Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2003, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2003, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 Fókus DV Einu sinni voru strákur og stelpa sem fóru með pabba sínum og mömmu að skoða Þingvelli. Þetta var snemma á jóladagsmorgni og fjöl- skyldan ók sem leið lá úr Reykjavík austur Mosfellsheiði. Bílnum var lagt við Hótel Valhöll og svo gengu þau upp í Almannagjá. Pabbi og mamma hrópuðu upp yfir sig af gleði yfir því að vera loksins komin á þennan sögufræga stað en börnunum varð ekki um sel yfir þeim drungalegu myndum sem þeim fannst þau hvarvetna sjá í kletta- veggjunum. Var nánast eins og þar hefði hvert tröllið upp af öðru orðið að steini á hinn sársaukafyllsta hátt. Inn á milli brá fyrir furðulegum forynjum sem börnin gátu ekki einu sinni látið sér detta í hug hvað ætti að nefna. Voru pabbi og mamma enda óþreytandi við að benda börnunum á nýjar og nýjar hryllingsmyndir í klettunum. Konum drekkt og hausar höggnir En þá fór skyndilega að rigna eins og hellt væri úr fötu, enda var þetta eftir að veðráttan í heiminum breytt- ist. Dimmt hafði verið yfir um morg- uninn þegar fjölskyldan lagði af stað úr Reykjavík en eigi að sfður höfðu foreldrarnir ekki athugað að taka með regnfatnað handa börnunum. Urðu því strákurinn og stelpan fljót- lega holdvot og báru sig illa. Pabbi og mamma voru hins vegar bæði klædd vönduðum vatnsheldum skjólfíkum frá hvirfli til ilja og beit rigningin því ekkert á þau. Þau vildu þess vegna halda áfram að skoða Al- mannagjá og kvörtuðu sáran þegar börnin kröfðust þess að þegar í stað yrði haldið aftur niður að Hótel Val- höll. Kváðust pabbi og mamma ekki mundu geta á heilum sér tekið ef þau fengju ekki að skoða Drekkingarhyl þar sem konum var drekkt í gamla daga eða þann stað þar sem hausihn hafði verið höggvinn af karlmönn- um. Börnin létu sig aftur á móti ekki og varð loks úr að þau skyldu sjálf koma sér niður að hótelinu en pabbi og mamma fengju áfram að rápa um gjána og skoða sögustaði. Á leið barnanna niður að Hótel Valhöll herti enn rigninguna og svo mikill suddi var í lofti að brátt sáu þau varla handa sinna skil. Gerðust klettar og hraundrangar nú enn hrikalegri en áður og var ekki laust við að börnunum væri orðið órótt. (Þingvallakirkju Þá vissu þau ekki fyrr til en þau voru komin að Þingvallakirkju og sáu að kirkjudyrnar stóðu opnar. Án þess að hafa um það nokkur orð sín á milli ákváðu þau að leita sér skjóls undan rigningunni inni í kirkjunni og flýttu sér inn bæði, allshugar fegin. Inni í kirkjunni var Þingvalla- prestur farinn að undirbúa jóla- messu sem hefjast skyldi innan tíðar. Skrauti sem sýndi jötuna í Betlehem og fæðingu Jesúbarnsins hafði verið komið fyrir við altarið og presturinn hagræddi því blíðlega. Þetta var rosk- inn maður, góðlegur og bjartleitur á svip og hafði mjúkan málróm. Var hann klæddur svartri hempu en kominn í grænan hökul utanyfir. Pípukraga hafði hann hins vegar ekki um hálsinn enda slíkt hálstau óðum að detta úr tísku hjá prestastéttinni. Presturinn rak að vonum upp stór augu þegar tvö rennandi vot og veð- Slíkur kraftur var í orðum biskupsins góða að bergið byrj- aði að titra, það var eins og það urraði og bljóðaði og stórir steinar köstuðust úr því í áttina til hans til að hrekja hann á brott, en hann lét sig hvergi. Hvað sem á gekk, þótt eldingar skytust út úr kletta- sprungum íáttina til hans, þá stóð hann sem fastast... urbitin börn komu askvaðandi inn í kirkjuna. Hann bauð þeim umsvifa- laust að staldra við meðan rigningin gengi yfir, auk þess sem þeim væri meira en velkomið að vera við jóla- messuna sem brátt hæfist. Hjálpaði hann þeim svo úr rennblautum yfir- höfnum sínum og lagði þær til þerris á kirkjubekk. Á öðrum bekk upp við altarið fengu börnin sér sfðan sæti og fylgdust með prestinum ganga til starfa sinna. Tvö stór kerti prýddu altarið og kveikti nú prestur á þeim báðum með silfurslegnum kveikjara sínum. „Hvar hefurðu heyrt um skrímslið?" „Hvernig líst ykkur annars á Þing- velli?" spurði hann svo börnin og fékk sér sæti á kirkjubekknum hjá þeim. „Illa,“ sagði strákurinn. „Það er alltof mikil rigning." Presturinn brosti. „Já, það getur rignt hér hressilega eins og annars staðar á íslandi," sagði hann. „En þetta er nú helgasti staður þjóðarinnar. Og einn sá falleg- asti á landinu.“ „Fallegur?" sagði stelpan og fuss- aði. „Það læt ég nú allt vera. Ekkert nema hryllilegt grjót þarna uppi í Al- mannagjá.“ „Tilkomumikið, mundi ég nú segja,“ sagði prestur og brosti góðlát- lega. „Mér fannst það ljótt," sagði strákurinn. „Ferlega ljótt.“ „Og ég hef heyrt að í þessum klettavegg hafi búið hræðilegt skrímsli hér áður fyrr," bætti stelpan við. Prestinum virtist bregða. Hann varð meira að segja hálf flóttalegur á svipinn. „Hvar hefurðu heyrt það?“ spurði hann. „Það segi ég ekki,“ sagði stelpan kokhraust. „En það var víst bæði grimmt og blóðþyrst, þetta skrímsli." Og strákurinn kinkaði ákaft kolli. „Eg hef heyrt þetta líka," sagði hann. „Það drap víst fjölda manns, hef ég heyrt. Og það er víst alveg satt." Presturinn horfði rannsakandi á börnin góða stund. Loks sagði hann: ^Þjóðsögur gerast enn þótt flestir ímyndi sér að tækni og vísindi hafi útrýmt tröllum og forynjum úr heimi okkar mann- anna. Heimildarmaðurinn að feftirfarandi sögu fullyrðir að hún >é dagsönn og hafi gerst á jólun- m nýlega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.