Helgarblaðið - 05.06.1992, Síða 6
Helgar 6 blaðið
Halldór Laxness
Skáldskapur Laxness krufinn
Stofnun Sigurðar Nordal
gengst fyrir alþjóðlegri ráðstefnu
um ritstörf Halldórs Laxness í
Háskólabíói um næstu helgi. Til-
efni ráðstefnunnar er níræðisaf-
mæli Halldórs og er ráðstefnan
haldin í tengslum við Listahátíð.
Fyrirlesarar á ráðstefnunni koma
víða að og munu fjalla um ýmsar
hliðar á skáldskap Halldórs, auk
þess sem hátíðarsamkoma verður
haldin föstudaginn 12. júní og
kvikmynd GuðnýjarHalldórsdótt-
ur, Kristnihald undir jökli, verður
sýnd kl. 17 laugardag og sunnu-
dag.
A hátíðarsamkomunni munu
Peter Hallberg, Ámi Bergmann og
Steinunn Sigurðardóttir flytja
ávörp. Ingibjörg Guðjónsdóttir
syngur við undirleik Þorsteins
Gauta Sigurðarsonar lög eftir
Gunnar Reyni Sveinsson við Ijóð
Halldórs Laxness. Þá munu leikar-
amir Þorsteinn Gunnarsson, Sig-
urður Siguijónsson og Bríet Héð-
insdóttir flytja Jón í Brauðhúsum
eftir Halldór.
Fyrirlesarar fýrri daginn verða:
Vésteinn Olason: Halldór Laxness
og íslensk hetjudýrkun; Guðrún
Nordal: Með viðspymu í fortíð-
inni; Halldór Guðmundsson:
Skrýtnastur af öllu er maður sjálf-
ur. Um endurminningasögur Hall-
dórs Laxness; István Bemáth: The
Advantages of Non-fiction written
by Halldór Laxness; Régis Boyer:
Laxness, „old granite of the tho-
ugt“; Svetlana Nedelíajeva- Ste-
ponaviciene: Laxness á austur-
evrópskum tungumálum; José A.
Femández Romero: Endurfúndir í
suðrinu; Helga Kress: Undirleikur
af tónlist. Um skáldskaparffæði
Halldórs Laxness og Ámi Sigur-
jónsson: Mælskulist Halldórs Lax-
ness.
Sunnudaginn 14. júní verða eft-
irtaldir fyrirlestrar fluttir: Eysteinn
Þorvaldsson: Ljóðagerð sagna-
skálds; Halldór E. Laxness: Hálf-
vitar og heilagir menn; Hubert Se-
elow: Laxness og Þýskaland; Guð-
rún Hrefna Guðmundsdóttir: Þegar
bækur lenda í ferðalögum; Gunnar
Kristjánsson: Liljugrös og játning-
ar. Um séra Jón Prímus; Ástráður
Eysteinsson: í fúglabjargi skáld-
sögunnar. Um Kristnihald undir
Jökli; Gísli Pálsson: Ferðalýsing
og fabúla. Mannffæðin í Kristni-
haldi undir Jökli; Rory McTurk:
Laxness og Liam O. Flaithearta og
Turið Sigurðardóttir: íslandsklukk-
an og Vonin blíð.
Ráðstefnunni lýkurkl. 16.45 á
sunnudag.
Ekki sérstök
ástæða til
bjartsýni
Eftir ab rá&stefnan hófst hefur lögreglu fjölgab á vinsælustu stö&unum í Ríó og götubörnum fækkab,
segir Hjörleifur.
„Stjómmálamennimir tala
nú á sömu nótum og áhuga-
rnenn, umhverfissinnar og
vísindamenn gerðu fyrir 10-
20 árum,“ sagði Hjörleifúr
Guttormsson í símtali við
Helgarblaðið eftir að hafa
hlustað að ræðumar á opn-
unardegi umhverfisráð-
stefiiunnar, Umhverfi og
þróun, sem sett var í Rio de
Janeiro á þriðjudaginn.
Hann sagði að stjómmála-
menn væm meðal annars
famir að ræða um nauðsyn
þess að taka umhverfisþátt-
inn inn í umræðuna um
/
efnahagsmál. I þá umræðu
vantaði þó að menn gerðu
sér grein fyrir því hvemig
ætti að ná markmiðum um
sjálfbæra þróun samfara
hagvexti.
Á ráðstefnunni á að samþykkja
Ríó- yfirlýsinguna svokölluðu, og
Dagskrá 21 sem er framkvæmda-
áætlun í umhverfismálum og meg-
inskjal ráðstefnunnar. Alþjóða-
samningamir tveir, sem ætlunin er
að ganga frá um loftslag og vernd-
un líffræðilegrar Ijölbreytni, verða
veikari en þeir hefðu kosið sem
lengst vildu ganga.
Hjörleifur sagði að meginand-
staðan kæmi frá Bandaríkjamönn-
um sem ekki vildu setja inn viðmið
til að takmarka lofttegundir sem
auka gróðurhúsaáhrif. Hjörleifur
benti þó á að Bandaríkjamenn væm
tiltölulega einangraðir í þessari af-
stöðu. Hann sagði að allmargt væri
óklárað í þessum samþykktum og
er það í hornklofum í textanum. Því
hefur verið vísað til aðalvinnu-
nefndar ráðstefnunnar sem skipar
sér átta undimefndir.
Hjörleifur sagði að deiluefni
snertu mest fjámiálin og hvemig
ætti að brúa þá miklu gjá milli
norðurs og suðurs, milli ríkra og fá-
tækra þjóða sem er staðreynd í dag.
Austurríki og Sviss hafa lagt fram
tillögu um að ríki sameinist um að
undirrita skuldbindingu um lofts-
lagið og gróðurhúsalofttegundir
svipað og gert hefur verið varðandi
ósonið. Mörkin í tillögunni cru þau
að ekki verði slcppt meim út í loft-
ið árið 2000 af hættulegum loflteg-
undum en var gert 1990.
„En það verður ekki séð hvað úr
verður, Bandaríkin em stærsti
þröskuldurinn," sagði Hjörleifur og
benti á að án tillögunnar vantaði öll
mörk í þessu sambandi.
„Síðan er talað um að það þurfi
að jafna bilið milli norðurs og suð-
urs. Það er góðra gjalda vert, en
hinsvegar finnst mér vonlítið að
ætla að færa skipulag iðnríkjanna
yfir á þróunarríkin. Átakið þarf að
koma frá iðnríkjunum sem verða að
draga í land í neyslunni," sagði
Hjörleifur. Hann sagði að það yrði
að taka á hinu gífurlega fátæktar-
vandamáli í löndum Suður- Amer-
íku og víðar. „í vandamálinu felst
ekki eingöngu eymdin heldur líka
félagslegur sprengikraftur sem eng-
inn veit til hvers gæti leitt,“ sagði
hann.
Hjörleifúr sagði fátæktina mjög
áberandi í Ríó og það ætti einnig
við um borgir á Amazon-svæðinu
sem hann ferðaðist til áður en hann
fór á ráðstefnuna. „Það er æpandi
fátækt í öllum stórborgum Suður-
Ameríku og hún mjög sýnileg,"
sagði hann og benti á að skilin milli
ríkra og fátækra væm mun minni í
þéssum borgum heldur en til dæmis
New York eða San Francisco þar
sem fátæktin væri vissulega til
staðar en þar byggju ríkir og fátæk-
ir ekki hlið við hlið. í Ríó blasir
hinsvegar fátæktin við hvar sem er,
fátækrahverfin em alltaf sýnileg þar
sem þau em í hæðunum fyrir ofan
borgina, að sögn Hjörleifs. Hann
sagði að ferðamönnum færi sífellt
fækkandi vegna aukningar á ránum
og gripdeildum sem væri þó ekki
annað en afleiðing þess að fólk
væri að reyna að bjarga sér. „Við
sáum þetta blasa við á vinsælustu
ströndinni, Copacabana. Dagana
fyrir ráðslefnuna úði allt og grúði af
götubömum, vændi og ribbalda-
hópum,“ sagði Hjörleifúr.
En eftir að ráðstefnan hófst fjölg-
aði lögreglu mikið og þessir hlutir
eru nú minna áberandi.
Vandamálin virðast gífurlega stór
og útlitið fyrir plánetuna ekki allt of
gott, einkum ef ríku stórþjóðimar
em ekki tilbúnar að leggja verulega
Föstudagurinn 5. júní
af mörkum til umhverfisvendar. Þó
sagði Hjörleifur að menn sæju von í
dæminu þrátt fyrir að ráðstefnan
yrði ekki það sem búist hefði verið
við í upphafi. „Menn em að tala út
ffá því að það sé von en Maurice
Strong, ffamkvæmdastjóri ráðstefn-
unnar, viðurkennir það þó fullum
fetum að það sem menn settu sér í
Stokkhólmi hafi ekki tekist og mál-
in hafi versnað á velflestum svið-
um. Strong sagði okkur vera á
hraðferð inn í ógnvekjandi vist-
kreppu og ef við náum ekki utan
um hlutina á næstunni verði það
náttúrukraflamir sem grípa inní
með þeirri hörku sem náttúran ein
hefur tök á,“ sagði Hjörleifur sem
einnig sótti fyrri umhverfísráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna í
Stokkhólmi 1972.
„Það er mikill munur á yfirbragði
þessara ráðstefna. Hér er meiri
fjöldi manna og nú em þátttakendur
upplýstari um hættumar en fyrir 20
ámm. Þrátt fyrir það em málefnin
svipuð og byrjað var að tala um í
Stokkhólmi. þó em þau nú að ein-
hverju leyti komin inn í vitund ráð-
andi manna," sagði Hjörleifúr.
Hann benti einnig á að umhverfis-
samtök ýmisskonar væm miklu öfl-
ugri nú en þá.
I sambandi við ráðstefnuna er
haldin ráðstefna áhugamanna sem
kallast Global Fomm. Þá ráðstefnu
sækir Hjörleifur einnig sem fúlltrúi
Náttúmvemdarsamtaka Austur-
lands. Hann telur von til þess að
grasrótin haldi stjómmálamönnum
við efnið í umhverfismálum. „Á
Global Fomm er meira um vakandi
fólk og róttæknin er þar mun meiri
en á hinni ráðstefnunni, þótt þar séu
náttúrlega þeir sem geta tekið
ákvarðanimar. En ég get ekki sagt
að það sé sérstök ástæða til bjart-
sýni. Ekki vegna þessarar ráðstefnu
einnar saman, hún er einungis lítill
áfangi í því sem þarf að gerast á
næstu ámm ef menn ætla að reyna
að brjótast útúr þessum gífúrlega
vanda sem við er að etja,“ sagði
Hjörleifur og benti á að fólksfjölg-
unarvandamálið væri ef til vill al-
varlegasta undirrótin. Þar er við
ramman reip að draga þegar sterkir
aðilar einsog kaþólska kirkjan vilja
ekki taka þátt í að leysa þetta
vandamál.
G. Pétur Matthíasson
AGU
REGNFATNAÐUR
Vandaður - sterkur - fallegur
Settið frá kr. 6.100.-
Stakir jakkar og buxur á
hagstæðu verði.
Einlit græn sett frá kr. 3.890.
SPORTj
MARKAÐURINN
SKIPHOLTI 50C, SÍMI 31290
Tjaldstæðið Krákuvör er opið frá
15. júní til 15. september
Bjóðum upp á ágætis snyrtiaðstöðu á góðu
tjaldstæði. Sækjum farangur frá hópum að
ferjunni.
Útsýnisferðir á vegum Tryggva Gunnars-
sonar, símar 93-81216 eða 985-30000.
Komið og kynnist einstakri náttúru
Breiðafjarðar.
Tjaldstæðið Krákuvör, Flatey
sími 93-81451