Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2003, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 Fréttir DV Skipstjóri dæmdur Skipstjóri Breka VE-91 hefur verið dæmdur til að greiða 600 þúsund krónur í sekt fyrir að hafa verið á togveiðum með fiskvörpu á Stokknesgrunni. Togveiðar með vörpu án smáfiska- skilju eru bannaðar á svæð- inu. Sektin greiðist í Land- helgissjóð en auk þess var skipstjóranum gert að sæta upptöku veiðarfæra og afla að upphæð um 300 þúsund krónur. Héraðsdómur Austurlands felldi dóminn. Múgurinn réðist á ráðherra Ahmed Maher, utanrík- isráðherra Egyptalands, var fluttur á sjúkrahús í Jer- úsalem í gær eftir að hópur múslima gerði aðsúg að honum. Lífverðir utanríkis- ráðherrans náðu að forða honum undan æstum múgnum en erindi Mahers til ísrael var að ræða friðar- ferlið á milli fsraelsmanna og Palestínumanna. Ekki var vitað hversu alvarleg meiðsl Mahers voru í gær- kvöld en átti erfitt með öndun fyrst eftir atvikið. 400 ferða- menn í borginni Um fjögur hundruð er- lendir ferðamenn dvelja í Reykjavík yfir jólin. Sex hótel og tíu gistiheimili eru opin yfir hátíðarnar og er það mikil aukning á þjón- ustu þar sem aðeins þrjú hótel voru opin í fyrra. Um áramótin vex fjöldi ferða- manna því um 1800 ferða- menn hafa boðað komu sína til landsins. Þá verða öll 17 hótel borgarinnar opin og 13 gistiheimili. Fleiri veitingastaðir eru opnir en hingað til hefur verið og ýmis góð viðbót í þjónustu, t.d. er Þjóðmenn- ingarhúsið opið á aðfanga- dag og gamlársdag og sundlaugar eru opnar leng- ur. Vefurinn einkamal.is notaður til að skipuleggja vændisstarfsemi á íslandi. Undan- farið hefur orðið vart við umtalsverða verðlækkun á þjónustu vændiskvenna og bjóða þær sig fyrir helming taxtaverðs nú á aðventunni. Maðurinn kallaði sig Bóbó og staðfesti að sérstakur jólabónus værí í gangi. Gistihúsið Fell „Mér list ekkert á að hafa svona starfsemi i húsinu," sagdi Malfridur Arnórsdottir eigandi Gisti- hússins er DV hafði samband. Á aðventunni hefur orðið vart við umtalsverða verðlækkun á þjónustu vændiskvenna á íslandi. Samkvæmt heimildum DV hafa tilboðsverð gilt síðustu daga, allt niður í helming af uppsettu listaverði. Á meðal þeirra sem nýta sér þjónustu vændiskvenna mun vera talað um jólabónus í þessu sambandi. Einn heimildarmaður DV, lið- lega tvítugur sjómaður, nýtti sér jólabónusinn um helgina. I stað þess að greiða tuttugu þúsund fyr- ir klukkustund með dömunni fékk hann helmings afslátt. Þannig kostaði klukkutíminn tíu þúsund og hálftíminn fimm þúsund krónur. Salan á vændinu átti sér stað í Gistihúsinu Felli í Garða- bæ. Sjómaðurinn frétti hjá skipstjóra sínum af vændiskonunni og jólatilboði hennar. Bóbó hafði milligöngu Sjómaðurinn sagðist hafa hringt í tiltekið númer og óskað eftir þjónustunni. Maðurinn sem svaraði var fremur var um sig en róaðist þegar sjó- maðurinn sagði honum hvar hann hefði fengið númerið. Maðurinn hefði kallað sig Bóbó og stað- festi að sérstakur jólabónus væri í gangi. Sjómað- urinn pantaði tíma síðar um daginn hjá vændis- konunni sem er frá Rússlandi og kallaði sig Sam- antha. Hún tjáði honum að sér þætti þægilegra að vinna hér en á í Rússlandi og kjörin væru einnig betri. „Samantha," vildi ekki tjá sig um þjónustu sína þegar DV setti sig í samband við hana. Sam- kvæmt heimildum DV hefur konan sagt kúnnum sínum að hún hafi verið flutt til landsins gagngert til vændis og að maðurinn sem flutti hana inn tæki helminginn af laununum. Hún muni einnig hafa verið sæl með launakjörin, þrátt fyrir jólatil- boðið og að þau væru mun betri en hún ætti að venjast. Talið er að fleiri en ein stúlka starfi á Gistihús- inu undir handarjaðri þessa manns sem kallar sig Bóbó. Aðferðin sem notuð er til að skipuleggja vændið er aðallega í gegnum einkasímtöl og vef- inn einkamal.is. Þar er nóg að senda eitt til tvö svör við auglýsingum á vefnum og skömmu síðar fæst staðfesting á pöntuðum tima og leiðbeining- ar um verð og reglur. Ekki í mínum húsum „Ég veit ekkert um þetta mál,“ sagði Málfríður Arnórsdóttir, eigandi Gistihússins Fells er DV hafði samband. Hún sagðist ekki hafa orðið vör við undarlegar mannaferðir. „Mér líst ekkert á að hafa svona starfsemi í húsinu," sagði Málfrfður og bætti við að þetta væri satt þá myndi hún grípa til aðgerða. Stuttu seinna vísaði hún vændiskonunni á dyr: „Hún kom huggulega klædd til dyra og leit alls ekki út fyrir að vera þessi týpíska vændiskona sem maður sér í bíómyndum." Stúlkan neitaði því að þar væri rekið hóruhús en var sótt skömmu síðar af svörtum leigubíl. Bílstjórinn gerði upp við Málfríði en hún segist sjálf ekki hafa neitt á móti vændi en vilji samt ekki hafa það í sínum húsum. Kynlíf í Köln skattlagt Vændiskonur þurfa að greiða skemmtanaskatt í Köln í Þýskalandi frá og með áramótum. Borgaryfir- völd hafa lagt nýja skatta á vændishús borgarinnar, svo og erótískar bað- og nuddstofur. Skattheimtan verður einföld, rukkaðar verða 150 evrur fyrir hvert rúm á mánuði. íslendingar jafn vitlausir og aðrar þjóðir Svarthöfði uppgötvaði nú á aðvent- unni að hvorki þjóðinni né heiminum eins og hann leggur sig er viðbjarg- andi. Það er eitthvað meira en lítið að okkur. Við emm svo vitíaus. Á hverju einasta ári hlustum við á sömu söguna um fæðingu Jesú og svo dauða hans. Alltaf sama sagan. Það kemur aldrei neitt nýtt fram. Þetta er eins og að sýna sömu bíómyndina dag eftir dag, ár eft- ir ár. Og þannig er það eiginlega með bíóið líka. Nú em þeir að sýna Hringja- dróttinssögu en það má nú vera meiri hálfvitinn sem veit ekki hvernig sú ræma endar. Ætli sá maður sé ekki jafn klár og unga fólkið sem vissi ekki hvernig Titanic endaði og heldur ekki hvernir Rómeó og Júlía endar. Því það er eiginlega staðan. Það er jafnvel talað um það í könnunum sem gerðar eru erlendis að það sé stór hluti þjóðanna í útíöndum sem viti ekki einu sinni að Svarthöfði Jesús fæddist á jólunum. Þetta er fólk- ið sem lætur það koma sér á óvart. Er ofsalega hissa þegar það les um' það greinar í blöðum, heyrir ávörp ráða- manna og sér myndbrotin í sjónvarp- inu. Nei, ekki hlæja að því og telja að svo sé nú ekki farið með fslendinga. Við emm ekkert gáfaðari en aðrar þjóðir. Við erum alveg jafn vitlaus og hér ráfar um göturnar á Þorláksmessu heil hjörð af fólki sem hefur ekki hugmynd um að Jesú fæddist í fjárliúsi. Og það vill ekki vita það. Því það ætlar að láta koma sér á óvart. Alveg eins og þegar það fer á Rómeó og Júlíu eða horfir á Titanic eða þegar það bíður eftír páskunum til að vita hvernig fór fyrir þessu blessaða Jesúbarni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.