Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Síða 14
14 MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2003 Fréttir DV Flestir eru úrkula vonar um að takast megi að finna fleiri á lífi í rústum borgarinnar Bam í íran. Alþjóðlegar björgunar- og hjálparsveitir vinna þó enn hörðum höndum. Loftmynd af Bam eftir skjálftann Borgin er nánast rústir einar og uppbyggingarstarfið verður iangt og erfitt. Borgina veröur að byggja aflur írá grunni Yfir íjögur hundruð björgunar- starfsmenn hafa unnið sleitulaust alla helgina til að bjarga þeim sem enn kunna að lifa í rústum borgar- innar Bam í fran. Borgin varð hart úti í jarðskjálfta á föstudaginn var og mældist stærsti skjálftinn 6,7 á Richter. Enn ríkir mikil hræðsla vegna hugsanlegra eftirskjálfta en smærri skjálftar eru algengir á þessum slóðum. Björgunarmenn telja þó ólíklegt að margir finnist á lífi úr þessu og einbeita hjálparsveitir sér að því að hlúa að þeim sem þegar hafa bjargast. Margir þeirra eru særðir en öll sjúkrahús í borginni hrundu í jarðskjálftanum og erfltt er um vik fyrir lækna og hjúkrunarfólk að athafna sig. Mikill næturkuldi eyk- ur enn frekar á eymd fólksins en margir eru klæðlitlir og hafa misst allt sitt. „Fólkið stendur nánast nakið á götum, skjálfandi af kulda," sagði Roland Schlachter, einn björgun- armanna frá Sviss, en þeir urðu einna fyrstir á vettvang. Hann taldi líkurnar á að finna einhvern á lífi mjög litlar. „Það hefur mikið með tíma að gera en einnig virðast mörg húsin hafa algerlega lagst saman. Þegar svo er þarf ekki að spyrja að leikslokum." Innanríkisráðherra írans, Abdolvahed Mousavi Lari, til- kynnti að gera mætti ráð fyrir að tala látinna færi vel yflr 20 þúsund manns. Fimmtán þúsund lík hafa þegar fundist í rústum húsa í borg-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.