Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2003
Fókus DV
hsettur aö revkja eg drekka
Sigtryggur Baldursson situr á kaffistofunni og flettir í gegnum DV. Maðurinn sem áður spilaði með goð-
sagnarkenndum hljómsveitum eins og Þey og Kukli, sigraði heiminn með Sykurmolunum og sást síðast
hérlendis sem hinn dularfulli Bogomil Font ásamt hljómsveitinni Milljónamæringunum fyrir um tíu
árum, er kominn aftur til landsins og vill fá að vita hvað hefur verið að gerast í heimalandinu.
Sigtryggur ,2Ettbálkurinn erum ég
og Steingrlmur. Við höfum engar
hugmyndir um hvernig þetta passar
iirann. Maður er bara ekki
vkiii markaðsfræðingur. “
Á forsíðunni er frétt um yfirtöku Kaupþings
á Spron.
„Ég hélt að korpórat pólitík væri slæm í
Bandaríkjunum, en hér virðist allt vera komið
í eigu tveggja fjölskyldna," segir hann og flettir
blaðinu. Sigtryggur fluttist til Bandaríkjanna
þegar eiginkona hans hélt út í doktorsnám í
lífefnafræði, en Bogomil Font og Milljóna-
mæringarnir voru þá á hátindi frægðar sinnar.
„Ég er mjög alvarlegur pabbakall. Ég hætti á
toppnum til að sinna bamauppeldi. Milljóna-
mæringarnir eignuðust þá nýtt gay líf með Páli
Óskari, og það hefur verið fínt að geta spilað
með þeim þegar ég hef verið hérlendis."
Mýtan að tónlistarmenn deyi ungir
Sigtryggur á 13 ára dóttur og aðra nýfædda
og hefur helgað sig uppeldi þeirra, en þó hefur
hann alltaf komið hingað til lands inn á milli.
„Ég hef alltaf verið héma eins og grár köttur,"
eins og hann segir, en hefur á undanförnum
áratug fengist við tónlist hérlendis, í Bretlandi
og Bandaríkjunum. Hann bjó lengst af í Madi-
son Wisconsin og tók upp í stúdíói í eigu
hljómsveitarinnar Garbage, en hún er einmitt
þekktasta útflutningsvara bæjarins, sem
einnig hefur verið valinn heilbrigðasti bær
Bandaríkjanna, þökk sé átakinu Fit City Madi-
son. Hvort sem það er vegna áhrifa frá því eða
ekki segist Sigtryggur vera farinn að lifa heil-
brigðu lífi þessa dagana. „Maður er orðinn al-
gjör pussa, hættur að reykja og drekka. Mýtan
er sú að tónlistarmenn deyi ungir, sem hlýtur
að vera gott fyrir lífeyrissjóði, en ég er undan-
tekningin sem sannar regluna," segir hann og
bætir svo við: „Sem er náttúrlega algerlega
merkingarlaus staðhæfing, eitthvað sem fólk
grípur til þegar það getur ekki fært rök fyrir
máli sínu.“
Mikill stuldur á öllum vígstöðvum
Hinn langlífl Sigtryggur hefur komist klakk-
laust yfir 27 ára aldurinn, sem varð endastöð
manna eins og Jim Morrison, Jimi Hendrix og
Kurt Cobain, á bara eitt ár eftir í að verða 42
ára, sem er sami aldur og varð kónginum að
aldurtila þegar hann sat á klósettinu í
Graceland. En ólíklegt er að jafn illa fari fyrir
Sigtryggi og hans hátign, sem lést vegna of-
neyslu á pillukokkteilum og samlokum með
banönum og hnetusmjöri, því hann virðist lít-
ið hafa elst síðan Bogomil var upp á sitt besta.
Undanfarin ár hefur Sigtryggur spilað með
mönnum eins og Howie B., Les Negresses
Vertes og argentínska fjöllistahópnum De la
Guarda, sem er þekktur fýrir að sveifla sér í
köðlum yfir áhorfendum á sýningum. Hann
hefur einnig unnið talsvert með Emilíönu
Torrini og á lög á væntanlegri plötu með
henni. „Ég stai titlinum á síðustu plötu henn-
ar, Love in the Time of Science, frá Gabriel
Garcia Márquez, sem skrifaði bókina Ást á
tímum kólerunnar. Emilíana stal síðan titlin-
um frá mér, þannig að það var mikill stuldur á
öllum vígstöðvum. Þetta var allt saman mjög
póstmóderhískt."
Ætti að brenna drottninguna og
brytja í kattamat
Sigtryggur heldur áfram að fletta DV og
staðnæmist við grein um að Díana prinsessa
hafi verið ólétt þegar hún dó. Ég, sem eins og
allir góðir blaðamenn er mikill samsæriskenn-
ingasinni, sting upp á því að hún hafi verið
myrt vegna þess að konungsfjölskyldunni hafi
ekki hugnast að prinsessan eignaðist barn
með araba. Sigtryggi virðist nokk sama. „Ég er
svo mikill anti-mónarkisti.
Það gæti verið að eitthvað af þessu kónga-
pakki hafi einhverja dulda hæfileika en ég hef
ekki komið auga á þá. Þetta lið er eins og
slæmur ávani sem lifir á þjóðfélaginu. Helst
ætti að brenna þetta fólk allt og brytja það í
kattamat."
Hafandi afgreitt örlög kóngafólksins á Bret-
landseyjum heldur Sigtryggur áfram að fletta
„Mýtan er sú að tónlistar-
menn deyi ungir, sem hlýt-
ur að vera gott fyrir lífeyr-
issjóði, en ég er undan-
tekningin sem sannar
regluna."
í
t « a
DV og staðnæmist við einkar vel skrifaða grein
um strippstaðinn Goldfinger. Greinin hefur þó
þann annmarka að blaðamaður telur sig hafa
séð Magnús Ver á staðnum, sem mun ekki rétt,
en að reita sterkasta mann í heimi til reiði er
ein af þeim hættum sem fylgt geta starfinu. „Er
einhver að hagnast á þessu annar en eigand-
inn?“ spyr hann. „Eru ekki kúnnarnir líka fórn-
arlömb? Konur eru þama misnotaðar í þeim
tilgangi að misnota karlmenn."
Sigtryggur hefur undanfarin ár búið í
Hollandi, þar sem mikið fer fyrir umræðu um
vændi. „Samtök vændiskvenna vilja meina að
þær séu að gera þetta af fúsum og frjálsum
vilja, en það er margt sem spilar inn í. Þetta er
spurning um frelsi og frelsi."
„Maður er ekki nógu mikill markaðs-
fræðingur
í Hollandi kynntist Sigtryggur hljóðfærasal-
anum Sörenvenema. „Búðin hans er alltaf op-
in eftir hentugleikum. Á góðviðrisdögum situr
hann fyrir utan búðina og plokkar hljóðfæri og
drekkur hvítvín. Hans uppáhaldsorð em
„we’re closed". Sörenvenama kemur fyrir á
nýrri plötu Sigtryggs og Steingríms Guð-
mundssonar, Dialog, en saman koma þeir
fram undir nafninu Steintryggur. Tónlistin er í
anda heimstónlistar, sem þeir eru báðir miklir
áhugamenn um. .Ættbálkurinn er við Stein-
grímur. Við höfum engar hugmyndir um
hvernig þetta passar inn í geirann. Maður er
bara ekki nógu mikill markaðsfræðingur."
Steingrímur er einnig í Milljónamæringunum
og hefur lært tablatrommuleik á Indlandi, sem
Sigtryggur segir svo flókið liljóðfæri að hann
myndi ekki koma nálægt því með priki.
Heimsreisa tveggja manna í hjóla-
skúr
Diskurinn er tileinkaður flóttamönnum, en
flóttamaðurinn Orly Kibalika syngur í einu lagi
plötunnar. „Ég kynntist konu sem kennir í
flóttamannabúðum, og komst í samband við
flóttamenn í gegnum hana. Flóttamennirnir
þarna spila mikið af tónlist og eru mikil nátt-
úruböm. Orly hafði til dæmis aldrei séð
míkrófón áður.“
Ólíklegt er að hann hefði komist í kynni við
menn eins og Orly hérlendis.
„Á íslandi búum við í svo fáránlega raun-
veruleikafirrtu umhverfi. Þetta er ekki mál
vegna þess að það er alltaf verið að henda
þeim úr landi. Við tökum bara við fólki ef við
getum grætt á því og látið það vinna einhverja
skítavinnu í fiski.“
Diskurinn var tekinn upp í skúr í Hollandi.
„Meira og minna öll hollensk hús em með
skúr, sem ætlaður er fýrir kartöflur, reiðhjól og
msl. Þetta er þannig nokkurs konar heimsreisa
tveggja manna í hjólaskúr."
Sigtryggur leggur DV frá sér og segist þurfa
að halda áfram að dreifa diskum fyrir Smekk-
leysu. Þótt Smekkleysa sé á einhvern hátt orð-
in stórfyrirtæki segir hann hana enn vera „Do
It Yourself' fyrirtæki, og enginn virðist vera of
fínn til að keyra út. Þegar hann gengur út
hugsa ég með mér að Sykurmolarnir hljóti að
hafa verið virkilega einstakt band fyrst meira
að segja trommarinn er snillingur. Það er eng-
in furða að þeir skuli hafa orðið fyrstu íslend-
ingarnir til að sigra heiminn.
vaiur@dv.is