Dagblaðið - 15.09.1975, Side 18
18
Dagblaðið. Mánudagur 15. september 1975.
Keppnin kostar bíleigendur oft tugi þúsunda:
FIMM AF FIMMTÁN
SKEMMDUST EITTHVAÐ
— og það þykir
torfœruaksturs-
mönnum vel sloppið
„Þetta var óvenju ódýr keppni
fyrir bilaeigendur,” sagði
Sævar Reynisson, einn af
aðstandendum torfæruaksturs-
keppni Stakks, sem fram fór á
laugardaginn var. „Aðeins
fimm bilar af fimmtán
skemmdustogenginn alvarlega.
öxull brotnaði, grillið lagðist
saman á einum og svo datt dekk
af, hjöruliðir brotnuðu og sitt
hvað fleira smávegis kom
fyrir.”
Að sögn Sævars var tjón á
bilum i fyrra allmiklu meira, til
dæmis eyðilagði Bandarikja-
maður nýjan Range Rover bil
með einskærum klaufaskap, og
fleiri kostnaðarsöm óhöpp urðu.
Björgunarsveitin Stakkur
gengst árlega fyrir keppni sem
þessari og hefur gert það siðan
1969. Sveitin fær lánað land i
nágrenni Grindavikur, útbýr
þar gildrur fyrir ökumenn og
gengur frá öllu að keppni
lokinni. A vorin sá siðan Stakks-
menn i öll sár i landinu, svo að
það litur raunar betur út, en það
myndi ella gera.
f ár tóku fimmtán bilar þátt i
keppninni, en ellefu luku henni.
Sigurvegarinn i ár var Vil-
hjálmur Ragnarsson á Willy’s
’67. og sagði Sævar að hann
hefði verið vel að sigrinum
kominn. Ekkert óhapp henti
hann og með lagni tókst honum
að ljúka ýmsum þrautum, sem
engir aðrir leystu.
1 öðru sæti varð Kristinn
Kristinsson á Bronco '74 og i
þriðja sæti Gunnar Pétursson á
Bronco ’73.
Mikill mannfjöldi horfði á
keppnina, um 4000 manns, eða
nær sami fjöldi og horfði á
bikarúrslitin i knattspyrnunni i
gærdag á Laugardalsvelli. -AT-
Æ, afsakið
lesendur góðir
Okkur varð illilega á i mess-
unni, þegar við gerðum
Hengilinn okkar góða að Esju.
Slikt má ekki henda innfædda
Reykvikinga.
Annar innfæddur Reykvik-
ingur bað okkur endilega að
leiðrétta þetta og gerði það
með eftirfarandi orðum:
Gjörið það fyrir mig góðir
drengir
að gæta vel hófs i
nafnabrengli.
Býsn er að sjá, þvi bresta
nú strengir
er blaðamenn ruglast á Esju
ogHENGLI.
Þá ætti þetta mál að vera á
hreinu.
,
Dekk losnuðu, öxlar brotnuðu og grill bognuðu I torfæruaksturskeppni
Stakks á laugardaginn var. DB-mynd: Ragnar Th.
Gœsaskyttan keyrði ó
Það er stundum kaldsamt að
liggja fyrir fugli og verður
mönnum þá gjarnan fyrir að
hafa með sér yl i' gleri og súpa á
viö og við. Heldur hafðihún sop-
ið drjúgt gæsaskyttan, sem i
gær um hádegið réði ekki betur
Hjólhús fauk austur i Svina-
hrauni um tiuleytið i gærkvöldi
og snaraði út af með sér drátt-
artækinu, sem var Land-Rover
jeppi. Hjólhúsið er ónýtt og bill-
inn skemmdur. Slys urðu ekki
veruleg á fólki.
Töluvert var af hjólhúsaeig-
endum á ferðinni um helgina, en
margir brugðu á það ráð i gær
við bil sinn en svo, að hann lenti
aftan á næsta bil á undan uppi
við Lækjarbotna. Þá var skytt-
an á heimleið en ekki segir af
feng hennar. Bilarnir skemmd-
ust ekki mikið.
—SHH
og snaraði með
sér bilnum
og gærkvöldi að koma þeim i
skjól og halda ekki lengra með
þau. Dæmin sanna, að þau eru
erfiður flutningur þegar hvasst
er og hafa þá gjarnan snarað
dráttartækjunum af hjólunum
lika. Hjólhús, sem fokið hafa,
eru sjaldnast mikils virði á eft-
ir.
—SHH
Hjólhús fauk _
Tvítugur maður barði stúlku
Tvitugur maður réðst á stúlku varð hana á slysadeild Borgar-
úti á Seltjarnarnesi á aðfaranótt sjúkrahússins með þrautir i
laugardagsins. Hann kastaði höfði. Maðurinn var gestkom-
henni i götuna og sló hana i and- andi á Reykjavikursvæðinu.
litiö svo harkalega, að flytja —SHH
Köttur í bóli bjarnar:
VAR BÚINN AÐ KVEIKJA UPP
ER EIGENDURNIR KOMU AÐ
Konur tvær, sem komu að
sumarbústað sinum i Lamb-
hagafelli á föstudaginn, undruð-
ust það mjög er inn kom, að
kveikt hafði verið upp og var
bústaðurinn hlýr og notalegur.
Þegar þær komu inn i stofu, lá
þar sá fyrir, er þessu olli. Þetta
var karlmaður, sem þarna var
að hvila sig. Maður reykti mikið
og gaf þá skýringu á hegðun
sinni og ferðum, að hann væri
heimilislaus.
Hvort sem hann og konurnar
ræddu þetta mál lengur eða
skemur, endaði það með þvi, að
hann lét þeim bústaðinn eftir og
hélt sjálfur á braut. Hann kom
siðar i leitirnar uppi við Úlfars-
fell, en þá kom i' ljós, að þetta
var strokumaður af Kleppi.
—SHH
Veiddi lax ón leyfis og
Komið var að veiðiþjófi við
Elliðaár um niuleytið á laugar-
dagsmorguninn. Þjófurinn sat á
árbakkanum og neytti fengs
sins á staðnum og hafði hann
hráan. Þetta var svartbakur,
sem hafði sett i og sigrað 67
út ó úrbakkanum
sentimetra langan lax. 1 lög-
regluskýrslu um atburðinn seg-
ir, að ekki sé talið liklegt að
þrjóturinn hafi haft veiðileyfi.
Enda er laxveiðitiminn i Elliða-
ánum úti.
—SHH
Hross fyrir bíla
— með kortérs millibili
Hestár tveir urðu fyrir bilum á
laugardaginn með fimmtán
minútna millibili. Báðir voru
þeir á randi á vegarspottanum
frá Lækjarbotnum upp i Vötn.
Fyrri hesturinn varð fyrir bil
klukkan kortér fyrir tiu. Sá bill
lét ekki mikið á sjá, en hest-
urinn hvarf út i myrkrið. Talið
er, að hann hafi ekki slasazt að
heitið geti.
Klukkan tiu var svo aftur ekið
á hest, sem birtist óvænt á
veginum. Sá árekstur varð sýnu
harðari og er billinn stór-
skemmdur eftir. Kistulokið —
þetta er Volkswagen — er
beyglað niður svo sem hægt er
og framrúðan hefur sprungið úr
falsinu. Hrossið hvarf út i
myrkrið og hefur ekki fundizt
þrátt fyrir leit, en talið er
liklegt, að það hafi ekki sloppið
óskaddað úr viðureign sinni við
bilinn.
—SHH
Arbæjarhverfi: Hraunbær 162
mánud. kl. 3.30—5.00. Verzl.
Hraunbæ 102 þriðjud. kl.
7.00—9.00. Verzl Rofabæ 7—9
mánud. kl. 1.30—3.00, þriðjud. kl.
4.00—6.00.
Breiöholt: Breiðholtssk óli
mánud. kl. 7.15—9.00, fimmtud.
kl. 4.00—6.00, föstud. kl.
1.30— 3.00. Hólahverfi fimmtud.
kl. 1.30—3.30. Verzl Straumnes
fimmtud. kl. 7.00—9.00. Verzlanir
við Völvufell þriðjud. kl.
1.30— 3.15, föstud. kl. 3.30—5.00.
Háaleitishverfi: Alftamýrarskóli
fimmtud. kl. 1.30—3.00. Austur-
ver, Háaleitisbraut, mánud. kl.
3.00—4.00. Miðbær Háaleitis-
braut, mánud. kl. 4.30—6.15, mið-
vikud. kl. 1.30—3.30, föstud. kl.
5.45— 7.00.
Holt—Hliðar: Háteigsvegur 2
þriðjud. kl. 1.30—3.00. Stakkahlið
17 mánud. kl. 1.30—2.30, mið-
vikud. kl. 7.00—9.00. Æfingaskóli
Kennarask'olans miðvikud. kl.
4.15— 6.00.
Laugarás: Verzl. Norðurbrún
þriðjud. kl. 5.00—6.30, föstud. kl.
1.30— 2.30.
L a u g a r n e s h v e r f i : Dal-
braut/Kleppsv. þriðjud. kl.
7.15— 9.00. Laugalækur/Hrisat.
föstud. kl. 3.00—5.00.
Sund: Kleppsv. 152 við Holtaveg
föstud. kl. 5.30—7.00.
Tiln: Hdtún 10 þriðjud. kl.
3.30— 4.30.
Vesturbær: KR-heimilið mánud.
kl. 5.30—6.30, fimmtud. kl.
7.15 — 9.00. Skerjafjörð-
ur—Einarsnes fimmtud. kl.
3.45— 4.30. Verzl. Hjarðarhaga 47
mánud. kl. 7.15—9.00. fimmtud.
5.00—6.30.
Hafnarfjörður
Auglýsingamóttaka í
Hafnarfirði er hjú
Þórdísi Sölvadóttur,
Selvogsgötu 11,
milli 5 og 6
DAGBLAÐIÐ
-
AUhvöss suðvestan og
vestan átt með skúra-
veðri. Kólnar smám
saman. 3-4 stiga hiti,
er liða tekur á daginn.
___________________/
Þann 21. júni sl. voru gefin saman
I hjónaband af sr. Áreliusi Niels-
syni Svanhildur Pálmadóttir og
Fanngeir Sigurðsson. Heimili
þeirra er að Bauganesi 1.
Nýja Myndastofan.
6. júli sl. voru gefin saman I
hjónaband af sr. Karli Sigur-
björnssyni I Hallgrlmskirkju
Margrét Scheving og Þorvaldur
Halldórsson. Heimili þeirra er að
Vestmannabraut 57, Vestmanna-
eyjum.
Nýja Myndastofan.
COTY
SÉRTILBOÐ
AVACADO
rakakrem
og
andlitsvatn
Kr. 504.00
NOTID AVACAD0 HÚDKREM FRÁ COTY
Otsölustaöir: Bonný — Regnhlifabúðin — Hygea — Topp-
tlzkan — Annetta — Snyrtivörubúðin Völvufelli 15 —
Snyrtivörubúðin Laugv. 76 — Andrea — Gjafa- og snyrti-
vörubúðin — Evubær Keflavik —Stjörnu Apótek Akureyri
— Snyrtivöruverzlunin Rós, Húsavik —Snyrtistofa Ingu
og Ragnheiðar, Ármúla 32 —
I