Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2003, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2003, Blaðsíða 29
r i DV Fókus ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 29 Unda Pétursdóttir Hefur komist yfir áfengisvandamái og þunglyndi og horfir nú fram á veginn. Á indverskan elskhuga sem er einn afrikustu mönnum Asíu. Linda segir að sér liði eins og drottningu þegar hún ferðast með honum ieinkaþotu hans. Mér var ráðlagt að fara ekki strax til íslands eftir meðferðina úti, þar sem það væri ekki gott að fara strax aftur í sama umhverfi og ég kom úr. Ég ákvað því að nota tímann í að læra eitthvað sem ég hefði áhuga á og fyndist skemmtilegt." Yndislegi maðurinn Ég spyr Lindu hvenær hún ætli að flytja aftur heim til Islands. ,Æ ég þori ekki að spá neitt lengra fram í tímann heldur en fyrir daginn í dag og kannski morgundaginn. En auðvitað getur vel verið að ég komi aftur til Islands. Svo á ég indverskan elskliuga, Vijay Mallya, sem ég hef átt í mörg ár og ég skrifa meira að segja um hann í bókinni minni. Hann er múlti billjóner og flýgur milli landa á einka- þotunni sinni og hann á ábyggilega svona 26 hús út um allan heim og mér finnst gott að vera hér þar sem ég er svo nálægt honum. Ég kynntist hon- um í Miss World keppninni þegar við vomm að dæma þar saman. Hann er einn ríkasti maður Asíu en hann er svo yndislegur og góður maður að það em ekki peningarnir sem skipta mig þar máli. Við höfum ferðast mikið saman í einkaþotunni hans þar sem ég er eins og drottning. Ég get ekki neitað því að mér finnst það eiga nokkuð vel við mig!“ segir hún kankvís. Keppnir um fegurð mjög vafasamar Linda er nú þeirrar skoðunar að fegurðarsamkeppnir séu mjög vara- samar fyrir ungar stúlkur. „Ég er til dæntis með vöxt og brjóst og þurfti alltaf að grennast meir og meir meðan ég stóð í þessu. Mér finnst það mjög vafasamt að Linda og hundarnir „Ég elska ekkert eins mikið og hundana mína.“ Nýja húsið Linda segist ánægð með hversu vel henni hefur verið tekið þar sem húsið er. Fallegt umhverfi Hús Lindu er á lítilli eyju rétt fyrir utan Vancouver. Linda og Vijay Hann ereinn afríkustu mönnum Asíu og Lindu liður eins og drottningu i fylgd hans. taka þátt í svona keppni ef maður þarf að grennast svo um munar.Oft á tíðum er mataræðið ekki upp á marga fiska og maður er látinn éta súpur í öll mál. En ef rétt er haldið á spöðunum ætti þetta samt ekki að skaða stelpurnar sem taka þátt. Ég held þó að það sé erfiðara að taka þátt í svona keppni eftir því sem þjóðin er minni, vegna athyglinnar. Mér fannst a.m.k. miklu erfiðara hér heima heldur en erlendis. Neikvætt umtal lætur alltaf á sér kræla.“ Ég spyr hvort hún hefði lent í sínu þunglyndi og sálarháska ef hún hefði ekki orðið þekkt fegurðar- drottning. „Það er erfitt fyrir mig að segja. Ég þekki ekkert annað en ég held að titillinn komi veikindum mínum lít- ið sem ekkert við. Ég held að ég geti ekki kennt því um. Ég fór að drekka mest þegar ég varð fyrir heimilisof- beldi af manninum mínum fyrrver- andi og notaði þá áfengið sem deyfi- lyf. Það er annars enginn tilgangur með því að velta sér upp úr því hvers vegna þetta gerðist. Þetta bara gerð- ist og ég verð að sætta mig við það og lifa með því.“ Hvað er næst á dagskrá hjá Lindu „Það er nóg að gera hjá mér í fyr- irtækinu okkar og svo auðvitað í grafísku hönnuninni og Rauða kross starfinu. En mig langar orðið mikið til þess að eignast lítið barn. Ég held að ég geti sagt að það sé það næsta sem tekur við hjá mér ..." segir hún að lokum, dreymandi á svip. Og ekki laus við tilhlökkun. henny@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.