Dagblaðið - 12.11.1975, Blaðsíða 4
4
Dagblaðiö. Miðvikudagur 12. nóvember 1975.
BIFREIÐASTILUNG
SVARAR FYRIR SIG
hef&i sagt að við hefðum skipt um
bremsuklossaaðframan en aldrei
hreyft við afturhjólunum. Á
þessari forsendu óskaði maðurinn
eftir endurgreiðslu á reikn-
ingnum frá Bifreiðastillingunni.
Ég undirritaður bað manninn að
skilja eftir reikninginn til að ég
gæti kynnt mér réttmæti kröfu
hans.
Er ég talaði við viðkomandi
aðila hjá Hemlastillingu hf. kom i
ljós að þeir höfðu ekki skipt um
neina borða i bilnum heldur
aðeins rétt af borða og rennt
skálar, eins og kemur greinilega
fram á reikningi þeirra. Einnig er
talað um i viðkomandi grein i
Dagblaðinu að bifreiðareigandinn
hafi rökrætt um reikningana við
mig en ég staðið harður á minu.
Þegar bileigandinn kom til min
og fékk neikvætt svar við beiðni
sinni voru staddir hjá mér tveir
menn og hlustuðu á samtalið sem
var örfá orð sögð af bileiganda.
Ég fékk ekkert tækifæri til að
útskýra neitun mina, þvi að
maðurinn sagði einfaldlega að ef
ég greiddi honum ekki til baka
um 7.000 krónur þá skyldi hann
leita réttar sins á öðrum stöðum.
Með tillliti til verðlags er ekki
úr vegi að geta þess að bremsu-
klossar þeir, sem voru settir i
bilinn, kostuðu kr. 3300 auk 20%
söluskatts, en hefðu kostað kr.
5320 auk 20%, hefðu þeir verið
keyptir i umboði bifreiðarinnar,
og finnst mér það ekki benda til
þess að gleymzt hafi að hugsa um
hag viðskiptavinarins.
Einnig kemur fram i þessari
furðugrein, að ekki sé vist að allir
séu tilbúnir að greiða lögfræðingi
tugi þúsunda til að innheimta tiu
þúsund króna kröfu. Ekki kann-
ast ég við að maður, sem lætur
innheimta réttmæta kröfu, þurfi
að greiða lögfræðikostnað. — Það
lendir venjulega á þeimsem tapar
málinu.
Orðin „sama verk unnið tvisvar
og einnig greitt tvisvar” tel ég
hér með dauð og ómerk i þessu
tilfelli.
Með þökk fyrir birtinguna.
Bragi Stefánsson
í Dagblaðinu 4. nóvember
siðastliðinn birtist grein undir
fyrirsögninni „hvert á fólk
að snúa sér? Sama verk
unnið tvivegis, — og lika greitt
tvisvar!” Með þessari grein
fylgdi mynd af reikningi frá
Bifreiðastillingunni Grensásvegi
11, dagsettum 21. ágúst 1975 á bif-
reiðina R-3612. Einnig var reikn-
ingur frá Hemlastillingunni hf.
Súðarvogi 14, dagsettur 16.
október, — bilnúmer vantaði.
Einhver misskilningur virðist
hafa átt sér stað hjá eiganda R-
3612, er hann telur sig hafa tvi-
borgað rennsli á skálum og
bremsuborða, þar sem það
kemur greinilega fram á reikn-
ingnum að hann gr. fyrir skipt-
ingu á bremsuborðum og
bremsuklossum hjá Bifreiöastill-
ingunni Grensásvegi 11, en fyrir
rennsli á skálum hjá Hemla-
stiilingu Súðarvogi l4.Einnig má
athuga að annar reikningurinn er
dagsettur 21. ágúst en hinn 16.
október.
Til að rekja sögu þessa máls þá
kom eigandi umræddrar i
Bifreiðastillinguna Grensásvegi
11 og óskaði eftir því, að bifreiðin
yrði prufukeyrð vegna óhljóða i
bilnum þegar bremsað var. Það
var gert og honum siöan gefinn
ákveðinn timi til viðgerðar.
Maðurinn mætti á tilteknum tima
en taldi iskrið hafa horfiö i milli-
tiðinni og eigi þörf viðgerðar
strax.
Siðar kom hann aftur og var þá
billinn tekinn á verkstæði og skipt
i honum um bremsuborða og
bresmuklossa, sem voru orðnir
mjög slitnir. Löngu seinna kom
svo viðkomandi maður og sagði
að iskrið i bremsunum væri alveg
eins og áður. Honum var gefinn
timi til endurskoðunar á verkinu
en hann mætti ekki.
Seinna kom maðurinn aftur til
Bifreiðastillingarinnar og hafði
þá meðferðis reikning frá Hemla-
stillingu i Súðarvogi og sagði að
þeir hefðu skipt um bremsuborða
að aftan og rennt bremsuskál-
arnar. Ennfremur sagði hann að
starfsmaður sá, er vann verkið.
Jólamaturinn i höndum Hilmars verzlunarstjóra hjá Tómasi. Db-mynd BP.
NOG AF RJÚPU
EN HÚN ER STYGG
— og nú kostar hún 400 kr. út úr búð
„Rjúpnaveiðin hefur gengið
nokkuð vel og greinilega er
meira af rjúpú nú en I fyrra,
samkvæmt frásögnum sem mér
hafa borizt og einnig veit ég
það af eigin raun,” sagði Garð-
ar Svavarsson matvörukaup-
maður hjá Tómasi, Laugavegi
2, en hann er i hópi meiriháttar
rjúpnaskytta og kaupandi
rjúpu viðs vegar að áf landinu.
Tiðin hefur hins vegar verið
afleit nema fyrstu vikuna.
Margir fengu mjög góða veiði i
Borgarfirði, á Vestfjörðum og
reyndar viðar. Siðan datt veiöin
niður vegna veðráttu en er nú
aftur að lifna, nema i S.-Þing-
eyjarsýslu, en þar hefur veiðitið
’verið slæm.
Ég er sannfærður um, sagði
Garðar, að verði tiðin góð þá
verður veiðin góð.
Verð á rjúpu út úr búð er nú
400 kr. en var 300 kr. i fyrra.
Möguleikar eru á það verð geti
breytzt bæði til hækkunar og
lækkunar, eftir hvernig aflast.
Veðráttan ræður þar mestu um.
Verðhækkun nú er litil i saman-
burði við hækkun á öðrum mat,
þvi 300 kr. verðið i fyrra var
óbreytt frá árinu 1973. Raunin
hefur verið sú að þegar rjúpna-
stofn er að nálgast hámark er
rjúpnaverð likt og gerist með kg
af súpukjöti. Það er nú kr. 460
kr. kg.
Neyzla rjúpna fer i vöxt. í
fyrra seldist allt upp og skortur
var á rjúpu. Heildarveiðin i ár
ræður þvi miklu um hvort verð-
ið hækkar eða lækkar fram til
jóla. Nóg er af fuglinum en hann
er styggur meðan ekki kemur
ákveöin snjóh'na i fjöll.
Veiðikostnaður hefur mjög
hækkað, t.d. kosta skot nú frá
50-95 kr. stk. en i fyrra kostuðu
þau 20-50 kr.
—ASt.
STILLING H/F SKEIFUNNI 11
auglýsir:
Höfum opnað aftur varahlutaverzlun vora með vara-
hluti í bremsur ú bifreiðum Höfum einnig fyrirliggjandi
bremsuborða í togspil. STILLING H/F skeif nni 11,
símar 31340 og 82740