Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR25. OKTÓBER 2003 DV HELGARBLAÐ 27
land hins vegar mun öflugra þegar
kemur að heilbrigðisþjónustu og
félagslega kerfinu. Hér er gott sam-
félag og menn hafa það almennt
mjög gott. Þegar maður ferðast um
Rússland sér maður aftur á móti
hrikalegar andstæður og það getur
verið sorglegt að horfa upp á það að
lítill hluti þjóðarinnar á allt, á með-
an meirihlutinn rétt skrimtir. Ef ís-
land er hvorki á leið inn í Evrópu-
sambandið né hyggur á nánari
samskipti við Bandaríkin er alveg
ljóst að það eru miklir möguleikar
fólgnir í því fyrir íslendinga að
styrkja til muna sambandið í aust-
urveg og efla viðskiptin við Rúss-
land. Ég er þeirrar skoðunar að ef
íslendingar vilja tryggja áfram sjálf-
stæði sitt þá er þetta einn af þeim
kostum sem gætu haft mikla þýð-
ingu fyrir landið.“
„Það gengur allt út á
valdagræðgi og pen-
ingagræðgi hjá nýríku
Rússunum, enda keyrir
efnishyggjan þá áfram.
Ef efnahagurinn tæki
mið afhinu gagnstæða
gæti Rússland orðið stór-
veldi á ný, en efþetta
arðrán heldur áfram þá
blasir ekkert gott við
þessari þjóð."
Halidór Laxness, ull og síld
- Hvað er líkt með íslandi og
Rússlandi?
„Það er margt líkt með þeim, að-
allega það að fólkið er yndislegt og
gott heim að sækja. Rússar eru
norræn þjóð eins og við íslending-
ar og að mínu mati eru mörg tæki-
færi fyrir íslendinga þarna úti.
Rússar eru vel menntaðir og vel les-
in þjóð og til að mynda hafa margir
lesið þýðingar á Halldóri Laxness.
Þá muna margir eftir íslensku ull-
inni og síldinni, sérstaklega gaffal-
bitunum sem voru vinsælir á sín-
um tíma. Samskipti okkar við
Rússa hafa alltaf verið góð, enda
hafa þessar þjóðir aldrei eldað
saman grátt silfur. Við höfum séð
hvernig Björgólfsfeðgum hefur
gengið í sínum viðskiptum og við
höfum líka séð hvaða jákvæðu áhrif
það hefur haft á íslenskt viðskipta-
líf að fjármunir þeirra rúlla áfram á
íslandi. Það er mikið af tækifærum
í Rússlandi og ef menn eru reiðu-
búnir að grípa þau, eins og Björg-
ólfsfeðgar gerðu á sínum tíma, og
ef allt gengur upp skilar það ávinn-
ingi. Feðgarnir hafa verið heppnir,
réttir menn á réttum stað á réttum
tíma.“
Rússland er ríkt af auðlindum á
borð við gas, olíu og kol, en yfirráð-
in yfir þeim tengjast harðvítugri
valdabaráttu. Alþjóðavæðingin
hefur haft sín áhrif og auðlindirnar
eru ekki þjóðnýttar, heldur haldið í
höndum einkaaðila.
„Það má eiginlega segja að Rúss-
land sé orðið að auðlindaupp-
sprettu fyrir Vesturveldin og
auðrisa. Það finnast öll frumefnin í
rússneskri jörð, en á meðan mafían
stýrir þessu og selur að mestu
óunnið til Vesturlanda, og á meðan
peningarnir verða ekki eftir í land-
inu, getur þetta ekki kallað annað
en hörmungar yfir rússnesku þjóð-
ina. Almenningur nýtur því miður
ekki góðs af auðlindunum og hefur
það frekar slæmt. Vissulega er það
heilbrigðismerki að það hefúr risið
ákveðin millistétt sem hefur það
betra, sérstaklega í Moskvu og öðr-
um stórum borgum, þar sem menn
reyna að koma sér áfram með
einkaframtakinu og eru til dæmis
farnir að ferðast 'um allan heim.
Það er ákveðinn hópur manna sem
vill halda völdum og svífst einskis
og gerir hvað sem er til að halda
þeim og hleypir ekki öðrum að. Það
gengur allt út á valdagræðgi og
peningagræðgi hjá nýríku Rússun-
um, enda keyrir efnishyggjan þá
áfram. Ef efnahagurinn tæki mið af
hinu gagnstæða gæti Rússland orð-
ið stórveldi á ný, en ef þetta arðrán
MÖGULEIKAR: „Ef (sland er hvorki á teið inn í Evrópusambandið né hyggur á nánari samskipti við Bandaríkin er alveg Ijóst að það eru
miklir möguleikar fólgnir í því fyrir islendinga að styrkja til muna sambandið í austurveg og efla viðskiptin við Rússland."
heldur áfram þá blasir ekkert gott
við þessari þjóð," segir Haukur.
Vafasamt að forseti fslands
þiggi boð Abramovich
veit hvernig almenningi ltður og
hvað er að gerast, en sjálfúr er hann
kominn af mjög fátæku fólki í
Leníngrad. Það kemur trúlega fátt í
veg fyrir að hann sitji á forsetastóli
til ársins 2012, eða í þrjú kjörtíma-
bil. Það verður kosið í mars á næsta
ári en það er enginn líklegur til að
velgja honum undir uggum."
11. september hefur breytt
heimsmyndinni
- Hvernig er staðan í Tsjetsjeníu
um þessar mundir?
„Astandið íTsjetsjeníu heíúr ver-
ið með rólegra móti að undanförnu
og menn binda vonir við að það
verði að minnsta kosti ekki verra en
það hefur verið, í kjölfar kosninga
sem fóru fram í haust. Það eru 120
þjóðir sem búa í Kákasus og það
þyrfti eflaust ekki mikið til að koma
af stað atburðarás eins og þeirri
sem varð þegar Júgóslavía leystist
upp á Balkanskaga. Hryðjuverka-
árásirnar á Bandaríkin 11. septem-
ber árið 2001 hafa breytt heims-
myndinni og haft gríðarleg áhrif á
stöðu mála í þessum heimshluta.
Andstaða hefur til að mynda aukist
verulega gegn íslömskum öfga-
mönnum, enda hafa stjórnvöld í
Moskvu lýst yfir eindregnum
stuðningi við baráttuna gegn
hryðjuverkum."
- Þú ert á leiðinni aftur til Rúss-
lands. Hvað er það sem þú munt
starfa við?
„Ég er markaðsstjóri á Rúss-
landsmarkaði fýrir íslensku ferða-
skrifstofuna Bjarmaland. Ég tek
þátt í því að undirbúa ferðir frá Is-
landi til Rússlands og mun enn
fremur vinna að því að semja við
ferðaskrifstofur hér heima um að
taka á móti rússneskum ferða-
mönnum. Við byrjuðum að skipu-
leggja ferðir tU Rússlands fýrir
þremur árum og það hefur gengið
vel. Við teljum að það séu miklir
möguleikar í þessum bransa og
ferðir síðastliðið sumar til Péturs-
borgar, Stalíngrad og Moskvu hafa
gefið góða raun. Við erum bjartsýn-
ir á markaðinn í framtíðinni. Rúss-
ar hafa sýnt íslandi mikinn áhuga
og millistéttin getur leyft sér og vill
ferðast og greiðir vel fyrir góða
þjónustu. Mér finnst þetta gríðar-
lega skemmtilegt starf og stefni líka
að því að ljúka námi í Ferðamála-
skóla Islands."
bryndis@idv.is
„Milljarðamæringurinn Roman
Abramovich, sem keypti breska
knattspyrnuliðið Chelsea á dögun-
um, er dæmi um valda- og pen-
ingagrægði, en hann hefur verið
valdamikUl á stóru svæði í Rúss-
landi. Hann á sitt veldi að þakka
Berezovskíj nokkrum sem flýði tU
Lundúna tU að forða sér frá því að
lenda í fangelsi í Rússlandi. Eg spái
því að Abramovich muni flýja land
innan nokkurra mánaða, og þá trú-
lega tU Lundúna. Mér finnst það
frekar vafasamt að Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti íslands, skuli
þiggja boð frá þessum manni um
að fara á knattspyrnuleik yfir hálfan
hnöttinn. Það er skrýtinn gjörning-
ur af hálfu manns í hans embætti."
Atvinnuleysi er mikið í Rússlandi
en samkvæmt opinberum tölum er
það um 15%. Haukur telur að þessi
tala gefi ekki rétta mynd af ástand-
inu. Glæpatíðni er gríðarlega há í
Rússlandi, en um þrjátíu þúsund
morð eru framin í landinu á hverju
ári. Að sögn Hauks er tíðni sjálfs-
morða haldið leyndri af yfirvöld-
um, en talið er að allt að áttatíu
þúsund manns svipti sig lífi árlega.
145 milljónir búa í Rússlandi, en
þjóðinni hefur verið að fækka um
eina milljón á ári, sem þykir graf-
alvarlegt mál.
„Ef þessi fækkun heldur áfram
gæti þjóðin verið að deyja út,“ segir
Haukur. „Fólksfjöldinn hefur
reyndar alltaf verið mjög sveiflu-
kenndur, meðal annars vegna
hreinsana Stalíns og heimsstyrjald-
anna. Þegar Gorbatsjov tók til að
mynda við völdum í lok níunda
áratugarins, með nýjar stjórnmála-
hugmyndir í tengslum við glasnost
og perestrojku, ríkti mikil bjartsýni
í landinu og fólki fjölgaði talsvert. Á
tímum Jeltsíns varð aftur á móti
ótrúleg fólksfækkun, sem þýðir að
vonleysi og óöryggi einkenndu líf
fólks vegna efnahagslegrar og póli-
tískrar óvissu. Þrátt fyrir sterka
stöðu Pútíns forseta er andrúms-
loftið í landinu ekki gott núna, sem
bendir til þess að almenningur
horfi ekki björtum augum til fram-
tíðarinnar. Pútín hefur staðið sig
vel og fólk ber virðingu fyrir hon-
um. Hann þykir einbeittur og nýtur
almennrar hylli í embætti. Hann
Knattspyrnuskóli
í FÍFUNIMI og EGILSHÖLL
5 vikna námskeið
5 vikna námskeið
28. október-29. nóvember
'
Sé greitt meö MasterCard fá
handhafar kortsíns verulegan afslátt.
5 víkna námskeið kostar þá 20.000.
EGILSHÖLL:
Þriðjudaga og Fimmtudaga kl. 0B.3D-07.30
Laugardagar kl 08.00-09.00
Amór Guðjohnsen Guðni Bergsson
FÍFAINI:
Þriðjudaga og Fimmtudaga kl. OB.30-07.30
Laugardaga kl. 13.00-14.00.
Yfirþjálfari er Þoriákur Árnason
og Zeljko Sankovic
Þjálfarar:
Þorlákur Árnason, Zelkjo Sancovic,
Sigurður Jónsson, Elísabet Gunnarsdóttir,
Pavol Kretovic, Magni Magnússon,
Dragi Pavlov o.fl.
Markmannsþjálfari er Bjarni Sigurðsson.
Sérstök áhersla er á markmannsþjálfun
l ■'¥%
Eyjólfur Sverrisson
Sigurður Jónsson
Kwöttspy^W
Aködemta Jslands
Hámarksfjöldi per námskeið er 80 nemendur.
skyr.is
I ^ i
MasterCátá
PnoftsTAR
Allar nánari upplýsíngar í síma 89B 1523 og 896 2386 og á heimasíðu okkarvwwv.knattspymuskoli.com