Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Blaðsíða 27
DV Fókus MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2003 27 Segist saklaus en seíur samt hja smabornum Michael Jackson kom í gær fram í sjón- varpsviðtali í fyrsta skipti síðan hann var ákærður fyrir misnotkun á ungum krabba- meinssjúkum dreng. í viðtalinu, sem sýnt var í sjónvarpsþættinum 60 minutes, heldur Jackson fram sakleysi sínu þótt hann sjái ekk- ert athugavert við að sofa hjá börnum. Auðvitað er í lagi að sofa hjá börnum „Ég myndi fyrr skera mig á púls en að meiða barn,“ var meðal þess sem Jackson sagði við fréttamanninn Ed Bradley í um- ræddu viðtali. Jackson tók þó fram að hon- um þætti það vera í góðu lagi að sofa uppi í rúmi hjá börnum enda hefði hann ekkert slæmt í huga þegar hann gerði slíkt. Þegar fréttamaðurinn spurði Jackson hvort hon- um þætti það vera í lagi að sofa hjá börnum jafnvel þegar kynferðisbrotamál gegn hon- um væri í rannsókn, sagði Jackson svo vera. „Auðvitað er það í lagi, af hverju ekki? Ef maður er barnaníðingur, ef maður er Jack the Ripper eða morðingi þá er það auðvitað ekki í lagi en ég er ekkert af þessu,“ sagði Jackson sem sagðist jafnframt ekki geta hugsað sér að búa lengur á heimili sínu, Neverland í Kaliforníu, eftir lögreglurann- sókn sem þar fór nýlega fram. „Ég get ekki lengur litið á Neverland sem heimili mitt; núna er þetta bara hús í mín- um augum og ég kem ekki til með að búa þar í framtíðinni," sagði Jackson sem undanfarið hefur búið á hóteli í Los Angeles. Lýgur um sín eigin börn? Kærurnar sem Jackson á nú yfir höfði sér varða kynferðislega misnotkun á 14 ára krabbameinssjúkum dreng sem á að hafa átt sér stað á heimili poppstjörnunnar fyrr á ár- inu. Jackson hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu og lögfræðingar hans hafa lagt mikið á sig til þess að draga úr trúverðugleika móður hins meinta fórnarlambs. Fjölskyldan hefur nefni- lega áður verið viðriðin skaðabótamál af ýms- um toga sem hafa vakið spurningar. Nú er trú- verðugleiki Jacksons sjálfs hins vegar stórlega dreginn í efa vestanhafs þar sem slúðurblöðin þar í landi hafa birt viðtal við ónefndan fjöl- skyldumeðlim Jackson-fjölskyldunnar sem fullyrðir að börn Michaels séu í raun ekki hans eigin. Heimildarmaðurinn segir óþekktan sæðisgjafa hafa verið notaðan við getnað barnanna og þvf sé Michael ekki kynfaðir barnanna likt og hann hefur haldið fram. Hvort Jackson hefur logið til um sín eigin börn skal ósagt látið hér en ef satt reynist mun það væntanlega koma poppgoðinu illa í komandi réttarhöldum. Með Kóran í annarri og konu í hinni? Blöðin ytra gera einnig talsvert mál úr sögusögnum þess efnis að poppgoðið hafi í sumar skipt um trú eftir að hafa verið Vottur Jehóva í mörg ár. Sögurnar segja að Michael hafi fylgt fordæmi bróður síns Jermaine og gengið til liðs við Nation of Islam. Enn fremur mun bróðir hans hafa hvatt hann til að gifta sig í kjölfarið vegna þess að hjónabandið sé einn af hornsteinum múslimatrúar. Sam- kvæmt fréttum The Globe í Bandaríkjunum mun Jackson svo hafa látið af því verða í sum- ar þegar hann gekk að eiga 23 ára múslimska stúlku, Alisha að nafni. Hjónavígslan mun hafa farið fram með leynd á heimili Jacksons og hjónabandinu aldrei ætlað að verða opin- bert. The Globe segir Alishu þessa vera bráð- gáfaða háskój tengna stúlka með greindar- vísitölu upp á 154, auk þess sem hún mun vera hámenntuð í klassískum píanóleik. Fólk bíður nú spennt eftir að réttarhöldin yfir poppgoðinu hefjist því talið er að svör við mörgum spurningum um Jackson muni þar loksins koma fram. Ekki er vitað hvenær rétt- arhöldin hefjast nákvæmlega en Jackson gengur þessa dagana laus gegn 3 milljóna dala tryggingu. ^7? Sefur hjá börnum MTcfíael Jackson segistsak- laus af ákærum um að hafa misnotað 74 ára krabbameinssjúkan dreng kynferðislega en segir samt ekkert athugavert við að sofa uppi i rúmi hjá börnum, svo framarlega sem maður' sé ekki barnaniðingur eða morðingi. Sími 550 5000 askrift@dv.is www.visir.is Nýtt DV sex morgna vikunnar. Ekkert kynningartilboð. Engin frídreifing. Mánaðaráskrift 1.995 krónur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.