Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Page 10
10 MÁNUDAGUfí 29. DESEMBEfí 2003 Fréttir DV Manndóms- vígslur í Kenía Hundruð ungra drengja af Maasai-ættbálknum í Kenía tóku þátt í mann- dómsvígslu skömmu fyrir jól. Þegar drengir ná 15 ára aldri verða þeir menn með mönnum og mikil hátíðahöld fara fram í þorpum í landinu. Á höfði bera þeir vefjarhött úr strúts- og arnarfjöðrum, þeir eru krúnurakaðir og umskornir og þá fyrst verða þeir stríðsmenn eins og feður þeirra. Eftir athöfnina lita þeir hörund sitt rautt og halda út í náttúruna til að læra að bjarga sér á eigin spýtur. Snjóbretta- keppni við Santiago Bernabeau Tonnum af snjó var skóflað upp fyrir framan knattspymuleikvanginn Santiago Bernabeau, heimavöll Real Mad- rid, vegna snjóbretta- keppni sem þar var haldin. Snjór fellur ekki oft í miðri höfuðborg Spánar og vakti keppnin því verð- skuldaða athygli borgar- búa. 23 keppendur tóku þátt og sýndu listir sínar. w Sá feiti gekk út Fjórirfengu 18 milljónir í jólalottópottinum á Spáni en hann er oftast kallaður „sá feiti" vegna þess hve stór hann nær yfir- leitt að verða. Kerfinu var breytt fyrir skömmu þannig að vinningarnir dreifast víðar en áður en þeir stærstu áður voru hátt í 200 millj- ónir á einn miða. Lottó nýtur mikilla vin- sælda á Spáni og nam heildarsala miða að þessu sinni rúmum tveimur milljörðum. Frosthörkur voru í gær í innsveitum fyrir norðan og á Suðurlandi. Kokkurinn á Hótel Valhöll telur þó alltaf heitt á Þingvöllum. Frostið mældist átján stig á Torfum í Eyjafirði. Veðurstofan boðar meinlaust veður á gamlárskvöld. Gunnar Sigvaldason „Kannski maður ætti að stinga nefínu út og tékka á málinu," sagði kokkurinn á Hótel Valhöll þegar honum var sagtfrá frostinu utandyra. „Hæfilegur snjór sem marrar bráðskemmtilega í efmaður fær sér gönguferð." „Það er alltaf heitt á Þingvöllum," sagði Gunn- ar Sigvaldason, kokkur á Hótel Valhöll, laust eftir hádegi í gær og var hissa þegar honum var skýrt frá hitastiginu utandyra, 16 stigum í mínus. Frosthörkur voru víða í innsveitum sunnan- lands og norðan í gær. Mest mældist frostið í gær- morgun í 500 metra hæð við ána Kolku og á bæn- um Torfum í Eyjafirði, 18 stig í mínus. Kokkurinn ekki kulvís „Þetta er alvöru vetrarveður. Kuldinn var hins vegar svipaður fyrir nokkrum vikum,“ sagði Har- aldur Eiríksson, veðurfræðingur á Veðurstofu ís- lands. Klukkan eitt í gær var mesta frostið í byggð á Þingvöllum, 16 stig. Lægstur varð hitinn þar rúm- ar 17 mínusgráður klukkan eilefu. „Við höfum ekki orðið varir við það hér að það væri sérstaklega kalt. Kannski maður ætti að stinga nefinu út og tékka á málinu," sagði Gunnar. Hótel Valhöll Veturinn er að herða tök sin iuppsveitum Árnessýsiu. Að sögn Gunnars er Hótel Valhöll, sem venju- lega er opin allar helgar, lokuð milli jóla og nýárs. Hann hafi þó tekið á móti um 50 gesta hópi út- lendinga á annan í jólum. Köld nótt í innsveitum „Það er alltaf reytingur af fólki hér á ferð. Sér- staklega er ótrúiega mikið af útíendingum, bæði á einkabflum og í hópum. Þeir vilja skoða norður- ljósin," sagði Gunnar. Þrátt fyrir kuldann undanfarna daga er Þing- vallavatn langt því frá ísi lagt, að sögn Gunnars. „Það er dálítill ís við bakkana. Hér er líka hæfileg- ur snjór sem marrar bráðskemmtilega í ef maður fær sér gönguferð í kyrrðinni.“ Að því er Haraldur veðurfræðingur sagði var við því að búast að nóttin sem nú er liðin yrði afar köld, frostið yrði jafnvel 20 stig sums staðar. Lægð væri hins vegar á leið yfir landið með snjókomu og hækkandi hitastigi. Á Veðurstofunni væri nú talið að lægðin yrði gengin yfir á gamlársdag. „Núna er útlit fyrir að veðrið verði meinlaust á gamlárskvöld, tiltölulega stillt og úrkomulítið," sagði Haraldur. gar@dv.is Gölluð leik- fong i gjof frá Andrési Umhverfisstofnun Dan- merkur hefur til rannsókn- ar snjókúlur sem áskrifend- ur Andrés-blaðanna á Norðurlöndunum fengu sendar með síðasta tölu- blaðinu. Snjókúlurnar reyndust illa lyktandi og klístraðar og voru brögð að því að börn fengju niður- gang ef þau nöguðu þá. Snjókúlurnar voru fram- leiddar í Kína og hefur rannsókn leitt í ljós að paraffín-efni náðu ekki að þorna áður en snjókúlun- um var pakkað inn. Þetta er í annað sinn á árinu sem leikfang, sem fylgir Andrés- blaði, lendir á borði um- hverfisstofnunarinnar í Danmörku. Umboðsmaður Alþingis segir úrskurðarnefnd almannatrygginga misstíga sig í deilumáli um heimilisuppbót Hunsuðu rétt öryrkja á Hjálpræðishernum Öryrki sem sviptur var heimilis- uppbót á rétt á því að úrskurðar- nefnd almannatrygginga taki mál hans fyrir að nýju vegna galla á fyrri meðferð nefndarinnar á málinu. Tryggingastofnun ríkisins tók heimilisuppbótina af manninum vegna þess að stofnunin taldi hann ekki lengur reka eigið heimili eftir að hann tók sér búsetu hjá Hjálpræðis- hernum. Maðurinn kærði til úr- skurðarnefndarinnar sem staðfesti ákvörðun Tryggingastofnunar. öryrkinn kvartaði þá til urnboðs- manns Alþingis sem sagði að úr- skurðarnefndin hefði ekki kannað nægilega vel hvernig staðið var að meðferð málsins hjá Trygginga- stofnun og hvort ákvæða stjórn- sýslulaga hefði verið gætt. bót frá Tryggingastofnun og siðan var brotið á andmælarétti hans þegar hann kærði til úr- skurðarnefndar almannatrygginga. Úrskurðarnefndin hafði aflað ishersins. Nefndarmenn segjast að- sér upplýsinga stmleiðis um rekstr- eins hafa fengið almennar upplýs- artilhögun á gistiheimili Hjálpræð- ingar með tiliiti til þess hvort dvöl einstaklings á gistiheimilinu full- nægði lagaskilyrðum um greiðslu heimilisuppbótar. Nefndin telji sér óskylt að veita öryrkjanum færi á að tjá sig um þessar upplýsingar. Umboðsmaður sagði að öryrk- inn hefði í fyrsta lagi ekki vitað af því að úrskurðarnefndin hefði aflað umræddra upplýsinga, í öðru lagi að upplýsingarnar væru mannin- um í óhag og í þriðja lagi að þær lytu beinlínis að húsnæðisaðstöðu hans og hefðu því veruleg og afger- andi áhrif á niðurstöðu málsins. Manninum hefði ekki verið gefið raunhæft tækifæri til að koma að sjónarmiðum sínum og úrskurðar- nefndin ætti því að taka málið fyrir aftur. gar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.