Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Page 37
LAUQARDAGUR 25. OKTÓBER 2003 DV HELGARBLAD 41 Bandarísk lyfjayfirvöld: Bregðast við af hörku gegn THG SÁ FYRSTI: Breski spretthlauparinn Dwain Chambers var fyrsti íþróttamaðurinn sem viðurkenndi að hafa neytt nýja steralyfsinsTHG. Reuters Bandarísk lyfjayfirvöld, sem hafa hingað til verið þekkt fyrir að taka með silkihönsk- um á íþróttamönnum sem hafa neytt ólöglegra lyfja, hafa tekið upp nýja stefnu gagnvart noktun ólöglegra lyfja í íþróttum. Hér eftir verður engin eftirgjöf og íþróttamenn geta átt yfir höfði sér allt að lífstíðarbann fyrir fyrsta brot. Craig Masback, forseti banda- ríska frjálsíþróttasambandsins, sagði á blaðamannafundi í gær að það væri ekki lengur hægt að leyfa íþróttamönnum að svindla og komast upp með það. Masback kynnti áætlun sem bandaríska frjálsíþróttasambandið hefur verið að búa til í viðleitni sinni við að stemma stigu við lyfja- misnoktun. Þar er kveðið á á um allt að 100 þúsund dollara (rúmlega 7,5 milljónir íslenskra króna) sekt við lyfjamisnotkun og verða bæði íþróttamaðurinn, sem fundinn verður sekur, og þjálfarar þeirra gerðir ábyrgir. „Það er eins gott að þetta sé í lagi því að heiður frjálsra íþrótta í Bandaríkjunum er í húfi. Þetta er vandamál og það verður að taka áþvístrax Bandaríska Ólympíunefndin hef- ur verið á bakinu á frjálsíþrótta- sambandinu í nokkurn tíma vegna slælegs framgangs sambandsins í lyfjamálum og Masback viður- kenndi að harkan sem gengið væri fram með nú væri að einhverju leyti samtvinnuð því að sambandið hefði gert allt sem í þess valdi stóð til að stemma stigu við þessum vá- gesti íþróttanna áður. Masback staðfesti jafnframt að fjórir bandarískir frjálsíþróttamenn hefðu fallið á lyfjaprófi vegna neyslu THG en bandarískar heim- ildir herma að aflt að tuttugu íþróttamenn hafi fallið á lyfjaprófi vegna neyslu lyfsins á bandaríska meistaramótinu í júní. Forseti bandarísku Ólympíu- nefndarinnar, Jim Scherr, var ánægður með áætlun frjálsíþrótta- sambandsins og sagði hana mjög gott skref í áttina að öflugu og skil- virku lyfjaeftirliti. „Það er eins gott að þetta sé í lagi því að heiður frjálsra fþrótta í Bandaríkjunum er í húfi. Þetta er vandamáf og það verður að taka á þvj' strax," sagði Scherr. Masback hefur trú á því að notk- un ólöglegra lyfja sé ekki eingöngu bundin við frjálsar fþróttir og hefur því beðið æðstu menn annarra stórra íþróttagreina í Bandaríkjun- um að hitta sig á fundi í Was- hington á næstu vikum til að sam- ræma aðgerðir sem flestra íþrótta- greina. SYNINGIN LIFANDI LANDAKORT VERÐUR OPNUÐ í TJARNARSAL RÁÐHÚSS REYKJAVÍKUR SUNNUDAGINN 26. OKTÓBER KL. 14 Kl. 14:30 Landupplýsingar og landakort frá ólíkum og ólíklegum sjónarhornum: Einar Garibaldi - Himininn yfir Reykjavik Stefán Pálsson - Kort sem söguna skapa og skemma Guðmundur Steingrlmsson - Garðurinn sem ég vissi ekki um Ólafur Stefánsson - Skokkað á vefsjánni Sigurður Grétar Guðmundsson - Það er líf undir malbikinu Starfsmenn frá Reykjavíkurborg, Orkuveitu Reykjavíkur, Símanum, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Lögreglunni í Reykjavfk, Neyðarlínu, Reykjavíkurhöfn og Strætó verða á staðnum og sýna hvernig landupplýsingar nýtast í þeirra starfi. Yfir 20 fermetra loftmynd af borginni sýnir notkunarmöguleika Landupplýsingakerfis Reykjavíkur. Borgarvefsjáin og fleiri spennandi kerfi kynnt - öll borgin i tölvunni þinni! Alvöru slökkviliðsbill, stjórnborð neyðarvarða, prentari sem prentar í þrívídd, blöðrur og fleira skemmtilegt. Ráðstefna um LUKR mánudaginn 27. október kl 9-16. Tjarnasal Ráðhúss Reykjavíkur. Allar upplýsingar um sýninguna Lifandi landakort og viðburði tengda henni má finna á www.reykjavik.is www.borgarvefsja.is Orkuveita Reykjavíkur I f. > Wk k \ f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.