Dagblaðið - 15.09.1975, Blaðsíða 24
Deilt um afstöðu ríkisstjórnarinnar til Norðursjóvarkvótans:
„Höfum vondon mólstað"
— segir sjómaður á ísafold - kvóti annarra skertur minna en íslands
„Við höfum vondan málstað”,
sagði Sigurður Guðmundsson
sjómaður á Isafold i viðtali við
Dagblaðið. „Rikisstjórnin
sendir skipin til ótakmarkaðra
veiða á Norðursjó, að visu með
fyrirvara, og neitar að viður-
kenna kvótann. Á meðan erum
við sjálfir að færa út i 200 milur,
sem sjálfsagt er, til að vernda.
fiskstofnana.”
Það er óverjandi af rikis-
stjórninni að brjóta gegn þess-
ari verndun á Norðursjó”, sagði
Sigurður. Danir hafa að visu
einnig andmælt kvótanum i
þetta sinn. Kvóti Islands var
minnkaður um rúman þriðjung.
Sigurður benti á, að við hefðum
sjálfir sett kvóta fyrir sildveiði
við Suðvesturland. „Danir hafa
ekki veitt ótakmarkað á
Norðursjó. Þeir mótmæltu að
visu i sumar, en sættu sig við, að
500 tonna skip og þar yfir veiddu
i 3000 kassa af sild á viku, og
skip upp að 500 tonnum veiddu
1500-1800 kassa. Sviar sættu sig
éinnig við þann kvóta, að hvert
skip veiddi i 4000 kassa á
mánuði. Svipuðu máli gegndi
um Færeyinga.”
Síld miklu dýrari
í Danmörku
„Það gengur i berhögg við
stefnu okkar að koma svona
fram,” sagi Sigurður, sem
álitur, að rikisstjórnin ætti að
segja af sér fyrir vikið.
„Það er alrangt, sem haldið
hefur verið fram i umræðum um
þetta, að sild sé ódýrari i Dan-
mörku en hér. Hún er miklu
dýrari i Danmörku, 50 og upp i
120 krónur upp á bryggju,
meðan hún hefur farið fyrir
margfalt lægra verð á íslandi.”
„Það er sjóðakerfið, sem
mest hindrar, að sjómenn og
útvegsmenn á íslandi fái það,
sem þeim ber,” sagði Sigurður
að lokum. Hann taldi, að rikið
æti upp mestan hlutann með
hinu margflókna sjóðakerfi.
Rikisstjórnin hefur brugðizt
með framangreindum hætti við
aflakvóta á sildveiðum á
Norðursjó, vegna þess að kvóti
annarra rikja minnkaði yfirleitt
miklu minna en fyrir Island.
—HH
Umfangsmikil
leit að
bandarískri
flugvél:
Stórir hópar leitarmanna
lögðu af stað i birtingu i morgun
að leita tveggja hreyfla flugvé-
ar af Twin Commance gerð,
sem saknað var rétt fyrir klukk-
an 19 á sunnudagskvöld. 1 vél-
inni eru tveir menn og lögðu
þeir upp frá Edinborg kl. 13.40 á
sunnudag og áætluðu komutima
til R.vikur um klukkan 19 á
sunnudag. Um klukþan 18.30 til-
kynntu flugmenn að vélin væri
stödd yfir Vestmannaeyjum og
áætluðu þá enn komu til
Reykjavikur kl. 19. Eftir það
hefur ekki heyrzt til vélarinnar
svo vitaö sé með vissu. Vélin
hafði eldsneyti til kl. 21.25.
Arnór Hjálmarsson og Valdi-
mar ölafsson stjórnuðu leit að
flugvélinni, er hófst þá þegar
með eftirgrennslunum. Á
sunnudagskvöld um klukkan
19.30 töldu tveir 10-12 ára dreng-
ir i Vestmannaeyjum sig hafa
séð til vélarinnar og hafi hún þá
stefnt aö flugvellinum i Eyjum.
Þetta varð til þess að leitar-
menn „kembdu” Heimey I nótt.
Jafnframt fóru á loft flugvél-
ar frá varnarliöinu en búizt var
e.t.v. við að hin týnda vél hafi
verið búin sjálfvirkum radló-
vita, en varnarliðsvélarnar hafa
tæki til móttöku merkja frá hon-
um.
1 birtingu i morgun fóru leit-
arflokkar af stað bæði frá
Reykjavlk og eins sveitir austan
fjalls. Leitarsvæðið afmark-
aðist af linu, sem hugsast dregin
frá Skjaldbreið til sjávaV og
vestur úr.
Jafnframt fóru á loft ótal leit-
arvélar. Gná og þrjár aðrar vél-
ar leituðu yfir Reykjanesfjall-
EKKERT FINNST
AF VÉLINNI ENN
garöinum og siöar fór enn ein
vél og leitaði Eyjafjalla- og
Mýrdalsjökul, og þyrla frá
varnarliðinu leitaði meðfram
ströndinni austur til Vikur fram
og til baka.
Valdimar ólafsson sagði kl.
um 10.30 I morgun að fólk á
Hellu i Reynishverfi og jafnvel
viðar hefði talið sig hafa heyrt
til vélarinnar. Allir möguleikar,
sem slikt hefði I för með sér,
hefðu þegar veriö kannaðir.
Veður var erfitt til leitar, þoka
lá á fjöllum og leitarmenn, sem
komnir voru i efstu hliðar Blá-
fjalla, voru þar I 8 vindstigum.
—A.St.
Síðustu fréttir kl. 12.05:
1 morgun tilkynntu starfs-
menn i Sigöldu, að þeir teldu sig
hugsanlega hafa heyrt til hinnar
týndu vélar um kl. 8 i gærkvöldi.
Leitarsvæðið var þvi stækkað til
norðurs og leitað úr lofti á svæð-
inu umhverfis Langjökul,
Eiriksjökul og Hofsjökul.
t Bláfjöllum I gærmorgun. Jóhann Þorvaldsson (t.v.) og Þór Þorbjörnsson eru á vakt f bll Flugbjörg-
unarsveitarinnar. Um 40 félagar þeirra voru þá dreifðir um fjöllin umhverfis —DB mynd. Bjarnleifur
Geipihœkkun á landbúnaðarvörum í morgun:
HÚSMÆÐUR ÍHUGA AÐGERÐIR
Húsmæðrafélagið ihugar að-
gerðir gegn hinni miklu hækk-
un, sem varð á búvörum i morg-
un. Hrönn Pétursdóttir, for-
maður félagsins, sagði i morgun
i viötali við Dagblaðið, að félag-
ið mundi halda fund um málið.
„Þetta hlýtur að koma ákaflega
óþægilega við marga,” sagði
hún. 1 félaginu er starfandi sér-
stök nefnd um verðlags- og
neytendamál.
Húsmæðrafélagiö hefur áður
gengizt fyrir mótmælaaðgerð-
um, þegar hækkun á landbúnað-
arvörum hefur verið hvað rót-
tækust. Húsmæður gengust
meðal annars á sínum tima
fyrir aðgerðum, sem gengu út á,
að fólk skyldi kaupa sem allra
minnst af búvörum um skeið, og
helzt ekkert.
Þessar aðgerðir drógu nokkuð
úr sölu um skeiö en urðu ekki til
þess, að verö væri lækkað.
Hækkunin I morgun er svo
mikil, að kiló af Jæri hækkar úr
363 krónum i 475, kótelettur úr
411 i 533 kilóið, kindakjöt I heil-
um og hálfum skrokkum úr 292 I
390 krónur. Lifur hækkar úr 543 I
616, hjörtu og nýru úr 359 i 408
kr. Slátur með sviðnum haus
hækka I verði úr 572 I 647 kr.
Súpukjöt hækkar einnig um
tæpan þriðjung. Hækkunin á
dilkakjöti er rúmur þriðjungur.
Hækkun á lifur, hjörtum, nýrum
og slátri með sviönum haus er
rúm 13 prósent. Hækkun á
kartöflum, miðað við 1. flokk,
eru tæp 20 prósent.
Þessi mikla hækkun er rök-
studd þannig, að bændur eigi að
fá 13,7 prósent hækkun á afuröa-
verði vegna hækkunar á laun og
annarra hækkana, svo sem á
áburði. Slátur- og heildsölu-
kostnaður sauðfjár hækkar um
heii 49,8 prósent vegna launa-
hækkana og aukins kostnaðar
við slátrunina að ööru leyti. Þá
er smásöluálagning hækkuö,
fyrst og fremst vegna launa-
hækkana. Þetta eru skýringar
Framreiðsluráðs landbúnaðar-
ins á hækkunum. —HH
frjálst, úháú dagblað
Mánudagur 15. september 1975.
ÞYRLA
GÖBBUÐ
UPP í
SIGÖLDU_
Varnarliðið var hálfpartinn
gabbað upp að Sigöldu um sjö-
leytið á laugardagskvöldið.
Lögreglan i Sigöldu hafði sam-
band við Slysavarnafélagið i
Reykjavik og óskaði eftir þyrlu,
til að sækja slasaðan mann. Þar
sem þyrla félagsins, TF-Gná, var
upptekin norður á Ströndum, var
varnarliðið beðið um að hlaupa i
skarðið, og brást það skjótt við
eins og venjulega.
Maðurinn, sem var sóttur, hafði
lent i slagsmálum uppi i Sigöldu
og var talinn talsvert slasaður.
Við rannsókn á slysadeild Borg-
arspitalans kom hins vegar i ljós
að svo var ekki, og var honum
sleppt heim eftir stutta viðdvöl
þar. -ÁT-
Friðrik jafn-
tefliskéngur
skókmótsins
Friðrik Ölafsson er jafnteflis-
kóngur skákmótsins i Middles-
borough. Hann hefur gert 10 jafn-
tefli i 11 skákum. Friðrik gerði i
gær jafntefli við Sovétmanninn
Smyslov i 30 leikjum i skák, sem
lengi lofaði góðu en leystist upp i
jafntefli.
Geller Sovétrikjunum heldur
öruggri forystu. Hann hefur 7 1/2
vinning og biðskák. t 2-3. sæti eru
Hort, Tékkóslóvakíu, og Hubner,
V-Þýzkalandi með 6 1/2. 4-5.
Bronstein. Sovétrikjunum, og
Sáx, Ungverjalandi með 6 og
biðskák. Friðrik og Tony Miles,
Bretlandi, eru i 9. sæti með 5
vinninga. Friðrik hefur setið yfir i
einni umferð eins og flestir aðrir.
Geller á eftir að sitja yfir en
helztu keppinautar hans hafa gert
það, svo að forskot hans er minna
en sýnist. — HH
HELLIDEMBAN
SKEMMDI VEGI
„Við höfum nú ekki fengiö Itar-
legar upplýsingar ennþá, en vit-
um samt að mikið tjón hefur orðið
á vegum I Vestur-Baröastrandar-
sýslu,” sagöi Hjörleifur Olafsson
hjá Vegaeftirlitinu, er við spurð-
um hann um ástand vega á Vest-
fjörðunum eftir úrhellisrigning-
una, sem gekk þar yfir I gær.
Barðastrandarvegur frá Vatns-
firði til Patreksfjarðar er lokaður
vegna skriöufalla, og er óvist
hvort takist aö opna hann i dag.
Einnig er örlygshafnarvegur ó-
fær fyrir utan Kvigindisdal. Ekki
er enn ljóst, hvaö þar gerðist, og
þvi ekki vitað hvenær viðgerö
getur farið fram.
Hjörleifur sagði að ástandið
væri langverst i Barðastrandar-
sýslu, en vegir annars staðar á
Vestfjörðum hefðu sloppið furö-
anlega. -AT-
„Engan undanslátt"
„Engan undanslátt i landhelgis-|
málinu”, er aðalinntak ályktun-
ar, sem stjórn Farmanna- og
fiskimannasambandsins gerði
núna fyrir helgina. Skorar sam-
bandið á Islendinga að standa
einhuga saman um að ekki verði
verzlað með hina nýju 200 milna
landhelgi, engir nauðungar- eða
undansláttarsamningar veröi
gerðir við aðrar þjóðir. _jbP—