Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Qupperneq 25
DV Sport
MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2003 25
msku úrvalsdeildinni á þeim tíma. Þar fóru fram nítján leikir á annan dag jóla og í
mni um titilinn. Þeir höfðu sex stig upp úr krafsinu í tveimur leikjum og náðu
hampton heim. ^
dknapp lambið graa
Carlton Cole, Charlton
en aðeins hafa 3 stig komið í hús af
síðustu 24 mögulegum. Liverpool er
heldur ekki í sérlega góðum málum
en þeir gleðjast þó eflaust yfir því að
Dietmar Hamann skoraði. Hann
hefur verið lengi frá vegna meiðsla
en er loks að finna sitt gamla form.
Cole bjargvættur
Það er mikil sigling á Hermanni
Hreiðarssyni og félögum í Charlton
þessa dagana. Á föstudag tóku þeir
Chelsea í bakaríið en í gær sóttu þeir
sigur gegn Tottenham á útivelli. Það
var hinn týndi framherji, Carlton
Cole, sem skoraði eina mark
leiksins.
Tottenham nálgast botninn
óðfluga og má mikið vera ef David
Pleat heldur starfi sínu sem stjóri
Tottenham öllu lengur.
Wolves vann botnslaginn
Það var mikifi botnslagur á
Molineux þegar Wolves tók á móti
Leeds en þetta eru tvö neðstu lið
ensku deildarinnar.
Heimamenn voru miklu
grimmari og þrátt fyrir að hafa lent
undir eftir aðeins þrjár mínútur rifu
þeir sig upp og unnu góðan 3-1
sigur. Norðmaðurinn Steffen
Iversen lét loks að sér kveða og
skoraði tvö góð mörk.
Það virðist vera algjör upplausn
hjá Leeds þessa dagana en Alan
Smith gerði sjálfsmark í leiknum og
Dominic Matteo lét reka sig af veUi.
Bæði lið sitja áfram í neðstu
sætunum og eru ekki mjög líkleg til
þess að hreyfa sig þaðan á næstunni.
Vassell opnar reikninginn
Aston Villa er að verða eitt
heitasta liðið í deildinni en það vann
mjög óvæntan og sannfærandi sigur
á Fulham í gær, 3-0. Juan Pablo
Angel heldur áfram að blómstra, en
hann skoraði eitt mark, og ekki
veikist liðið við það að Darius
Vassell er loks vaknaður. Hann
skoraði sín fyrstu mörk í deildinni í
vetur í leiknum og er það hreint
ótrúleg frammistaða hjá enskum
landsliðsmanni.
Fulham kemst fyrir vikið niður á
jörðina á ný en þá hefur sárlega
vantað stöðugleika í vetur þrátt fyrir
frábæra frammistöðu.
Góð jól hjá United
Manchester United hélt sínu
striki yfir jólin. Liðið vann báða
leikina, gegn Everton og
Middlesbrough, og náði fjögurra
stiga forystu á toppi deildarinnar, í
það minnsta þar til í kvöld þegar
Arsenal sækir Southampton heim.
Sigurmark leiksins gegn
Middlesbrough kom á 14. mínútu en
þá varð varnarmaðurinn Danny
Mills fyrir því óhappi að skora
sjálfsmark eftir að hafa orðið fyrir
skoti frá Quinten Fortune. Mikill hiti
var í leikmönnum og fékk Darren
Fletcher, Skotinn ungi í liði
Manchester United, að líta rauða
spjaldið undir lok leiksins.
Leikmenn Middlesbrough sóttu án
afláts undir lokin án þess að ná að
jafna metin.
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
Manchester United, var mjög sáttur
eftir leikinn og sagði að það væri
ekki auðvelt að sækja stig til
Middlesbrough.
„Ég sagði það fyrir leikinn að það
væri mjög arfitt að spila gegn
Middlesbrough, sérstaklega á þeirra
heimavelli. Þeir eru mjög þéttir fyrir,
berjast vel og eru skeinuhættir í
Stuð að skora Frakkinn Florent Sinama-Pongolle hefur verið að slá i gegn með Liverpool i
vetur og hann fagnar hér marki sinu gegn Bolton á föstudag. Reuters
Carlton Cole er hetja
helgarinnar. Þessi strákur hefur
lítið sem ekkert leikið í vetur af
persónulegum ástæðum en
hann er grunaður um að vera
aðalmaðurinn í stóra hóp-
nauðgunarmálinu. Málið hefur
tekið sinn toll hjá Cole, sem er í
láni frá Chelsea, en hann kom
af bekknum í leikhléi gegn
Tottenham og skoraði eina
mark leiksins. Þetta mark ætti
að gefa honum byr undir báða
vængi eftir mótlætið enda hér á
ferð mjög skæður framherji á
góðum degi.
ÚRVALSDEILD
...SKÚRKURINN
Kevin Keegan, Man. City
Kevin Keegan er enn stjóri
hjá Man. City þrátt fyrir afleitt
gengi síðustu vikur. Liðið hefur
aðeins náð 3 stigum af síðustu
24 mögulegum. Keegan hefur
oft sýnt að hann er ágætur
stjóri en lið hans eru þekkt fyrir
mikinn óstöðugleika. Þegar
skútan lendir síðan í mótvindi
virðist Keegan ekki hafa karakt-
erinn til þess að rífa liðið upp á
ný og sjálfstraust liðsins er afar
lítið þessa dagana. Man. City er
skipað mörgum góðum spil-
urum en Keegan tekst ekki að
ná því besta út úr þeim og
gefur glötuðum leikmönnum
endalaus tækifæri.
skyndisóknum. Okkur tókst hins
vegar að stýra leiknum nokkuð vel
og það gefur alltaf góð fyrirheit að
hafa náð sex stigum yfir jólin. Það
veitir okkur sjálfstraust í fram-
haldinu en menn skulu gera sér
grein fyrir því að nú byrjar deildin
fyrir alvöru," sagði Ferguson eftir
leikinn.
Steve McClaren, knattspyrnu-
stjóri Middlesbrough, var ósáttur og
sagði sína menn hafa átt skilið í það
minnsta eitt stig.
henry@dv.is
Bestu ummæli helgarinnar
H„Saha var indíánahöfðinginn
þeirra. Það verður að drepa
höfðingjann og þá falla
indíánarnir. Það gerðum við ekki.
Þeir drápu okkar höfðingja og hinir
féllu í kjölfarið," sagði Gordon
Strachan, stjóri Southampton, eftir
tapið gegn Fulham.