Dagblaðið - 15.09.1975, Síða 4
4
Dagblaðið. Mánudagur 15. september 1975.
Sparið fé og fyrirhöfn
VIÐ TÖKUM
af ykkur ómakið
UM LEIÐ og þiö pantið gistingu hjá
Hótel Vlof i látið þið okkur vita um ósk-
ir ykkar varðandi dvölina í Reykjavík
og við útvegum m.a. bílaleigubíla með
hagkvæmum kjörum, aðgöngumiða í
leikhús eða að sýningum, borð i
veitingahúsum og ýmislegt annað.
Hótelið er litið og notalegt og því á
starfsfólk okkar auðvelt með að sinna
óskum ykkar — og svo eruð þið mjög
vel sett gagnvart strætisvagnaferðum
(rétt við Hlemm).
Kynnið ykkur okkar hagstæða vetrar-
verð.
Sérstakur afsláttur fyrir hópa og
langdvalargesti.
HÓTEL HOF
Rauðarárstíg 18
® 2-88-66
Verzlanir — veitingastaðir
— þjónusta
Óskað er eftir þátttakendum til margs
konar verzlunarreksturs ásamt veitinga-
og þjónustustarfsemi á miðbæjarsvæði
Kópavogs.
Áhugamenn, sendið nöfn og heimilisföng
ásamt upplýsingum um starfsemi og hús-
næðisþörf til afgr. blaðsins fyrir 17. þ.m.
merkt „Miðbær framtíðarinnar.”
DJlíl©a§
samlokurnar
dofna ekki
með aidrinum
Þokuljós og kastljós
Halogen-ljós
fyrir J-perur -
ótrúlega mikiö
Ijósmagn
PERUR I ÚRVALI
NOTIÐ
tAÐBESlA
Skipholti 35 • Símar:
8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrifstofa
HVERS VEGNA RAÐIN
VORU TEKIN AF
FORSTJÓRANUM
— Rœtt við örn Erlendsson, forstjóra
í Sölustofnun lagmetisiðnaðarins
I framhaldi af frétt
DAGBLAÐSINS um, að
nýkjörin stjórn Sölustofnunar
lagmetisiðnaðarins hafi ákveðið
að taka daglega stjórn
stofnunarinnar úr höndum
framkvæmdastjórans og annast
hana sjálf, getur DAGBLAÐIÐ
upplýst, að stjórnin telur
nauðsynlegt að endurskoða alla
starfsemi fyrirtækisins. Tekur
þetta til mannahalds,
stjómunar, markaðsmála, fjár-
mála og uppbyggingar lag-
metisiðnaðarins almennt.
Eins og fram kemur I frétt
blaðsins, hefur stjórnin tekið i
sinar hendur allar ákvarðanir
og skuldbindingar
stofnunarinnar. Þetta þýðir, að
engin ákvörðun verður tekin i
daglegum rekstri, nema hún sé
borin undir stjórnina. Þetta er
mjög harkaleg aðgerð og í raun
algert afnám á umboði þvi,sem
framkvæmdastjórinn, Orn
Erlendsson, hefur haft, en eins
og kunnugt er hefur hann gegnt
því starfi frá byrjun og unnið að
mótun Sölustofnunar lag-
metisins frá grunni.
Nýkjörinn stjórnarformaður,
Lárus Jónsson alþm. og
varaformaður, Heimir Hannes-
son, eru nú i Bandarikjunum á
vegum fyrirtækisins.
DAGBLAÐIÐ sneri sér til
Arnar Erlendssonar fram-
kvæmdastjóra og spurði hann,
hvað hefði valdið þessum
harkalegu viðbrögðum.
örn Erlendsson sagði, að við
markaðsleit fyrir afurðir SL i
Bandarikjunum hefði komizt á
samhand við Tayo Americas,
Inc., sem er dótturfyrirtæki
einhvers stærsta fiskveiða- og
sjávarvörufyrirtækis i heimi.
Aður höfðu fulltrúar SL átt
viðræður við ýmsa aðila i
Bandarikjunum um dreifingu á
lagmeti. Ekki voru undirtektir
þeirra taldar viðunandi.
Þegar Tayo Americas hafði
tjáð áhuga sinn á sölu og
dreifingu afurða SL, var þvi
tjáð, að SL væri reiðubúið til
samstarfs, ef fyrirtækið tryggði
lágmarkskaup á lagmeti á árinu
1974 og næstu árum. Fyrirtækið
bauð aðgengilegt verð, opnaði
bankaábyrgð og gerði pöntun
fyrir 1,5 milljónir dollara.
Fyrirtækið átti i harðri sam-
keppni, var með nýtt vörumerki
og mætti i upphafi almennum
samdrætti i efnahagslifi
Bandarikjanna. Auk þess var
fyrirtækið með sölu á niður-
suðuvörum að fara inn á nýtt
svið og gerði ýmis mistök og
sum slæm.
Engin deila var um að taka
þessu fyrirtæki sem
umboðsaðila. Allar upplýsinar
um fyrirtækið voru þaul-
kannaðar eftir venjulegum
leiðum, meðal annars i gegnum
verzlunarráð erlendis.
Varaformaður núverandi
stjómar, Heimir Hannesson,
aflaði sérstakra upplýsinga frá
bandarlskum banka, sem taldi
fyrirtækið mjög traust. Enda
hefur fyrirtækið staðið við allar
greiðslur og skuldbindingar, en
hefur átt i erfiðleikum með sölu
vömnnar, sem það hefur keypt.
Allir samningar um sölu til
Tayo Americas voru
undirritaðir með fyrirvara um
samþykki stjórnar SL, sagði
örn. Auk þess hefði samnings-
uppkast verið borið undir bæði
fslenzka og bandariska lög-
fræðinga. Loks hefði SL að sinni
tillögu gert fyrirvara um 12
mánaða reynslutima i sam-
skiptum SL og hins bandariska
fyrirtækis.
Þannig kvað örn hafa verið
reynt að ganga sem tryggi-
legast -frá öllum samningum.
Hins vegar væri ljóst, að fyrir-
tækið hefði keypt sumar afurðir
SL á svo háu verði, að það hefði
alls ekki reynzt samkeppnisfært
á bandariskum markaði við þær
aðstæður, sem við var að etja.
Meðal annars þess vegna lægi
fyrirtækið með óseldar birgðir,
sem torvelduðu eðlilega frekari
sölu á þennan markað.
A siðasta ári hefði fyrirtækið
einnig tekið nokkurt magn af
rækju á mjög háu verði, sem
greitt var við móttöku. Til að
kom þeim viðskiptum á, hefði
Tayo Am. fengið loforð um
verðlækkanir á siðari sending-
um, ef þeir sýndu tap á kaupun-
j^REYKJAVÍK
í Herradeild JMJ
VIÐ HLEMAA
M4ÍTH (j*\ 9ACA