Dagblaðið - 24.09.1975, Síða 24
Ráðherra hefur ákveðíð:
Bœtt úr misrétti gagnvart
eigendum skyldusparnaðar
Gunnar Thoroddsen
félagsmálaráðherra
hefur ákveðið, að bæta
skuli hag eigenda
sparimerkja, sem hafa
borið skarðan hlut frá
borði, svo að miklum
fjárhæðum skiptir, við
aðferðir Veðdeildar
Landsbankans við
útreikninga eins og
Dagblaðið hefur skýrt
frá. Hefur verið ákveð-
ið, að verðtrygging
verði að minnsta kosti
svo mikil, að reiknað
verði út f jórum sinnum
á ári i stað eins. Má
gera ráð fyrir, að
eigendur skyldusparn-
aðar fái greiddar
bætur, þótt það hafi
ekki verið fullákveðið.
Ráðherra leitaði meðal ann-
ars áiits Gauks Jörundssonar
prófessors, og var niðurstaðan
sú, að Veðdeildin hefði ekki haft
réttar aðferðir. Málið er i hönd-
um sérfræðinga ráðuneytisins
og Seðlabanka, eins og Dag-
blaðið skýrði frá i gær.
Aðferðir Veðdeildar hafa ver-
ið með þeim hætti, að menu hafa
fengið miklu minna útborgað en
verið hefði, ef féð hefði verið
fullkomlega visitölutryggt.
Maður, sem til dæmis lagði inn
10 þúsund krónur 7. marz 1969
og 5 september 1975 hefði átt að
fá 55.014.60 krónur en fékk með
þessum aðferðum aðeins
27.194.00krónur eða 49,4 prósent
af þvi, sem hefði átt að vera, ef
spariféð hefði verið fyllilega
verðtryggt.
Visitöluuppbót hefur aðeins
verið reiknuð einu sinni á ári,
miðað við 1. febrúar. Uppbótin
hefur verið lögð i sérstakan
reikning og hvorki vextir né
visitala við hana lagt. Hún hefur
miðazt við lægstu upphæð á
hverju 12mánaða timabili frá 1.
febrúar til 1. febrúr. Þessu á nú
að breyta, svo að hagur eigenda
skyldusparnaðar verði betur
tryggður.
—HH
frjálst, óháð dagblað
Miðvikudagur 24. september 1975.
Vöknuðu víð mikinn reyk og HHa
Ibúar i einni af ibúðunum að
Reynimel 88 vöknuðu við heldur
óþægilega staðreynd á 6. timan-
um i morgun. Ibúðin var full af
reyk og i henni mikill hiti, sófa-
borðið brunnið svo og teppið á
stofugólfinu að hluta.
Fólkið kvaddi til slökkvilið kl.
5.29 og réðst siðan gegn eldinum
og hafði að mestu ráðið niður-
lögum hans er slökkviliðið kom.
Auk borðsins og teppisins,
sem eru ónýt urðu þarna miklar
skemmdir af reyk. Eldsupptök
eru ókunn, en getgátur eru uppi
um, að gleymzt hafi logandi
vindlingur i bakka á borðinu.
—ASt
Ekkert varð úr sprúttsölunni
í gærkvöldi átti það sér stað
hér i borg að leigubifreiðarstjóri
hugðist selja farþega sinum
áfengi. Þeir vöruðu sig ekki á
þvi að i grenndinni voru óein-
kennisklæddir lögregluþjónar
og fylgdust með þvi sem fram
fór. Varð nú heldur skjótur end-
ir á viðskiptunum, þvi lögreglu-
mennirnir handtóku bifreiðar-
stjórann og fóru með hann á lög-
reglustöðina til yfirheyrslu i
nótt. Manninum var sleppt en
mál hans verður siðan sent
sakadómi og viðskiptavinurinn
varð af áfengislögginni. —ASt.
Brauðristin gleymdist
Brauðrist sem gleymdist i
sambandi að Smyriísv. 29 varð
þess valdandi að slökkviliðið
var til kvatt, þvi brauðristin
orsakaði mikinn reyk.Kom kall-
ið kl. 18.04 i gær. Ekki komtil
mikilla aðgerða slökkviliðsins,
en nokkurt tjón varð af reykn-
um. —■ ASt
Söguleg reynsluferð
Það fór heldur illa fyrir ung-
um pilti, sem i gærkvöldi fór
reynsluferð á vélhjóli, sem hann
hugðist kaupa. Hafði hann lokið
reynsluferðinni og allt gengið
vel, en er hann ætlaði að stiga af
hjólinu, gleymdi hann að kúpla
frá og tók hjólið mikinn kipp og
skall á húsvegg. Drengurinn
flaug með hjólinu 0g hafnaði á
rúðu og hlaut langan en ekki
djúpan skurð á höfuð. Drengur-
inn var próflaus, hugðist ganga
til prófsins, ef af kaupunum á
hjólinu yrði.
—ASt.
Biluð Ijós ollu órekstri
Biluð umferðarljós á mótum
Miklubrautar og Réttarholts-
vegar urðu e.t.v. orsök árekst-
urs er þar varð rétt fyrir kl. 9 I
gærkvöldi. Ford Cortina ætlaði
suður yfir Miklubraut af Skeið-
arvogi en Mazda-bil var ekið
austur Miklubraut. Skullu
framhorn bilanna saman og sið-
an hliðar þeirra og snerist Cor-
tinan alveg á götunni við höggin.
Kona ók Cortinunni og skarst
hún á enni án þess þó að skella á
framrúðunni. Bifreiðastjóri
Mazda-bilsins telur sig ekki
hafa verið á meira en 50 km
hraða. Þess má geta, að séu ljós
biluð ræður aðalbraut umferð-
arrétti, en þó getur ökuhraði
skipt máli. Sjónarvottar voru að
slysinu.
—ASt.
Fjórir drukknir á bílaleigubíl
Fjórir félagar, innan- og utan-
bæjarmenn, tóku sér bilaleigu-
bifreið á leigu i gær og munu
hafa verið imiklu „stuði”. öku-
ferðinni lauk kl. rúmlega 6 I
gærkvöldi, er lögregían batt
enda á hana. Voru þá félagarnir
fjórir allir orðnir allvel drukkn-
ír.
Við yfirheyrslur lá ekki ljóst
fyrir hver hefði ekið hvenær og
hvert. Tilnefndu félagarnir hver
annan I þeim efnum. Fengu þeir
félagar inni hjá lögreglunni og
vonandi skýrast málin.
—ASt.
Glaðvœrð meðal róna
Hinir svokölluðu rónar voru
þeir einu sem röskuðu ró
miðbæjarlögreglunnar i nótt.
Mun eitthvað hafa hlaupið á
snærið hjá þeim i gær og varð
lögreglan að flytja nokkra
þeirra til gistingar i fangaklef-
um, þvi drukknir fá þeir ekki
inni i gistiheimilinu i Þingholt-
unum. — ASt.
GAMLI SUMARBUSTAÐUR
INN FÆR EKKI FRIÐ
— sextón rúður í honum brotnar
„Hér i húsinu voru sextán
rúður brotnar að þessu sinni,en
þetta er ekki i fyrsta skipti sem
slikt kemur fyrir. Á siðastliðn-
um tiu árum erum við sennilega
búin að glerja fyrir um 100.000
krónur,” sagði Hermann Bridde
bakari, er hann sýndi okkur á-
standið á húsi ekkju Alexanders
Bridde, sem stendur uppi við
Breiðholtsbraut.
I kringum húsið er fallegur
skógarlundur, sem Alexander
ræktaðiuppámörgumárum og
ekkja hans hefur haldið við upp
á siðkastið. En þessi staður hef-
ur ekki fengið að vera i friði
frekar en annað, sem stendur
afskekkt. Búið er að forða öllu
úr húsinu, sem hægt er að stela,
og ráðast þvi spellvirkjarnir á
rúður og slikt til að fá skemmd-
arfýsninni fullnægt. Einnig er
gróðurinn i stöðugri hættu á
vorin vegna sinubruna.
Enn einu sinni á að skipta um
glerf gluggunum, og sagði Her-
mann, að ef nágrannarnir
myndu fylgjast með eigninni, þá
vonaðist hann til að allt fengi að
standa óskemmt til næsta vors.
—AT—
Sót- og skitaflekkirnir eru uppi
um aiia veggi og horn
farþc-gaskýlisins. (Ljósmynd
PB-Björgvin).
ÓGEÐSLEGT
BIÐSKÝLI
„Ég skil satt.að segja ekkert
iþvi,að heilbrigðiseftirlitið skuli
ekki sjá sóma sinn i þvi að loka
biðskýlinu á Hlemmi, slikur er
sóðaskapurinn þar,” sagði
maður nokkur, sem leit inn á
ritstjórn DAGBLAÐSINS og
vildi vekja athygli á ástandinu
þar.
Og satt að segja verður blm.
að lýsa sig hjartanlega sam-
mála manninum eftir að hafa
litið á ástandið. Veggir eru
svartir af skit og útkrotaðir af
alls konar vitleysu. Niður rúð-
urnar leka gulleitir nikótin-
taumar, og auk þess eru þær svo
skitugar að á þær mætti skrifa
heila blaðagrein.
Það verður að teljast furðu-
legt að ekkert skuli vera gert i
þvi að spúla skítinn út úr skýl-
inu. Þarna kemur fjöldi fólks á
hverjum degi og viðurstyggðin
blasir viðhverjum,sern vill sjá
hana. —AT—
BUSI A SJUKRAHUS EFTIR VIGSLUNA
Við menntaskólana hefur
lengi tiðkazt að þegar nýnemar
koma i skólana, veiti eldri nem-
endur þeim nokkuð óbliðar við-
tökur. Þó getur þetta gengið
fulllangt, t.d. þegar „busarnir”
eru bleyttir og kalt er I veðri, og
má þá búast við að einhverjir
verði innkulsa.
í einum menntaskólanum hér
á Stór-Reykjavikursvæðinu
varð einn businn fyrir hinni
venjulegu meðferð sem þeir fá á
haustin. Hann var eilitið veill
fyrir, en alls ekki var harkaleg-
ar farið með hann en aðra busa.
Atti hann von á spitalaplássi en
hafði ekki fengið enn. Tveim
dögum eftir inntökuathöfnina
versnaði honum svo sjúkdómur-
inn að hann neyddist til að
leggjast strax inn á spítala.
Ekki er hægt að fullyrða hvort
hann lagðist þar inn af völdum
inntökuathafnarinnar en aftur á
móti gætu stimpingarnar hafa
átt sinn þátt i þvi.
Busi þessi er nú útskrifaður af
spitalanum og orðinn heill
heilsu.
Forráðamenn skóla og nem-
enda mættu athuga að menn eru
misjafnlega upplagðir i brölt
það sem fylgir inntökunni og
ætti þvi að reyna að draga sem
mest úr valdbeitingunni sem
verður oft vart hjá eldri nem-
endum. —BH
LAGDI HENDUR A NABYLISKONU SINA
— og var auk þess kœrður fyrir óþrifnað
Það slóst heldur betur upp á
vinskapjnn milli tveggja leigj-
enda I húsi einu I Reykjavik i
gær.Maður, sem leigirherbergi
Ihúsi þessu, ogkona, sem leigir
ibúð i sama húsi, urðu ósátt.
Lauk þvi ósætti með þvi að mað-
urinn lagði hendur á konuna
heldur óþyrmilega, og var hún
flutt á slysadeild, þar sem
meiðsli hennar, sem ekki voru
þó alvarleg, voru könnuð.
Lögreglan tók manninn i sina
vörzlu og var hann enn hjá lög-
reglunni i mórgun. Lögreglan
kom I herbergi mannsins og
þótti það heldur óskemmtileg
aðkoma. Óþrifnaður og aðbún-
aður voru á þvi stigi, að ástæða
þótti til að gera heilbrigðisyfir-
völdum viðvart, og verður það
mál kannað sérstaklega.
—ASt