hafi kvartað yfir því hverning Dodi hafi hegðað sér í fríinu örlagaríka í Frakklandi og sagt að hann hefði ít- rekað lokað sig inni á baðherbergi þar sem hún hafi heyrt hann sniffa sem sanni að hann hafi verið háður eiturlyfjum. „Díana vissi að Dodi var ástfang- inn af henni en hún endurgalt ekki ástina," fullyrðir Burrell og segir það fáránlegt að halda því fram að þau hafi verið f giftingarhugleiðing- um eins og margir hafa haldið fram, hvað þá að Díana hafi verið ófrísk þegar hún lést. -—— Á BÁÐUM ÁTTUM: Karl og Díana á hjúskaparárum sínum, en þau horfðu gjarnan í sitt hvora áttina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.