Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Page 51
Sakamál
HVAÐ: Kvennamorðingi gekk laus.
HVAR: (suðvesturríkjum Bandaríkjanna.
HVENÆR.-1971 til 1985.
LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2003 DVNELGARRLAÐ 55
Morðóður
kvennaliómi
MORÐINGINN: Carrol Edward Cole sagðist hafa myrt og svívirt 35 konur. Sú tala kann að vera ýkt en nóg er samt.
Ég skal segja ykkur að þegar ég er með konu
kemur eitthvað yfir mig og ég verð að drepa
hana. Þetta tilkynnti 42 ára gamall flækingur,
Carrol Edward Cole, lögreglunni í Dallas sem var
að yfirheyra hann vegna grunsamlegs dauða
konu. hegarhann var handtekinn og yfirheyrsl-
ur hófust spurði hann ekki einu sinni fyrir hvað
hann væri grunaður. Hann játaði á sig morð en
lögreglan komst brátt að því aðjátningin átti við
allt annað morð en þeir voru að rannsaka. En
upp úr kafinu kom að Cole hafði framið það líka
og jafnvel 33 til viðbótar eins og síðar kom íljós.
Morðið sem Dallaslögreglan var að rann-
saka átti við líkfund á bflastæði þar sem 32
ára gömul kona fannst látin hálfnakin og
hafði henni verið nauðgað.
Cole játaði fúslega að hafa hitt konuna á
bar og eftir að þau höfðu fengið sér nokkra
drykki saman fóru þau heim til konunnar.
Eitt Ieiddi af öðru og hið næsta sem náung-
inn mundi var að hann vaknaði í rúminu
með hendurnar um háls konunnar. Hann
mundi ekki hvort hann hafði samfarir við
hana fyrir eða eftir að hann kyrkti hana.
Hann vaknaði með hræðilega timburmenn
og í þrjá daga var hann samvistum við líkið
og hafði af því þau gögn sem hann sóttist eft-
ir. Þá yfirgaf hann íbúðina.
Lögreglumönnunum var ljóst að játningin
átti ekki við það morð sem þeir voru að rann-
saka. Þeir spurðu nánar um stúlkuna sem
hann hitti á barnum. „Hvaða bar?“ spurði sá
grunaði.
Nú voru langar yfirheyrslur fyrir höndum.
Játningarnar runnu upp úr Cole og hann
skýrði frá viðbjóðslegum athöfnum sínum í
mörgum borgum í suðvesturfylkjum Banda-
ríkjanna. Þeir sem önnuðust yfirheyrslurnar
skráðu ekki aðeins lýsingar á morðum heldur
var maðurinn sem létti á samvisku sinni
einnig náserðir og mannæta.
Rannsóknin sem leiddi til handtöku Coles
hófst með símhringingu snemma morguns
12. nóvember 1980. Sá sem hringdi tilkynnti
að hann hefði séð nakta konu á bflastæði og
væri hún kannski dáin. Þegar lögregluna bar
að lá konan á bakinu og var aðeins í brjósta-
haldara og blússu. Meinafræðingur úrskurð-
aði að hún hefði verið kyrkt, enda voru mar-
blettir á hálsi hennar. Ekki voru nema nokkr-
ar klukkustundir síðan hún dó. Önnur föt
konunnar voru sundurrifm í kuðli við tré
skammt frá líkinu. í vösum fundust skilríki
sem sýndu hver hún var.
í fyrstu var haldið að konan hefði verið
myrt annars staðar en líkið flutt á bflaplanið.
En vegsummerki sýndu að einhvers konar
átök höfðu átt sér stað við runna skammt frá
þar sem líkið fannst. Mikið áfengismagn var í
blóði hinnar látnu og var sú ályktun dregin
að hún hefði drukkið á einhverjum af nær-
liggjandi börum og hefði verið að ganga yfir
bflaplanið þegar árásin var gerð.
Rannsóknarlögreglumenn fóru með and-
litsmynd af líkinu á bari í nágrenninu og
þjónn á einum þeirra þekkti konuna. Hún
hafði verið að drekka hjá honum kvöldið
áður. Hún var tíður gestur á þessum bar og
hélt þjónninn jafnvel að hún hefði farið út
með manni sem hann kannaðist við sem
Cole. Þau drukku og töluðu mikið saman um
kvöldið.
Hann sagði að Cole hefði verið á barnum
þrjú kvöld í röð og hefði hann hafið samræð-
ur við allar konur sem komu inn og leit út fyr-
ir að hann teldi sig vera mikið kvennagull.
Barþjónninn vissi ekki hvar Cole bjó en hann
var á skrá fangelsisstofnunar og einnig hjá
heilbrigðisráðuneyti.
Fyndinn kvennaljómi
Á árunum 1963-70 var Cole handtekinn
fyrir margs konar afbrot, svo sem bflaþjófn-
að, fyrir að útvega unglingum áfengi,
íkveikju, mellumang og morðtilraunir. Hann
sat í fangelsi í Texas í tvö ár fyrir að kveikja í
móteli, í þeim tilgangi að myrða þáverandi
eiginkonu sína. Hann hafði einnig verið í
Nú voru langar yfirheyrslur
fyrir höndum. Játningarnar
runnu upp úr Cole og hann
skýrði frá viðbjóðslegum at-
höfnum sínum í mörgum
borgum í suðvesturríkjum
Bandaríkjanna. Þeir sem önn-
uðust yfirheyrslurnar skráðu
ekki aðeins lýsingar á morð-
um heldur var maðurinn sem
létti á samvisku sinni einnig
náserðir og mannæta.
gæslu á hælum íyrir geðsjúka. f einni skýrslu
er ástandi hans lýst þannig að honum finnist
kvenfólk vera ógnandi. Hann þorir ekki að
nauðga konu og verður þess vegna að deyða
hana og nauðga svo lfldnu.
Robinson, rannsóknarlögreglumaður í
Dallas, sem hafði yfirumsjón með rannsókn-
unum á konumorðunum, komst að því að
Cole var nýdæmdur fýrir fjársvik í Missouri
og var úrskurðaður til vistar í opnu fangelsi í
Dallas. Þar hvarf hann í þrjá sólarhringa.
Þótti Robinson með ólíkindum að íjöldmorð-
ingja skyldi vera sleppt lausum út í samfélag-
ið því að enginn kærði sig um að kanna feril
hans.
Eftir morðið á bflaplaninu var leit hafin að
Cole og voru konur sem vitað var að hann
ræddi við á nærliggjandi börum yfirheyrðar.
Þær sögðu manninn skemmtilegan og aðlað-
andi og ein þeirra taldi hann „vænlega bráð“
og sagðist hefðu farið með honum ef hann
hefði orðað það við sig.
Aðrir sem þekktu Cole sögðu hann hafa
flækst um landið síðasta áratuginn og ráðið
sig í vinnu hér og hvar en hvergi tollað til
lengdar. Hann fæddist í Iowa en ólst upp í
nágrenni San Francisco. Hann hældi sér af
því að hafa átt fyrstu samfarirnar sjö ára gam-
all og sem unglingur hafði hann gaman af að
kyrkja heimilishundinn þar til hann var nær
dauða en lífi.
Hann hætti námi og gekk í sjóherinn og
lenti fyrir herrétti nær tveim árum síðar fyrir
að hafa stolið tveim skammbyssum. Þær ætl-
aði hann að nota til að kála konu sem hann
taldi hafa smitað sig af kynsjúkdómi, að því
er hann bar fyrir réttinum.
Upp úr því þvældist Cole milli borga og
skemmti konum á börum en þeim þótti hann
skemmtilegur og aðlaðandi, að því er fram
kom þegar loks var farið að rannsaka feril
kvennamorðingjans. Hann átti auðvelt með
að fá vinnu hér og þar en hvarf frá störfum
áður en hann lenti í tölvubönkum hins opin-
bera.
Svo var það skömmu fyrir miðnætti kvöld
nokkurt að íbúar fjölbýlishúss í Dallas heyrðu
óp og Iæti úr íbúð 43 ára gamallar konu, Sally
Thompson að nafni. Þegar nágrannarnir
bönkuðu upp á hjá henni kom drukkinn og
óhrjálegur náungi til dyra. Sally lá á grúfu á
stofugólfinu og var fáklædd. Hún virtist líf-
VEIÐISTAÐURINN: Barinn í Dallas þar sem morðinginn
krækti í síðasta fórnarlamb sitt.
laus. Lögregla og sjúkraliðar voru kallaðir til
og þegar komið var með konuna í sjúkrahús
var hún úrskurðuð látin. Engir sýnilegar
áverkar voru á líkinu og var álitið að hún
hefði látist af ofneyslu áfengis. Cole sagði til
nafns og gaf upp heimilisfang sitt og var
sleppt lausum.
En þegar Robinson lögregluforingi fékk
skýrsluna í hendur áttaði hann sig á að Cole
var eftirlýstur og grunaður um alvarlegan
glæp. Hann var ekki heima þegar lögregluna
bar að garði og það var ekki fyrr en nokkrum
dögum síðar að hann kom heim en um hríð
hvarf hann lögreglunni sjónum en vakt var
um íbúðina sem hann sagðist búa í og bar sú
árvekni árangur.
Sjúklegar ástríður
Cole var langdrukkinn, úfinn og illa fyrir
kallaður þegar hann loks kom í íbúðina sem
lögreglan vaktaði. Hann var færður til yfir-
heyrslu og innan þriggja klukkustunda var
hann búinn að játa á sig átta morð. En hann
tók fram að konurnar sem hann myrti gætu
verið þrisvar til fjórum sinnum fleiri. Við
nánari rannsókn kom í ljós að morðin sem
hann játaði á sig voru áður óupplýst og í
sumum tilfellum var állitið að dánarorsakir
væru af öðrum toga, svo sem ofneyslu og
glannalegu líferni.
Morðsagan náði aftur til ársins 1971. Þá
myrti Cole 39 ára gamla konu f San Diego. í
Oldahomaborg vaknaði Cole við hliðina á
konu sem hann kyrkti í rúminu kvöldið áður.
Eftir að eiga mök við lfldð át hann af kroppn-
um og hlutaði í sundur og kastaði í sorptunn-
ur hér og hvar.
í Las Vegas hitti hann konu sem fór með
honum heimleiðis. Á leiðinni á bflastæði
greip ástríðan Cole og hann dró konuna á
bak við runna, kyrkti hana og hafði samfarir
að því loknum. Hann segist hafa fengið þar
fullnægingu nokkrum sinnum.
Cole kvæntist Díönu Fay í Texas 1974.
Hana myrti hann. Þegar lögreglan braust inn
í íbúð þeirra í San Diego fann hún nakið lík
frúarinnar í eldhússkáp. Hún hafði látist viku
áður. Cole var á brott og fannst hvergi.
1979 myrti hann 51 árs gamla konu í Las
Vegas. Hann sagðist hafa átt samfarir við
hana í baðkari en var þá búinn að kyrkja hana
í rúminu.
í allt sagðist Cole hafa myrt 35 konur og
hældi sér af. En sú tala kvað vera nokkuð ýkt,
að því er lögreglan telur. En nóg er samt. Þeg-
ar játningarnar og ferillinn var rannsakaður
varð ljóst að undantekningarlaust voru fórn-
arlömbin með mikið alkóhólmagn í blóðinu.
Var það oft talin vera dánarorsökin og málin
li'tið rannsökuð nánar. Oft var talað um að
dauðann hefði borið að vegna slysni eða af
„eðlilegum" orsökum.
Dauðadómur að lokum
Við réttarhöldin kvaðst sakborningur vera
búinn að fá nóg af aumu lífí sfnu og játaði
brot sín fúslega og vonaðist eftir dauðadómi.
Hann lagði sérstaka fæð á drukknar konur
á börum og fyrirleit léttúð þeirra og fýsnir.
Sem barn varð hann vitni að svipuðu líferni
móður sinnar og kvaðst hann þurfa að deyða
hana aftur og aftur.
En hann var hræddur við konur og fannst
nálgun þeirra óþægileg. En kynferðisleg þrá
hans var sterk og því þurfti hann að senda
ástkonur sína yfir í annan heim áður en hann
fullnægði þörf sinni og svívirti líkama þeirra
eftir andlátið.
f Texas var Cole dæmdur fyrir þrjú morð og
hlaut þrisvar sinnum lífstíðardóm. Nevada-
ríki gerði tilkall til framsals og þar var hann
dæmdur fýrir nokkur kvennamorð og hljóð-
aði dómurinn upp á fangelsi þar sem afbrot-
in voru framin áður en lfflátsdómur var tek-
inn upp á ný 1977 í ríkinu. Þá var hann flutt-
ur til Carsonborgar og dæmdur til lífláts fyrir
morð sem framið var á löglegum tíma dauða-
refsingar.
Kvennamorðinginn var tekinn af lffi með
eitursprautu 6. desember 1985. Rétt fyrir
dauðastundina spilaði hann póker við fanga-
vörð og bruddi slævandi pillur.