Dagblaðið - 15.09.1975, Síða 7
Dagblaöið. Mánudagur 15. september 1975.
7
ÓMAR
VALDIMARSSON
Erlendar
fréttir
Portúgal:
Stjórnar-
myndun
lokið
Sjötta bráðabirgðastjórnin i
Portúgal siðan byltingin var gerð
þar i april i fyrra hefur verið mót-
uð. Ráðherralisti verður lagður
fram fyrrihluta vikunnar, jafnvel
i dag.
Jose Pinheiro de Azevedo,
aðmiráll, væntanlegur forsætis-
ráðherra landsins, kynnti stjórn-
arstefnuna um helgina. Hann er
talinn ætla að biða með að leggja
fram ráðherra-lista sinn þar til
Marios Soares, leiðtogi Sósial-
istaflokksins, snýr aftur frá
Þýzkalandi, þar sem hann hefur
verið i þriggja daga heimsókn.
Þróun stjórnmála I Portúgal i
siðustu viku var mikið áfall fyrir
kommúnista, sem áður voru nær
allsráöandi. Munar þar mestu
brottvikning helzta stuðnings-
manns kommúnista, forsætisráð-
herrans Vasco Goncalves.
Þrátt fyrir að kommúnistar
muni eiga sina fulltrúa i nýju
stjórninni er enn óséð um við-
brögð þeirra og annarra vinstri-
flokka við hægrisveif lunni i
Portúgal.
Atkvæðamikill leiðtogi vinstri-
manna, Ramiro Correia, flotafor-
ingi herdeildar, sem nú hefur ver-
ið lögð niður sagði i siðustu viku:
„Við erum að tapa bardaga en
ekki striði. Sigurinn verður alltaf
okkar megin.” Hann sagði
vinstrisinnuðum hermönnum á
fundi. að enn væri fólk i stjórn-
málahreyfingu hersins (MFA),
sem „hægt er að treysta.”
Nýja stjórnin er álitin koma til
með að vera tiltölulega i takt við
úrslit kosninganna fyrr á þessu
ári, þar sem sósialistar, komm-
únistar og miðflokksmenn fengu
nær öll atkvæði.
Einnig munu róttækir vinstri-
menn úr MFA eiga sina fulltrúa I
stjórninni.
Ekki er reiknað með að dr. So-
ares og Alvaro Cunhal, aðalritari
kommúnistaflokksins, muni eiga
sæti i stjórninni. Azevedo for-
sætisráðherra tók skýrt fram i
ræöu um helgina, að stjórninni
væri ætlað að sameina þjóðina.
Hann sagði stefnu sina þá, að
leggja áherzlu á lög og reglu.
Einnig vill hinn nýi forsætisráð-
herra treysta böndin við hinn
vestræna heim. *
Kissinger sver
Indókína af sér
Henry Kissinger, einn
helzti „arkitekt” stefnu
Bandarikjanna i Indó-
kina á stjórnarárum
Nixons, hefur nú lýst þvi
yfir, að hann hafi alltaf
talið aðgerðir þjóðar
sinnar þar „hörmu-
legar”.
Kissinger sagði þetta I
sjónvarpsviðtali vestra
á laugardagskvöldið.
Orðrétt sagði utanrikis-
ráðherrann:,, Ja, satt að
segja hef ég alltaf álitið
Indókina hörmuleg mis-
tök, — að hluta til vegna
þess, að við hugsuðum
ekki dæmið á enda strax
i upphafi.”
Kissinger hefur á
undanförnum mánuðum
hvað eftir annað reynt
að fjarlægja sjálfan sig
stefnu Bandarikjanna í
Indókina. Það var þó i
fyrsta skipti i fyrra-
kvöld, að hann sagðist
alltaf hafa verið þeirrar
skoðunar, að Bandarikin
hefðu rangt fyrir sér.
Kissinger sagði fyrstu
ákvarðanirnar um
afskipti Bandarikjanna
af málefnum Indókina
hafa verið i stjórnartið
Lyndons heitins
Johnsons, og „síðan var
bandariskur almenn-
ingur ekki reiðubúinn að
standa við þær. ”
Kissinger þótti þá ekki svona
gaman að Vietnamstríðinu þegar
allt kemur til alls. Hann kennir
Johnson, Ky og Thieu um allt
saman.
Ford í stríð
við þingið
Búizt er viö, að réttur muni i
vikunni skera úr um deilu Fords
Bandarikjaforseta og þing-
nefndarinnar, sem rannsakar
starfsemi leyniþjónustunnar
CIA.
Nefndin hefur krafizt þess að
fá til athugunar leyniskýrslur
stjórnvalda um Vietnam-strið-
ið. Forsetinn skipaði svo fyrir i
siðustu viku, að nefndin fengi
ekki fleiri leyniskýrslur til opin-
berunar, þar eð það gæti verið
hættulegt þjóðaröryggi. Ford
krafðist þess einnig, að öllum
skjölum, sem nefndin hefur
þegar fengið, yrði þegar i stað.
skilað aftur.
Hörð deila hefur þvi komið
upp og er búizt við að réttur
verði látinn skera úr um hana á
miðvikudaginn.
Margir þingmenn eru þeirrar
skoðunar, að leyndarskjala-
stimpillinn hafi verið gróflega
misnotaður af Hvita húsinu til
að breiða yfir alvarleg mistök i
njósnastarfsemi Bandarikj-
anna. Benda þeir á,- að strið
Araba og Israelsmanna 1973
hafi komið Bandarikjastjórn á
óvart.
Karpov sigraði
í einvíginu
Sovézki heimsmeist-
arinn i skák, Anatoly
Karpov, neyddi Lajos
Portisj til jafnteflis i sið-
ustu einvigisskák þeirra
i Milanó i gærkvöldi og
sigraði þar með. Með
jafnteflinu hafði Karpov
31/2 vinning á móti 2 1/2
vinning Portisj.
Karpov sigraði i einni
skák en gerði jafntefli i
hinum. Heimsmeistar-
inn varðist i allan gær-
dag örvæntingarfullum
árásum Ungverjans,
sem var með svart, og
vissi, að einungis sigur
gat jafnað metin. Kar-
pov, sem hafði hvitt, hóf
taflið með enskri byrj-
un. Eftir 21 leik á þrem-
ur og hálfri klukkustund
bauð Portisj jafntefli.
Karpov fékk 12.000
dollara (4,3 millj. isl.
kr.) i verðlaun en
Portisj helmingi minna.
í þriðja— fjórða sæti
voru þeir Ljuboievic og
Petrosjan.
STJORN BANGLADESH SYNIR KLÆRNAR
Þeir íbúar Bangladesh,
sem enn hafa ólöglega
vopn undir höndum, eiga
nú dauðaref singu yfir
höfði sér. Útvarpið i
Bangladesh skýrði svo frá
í gær í útvarpssendingu*
sem heyrðist i London.
Fyrir viku tilkynntu
stjórnvöld í Bangladesh, að
öllum þeim, sem skiluðu
vopnum sínum fyrir laug-
ardag (sl.) yrðu gefnar
upp sakir. Nú er sá frestur
liðinn og þvi verða allir,
sem uppvísir eru að vopna-
eigu, dregnir fyrir herrétt
og gætu fengið dauðadóm,
lifstiðarfangelsi, fjársekt-
ir eða eignaupptöku.
Útvarpsstöðin hvatti i-
búa landsins til að hjálpa
stjórnvöldum við að ná til
þeirra, sem enn hefðu í
fórum sínum byssur, skot-
færi eða sprengiefni. „Það
er heilög skylda hvers
manns að hjálpa stjórninni
við að uppræta þessa lög-
leysu”, sagði i sendingu út-
varpsins.
í stjórnartið Mujiburs
Rahmans, fursta, gengu
um götur og stræti stórir
hópar vop'naðra manna,
þrátt fyrir að Mujib hefði
sett bann á almennan
vopnaburð. Talið var að
hann vildi ekki láta fram-
fylgja þeim lögum, til að
vera viss um líkamlega
vernd sína og fjölskyldu
sinnar, enda hafði hann yf-
ir „einkaher” að ráða.
Nú hyggjast stjórnvöld
koma i veg fyrir óöldina,
sem ríkt hefur í landinu,
með harðri hendi.
Hans
Tholstrup
týndur
Dansk-ástralski flugmaðurinn
Hans Tholstrup, sem margoft
hefur komið hingaö til lands, er
týndur einhvers staðar i Kyrra
hafinu.
Tholstrup var einn á ferð um-
hverfis hnöttinn þegar hann
sendi út neyðarkall á laugar
dagsmorguninn og sagðist
verða að nauðlenda á einni
Kurile-eyja, sem eru i eigu So-
vétrikjanna, noröur af Japan.
Eldsneytisleki hafði komið að
flugvél Tholstrups. Hann tók
ekki fram á hverri eyjanna
hann ætlaði að lenda.
Hœttir Barnard við hjartaflutningana?
Hjartasérfræðingurinn
Christian Barnard sagði á
læknafundi i Elisabetarhöfn i S-
Afriku um helgina, að hann og
aðstoðarfólk hans yrði liklega
að hætta að fást við h jartaflutn-
inga vegna skorts á sjúklingum.
Barnard framkvæmdi fyrsta
hjartaflutninginn 3. desember
1967. Siðan þá hefur læknirinn
aðeins gert 11 slikar aðgerðir.
„Með aðeins eina eða tvær að-
gerðir á ári,” sagði dr. Barnard,
„er'ómögulegt að halda áhuga
okkar nægilega mikið við. Ef
læknar senda okkur ekki sjúkl-
inga, þá verðum við að láta
staðar numið.”
Prófessor Barnard sagði
einnig, að mikill skortur væri á
hjörtum. Einn sjúklinga sinna
væri búinn að biða i fjóra man-
uði á Groote Schuur eftir hjarta.
„Hjartaflutningar ollu stór-
kostlegum umræðum i blöðum
leikra og lærðra en þrátt fyrir
gagnrýnina og misjafnan ár-
angur af aðgerðum viða i heim-
inum, þá getum við ekki boðið ó-
læknandi hjartasjúklingum upp
á annað betra,” sagði Barnard.
„Arangur þessara aðgerða
ætti ekki að vera metinn af
sögusögnum, heldur visindaleg-
um könnunum, sem gerðar hafa
verið á ákveðnum stöðum.”
sagði hann.